Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

30. Apríl 2007

FRAMSÓKNARBRÆÐUR Í LYKILSTÖÐUM

Mikil átök eiga sér greinilega stað á bak við tjöldin í Framsóknarflokknum. Klíkan sem nú ræður þar á bæ hikar ekki við, 2 vikum fyrir kosningar að skipta um stjórnarformann Landsvirkjunar. Jóhannes Geir er greinilega ekki lengur í réttu klíkunni. Hann varð að víkja fyrir Páli Magnússyni, fyrrverandi aðstoðarmanni Valgerðar Sverrisdóttur. Öllum meðulum er beitt til að trygga sér áframhaldandi valdastöðu í samvinnu við þau ofursterku fjármálaöfl sem að baki flokksins standa. Aðilarnir sem leggja flokknum til fjármagn til að hann haldi völdum svo lengi sem sætt er, leggja að sjálfsögðu línurnar um væntanlega "einkavinavæðingu" orkufyrirtækjanna. Þar þarf nauðsynlega að hafa trygga menn í lykilstöðum. Þar ber Páll greinilega af öðrum, verandi bróðir Árna Magnússonar, fyrrverandi félagsmálaráðherra Framsóknar, sem ...
Ísmann

29. Apríl 2007

UDE AT SVÖMME

Allan þann tíma sem Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur verið á sundi í laug í öðru kjördæmi og í hvert skipti sem hann hefur bætt á sig enn einni samlokunni hef ég velt fyrir mér skilaboðunum í auglýsingunni. Og ég viðurkenni að ég er alveg rugluð. Grettissundið, hinn sterki, gæti verið stef, en þá þvælist samlokan fyrir. Samlokan tákn óhollustunnar. Formaðurinn syndir gæti verið tilvísun í hinn sterka leiðtoga, t.d. Maó formann sem sagður er hafa synt jafn lengi í Gula-fljóti og búast má við að Jón syndi nú í Kópavogslauginni fyrir kosningarnar. Kannske eru...Hugurinn leitaði norður í Öxnadal þegar ég sá að Sjálfstæðisflokkurinn reynir nú að höfða inn á miðjuna með lánsslagoði gamla Alþýðuflokksins og mér datt í hug:
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.
Hverjar skyldu nú vera ærnar, kýrnar, og smalinn í auglýsingum Sjálfstæðisflokksins?
Ég læt þér eftir að ...
Ólína

28. Apríl 2007

VELSÆLD MÆLD Í MEGAVÖTTUM

Það vantar sannarlega ekki á merkar yfirlýsingar nú í aðdraganda alþingiskosninga. Jóhannes Geir stjórnarformaður Landsvirkjunar til 10 ára fengi nokkuð örugglega bikar, ef um "markverðar" yfirlýsingar væri keppt, þegar hann í gær tjáði fréttamönnum, tárvotum augum að hann skildi ekki hvers vegna sér væri nú hafnað. Hann færi ekki fram á að fá að sitja nema ár til viðbótar sem stjórnarformaður. Hann bætti því síðan við að í sinni stjórnartíð hefði raforkuframleiðsla Landsvirkjunar í megavöttum talið tvöfaldast og hagsæld þjóðarinnar að sjálfsögðu samsvarandi! Þetta minnir á viðhorfin og áróður í Sovétríkjunum í tíð Stalíns. Þá var fólki talin trú um að auknu framleiðslumagni talið í milljónum tonna fylgdi sjálfkrafa samsvarandi aukin lífsgæði...
Nú ríður á að þessi þagnarmúr spillingarinnar verði rofinn...
Ísmann

27. Apríl 2007

LITLI OG STÓRI

Fyrir ekki löngu síðan tók Morgunblaðið upp á því að birta “fréttaskýringar” á forsíðu. Knappar í forminu og tilraunin hefði getað orðið skemmtileg nýbreytni. Fersk eins og nýi framkvæmdastjórinn í góðra vina hópi. Mér þótti Agnes Bragadóttir brotlenda tilrauninni með “fréttaskýringu” um afdrif auðlindamálsins á Alþingi og um álverskosningarnar í Hafnarfirði. Í báðum “fréttaskýringunum” kom fram að blaðamanni Styrmis virtist eitthvað uppsigað við Samfylkinguna. Var Össur Skarphéðinsson svo af einhverjum dularfullum ástæðum, sem enn hafa ekki verið opinberaðar, notaður til að berja á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Hinn fréttaskýrandi blaðamaður bað svo...Getur verið að það sé þess vegna sem menn skrifa ekki fréttaskýringar um ríkisfjármálin, að það sé einfaldara og betra í flokkspólitískum tilgangi að halda sig bara við frasana, sem svo auðveldlega geta leitt menn inn á refilsstigu? Mér finnst Davíð heill, en hinir ekki...
Ólína

27. Apríl 2007

EINAR EYJÓLFSSON OG NORÐMENN

Eyfirðingur hefur nú gert samning fyrir hönd stjórnvalda hér um að Íslendingar greiði fyrir veru norskra hermanna sem kynnu að vilja æfa vopnaskak á íslensku landi. Um leið og hætta skapaðist í heimi hér hyggjast Norðmenn hverfa á brott og vilja í engu verja “alþýðu karla og kvinna, unga menn og gamla, sæla og vesla” komi til átaka. Af þessu tilefni er rétt að nefna ræðu Einars Eyjólfssonar Þveræings sem hann flutti þá Ólafur Haraldsson sendi út hingað...Og þegar er Einar hafði þetta mælt og innt allan útveg þenna þá var öll alþýða snúin með einu samþykki að þetta skyldi eigi fást. Sá Þórarinn þá erindislok sín um þetta mál.” 
...Ekki legg ég mat á þetta ráðslag. En óhætt er að segja að nú er nyrðra önnur öld og aðrir siðir...
Stefán

26. Apríl 2007

FRAMSÓKN AÐ STELA FORMENNSKU Í LANDSVIRKJUN

Hvað var Jón Sigurðsson að gera með Rannveigu Rist á bak við luktar dyr iðnaðarráðuneytisins? Hvernig stendur á því að enginn reynir að ganga á eftir honum með beittar spurningar um málið? Hann neitaði blaðamanni strax eftir fundinn með Rannveigu og hann kemst enn upp með það að segja ekki neitt. Það er ekki hægt. Langlíklegast er að hann sé að lofa Alcan álveri á Keilisnesi. Er það svo? Ég skora á  blaðamenn að knýja fram niðurstöðu í málinu. Margt bendir til þess að niðurstaðan - þrátt fyrir allt talið um stóriðjustopp  - verði stóriðjusvindl. Og nú er Framsóknarflokkurinn að tryggja  sér ...
Sigríður Þórarinsdóttir

26. Apríl 2007

ÍSLAND Í KJARNORKUKLÚBBINN?

....Hvað varðar áhrif á mannlífið gæti ég trúað að Írakar hefðu verið betur staddir ef kjarnorkusprengju hefði verið varpað á Baghdad! Evrópa án kjarnorkusprengja er verðugt markmið. En ef hún er markmið út af heimsöryggi, held ég að það séu fleiri atriði til að hugleiða. Og ef við hér á litla Íslandi erum of áhrifalítil til að fá nokkuð í þessu gert, eigum við þá ekki bara að skella okkur í kjarnorkuklúbbinn og láta í okkur heyrast? Ég hugsa að það væri ekki mikið dýrara ævintýri en Kárahnjúkar.
Herbert Snorrason

25. Apríl 2007

ER EITTHVAÐ AÐ?

Svo er Sjállfstæðisflokkurinn að fá meirihluta og það er haldið áfram með framkvæmdir; nú í Helguvík og Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra situr á leynifundum með Alcan um Keilisnes.
Ætlar kosningabaráttan að láta þetta fara fram hjá sér?
Stærri Sjálfstæðisflokk en nokkru sinni fyrr.
Nýtt álver í Helguvík.
Nýtt álver í Keilisnesi.
Er eitthvað að; á sljóleikinn að ráða kosningaúrslitunum?
Sigríður

23. Apríl 2007

VARÚÐ: ÞAÐ ER HÆTTA TIL HÆGRI !

Er einhver hætta á því að kjósendur verði látnir gleyma Kárahnjúkavirkjun í kosningunum 12. maí eins og þeir "gleymdu" Kárahnjúkavirkjun fyrir fjórum árum? Hvaða flokkur stóð þá vakt - aleinn?
Er einver hætta á því að kjósendur gleymi ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um að styðja  innrásina í Írak? - Hvaða flokkur hefur verið á þeirri vakt um sóma íslensku þjóðarinnar?  Oft aleinn.
Er einhver hætta á því að kjósendur gleymi vaxtaokrinu? Hvaða flokkur hefur talað skýrast um ruðningsáhrif stóriðjustefnunnar sem eru að birtast í vaxtaokri og byggðahruni?
Er einhver hæta á því að kjósendur gleymi Halldóri og Davíð?
Er ekki allt í lagi að...
Sigríður

22. Apríl 2007

VANÞEKKING OG AUMINGJAGÆSKA

...Samkvæmt skoðanakönnunum um helgina eru ríkisstjórnarflokkarnir að sækja í sig veðrið. Ástæðurnar eru mismunandi. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur þess að enginn virðist lesa stefnuskrá hans. Fólk virðist einfaldlega ekki þekkja til áforma Sjálfstæðisflokksins. Niðurlægingu Framsóknar þekkja flestir. Ég held að aukið fylgi þess flokks samkvæmt könnunum megi rekja til þess hve góðhjörtuð þjóðin er. Fólk vilji vera gott við þennan guðsvolaða flokk, veita honum hjálp og líkn. Þetta er það sem stundum er kallað aumingjagæska. Ertu sammála þessu mati Ögmundur? Hitt verða menn að hugsa í alvöru og það er þetta sem ...
Haffi

20. Apríl 2007

MÁ SPYRJA, KANNSKI?

...Og auðvitað er útkoma hinna flokkanna eftir því, nema auðvitað Vinstri grænna sem eru alltaf til vandræða; þeir eru samt - SAMT - með 20 % nærri því fimmta hvern kjósanda. Nú skal því spáð hér að þetta verði öðru vísu eftir viku þegar landsfundaeffekktinn fjarar aðeins út. Stóra skoðanakönnunarfyrirtækið hefði átt að geta þessara hugsanlegu skýringa í greinargerðum sínum í smáa letrinu. Var það kannski gert? Ekki sá ég það; en aðalaatriðið er að Guðmundur Steingrímsson var glaður og brosti gegnum 18 % tárin.
En kannski má ekki spyrja svona spurninga eins og hér er gert; þær eru örugglega ekki í handritinu.
En ég spyr samt.
Sigríður Þórarinsdóttir

20. Apríl 2007

HVAÐ SEGIR VG UM PALESTÍNU?

...Hver er stefna ykkar varðandi deilur Ísraelsmanna og Palestínumanna? Teljið þið það mikilvægt að viðurkenna tilvist Palestínu sem sjálfstæðs ríkis...?
Guðbjörn Dan Gunnarsson

19. Apríl 2007

HÖFUÐBÓLIÐ OG HJÁLEIGAN

...Mér finnst full ástæða til þess Ögmundur að þið þvingið það upp úr forystu Samfylkingarinnar hvort sá flokkur hefur í hyggju að vera ekki bara hækja, heldur bókstaflega göngugrind, fyrir þreyttan Sjálfstæðisflokk. Tónarnir sem heyrðust á landsfundi Samfylkingar, hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í sjónvarpi að loknum þeim fundi og hjá þeirra fyrsta manni í SV í kvöld, finnst mér gefa tilefni til að SF svari því á hvaða leið þau eru. Við sem viljum jafnaðarstjórn og ætluðum að kjósa Samfylkinguna flytjum okkur þá bara yfir á ykkur og tryggjum Samfylkingunni klassískt Alþýðuflokksfylgi. Ekki kýs maður Samfylkinguna til að mynda velferðarstjórn með Sjálfstæðismönnum eftir að hafa haft þá við stjórnvölinn í 16 ár. Það væri þá betra fyrir þá, sem trúa að leiðin að innsta kjarna jöfnuðar liggi í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, að fara beint á höfuðbólið og ...
Stefán

19. Apríl 2007

JÓNÍNA BJARTMARZ LEIKUR Í VERULEIKASJÓNVARPI RÍKISSTJÓRNARINNAR

Það er í raun ótrúlegt  hve ráðherrar leggjast lágt í því að koma sér á framfæri. Síðasta dæmið er frá því gær, þar sem Jónína Bartmarz er stödd á strandstað Wilson Muuga, þar sem næstum má halda að þar hafi hún haft forystu um björgun skipsins.
Þessu var því miður þveröfugt farið, pappírsdýrin í umhverfisráðuneyti Jónínu voru búin að þvæla málið fram og til baka. Enda þótt skipið væri íslenskt, var það með hentifána frá Kýpur, þannig að stjórn Nesskipa og  Guðmundur Ásgeirsson stjórnarformaður útgerðarfélagsins, gátu leikið sér með umhverfisráðuneytið og firrt sig allri ábyrgð. Í þessari stöðu átti ráðherra og ríkistjórnin öll að taka af skarið.
Hvað um það ekkert gerist í málinu fyrr en ráðnir eru til verksins hörkutól sem ...
Rúnar Sveinbjörnsson

18. Apríl 2007

HRIKALEGAR HÓTANIR

Margt er gott í ályktunum landsfundar Sjálfstæðisflokksins, einnig um  velferðarmál, en þar birtast líka hrikalegar hótanir um grundvallarbreytingar á velferðarkerfinu.  Dæmi:
1.  "Landsfundurinn vill nýta kosti fjölbreyttra rekstrarforma á sem flestum sviðum og tryggja þannig hagkvæma nýtingu opinbers fjármagns." Hér er semsé lögð áhersla á einkarekstur í heilbrigðiskerfinu; tvöfalt kerfi.
2. "Sjálfstæðisflokkurinn vill viðhalda almannatryggingum og að heilbrigðisþjónusta sé að mestu greidd úr sameiginlegum sjóðum." Á Norðurlöndunum hinum er heilbrigðisþjónusta ókeypis. Ég hef séð að VG vill fella niður sjúklingagjöld. Þannig á það að vera.
 3.  "Fundurinn telur að...
Sigurður Bjarnason

17. Apríl 2007

HVERS VEGNA ER VG ANDVÍGT VATNALÖGUNUM?

...Ég hef mikið velt einu fyrir mér varðandi deilurnar um vatnalögin nýju sem þið Vinstri-græn eruð svo ákaflega á móti. Af hverju er það svo, þegar að allir lögspekingar þessa lands telja að ekki sé um breytingu á núverandi réttarástandi? Er ekki hin raunverulega staða sú að um er að ræða einföldun á löngum og flóknum lögum?
Hafsteinn

16. Apríl 2007

ÍHALDIÐ HÓTAR AÐ EINKAVÆÐA HEILBRIGÐISKERFIÐ

...Samfylkingin talar mikið um það að hún sé nútímaleg eins og fyrri daginn en erfitt er að fá skilgreint hvað þar er átt við. Það ætti að vera viðfangsefni fjölmiðla. Íhaldið talar hins vegar skýrt og vill einakvæða raforkugeirann og heilbrigðiskerfið. Hvers vegna fjalla fjölmiðlar ekki gagnrýnið um þessar hótanir Íhaldsins?
Haffi

15. Apríl 2007

UM EFTIRLAUNAFRUMVARP OG SAMSTARF VG OG S

...En ég minni á það sem ég áður hef sagt að samstarfið þarf að vera mjög skilyrt. Semsagt ákveðið en skilyrt. Samfylkingin hefur nefnilega daðrað mjög við peningaöflin og þegar ISG talar um afturhaldssemi hef ég grun um að hún sé að agnúast út í það sem aðrir nefna prinsippfestu í vörn fyrir velferðarkerfið. Annars skrifa ég þetta fyrst og fremst til að taka undir með Pétri Tyrfingssyni í Silfrinu í dag og leiðrétta það hjá þér Ögmundur að Samfylkingin samþykkti ekki andstöðu við eftirlaunafrumvarpið eins og þú segir á síðunni þinni. Málið var sett í nefnd!
Sunna Sara

14. Apríl 2007

KEMST ÞÓTT HÆGT FARI Í TANNVERNDINNI

Grímur nokkur skrifaði hér á síðuna á dögunum og býsnaðist mikið yfir kynningu á kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins. Jón Sigurðsson formaður flokksins hefði komist svo að orði að þetta “væru ekki loforð heldur stefna”. Ekki er ég alveg sáttur við skrif Gríms sem segir að það sé "svosum ágætt að Framsókn hætti að lofa því allt svíkur hún." Þarna finnst mér hann vega ómaklega að Framsóknarflokknum því ekki verður það af flokknum skafið að hann hefur sýnt einmuna stefnufestu í kosningastefnuskrám sínum allt frá fæðingu, árið 1916.
Þessu til sönnunar vil ég bara benda á eitt dæmi hér um en það varðar ...
Þjóðólfur

13. Apríl 2007

UM AÐ HAFA SKOÐANIR

...Guðfríður Lilja sem var í Silfri Egils 1. apríl sl. og þetta er ekki aprílgabb, sagði að bæjarstjórnin í Hafnarfirði hefði átt að segja sína skoðun opinskátt um stækkun álversins í Straumsvík. Einhver kynni þá að líta svo á að bæjarstjórnin leiddi annan hópinn. Ég tek annars ofan af fyrir ...
Jón Þórarinsson

11. Apríl 2007

STJÓRNARFLOKKARINR VEKJA HROLL !

Allir ráðherrar Framsóknarflokksins birtust á fréttamannafundi í gær til að kynna stefnu sína. Jón Sigurðsson, formaður flokksins, kynnti útgjaldapakka sem mér skyldist að slagaði í tuttugu milljarða. Hann sagði að þetta væru ekki loforð heldur stefna! Hvað þýðir þetta? Það er svosum ágætt að Framsókn hætti að lofa því allt svíkur hún. En eru það ekki áherslur og stefna sem flokkarnir eru almennt að boða? Ég bara spyr. Þessi framsetning Framsóknar minnti hins vegar rækilega á öll sviknu loforðin.
Og Íhaldið er byrjað að lofa eða öllu heldur hóta áframhaldandi ...
Grímur

10. Apríl 2007

VILJA MENN FÁ LÍFEYRISÞEGA Á VINNUMARKAÐ?

Nú mun það víst vera svo, að lífeyrisþegar mega vinna sér inn 300.000 krónur á ári, áður en til skerðinga bóta kemur. Ég fór að skoða dæmið frá svolítið annarri hlið en þessari hefðbundnu, þ.e. gaman, gaman nú fara allir öryrkjar og ellilífeyrisþegar, sem vettlingi geta valdið, út á vinnumarkaðinn og bæta þar með bæði kjör sín og andlega líðan. Þetta er nú samt kannski ekki alveg svona rósrautt og fallegt, eins og e.t.v. má sjá hér á eftir...
Þórhildur Richter

9. Apríl 2007

HANDBREMSUSTOPP FRAMSÓKNAR

Þarf ekki að losa um einhverja skrúfu hjá Jóni Sigurðssyni, formanni Framsóknar eða hefur kannski einhver skrúfa forskrúfast í forritinu hjá honum? Það er augljóst að ráðgjafar Jóns og félaga segja þeim að hamra á því að stjórnarandstöðuflokkarnir vilji stoppa þjóðfélagið með því að hafna stóriðjustefnu Framsóknar. Í samræmi við þetta gengur nú á með einhverjum stopp/start, stopp,stopp,start/stopp aula-málflutningi. Síðan heyrist mér verið að reyna að koma handbremsu inn í þennan málflutning Framsóknarflokksins. Er hægt að ætlast til þess að ...
Haffi

8. Apríl 2007

EKKI GLEYMA EINSTÆÐUM FEÐRUM

Hvað varð um einstæðu feðurna hjá ykkur, eruð þið ekki orðnir of uppteknir af málefnum kvenna. Ég og mínir líkar eigum líka rétt á að vera til og hafa efni á því að taka þátt í þessu þjóðfélagi. Hvað ætlið þið að gera í málefnum einstæðra feðra? Þetta er verst setti hópur þjóðfélagsins en við virðumst vera hinir ósnertanlegu...
Arthur Þorsteinsson

7. Apríl 2007

EINKAREKSTRUR EÐA EINKAVÆÐING?

Mér leikur hugur á að vita hver munurinn er á einkavæðingu og einkarekstri, að þínum dómi. Þar á ég sér í lagi við heilbrigðis- og menntakerfi. Sem dæmi má nefna hvort þú telur það einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu þegar sérfræðilæknar reka læknastofur úti í bæ og hið opinbera greiðir kostnað vegna sjúklinga eða hvort það sé ...
Sigurður Hannesson

6. Apríl 2007

SA Í EIGIN HEIMI?

Lifa samtök atvinnulífsins í eigin heimi þegar þau mæla með stóriðju...? 
Jón Þórarinsson

5. Apríl 2007

HVAÐ VAKIR FYRIR "FRÉTTASTOFU" RÚV?

Ég vil leyfa mér að spyrja hvort viðtal í fréttatíma RÚV við Halldór Ásgrímsson, diplomat Íslands (okkar allra) á Norðurlöndum, í upphafi vikunnar hafi átt að þjóna einhverjum fréttatengdum tilgangi eða hvort einfaldlega var verið að reyna að gleðja tiltekinn stjórnmálaflokk sem ég varla nenni að nefna á nafn? Diplómatinn hafði akkúrat ekkert fram að færa í viðtalinu annað en að hann teldi að gamli flokkurinn sinn myndi reisa sig við fyrir komandi kosningar og að VG væri ekkert annað en loftbóla! Getur verið að "fréttastofa" RÚV líti á sig nú orðið sem eins konar loftbólu fréttamiðil? Öðru vísi mér áður...
Haffi

4. Apríl 2007

LÁTUM EKKI FÁTÆKT ÚTILOKA FÓLK FRÁ ÞJÓÐFÉLAGINU

...En þótt mér finnist VG mega gera betur þá hefur flokkurinn staðið velferðarvaktina langt umfram aðra flokka. Það gladdi mig mjög að lesa grein Gests Svavarssonar í Morgunblaðinu: Frelsi frá fátækt, menntunarleysi og veikindum. Hann hittir naglann á höfuðið. Fátækt útilokar fólk frá menntun og heilbrigðisþjónustu. Það er eitthvað meira en lítið að þegar svo er komið í þjóðfélagi sem vill láta kalla sig velferðarþjóðfélag! Þú ættir að fá Gest til að birta grein sína hér á síðunni...
Pétur Jónsson

3. Apríl 2007

HAFNARFJARÐARSIGRI ÞARF AÐ FYLGJA EFTIR Í VOR

Mig langar til að óska Hafnfirðingum til lukku með mjög afgerandi niðurstöðu í kosningunni í fyrradag. Og ekki síst er það baráttu mjög margra sem líst ekkert á hvert stefnir í atvinnumálum þjóðarinnar ...Þið þingmenn VG eigið sérstaklega þökk fyrir að gefa okkur frumkvæðið að þeirri hugsun að þetta væri ekki ómögulegt! Til lukku!!! Og við skulum fylgja þessu rækilega eftir í kosningunum í vor!!
Guðjón Jensson

3. Apríl 2007

MISRÉTTIÐ ER MESTA MEINSEMDIN

VG þarf að vera meira afgerandi varðandi velferðarmálin og í tillöguflutningi um að útrýma fátækt í landinu. Umhverfismál eru góðra gjalda verð en ég sakna þess að rætt sé af alvöru um velferðarmálin og hrikalegt misrétti sem ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur skapað í landinu á undanförnum árum. Hvers vegna er ekki meira hamrað á þessu málefni. Þið eruð eini flokkurinn sem er trúverðugur þegar velferðaþjónustan er annars vegar. Mér sýnist allir hinir flokkaarnir vilja einkavæða og þar með gera námsfólk og sjúklinga að ...
Sunna Sara

2. Apríl 2007

FER SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN LÍKA?

...Varðandi bankana sem munu fara úr landi ef ekki skattalöggjöfin er einsog þeir vilja hafa hana. Er ekki aðallega verið að tala um eigendurna? Borga ekki útibúin skatta í þeim löndum þar sem þau eru rekin. Vilja eigendur bankanna bara vera Íslendingar, að því tilskyldu að þeir fái vilja sínum framgengt? Hver er á munurinn á þeim og Alcan? Er það ekki ofbeldi að tala í hótunum? Myndast kauptækifæri ef "bankarnir" fara? Taka þeir með sér útibúin? Starfsfólkið? Byggingarnar? Þjónustuna? Eignirnar? Hverjir verða eftir? Bara Íslendingarnir? Verða þá allir atvinnulausir? Verða allir fátækir? Mun Hannes Hólmsteinn fara með þeim? Það er ekki verið að tala um...
Hjörtur

1. Apríl 2007

STÆKKUNARSINNI EN EKKI ÓSÁTTUR

...Ég var svipaðrar skoðunar og þú Ögmundur árið 1995 þegar álverið var stækkað því þú studdir það eins og þú hefur upplýst. Ég var ánægður að heyra það. Ég er þér hins vegar ekki sammála að aðstæður séu allt aðrar nú en þá. Þá þoli ég ekki þetta röfl um að álver séu slæmir vinnustaðir. Það hefur mikið gerst í aðbúnaði og mengunarvörnum álvera frá því álverið í Straumsvík tók til starfa!
En ástæðan fyrir því að ég er ekki óánægður með þessa niðurstöðu þótt ég sé stækkunarsinni er að ég hefði ekki getað hugsað mér að ..
Fyrrverandi starfsmaður í Straumsvík

1. Apríl 2007

STÓRKOSTLEG TÍÐINDI ÚR HAFNARFIRÐI

...Hafnfirðingar kjósa fjölbreytt atvinnulíf, hreint andrúmsloft og vilja hlífa náttúrunni. Lýðræðið vann sigur á peningavaldinu. Þann 12. maí kjósum við öll stóriðjustefnuna burt og tryggjum samfélagi og náttúru á Íslandi bjarta framtíð. Við snúum við blaðinu og kjósum nýja ríkisstjórn. Hafnfirðingar gáfu tóninn...
Svandís

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta