Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

30. Ágúst 2007

LÚÐVÍK: SAMEINUÐ SAMFYLKING GEGN VATNALÖGUM

Það gladdi mig að heyra í fréttum hve jákvæður þú varst í garð Össurar Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra og Samfylkingarmanns vegna ákvörðunar hans um að fram fari endurskoðun vatnalaganna. Nú á stjórnarandstaðan einmitt að taka Össur og ríkisstjórnina á orðinu og styðja iðnaðarráðherrann sem mér heyrist vera staðráðinn í því að afnema hin umdeildu einkaeignarréttarákvæði vatnalaganna. Lúðvík, þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir þingflokkinn standa órofa að baki Össurar...
Haffi

28. Ágúst 2007

VAKNIÐ ÍSLENDINGAR!

...Í raun er “markaðslögmálið” eins og það er nú túlkað af einkaauðvaldshyggjufólki, blekking og hugarórar til að verja og réttlæta óforskömmuheit og græðgissýki þess! Maður leitar eftir stórum orðum en verður nánast orðvant.
Almenningur verður að taka í taumana áður enn auðvaldið hefur stolið lýðræðinu og réttmætum eignum íslensku þjóðarinnar!  Að bíða lengur, getur reynst þjóðinni dýrt!
Það er nú í fullum gangi hjá auðvaldinu að ræna auðæfum landsins, hvort sem það er raforka, vatn eða annað,  auðæfum sem eru og eiga vera sameiginleg einkaeign allrar íslensku þjóðarinnar um ókomna tíð ...
Helgi

25. Ágúst 2007

HLEGIÐ Í BETRI BÍL

Nokkuð er nú rætt um kostnað við kaup útvarpsstjóra á bifreið sem hann kaus sér þegar Ríkisútvarpið var enn ríkisstofnun og ekki ohf. Bílamál þessi eru hugsanlega jakatoppur sem skýst fyrir tilviljun úr kafinu. Kannski er ráðslagið alvanalegt hjá ríkisforstjórum. Kannski eru þau forstjóri Tryggingastofnunar, þjóðleikhússtjóri, eða aðrir ríkisforstjórar sem röðuðust formlega í launaflokk með útvarpsstjóra þegar hann var hjá ríkinu öll á Audi Q7? Kannski þarf laun verkamanns á einu ári til að borga af bílum þess og kannski önnur til að þvo, snyrta og bóna fákana. Langar þig ekki Ögmundur til að vita það hjá Ríkisendurskoðun hvort eða hve margir ríkisforstjórar eru á bílakjörum eins og fullyrt er að útvarpsstjóri hafi verið á í fyrra? Annað smáatriði tengt Ríkisútvarpinu. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, gerði að mínum dómi heiðarlega tilraun til þess ...
Stefán

24. Ágúst 2007

SAMMÁLA JÓNI BJARNASYNI UM FJÁRLÖG OG FRAMÚRKEYRSLU

Ég er algerlega sammaála Jóni Bjarnasyni alþingismanni í umræðunni um framúrkeyrslu opinberra stofnana. Fjölmiðlar beina sjónum sínum að opinberum stofnunum og setja þær á sakamannabekk ef þær fara framúr fjárlögum. En þær hafa lögbundnum skyldum að sinna. Veikt fólk og slasað verður þannið að fá aðhlynningu á sjúkrahúsi þótt fjárveitingarvaldið hafi skammtað viðkomandi stofnun of litla fjármuni í þessu skyni. Á að vísa sjúklingum frá? Hvað ef stórslys verða? Þau geta kostað sjúkrahús milljónatugi. Jón Bjarnarson hefur talað um...
Guðrún Guðmundsdóttir

23. Ágúst 2007

HVERS VEGNA FÆR PÁLL EKKI ÞOTU?

Visir.is er að býsnast yfir því að Páll Magnússon, forstjóri RÚV ohf, aki um á dýrum bíl. Afnotagjaldsgreiðendur RÚV borgi 200 þúsund krónur á mánuði til rekstraleigu einkabifreiðar Páls. Einhver kann að spyrja hvers vegna Páll Magnússon eigi öðrum starfsmönnum RÚV ohf fremur, að fá bíl undir sig, kostaðan af skattgreiðendum. Ekki hugsa ég svo smáa hugsun. Mér finnst einboðið að...
Haffi

22. Ágúst 2007

SAMMÁLA VILHJÁLMI Þ. VILHJÁLMSSYNI!

...Ég er fullkomlega sammála Vilhjálmi Þ. borgarstjóra að ekki eigi að reka áberandi áfengisverslun í miðbæ Reykjavíkur, því það felur í sé ákveðna auglýsingu og hvetur söluna.  Ég tel áfengisneyslu mjög hættulega sem leiðir óhjákvæmilega til unglinganeyslu, sem aftur leiðir oft til hverskonar vímu- og fíknilyfjaneyslu.  Ég mundi styðja áfengisneyslubann, en geri mér fyllilega ljóst að slíkt eigi ekki hljómgrunn meðal þjóðarinnar, svo ég sætti mig við óáberandi áfengissölu ríkisins, og að það megi alls ekki leyfa sölu áfengis utan áfengisverslana ríkisins...
Helgi

20. Ágúst 2007

UM REYKINGAR Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI

Fyrir fáeinum dögum skrifaði Hafdís bréf hér á heimasíðu þína Ögmundur sem fjallaði um reykingabann á Keflavíkurflugvelli. Auðvitað hefur Hafdís fullan rétt á skoðun sinni á þessu máli, sem sýnist saklaus við fyrstu sýn.  Í yfirlætislausu lesendabréfi Hafdísar sem fyrst og fremst virðist skrifað til að taka upp hanskann fyrir reykingafólk sem þjáist af “smókleysi” eftir langt flug kemur þó fram afstaða sem ég tel afar varhugaverða svo ekki sé fastar að orðið kveðið. Hafdís bendir á að “reykingar séu skilyrðislaust bannaðar á veitingarstöðum sem öðru opinberu rými,"  og telur það hárrétt.  Þetta er auðvitað vegna þess hversu hættulegar og hvimleiðar reykingar eru, sérstaklega...
Helgi

18. Ágúst 2007

RAGNAR ARNALDS OG BERNHÖFTSTORFAN

Inngrip Ragnars Arnalds til  þess að vernda Bernhöftstorfuna var það sem skipti sköpum. Þetta þarf að koma fram í framhaldi af grein Guðjóns Friðrikssonar. Þar vantar nefnilega einn þátt málsins: Ekki þann þátt að Ragnar Arnalds menntamálaráðherra ákvað að friða torfuna. Heldur þann þátt  sem Ragnar Arnalds fjármálaráðherra var ábyrgur fyrir og laut að endurreisn torfunnar sem hefði aldrei orðið ef ríkissjóður hefði ekki sinnt verkinu af myndarskap. Og í framhaldi af því varð til Minjavernd sem hefur nú bjargað...
Sigurður Bjarnason

17. Ágúst 2007

REYKINGABANN Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Í KASTLJÓSINU

Einn af mínum uppáhaldsfréttamönnum, Helgi Seljan, fór mikinn í Kastljósi Sjónvarpsins í gær út af reykingum á Keflavíkurflugvelli. Bent var á að þetta samræmdist ekki landslögum. Reykingar væru fortakslaust bannaðar innandyra á veitingastöðum og í opinberu rými. Eflaust hárrétt. En þarf ekki að...
Hafdís

16. Ágúst 2007

SVARS ÓSKAÐ: ER KEFLAVÍK ENN HERFLUGVÖLLUR?

...Ég læt fylgja með eftirfarandi af heimasíðu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, FAA....Vildu íslenskir fjölmiðlamenn vera svo góðir að spyrjast fyrir um hvað valdi því að farþegaflugvélum sem lenda á alþjóðaflugvelli okkar eru send skilaboð um að þær séu að lenda á herflugvelli.
Áhugamaður um flugmál

15. Ágúst 2007

VERKALÝÐSFORKÓLFAR OG KJARAMISRÉTTIÐ

Við stelpurnar vorum að glugga í tekjublað Frjálsrar verslunar í matartímanum um daginn eftir að hafa slegið saman í eintak. Þar rákumst við á nokkra verkalýðsforingja sem af og til semja fyrir okkur upp á kúk og kanel eða 140 til 160 þúsund á mánuði en eru sjálfir með á bilinu 600 til 1350 þúsund krónur mánuði. Einni okkar varð á orði að best væri að fá Hreiðar Má Sigurðsson í stéttabaráttuna að því gefnu að hlutföllin milli Hreiðars verkalýðsforingja og okkar yrðu sambærileg og við núverandi kónga. Hreiðar er með 64 millj. og 872 þús. kr. betur á mánuði sem þýðir miðað við framangreindar hlutfallsforsendur milli okkar og....
Sigga Gumm.

7. Ágúst 2007

HÚRRA FYRIR RÍKISSTJÓRNINNI?

...Kaupþing-banki hefur hækkað útlánsvexti. Nú verður ennþá erfiðara að kaupa íbúð sem þó var nógu erfitt. Fyrst þrengdi Jóhanna félagsmálaráðherra að Íbúðalánasjóði með því að lækka lánshlutfallið. Það þýddi að fólk þyrfti að leita á náðir bankanna í ríkari mæli en áður. Jafnframt sagði félagsmálaráðherra að þetta væru skýr skilaboð til bankanna um að þrengja að lántakendum. Ráðherrann og ríkisstjórnin hljóta því að hafa fagnað ákaft vaxtahækkun Kaupþings-banka. Allt er því að ganga upp fyrir þau. Ekki fyrir íbúðakaupendur. Ég tek ekki þátt í ...
Haffi

1. Ágúst 2007

1200 HUNDRUÐ INN OG 1200 ÚT, OG ALMENNINGUR BORGAR

...Hefði ekki rökrétt framhald á þeirri baráttu verið að koma í veg fyrir að einstaklingur flytti suður með þær 1200 milljónir króna sem eigandinn, sjómenn og verkafólk í landi skópu saman í sjávarþorpi á Vestfjörðum í 25 ár? Þær 1200 milljónir sem einn einstaklingur fer með er nákvæmlega upphæðin sem iðnaðarráðherra ætlar okkur hinum að greiða uppí skuld Byggðastofnunar svo hún geti forðað fyrirtækjum frá fárinu sem varð þegar kvótinn var seldur! Fyrirgefðu fröken, en er ekki eitthvað bogið við þetta kerfi, sagði ...
Ólína

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta