Frá lesendum
31. Mars 2007
UPPLÝSINGA ÓSKAÐ UM KOSNINGAR Í VOR
... Ég er komin á lífeyri frá LSR og til að ná endum saman erum við hjónin búsett á Spáni megnið af árinu. Spurningin er; Þar sem við hjónin erum stuðningsmenn VG og verðum ekki á Ísl. þegar kosið verður til Alþingis. ...
G.J.
G.J.
31. Mars 2007
ÚRSLITIN Í HAFNARFIRÐI MUNU HAFA LANDSÞÝÐINGU
...Hvernig stendur á því að ríkisstjórn Íslands stígur ekki fram og stoppar þennan yfirgang auðhringsins til dæmis með einu símtali? Í staðinn fer ríkisstjórnin í veislu austur á Reyðarfirði ekki af neinu öðru tilefni en því að með þvi móti telja ráðherrarnir sig vera að hjálpa systurhringnum í Hafnarfirði. Þar, á Reyðafirði, verður haldin veisla í kvöld segir Morgunblaðið. Ísland á þá, vona ráðherrarnir að verða vafið álljóma frá ystu víkum um allt land hringinn til Hafnarfjarðar. Er þetta smekklegt, má ég spyrja? Þau verða þarna fyrir austan Valgerður Sverrisdóttir, Geir H. Haarde og svo blesssaður kallinn hann Jón Sigurðsson; mig tekur sárt að sjá hann í álfjötrunum. Sjálfsagt er honum...
Runólfur
31. Mars 2007
ALLT FYRIR ATKVÆÐIN?
...Á að fá atkvæði núna: Húsavík fegursti staður á jarðríki!!!!Mér finnst Mývatnssveitin falleg en ég er nú kannsi ekki hlutlaus þar. Ég bý ekki á Húsavík og það þarf að skapa störf fyrir fólkið sem er hér. Þau störf sem þú ert að óska / vona að verði til með stafstöðvum alþjóðlegra tölvufyrirtækja til dæmis eru ekki fyrir alla sem búa hér núna. Hvað með það fólk? Stór hluti þeirra sem vann í "Kísel" var og er ...
Unnur
Unnur
31. Mars 2007
HVAÐ MEÐ UMHVERFISSKATT?
...Sem sagt nettóhagnaður fyrirtækisins verður um 430 milljóna króna lægri skattgreislur! Margur myndi hoppa hæð sína fyrir minni ávinning!! Nú er spurning hvort ekki sé sérstakt lag af þessum ástæðum að leggja fram frumvarp um umhverfisskatt á mengandi starfsemi t.d. álver? Við þurfum t.d. að leggja mjög mikla fjármuni til að binda koltvísýring með skógrækt. Kostnaður getur farið í milljón krónur vegna hvers hektara lands og því mikils um vert að leggja skatt á álfyrirtæki og aðra stóra aðila í mengun. Ég hefi í hyggju að skrifa meira um þetta mál en sennilega verður ekki af birtingu á því fyrr en eftir kosningar. Legg eindregið til að opna umræðu sem allra fyrst um þetta mikilsverða efni. Með því leggjum við auk þess mikilsverðan stuðning við ...
Guðjón Jensson
Guðjón Jensson
30. Mars 2007
MISVÍSANDI AUGLÝSINGAR
Ég er sammála því sem fram kemur á blogsíðu Hafnfirðingsins Árna Guðmundssonar að vafasamt í meira lagi er hvernig Fjarðarpósturinn hanterar grein þína Ögmundur í síðasta tölublaðinu fyrir hinar örlagaríku kosningar um stækkun álversins í Straumvík. Þú ert andvígur stækkun. Hins vegar kemur það ekki fram í fyrirsögn greinar þinnar. Inn í hana er hins vegar sett auglýsing ...
Haffi
Haffi
30. Mars 2007
ALLIR Í KAFFIBANDALAGIÐ?
Ef Vinstri græn, Samfylking, Frjálslynd, Íslandshreyfingin og Framboð aldraðra og öryrkja myndu öll bjóða fram undir merki kaffibandalagsins yrði það ekki nóg til að koma í veg fyrir að ...
Jón Þórarinsson
Jón Þórarinsson
30. Mars 2007
BER ALCAN ENGAR SKYLDUR?
Mig langaði til að spyrja þig hvort þér finnist ekki Alcan gera í raun lítið úr núvernadi starfsfólki sínu þegar gefið er í skyn að það verði að loka því álveri sem nú er í Straumsvík ef ekki fæst heimild til stækkunar, af því það verði svo fljótt úrelt. Hvað með allan mannauðinn, tækni- og verkþekkingu og öflugt starfslið? Er allt jákvætt tal um slíkt bara ...
Friðrik Dagur Arnarsson
Friðrik Dagur Arnarsson
29. Mars 2007
ALÞINGISKOSNINGAR OG MÁLEFNI NÁMSMANNA
...Það vekur alltaf jafn mikla furðu hjá mér að málefni námsmanna skuli gleymast og hverfa fyrir hverjar einustu kosningar. Stundum hef ég það á tilfinningunni að við séum þjóðfélagshópur sem að skiptir engu máli hjá stjórnmálamönnum á Íslandi í dag. Það væri gaman að heyra frá þér hvort að þinn stjórnmálaflokkur ætli að beita sér í málefnum námsmanna. Það fer allavega lítið fyrir þeirri baráttu miðað við umræðuna eins og hún er í dag. Það er eins og að það gleymist hversu stórt hlutfall kjósenda við erum í raun og veru...
Jón Hnefill Jakobsson
Jón Hnefill Jakobsson
28. Mars 2007
ORÐIN ÞREYTT Á AÐ BÍÐA
Ég var nú búin að ákveða að hætta að fylgjast með fréttum í byrjun mars þar sem einhæf framboðsumræða er ekki spennandi. En ég get ekki annað en fylgst með, það sem þú skrifar um fundinn á Húsavík 26. mars er alveg.... Hvað ANNAÐ á að gera í atvinnumálum Norðlendinga?? Við í Mývatnssveit erum búin að bíða þess að þetta "eithvað annað" komist á legg síðan Kiseliðjunni var lokað en það gerist ekkert. Ég veit ekki til þess að ...
Unnur Sig.
Unnur Sig.
28. Mars 2007
ÁHUGAVERÐ HEIMSÓKN
...Listaháskóli Íslands kynnir stórviðburð fyrir áhugafólk um listir, stjórnmál og hugvísindi: Slóvenski heimspekingurinn Slavoj Žižek er væntanlegur til landsins og heldur fyrirlestur, föstudaginn 30. mars. Can Art still be Subversive? er yfirskrift fyrirlestrarins, sem verður fluttur í sal 132 í Öskju, kl. 16:30. Þá heldur Žižek fyrirlestur kl. 11 að morgni sama dags, við Háskólann á Bifröst: Tolerance as Ideology. Žižek er prófessor við Háskólann í Ljubljana, en hefur einkum...
Haukur Már Helgason
Haukur Már Helgason
27. Mars 2007
HVER BORGAR BLOGGIÐ?
Það er ekki bara að framsóknarbloggarar ljúgi upp á Steingrím J. og Geir Haarde. Nú er vörn Péturs Gunnarssonar að verja sig með því að kenna um heimildarmanni sínum sem var fullur á bar í Reykjavík og hafði þar eftir öðrum fyllri söguna um fund Steingríms J. og Geirs Haarde. Var hann ekki blaðamaður útfarinn í vönduðum vinnubrögðum Moggans þessi drengur eins og forseti borgarstjórnar? Fennir fljótt í þau spor. Bloggarinn ungi kann greinilega ekki að ...
Þór
Þór
27. Mars 2007
VIRÐUM STARFSHEIÐURINN
Gott þið viljið virkja! Ég hef þá misskilið ykkur fram til þessa dags en ef VG vill virkja er allt í fína lagi! Varðandi áhættumat þá vil ég segja þetta. Ég er sjálfur verkfræðingur og þekki talsvert til við hönnunarferli. Það er einhver mikill misskilningur á ferðinni eða eitthvað annað. Áhættumat heitir á ensku Risk Assessment og er notað til að meta áhættu af notkun þeirrar vöru sem hönnuð er t.d. vélum af ýmsum gerðum, rafföngum og einnig mannvirkjum á borð við stíflur. Það er oft hluti af hönnunarvinnu að gera áhættumat og þá ber hönnuðinum sjálfum að meta áhættuna, gera matið. Það er óþarfi af stjórnmálamönnum að láta svo líta út sem eitthvað gruggugt sé við það...
Sveinn V. Ólafsson
Sveinn V. Ólafsson
26. Mars 2007
SENDIHERRA "FRÆÐIR" HÁSKÓLASTÚDENTA UM ÍRAK
þar sem þér er málið skylt bendi ég á vefslóð þar segir frá því plani sem umræða um innrásina í Írak var á í íslenskum háskóla fyrir fjórum árum. Kennari var helsti ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í öryggismálum, Albert Jónsson, sem nú gegnir stöðu sendiherra. Sjá hér...
NN
NN
25. Mars 2007
MÉR VERÐUR ÓGLATT!
Sunnudags-Mogginn flytur forsíðuákall þeirra Páls Magnússonar, útvarpsstjóra og Óðins Jónssonar, fréttastjóra um sátt um Ríkisútvarpið. Upplýst hefur verið að þeir eru búnir að hækka launin við sig sjálfa – alla vega Páll, hinn bíður sennilega knékrjúpandi en vongóður. Búnir eru þeir að reka gamla og gegnumheila samstarfsmenn og nú biðja þeir um sátt um sjálfa sig! Ekki meiri óvissu um RÚV segja þeir! Ég er búinn að vera...
Starfsmaður RÚV – bráðlega ohf.
Starfsmaður RÚV – bráðlega ohf.
25. Mars 2007
VEGAMÁL Í ÍSLANDI Í DAG
...Það er sagt að tímasetningar séu heppilegar í pólitíkinni. Sumt af því sem maður er farinn að sjá í ljósvakanum er eins og raunveruleikasjónvarp. Þarna ræddu til dæmis tveir fyrrverandi starfsmenn Halldórs Ásgrímssonar um stjórnmál og fóru létt með að ræða um það eitt sem kom formanni borgarráðs vel. Eins og bein sending frá morgunverðarfundi í kosningastjórn á Hverfisgötunni. Blekkibragð (manipulation) á hæsta stigi, sorgleg þróun í þessum þætti hjá Stöð 2. Af hverju ræða fjölmiðlamenn þetta ekki á vefsíðum sínum? ...
Sigurjón
Sigurjón
24. Mars 2007
LÝÐRÆÐIÐ FÓTUM TROÐIÐ...FRAMHALD
Ég greindi félaga mínum frá því í trúnaði, að það væri ég, sem hefði skrifað um aðkomu Samorku að stækkun álversins í Straumsvík. Hann gerði strax athugasemd við að ég skrifaði ekki undir nafni. Það virkaði ekki sterkt að fara í felur með skoðanir sínar. Ég tek undir þetta, en þau mál og málavextir geta komið upp að þegnarnir verða að geta tjáð sig undir dulnefni. Þegar svo er tel ég engin betur til þess fallinn en þingmaður minn og formaður BSRB, að birta á síðu sinni ...
Fyrrum starfsmaður Landsvirkjunar
Fyrrum starfsmaður Landsvirkjunar
24. Mars 2007
HVER Á FAXAFLÓAHAFNIR?
...Hvernig stendur á því að þar finnast allt í einu peningar?
Geta Faxaflóahafnir kannski leyst fleiri samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu eins og í Mosfellsbæ eða Hafnarfirði?
Gummi í Mosó
23. Mars 2007
FRAMSÓKN AFSKRIFUÐ Í REYKJAVÍK AF EIGIN MÖNNUM
Einn þriggja hörðustu framsóknarbloggaranna og sá sem er nánast tengdur forystumönnum Framsóknarflokksins fyrr og nú fjallar sem fyrr um VG í nýlegum bloggpistli sínum. Efnið er Framtíðarlandið og leið þeirra til að fá alþingismenn til að gera samning við sig fyrir hönd landsins. Þar er greint frá því hverjir hafi skrifað uppá hjá Framtíðarlandinu og vakin sérstök áhersla á umhverfisráðherranum með þessum orðum “Mér sýnist Jónína Bjartmars vera eini þingmaður eða þingmannsefni stjórnarflokkanna sem skráð hefur sig á listann.” Það er yfirlýsingin um að Jónína sé bara þingmannsefni sem farið hefur fyrir brjóstið á stuðningsmönnum hennar heyri ég. Finnst sumum...
Þór
Þór
23. Mars 2007
FRÉTTASKÝRINGAR OG KU
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, skrifar lítinn dálk í Morgunblaðið í dag um ku. Tilefnið er útleiðari í Fréttablaðinu, slúðurdálkurinn þar sem stundum er níðst á mönnum rétt eins og DV besætning tiltekins tímabils sé öll komin yfir á Fréttablaðið. Og Davíð tekst vel upp svo sem við var að búast. Útleiðari Fréttablaðsins og umfjöllun seðlabankastjóra um hann beinir sjónum mínum að svokölluðum fréttaskýringum Morgunblaðsins sem birtast nú á forsíðu blaðsins. Eða þeirri ákvörðun Styrmis og Einars að láta tiltekinn blaðamannahóp verða sýnilegri og gefa þeim meira frelsi til að auka spennuna á efni blaðsins, koma því á milli tannanna á fólki. Það er með fréttaskýringar eins og slúðrið. Það er hægðarleikur að setjast niður með...
Ólína
Ólína
22. Mars 2007
VIRKJUM DYNJANDA
Nú er svo komið að margir Íslendingar hafa gleymt einum ástsælasta syni þessarar þjóðar, Jóni Sigurðssyni forseta. Eins og þeir vita sem til þekkja var Jón fæddur á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní árið 1811 og er því farið að styttast í 200 ára afmæli hans. Jafnhliða því að færri og færri muna eftir þessum mæta manni og öllu því sem hann lagði af mörkum til að þjóðin hlyti fullveldi þá fækkar stöðugt þeim sem byggja það landsvæði sem ól hann, þ.e.a.s Vestfirðina. Það er skylda okkar Íslendinga að gera nú átak og hefja minningu hans til vegs og virðingar á ný og jafnframt að styrkja byggð á æskuslóðum hans. Þess vegna skora ég á alla sanna Íslendinga að standa saman um væntanlega hugmynd ríkIsstjórnarinnar um veglega uppbyggingu á Hrafnseyri. Hvað væri meira við hæfi en reisa þar myndarlegt ....
Grámann í Garðshorni
Grámann í Garðshorni
21. Mars 2007
LÝÐRÆÐIÐ FÓTUM TROÐIÐ
Samorka hefur nú blandað sér í kosninguna um stækkun álversins í Straumsvík með auglýsingum og fréttatilkynningu, það ekki að ástæðulausu, ef málið er skoðað. Samorka er samband orku- og veitufyrirtækja sjá...Eins og sérst hafa allir þessir aðilar bullandi hagsmuna að gæta og starfa í umboði almannafyrirtækja, og því áróðusherferðin borguð af okkur orkuneytendum og skattgreiðendum.
Fyrrum starfsmaður Landsvirkjunar
Fyrrum starfsmaður Landsvirkjunar
21. Mars 2007
SPUNADRENGIR ÞAGNA
Athygli mína var vakin á því að þrír spunadrengir framsóknarforystunnar hefðu skyndilega misst áhuganna á að blogga um auðlindamálið. Varð þeim skyndilega stirt um stef þegar Geir H. Haarde, forsætisráðherra tilkynnti að þingmannafrumvarp um stjórnarskrá yrði ekki afgreitt á þinginu sem lauk aðfaranótt sunnudagsins. Hvorki Pétur Gunnarsson, Björn Ingi Hrafnsson, né þriðji framsóknarbloggarinn, hafa séð ástæðu til að skýra ágreining stjórnarflokkanna í auðlindamálinu. Hafa þeir þó allir greiðan aðgang að framsóknarforystunni sem gerð varð afturreka með frumvarpsdrög kennd við formann flokksins. Spunadrengirnir hafa heldur ekki gert mikið úr yfirlýsingum Jón Sigurðssonar...
Sigurjón
Sigurjón
20. Mars 2007
FJÖLSKYLDUPÓLITÍK AÐ HÆTTI FRAMSÓKNAR: BJÓR Í VERSLANIR
Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi, er þekktastur fyrir að hafa verið stoð, stytta og helsti ráðgjafi Halldórs Ásgrímssonar allt þar til hann þreyttist svo að hann kaus að yfirgefa land. Borgarfulltrúinn er líka þekktur fyrir áhuga sinn á vexti og viðgangi fjölskyldunnar. Hann er til dæmis formaður nefndar sem skipuð var samkvæmt ráðleggingum hans sjálfs og ber heitið Nefnd um stöðu íslensku fjölskyldunnar. Undir því flaggi heldur framsóknarmaðurinn ræður um það sem fjölskyldum er fyrir bestu og þess utan hefur hann í orði haldið hagmunum fjölskyldunnar mjög á lofti í borgarstjórn. Því er þetta rifjað upp að fjölskyldusinninn og framsóknarmaðurinn Björn Ingi Hrafnsson virðist ...
Þór
Þór
19. Mars 2007
ÓÁBYRG STEFNA VG Í UMHVERFISMÁLUM?
...Reyndar virðast VG vera voða hræddir við stíflur - þær eru svo illa gerðar og áhættumatið ekki pappírsins virði, sagði Álfheiður Ingad. síðasta sumar. Jahá, gott að fá það sérfræðiálit og var það alveg sérstaklega málefnanlegt innlegg í umræðu sem í kjarnann snýst um sjálfbæra þróun! Vatnsorka "Hydropower" er talið upp undir merkjum sjálfbærrar þróunar sem endurnýtanlegir orkugjafar og þá er rétt að snúa sér nú almennilega að því að nýta þá - um það ættu nú allir að geta verið sammála. Enda er lofthjúpurinn yfirfullur af CO2 - koltvísýrling. Hvers konar froðasnakk er þetta hjá VG að tala jöfnum höndum um sjálfbæra þróun sem "Divine" hugtak en meina samt eitthvað allt annað. Óábyrg stefna VG í umhverfismálum verður örugglega ekki endurnýtt enda alls ekki í anda sjálfbærrar þróunnar.
Kær kveðja.
Sveinn
Kær kveðja.
Sveinn
19. Mars 2007
ÁBYRG STEFNA VG Í UMHVERFISMÁLUM
Í framhaldi af bréfi Sveins hér á síðunni vil ég taka undir með þér Ögmundur að því fer fjarri að við séum á móti sjálfbærri nýtingu vatnsorku til raforkuframleiðslu, hvorki hér á landi né annars staðar. Sjálfbær þróun (Sustainable Development) er einmitt grunnstefið í umhverfis, félags- og efnahagsstefnu VG og stefnumörkun flokksins miðast við að skila samfélaginu, náttúrunni og efnahagslífinu jafngóðu, og helst betra, til komandi kynslóða. Á þessu grundvallast einmitt afstaða okkar til uppistöðulóna í jökulám almennt og þar með til Kárahnjúkavirkjunar.
Það er nefnilega tómt mál að tala um endurnýtanlegar orkulindir í vatnsorku þegar verið er að stífla jökulá í risalóni sem fyllist af jökulaur og drullu á tilteknum tíma. Þar með er líftími virkjunarinnar liðinn og því lítil sjálfbærni í slíkri framkvæmd. Hér gildir einu hvort um er að ræða tugi eða jafnvel...
Álfheiður Ingadóttir
Það er nefnilega tómt mál að tala um endurnýtanlegar orkulindir í vatnsorku þegar verið er að stífla jökulá í risalóni sem fyllist af jökulaur og drullu á tilteknum tíma. Þar með er líftími virkjunarinnar liðinn og því lítil sjálfbærni í slíkri framkvæmd. Hér gildir einu hvort um er að ræða tugi eða jafnvel...
Álfheiður Ingadóttir
18. Mars 2007
AÐ LOKA HAFNARFIRÐI - PENINGAAUSTUR ALCAN - ER ÞETTA LÝÐRÆÐI?
...Af hverju að tapa þróunarsamkeppni byggðarlaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir Gunnari Birgissyni? Til að þóknast álverinu? Enginn er að leggja til að loka álverinu en það má í allri vinsemd benda á að ef álverið væri ekki þá væri Hafnarfjörður óðfluga að búa sig undir áð að verða örugglega eins stór og Reykjavík. Er hægt að hugsa sér fallegra land á þessu svæði en Straumsvík og Óttarsstaði? Nú er þeirri leið lokað og hún verður endanlega harðlæst ef álverið stækkar enn meira. Líklegt er að álverið loki fyrir möguleikana á þróun byggðar sem teldi 20 til 30 þúsund manns. Af hverju? Af hverju að stífla þróunarmöguleika Hafnarfjarðar enn...
Sigurður Bjarnason
14. Mars 2007
EKKI ÞINGMANNAFRUMVARP HELDUR ÞEIR GEIR OG JÓN
Þú talar um þingmannafrumvarp þeirrra Jóns og Geirs. Síðan hvenær er Jón Sigurðsson alþingismaður? Ég taldi að eina von Jóns Sigurðssonar yrði að vera tosaður inn á eyrunum sem ...
Borgþór
Borgþór
13. Mars 2007
VIÐ VILJUM GAMLA GÓÐA ÍSLAND TIL BAKA !
Þið sópið að ykkur fylgi þessa dagana og menn eru að velta fyrir sér skýringum.
Ég hitti marga í mínu starfi og allir ræða þeir pólitík. Ég er þeirrar skoðunar að flestir Íslendingar vilji hreinlega fá gamla góða Ísland til baka, eins og það var fyrir 10-15 árum. Það eru allir búnir að fá nóg af einkavæðingu, fáránlegum auðmönnum, virkjunum, bankaokri, greiningardeildum lögreglu, olíuforstjórum og lögum sem á að setja til að vernda þetta nýja...
G.B.
Ég hitti marga í mínu starfi og allir ræða þeir pólitík. Ég er þeirrar skoðunar að flestir Íslendingar vilji hreinlega fá gamla góða Ísland til baka, eins og það var fyrir 10-15 árum. Það eru allir búnir að fá nóg af einkavæðingu, fáránlegum auðmönnum, virkjunum, bankaokri, greiningardeildum lögreglu, olíuforstjórum og lögum sem á að setja til að vernda þetta nýja...
G.B.
12. Mars 2007
SPARISJÓÐUR SVARFDÆLA: 9 STARFSMENN OG 9 HUNDRUÐ MILLJÓNIR Í GRÓÐA!
...Til að samkeppni geti þrifist þurfa aðstæður að vera réttar, eftirlit hjálpar ekki. Einsog við vitum þá hefur vald og auður tilhneigingu til að þjappast saman. Þegar slíkt gerist þarf að afþjappa, skera í sundur og þvinga fyrirtæki til að skipta sér upp. Það þarf mikinn karakter til að þvinga slíkt fram. Samfélagið hefur alltaf átt erfitt með þetta verkefni. Næst besta leiðin er að skipa fyrirtækjum að keppa (þótt allir viti að það er blekking ein). Hver tími hefur sinn stíl. Hér á árum áður var aðferðin sú að tilnefna málsmetandi menn í nefnd sem var kölluð verðlagsráð. Sú nefnd ákvað verð á ýmsum nauðsynjum og þjónustu og hélt þannig úti sýndarsamkeppni. Nú tíðkast aðrar vinnuaðferðir. Verðlagsráð heitir núna Samkeppnisstofnun og hefur ..
.Eyvindur
.Eyvindur
11. Mars 2007
FJÖLDAHREYFING GEGN NEFSKATTI ÞORGERÐAR KATRÍNAR?
Ég saknaði þess að þú svaraðir ekki spurningu Ólínu hér á síðunni í gær. Hún spurði hvort þú myndir styðja samtök sem berðust gegn nefskatti Þorgerðar Katrínar, menntamálaráðherra, til að fjármagna hlutafélagið RÚV. Ólína segir í bréfi sem ég er hjartanlega sammála: "Myndir þú styðja samtök sem hefðu það að markmiði að láta reyna á nefskatt Þorgerðar fyrir dómstólum og berjast gegn nefskatti hennar þar til hann verður lagður niður. Við voru að velta því fyrir okkur nokkrar vinkonur hvort við ættum að ...
Sunna Sara
Sunna Sara
10. Mars 2007
AÐ KÓA MEÐ VALDHÖFUM
Ég fór að hugsa um það eftir kastljósið ríkissjónvarpsins í gærkvöld hvort manni þætti það skrítið ef þrír vinstri grænir sætu á kjörtíma í sjónvarpi og ræddu stjórnmálaástandið. Eða þrír framsóknarmenn til dæmis. Aldrei hefur maður séð þrjá framsóknarmenn ræða stjórnmálaástandið og gefa pólitískum andstæðingum sínum einkunn og niðurlægja eins og gerðist í gærkvöld. Mér myndi finnast það skrítið. Það sem er verst við þetta er að maður er næstum hættur að taka eftir því hvernig ríkissjónvarpinu er stjórnað, að minnsta kosti litlu fréttastofu útvarpsstjórans. Svona er það stundum maður stendur sig að því að kóa með valdhöfunum. Sá í sænsku blaði að sænskt hrökkbrauð hefur í annan tíma ekki selst meira í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að ein skemmtilegasta kynsystir mín í sjónvarpi vestanhafs...
Ólína
Ólína
9. Mars 2007
TEKIÐ UNDIR MEÐ EYVINDI
...Ég ber fulla virðingu fyrir umhverfisbaráttu ykkar í VG og kvenfrelsisbaráttan er fín, líka utanríkisstefnan. Allt er þetta gott í bland. En það er baráttan fyrir réttlátara Íslandi sem skiptir öllu máli. Ég gef lítið fyrir misréttissamfélag, jafnvel þótt það sé í fögru og ómenguðu umhverfi. Eða eins og Eyvindur sagði; " Það er hins vegar hin einarða barátta fyrir félagslegu réttlæti, sem skilgreinir Vinstri Græna og gerir þá ólíka öllum flokkum og reyndist vera ferskur andblær í ..."
Halldóra Jónsdóttir
Halldóra Jónsdóttir
8. Mars 2007
UM AFNÁM EFTIRLAUNALAGA
Enn um eftirlaunalögin. Mér finnst svar þitt til Eddu langt frá því að duga. Spurningin snýst ekki um persónulega afstöðu þína heldur um það hvort VG ætlar að láta þessa spillingu gott heita eða beita sér gegn henni. Meðan flokkurinn heitir því ekki að afnema svívirðuna (sem hann ber sjálfur mikla ábyrð á), þá tekur hann fullan þátt í henni...
Hjörtur Hjartarson
Hjörtur Hjartarson
7. Mars 2007
FJARSTÝRING HEGÐUNAR
Ef hægt er að laga til hegðun fólks eftir þínu höfði, þá er það ekki nauðsynlega jákvætt. Það að forstjóri Kók á Íslandi skuli berjast á móti skattlagninu á kók segir okkur ekkert um verðnæmi kóks, heldur aðeins hitt að hann er að reyna að minnka skatta á fyrirtæki sitt. Konsekvent skattlagning væri að hækka verðið upp fyrir greiðslugetu fátækra unglinga, en ekki bara nóg til að gera þeim lífið aðeins leiðara. Ef hegðunarstýring frá Alþingi á rétt á sér, þá mætti hugsa sér milljón prósent skatt á klámblöð, eins á kók. Hegðunarstýring með með tíkall hér og tíkall þar, skiptir aðeins máli í því samhengi að venja fólk við þá pólitísku breytingu sem er að verða í leyni, og frjálslyndir vinstri menn hafa barist gegn af hörku í Evrópu frá stríðslokum. Þetta er barátta gegn hvers kyns...
BJ
BJ
6. Mars 2007
EKKI LETISTJÓRNMÁL TAKK
...Þetta eru flókin vísindi en auðvelt að nálgast umræðuna. Nú er bráðum búið að stela öllum eignum þjóðarinnar, fyrst fóru sjávarauðlindir, verið er að ganga frá náttúrunni og lífeyrissjóðum. Allt undir merkjum stórgróða, og í skjóli svipaðrar skuldsetningar og á sér stað í Zimbabve. Á meðan ræðir VG um verðnæmi gosdrykkja, eða hvað það nú heitir – einhver talaði um verðteygni hér á síðunni - bann við slæmri hegðun mannkynsins og að stjórnarskrárbinda afnám lýðræðislegra kosninga. Þarna fer flokkur sem hefur verið rænt af unglingum og skipað að fljúga til Kúbu...Það er ekkert að því að hafa feminista innanborðs í VG. Það er líka allt í lagi að hafa íhaldssama forræðishyggjumenn innanborðs. Slík afstaða er þverpólitísk og á sína fylgismenn í öllum flokkum. Það er hins vegar hin einarða barátta fyrir félagslegu réttlæti, sem skilgreinir Vinstri Græna og gerir þá ólíka öllum flokkum og reyndist vera ferskur andblær í loftlausum vistarverum stjórnmálanna, þar sem samankomnir voru...
Eyvindur
Eyvindur
5. Mars 2007
EKKI HÆGT AÐ VERÐSTÝRA HEGÐUN
Gaman væri við tækifæri að fá að sjá rannsóknir Lýðheilsustofnunar á verðteygni á Coca Cola, sérstaklega því sem lýtur að unglingum. Hvernig er hægt að rannsaka slíkt með leyfi? Þetta er yfirleitt álíka vísindalegt og töfralækningar í Swasilandi, (staðkvæmdarvörur, verðteygni, bull og vitleysa). Hver getur rannsakað þetta af viti? Ég fylgdist með þessari umræðu í Danmörku, þá vildi SF endilega setja krónu á kókið og gera aumingjana aðeins fátækari. Hagfræðiritgerð frá Bifröst bendir á að bæta megi kjör fátækra meira með því að lækka verð á tóbaki verulega heldur en með almennri lækkun á virðausauka. Svona umræða endar aldrei, en á meðan borða vansvefta uppeldislausir unglingar pizzu, drekka kók og horfa á videó, alveg sama hversu mikið verðið er hækkað. Þetta eru bara pyntingar úr fjarska. Það er ekki hægt að stjórna þjóðfélagi með því að...
BJ
BJ
4. Mars 2007
FORKASTANLEG EFTIRLAUNALÖG ÞINGMANNA
Í öllu stjórnmálaþvarginu í dag er ekki minnst á eftirlaun þingmanna, sem öllum finnst þó forkastanleg og ...
Edda
Edda
4. Mars 2007
FYRIRTÆKI Í REYKJAVÍK SITJI EKKI EIN AÐ HUGMYNDAAUÐ NÁMSMANNA
Í tengslum við nýlega spurningu sem birtist á síðunni, í tengslum við Marel, langar mig að benda á eitt atriði. Hér er ekki um að ræða rekstur sem Marel lagðist í að eigin frumkvæði, heldur keypti Marel upp fyrirtækið Póls - og það gegn þeim skilningi að rekstri á Ísafirði yrði ekki hætt. Það hefur væntanlega verið annaðhvort tímabundið eða ekki samningsbundið, en það er engum dulið að Marel stóð ekki undir væntingum bæjarbúa. Hér er því ekki um að ræða ókost við svonefndan hátækniiðnað, heldur öllu heldur við hið óhefta ofurveldi fyrirtækjanna sem nú virðist vera í tísku. Hvað varðar getuna til að reka fyrirtæki af þessu tagi á Ísafirði má setja upp spurningamerki...
Herbert Snorrason
Herbert Snorrason
2. Mars 2007
EKKI ÖLL EGGIN Í SÖMU KÖRFUNA !
...ert þú enn þeirrar skoðunar að hátækni- og þekkingariðnaður sé framtíðin í ljósi atburða á Ísafirði?
Þorsteinn Hauksson
Þorsteinn Hauksson
1. Mars 2007
KÁTT ER Í BANKARANNINUM
Bjarni karlinn kaupir og selur.
Kátt er í banka-ranninum.
Þar eru á ferli úlfur og melur
í einum og sama manninum.
...
Kristján Hreinsson, skáld
1. Mars 2007
VERJUM TJÁNINGARFRELSIÐ
...Sé í pistli frá þér um aðför við tjáningafrelsið að þú ferð mikinn á móti þeim sem eru ekki sammála því ágæta fólki sem barðist gegn klámráðstefnunni. Ertu að gefa í skyn að þú viljir ritstýra mótmælendum þannig að þeir henti stefnu þinni...?
Magnús
Magnús
Frá lesendum
6. September 2010
AFTUR TIL MIÐALDA
Ögmundur, komdu með stuðning við frjálsar handfæra veiðar, þarna gætu orðið til þúsundir starfa, án þess að ríkið leggi til krónu, þetta gæti orðið næsta stóriðja. Það er búið að koma almenningi í sömu spor og á miðöldum, þú mátt ekki róa til fiskjar og fénýta aflann. Á meðan ræna örfáir útvaldir þjóðina lífsbjörginni með því að ryksuga fiskimiðin með verksmiðjuskipum, og skilja miðin eftir í rúst. Það eru 15.000 manneskjur atvinnulausar, þær mega ekki bjarga sér, þó til séu ...
aagnarsson
aagnarsson
5. September 2010
ÆTLAR AÐ FYLGJAST MEÐ
Það er einkennilegt þegar menn af vinstri vængnum vilja absólút dæma íslenskan verkalýð til ævarandi þrældóms; 60 stunda vinnuviku og hárra vaxta. Láta svo LÍÚ reka sjávarútveginn þannig að gengisfellingar verði notaðar til að leiðrétta reksturinn þegar búið er að uppfæra bílaflota stjórnenda og húsakost á Íslandi og Florida. Svo hugsar maður til baka og man þá að sá til vinstri einkavæddi ræstinguna á spítölum borgarinnar eins og að drekka vatn. ...
Villi
Villi
5. September 2010
LÁTIÐ JÓN Í FRIÐI
Erindi fagnaðar hefur nú nýverið verið boðað hvers innihald ber með sér staðfestingu á styrk Ögmundar og Jóns Bjarnasonar. Ég geld engu síður varhug við að hróflað verði við Jóni um næstkomandi áramót í aðdraganda stofnunar atvinnuvegaráðuneytis. Þá er viðbúið Ögmundur minn að þú þurfir að endurstílisera línuna sem forveri þinn úr samstarfsflokknum hafði lagt, en þá á ég við vegtolla og stapp við lífeyrissjóðina. Ég held aukinheldur í vonina um afturköllun aðildarumsóknarinnar sem og breyttan prófíl á undirlægjuhætti gagnvart AGS. Nú ríður á Ögmundur minn kæri að þú nýtir það bakland og þann styrk sem að baki því býr og mundu að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali
Óskar K Guðmundsson fisksali
4. September 2010
LOKSINS
Loksins, loksins ...er kominn ráðherra löggæzlumála, sem ekki er úr Sjálfstæðisflokki. Ég óska þér góðs gengis með þann málaflokk sem og aðra sem þú nú stjórnar. En gumar og mær Sjálfstæðis sitja víða við stjórn DMR og stofnana þess. Ætli matið á "hæfi" þeirra margra hafi ekki verið ákveðið með flokksgæðingaþukli pótintáta og þægðarstuðlum frekar en raunverulegu hæfi. Gangi þér líka vel að eiga við þann skrautlega hóp.
kveðja,
Ver
kveðja,
Ver
4. September 2010
UM BIÐLAUN OG LÍFEYRISKJÖR
Fyrst hægt er að greiða tugmilljóna biðlaun til fyrrverandi ráðherra og að varnarmálafulltrúi, eða hvað það hét, fær full laun í fjóra mánuði eftir að starfið er lagt niður,væri þá ekki bara sanngjarnt að þeir lífeyrisþegar sem hafa kr. 150 þúsund á mánuði eftir skatta, fái smáhækkun á þá forsmán....
Edda Ögmundsdóttir
Edda Ögmundsdóttir
31. Ágúst 2010
STEINHISSA
Ég er steinhissa á þér Ögmundur, að þú skulir láta það viðgangast og samþykkja að leyndarhjúpur megi hvíla yfir framlögum til stjórnmálaflokka. Af hverju tekurðu ekki upp þá stefnu að banna alfarið framlög til flokkanna, nema árgjald einstaklinga og framlag ríkisins.
Sigurður Þórðarson
Sigurður Þórðarson
27. Ágúst 2010
LÝÐRÆÐIÐ LEYSIR ALLAN VANDA
Mér þótti gott að sjá viðtalið við þig á mbl.is þar sem þú sagðir afdráttarlaust að þú vildir að ríkisstjórnin lifði. Reyndar hef ég aldrei efast um að þú vildir það enda sagðir þú þig úr ríkisstjórninni fyrir tæpu ári til að bjarga henni frá dauða. Svo einfalt var það. Það er hárrétt sem þú bentir á í viðtalinu á mbl.is að lausnin í ESB málinu er lýðræðið. Það er þjóðin sem kemur til með að ákveða málalyktir. Mér þótti gott hjá Jóni Bjarnasyni að benda á að samningaviðræðurnar gætu verið að þróast yfir í aðlögunarviðræður. Það má ekki gerast. Út úr þeim farvegi þarf málið að fara. Þetta þarf að gerast í ....
Grímur
Grímur
26. Ágúst 2010
ÁLIT ÚT OG SUÐUR
Mig hefur lengi grunað að stjórnmálamenn og þeir sem gegna embættum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekki er þetta vegna þess, held ég, að viðkomandi séu öll ólæs, þótt eitthvað kunni að skorta uppá næman skilningi fyrir samhengi hlutanna. Ég held menn hafi ekki nennt að lesa, eða þá að skýrslan hafi verið lesin á sama hátt og sagt var að ungir menn hafi lesið erlendar bókmenntir í skáldverkinu Gunnar og Kjartan eftir Véstein Lúðvíksson. Þetta segi ég i tilefni þess að viðskiptaráðherra lét gera enn eitt minnisblaðið, og nú um skyldu ríkisins til að standa undir innistæðutryggingum TIFs, eins og hann kallast í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Svo virðist sem augu nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd, sem þú situr í Ögmundur, hafi upplokist við lestur minnisblaðsins og efni þess hafi verið þér og ykkur framandi - að í því séu splúnkunýjar fréttir. Svo er ekki. Það einasta sem er óvenjulegt varðandi þetta minnisblað er, að ....
Hafsteinn
Hafsteinn
25. Ágúst 2010
HEFÐI ÁTT AÐ SPYRJA ÞJÓÐINA
Atlaga ríkisstjórnar að Jóni Bjarnasyni ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar er til varandi skammar og hann er ekki að fara með neitt fleipur. Þessi ríkisstjórn lagði úr höfn með bréfið til ESB vitandi það að 70% þjóðarinnar vill ekkert með það að gera. Þó svo að Alþingi hafi samþykkt að skoða málið hefði legið beinast við að bæta inn á kosningalistann við síðustu þjóðaratkvðagreiðslu, ertu þessu samþykkur eða ekki en því miður var það ekki gert. Því miður er núverandi verkstjórn á stjórnarheimilunu algjörlega óviðunandi og ummæli...
Þór Gunnlaugsson
Þór Gunnlaugsson
25. Ágúst 2010
VELJUM RÉTT HUGTÖK
Við skulum deila og vera ósammála. En notum ekki orðið einelti af faglegum ástæðum. Það er ekkert til sem heitir "pólitískt einelti". Hitt er ljóst að margir hafa deilt á Jón Bjarnason.
Gísli Baldvinsson
Gísli Baldvinsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
9. September 2010
Björn Jónasson skrifar: EINN RÁÐHERRA?
Svavar Gestsson, ágætur félagi um margra ára skeið og baráttumaður fyrir málstað launafólks alla sína tíð, setur fram merkilega kenningu í Fréttablaðinu þann 7. september 2010. Hún er svona: "Þegar ég skilaði niðurstöðu Icesave-samninganna vorið 2009 var almenn ánægja með niðurstöðuna víða, meðal annars í Morgunblaðinu. Þá gerðust þau undur að einn ráðherra ríkisstjórnarinnar gerði bandalag við stjórnarandstöðuna um að Ísland ætti ekki að borga". Vandinn við þessa kenningu er sá að samningunum var haldið leyndum í upphafi. Fyrst fyrir ríkisstjórn og síðan fyrir þinginu. Og síðan fyrir þjóðinni. Það var ekki fyrr en efni samninganna lak út til fréttastofu RÚV, nafnlaust í brúnu umslagi að efni þeirra var almenningi ljóst. Það gat aldrei orðið ánægja með eitthvað sem enginn vissi hvað var. Það átti að lauma samningunum í gegn án þess að þing og þjóð fengi um þá vitneskju. Þar var ekki við Svavar að sakast, heldur við ...
13. Ágúst 2010
Björn Jónasson skrifar: OLNBOGARÝMI Í BRUSSEL
Fjölmargir menntamenn og stjórnmálamenn hér á landi hafa notið góðs af auknu Evrópusamstarfi eftir gerð EES-samningsins. Sá samningur hefur ýmsa kosti, einkum á sviði styrkja, vísindasamvinnu og einnig hafa fjölmargir Íslendingar fengið vinnu í Brussel við eftirlit ýmiskonar og skjalagerð. Nægir að benda á að hópur Íslendinga og Norðmanna samdi álit Eftirlitsnefndar ESA um að íslenskir skattgreiðendur bæru ábyrgð á Icesave skuldum Landsbankans hf. Ragnar Arnalds skrifaði ágæta bók um EES samninginn og fann honum ýmislegt til foráttu. Meðal annars það að hann ýtir undir hrávöruframleiðslu en hamlar fullvinnslu afurða á Íslandi. Engir tollar eru á óunnum fiski (þeas. óflökuðum) en tollur á unnum fiski. Þetta gildir um fleiri afurðir og hefur leitt til þess að vinna hefur flust úr landi og nægir að minna á fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar sem fullvinnur afurðir í Hirsthals í Danmörku í stað Stykkishólms vegna þessa. Hægt er að færa rök fyrir því að...
4. Ágúst 2010
Baldur Andrésson skrifar: UM SKÚFFUR OG SKÖMM
...Forleikur að nýju átaki til einkavæðingar, sem í því tilviki er knúinn fram með engu minna ofstæki en fyrri daginn. Þessu síðara átaki er stýrt skipulega í anda AGS, eftir þekktri formúlu. Ríki og sveitarfélög eru sett í greiðsluklemmu, bönnuð lántaka. Ríkinu er fyrirlagt, við kreppu- aðstæður að draga úr framkvæmdum og eignavexti, því er ætluð bæklun, að búa við baklás AGS. Við blasa ógnir vegna ofurskuldsetningar OR og Landsvirkjun er ekki á góðu róli. Innan skamms er fyrirséð varnarstríð fyrir samfélagseign á þeim stórfyrirtækjum báðum. Ríkinu er fyrirmunað að eignast ný spítalahús, hvatt til sölu á öðrum. Nýjum almannavegum skal fyrirkomið í einkaeigu og jafnvel þeim gömlu, ef endurbóta er þörf. Megnið af fjármálafyrirtækjum er nú þegar á leið í hendur fjölþjóða braskara...












