Frá lesendum
31. Desember 2007
...En hvað um víngjafir almennt, hafa þær tilætluð áhrif á þiggjandann eins og þið kommarnir viljið vera láta? Rannsóknir sýna ótvírætt að svo er ekki. Í 95% tilvika gleymist gefandinn eða þá að þiggjandinn kennir gefandanum um ýmis asnaprik sem hann...
Þjóðólfur
31. Desember 2007
...En Guðfríður Lilja Grétarsdóttir benti réttilega á það í Silfri Egils í gær að í sínum huga snerist þetta alls ekki um eina flösku af víni heldur væri þetta fyrst og fremst táknrænt um það hvernig stjórnmála- og fjármálaheimurinn væru að renna saman í einn graut. Þetta er mergurinn málsins, ekki ein rauðvínsflaska til eða frá. Össur Skarphéðinsson sagðist í sama þætti hafa fengið gjafir frá samtökum fatlaðra. Ágætt, enginn að amast við því enda ...
Haffi
30. Desember 2007
Ég sendi þotuliði landsins mínar bestu nýárskveðjur með óskum um hundruða milljarða gróða...
Loptur
30. Desember 2007
Mér berst blaðið 24Stundir inn um bréfalúguna daglega. Í gær var þar grein eftir Helga Hjörvar, alþingismann, að mæra Sjálfstæðisflokkinn og mátti hann vart vatni halda yfir því að fá að vera með Íhaldinu í ríkisstjórn. Öðru vísi mér áður brá því sami Helgi gekk hart fram í gagnrýni á fyrri ríkisstjórn, þ.e. þegar Framsókn sat með Íhaldinu á sama stað og Samfylkingin situr nú. Þetta er svoldið skrítið þegar haft er í huga að engin breyting hefur orðið á stjórnarstefnunni nema þá helst að nú er harðar gengið eftir...
Sunna Sara
27. Desember 2007
Rakst á umræðu frá 4. apríl 2005 hjá þér þar sem lesandi sendi inn hugleiðingu varðandi " fasteignabrask bankanna ". Sá þó engin svör eða frekari umræðu. Var eitthvað meira fjallað um þetta og ef svo, er hægt að ...
Freyr
26. Desember 2007
Nú fer það fjöllum hærra að ungir Samfylkingarmenn ætli að skera upp herör gegn ráðningu héraðsdómara á Akureyri. Finnst það vera mál málanna að lýsa á hinar pólitísku tengingar við ráðninguna. Gott og vel, ágætt að einhverjir nenni að hugsa um þetta sem mér finnst þó varla geta talist mál málanna. Það sem mér finnst vera mál málanna er að ungt Samfylkingarfólk skuli taka því þegjandi að Þjórsánni sé fórnað á altari stóriðju, heilbrigðiskerfið einkavætt, lagst í duftið fyrir hernaðarhyggju Bush og NATÓ - allt án þess að heyrist múkk frá hinni ungu Samfylkingu. Dauðaþögn. Ungu Samfylkingarfólki virðist vera ...
Grímur
23. Desember 2007
Ættingjum okkar og vinum, sem og landsmönnum öllum, sendum við...
Sigurfljóð Hermannsdóttir og fjölskylda
23. Desember 2007
Ungur var ég að árum þegar ég las ljóð Einars Benediktssonar, Einræður Starkaðar, og enn hefur sá mannúðar boðskapur sem þar er að finna ekki liðið mér úr minni. Oft finnst mér að "hneykslunarhellur" nútímans, sem ekkert "misjafnt mega sjá", mættu að ósekju lesa þetta ljóð Einars. Þar á meðal eru "samviskuhellurnar" sem súpa nú hveljur yfir því að nýskipaður héraðsdómari...
Þjóðólfur
21. Desember 2007
Ég þakka fyrir að þú skulir vekja athygli á grein Rúnars Vihjálmssonar, prófessors í heilsuhagfræði, um íslenska heilbrigðiskerfið og framtíð þess. Ég las þessa grein og er ég þér sammála um að þeir sem nú stýra ferðinni í heilbrigðisráðuneytinu verða að svara röksemdum manna á borð við Rúnar, áður en þeir setja allt upp í loft. Ráðherra verður að svara rökum með rökum. Ágæt grein Gunnars Alexanders Ólafssonar, sem þú einnig vitnar í, hafði farið framhjá mér en Dahlgren að sjálfsögðu ...
Haffi
21. Desember 2007
Í víti og ræsi vaxa blóm
sem vekja skömm og hrylling,
þau herja nú á Héraðsdóm,
þau heita Vald og Spilling.
...
Kristján Hreinsson, skáld
18. Desember 2007
Ungar konur elska best
þær óttast vart sinn herra.
En sá sem konur svíkur mest
má sjálfur tár sín...
Kristján Hreinsson, skáld
17. Desember 2007
Ég vildi bara þakka þér fyrir frábæra síðu Ögmundur, ég er ein þeirra fjölmörgu sem hlakka til að lesa pistlana þína á hverjum degi, enda er síðan eitt öflugasta málgagn réttsýni í okkar samfélagi... Ég vil sérstaklega fá að taka undir grein ykkar Þuríðar Einarsdóttur um nauðsyn þess að hækka laun fólks í almannaþjónustunni. Það ætti að vera ólíðandi fyrir okkur öll að horfa upp á hvernig þeir hópar sem síst skyldi - þær stéttir sem raunverulega halda samfélaginu gangandi - hafa dregist aftur úr...
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
17. Desember 2007
Stundum er haft á orði að fólk sjái ekki skóginn fyrir trjánum þegar það einblínir á einstaka þætti máls en áttar sig ekki á heildarsamhengi hlutanna. Ekki veit ég hvort það er vísvitandi gert hjá „Þingskapameirihlutanum" á þingi, sem þið kallið svo, að hamast á því að deilurnar um ný þingskapalög hafi eingöngu snúist um lengd ræðutíma. Ég hef sannfærst um að svo var alls ekki...
Sunna Sara
17. Desember 2007
Pistill þinn með fyrirsögninni "VINIR ÍSLANDS?" er góður og málefnalega hárréttur að öllu leyti! Það er einnig hughreystandi að Morgunblaðsmenn og aðrir fjölmiðlar sáu hið hræðilega ofbeldi gegn saklausri íslenskri konu í heimsókn til Bandaríkjanna og höfðu manndóm í sér til að bregðast við í anda sjálfstæðrar þjóðar sem lætur ekki svívirða saklausan landa sinn átölulaust!
Úlfur
17. Desember 2007
Merkileg þótti mér ábending þín í Silfri Egils í gær um fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur á þingi um aðgang bandarískra lögregluyfirvalda að upplýsingum um Íslendinga frá fyrri tíð. Ég fletti þessu upp á Alþingisvefnum og verð ég að segja að mér þykir harla undarlegt að þetta skyldi ekki fá meiri umfjöllun en raun bar vitni...
Grímur
14. Desember 2007
Oft hefur þú verið óvæginn við pólitíska andstæðinga en nú er mér nóg boðið. Að tengja heilbrigðisráðherra landsins, Guðlaug Þór Þórðarson, við Sláturfélag Suðurlands finnst mér svo ósmekklegt að engu tali tekur...
Sigurfljóð Hermannsdóttir
12. Desember 2007
Nú á sér mikil umræða um aðskilnað skóla og kirkju. En aðskilnaður skóla og kirkju var einmitt málamiðlunin á landsfundi VG í hitteðfyrra þegar þjóðkirkjumálið var til umfjöllunar. Ég hef ekki heyrt eitt einasta orð frá þér (sem varst þó lykilmaður í þessari málamiðlun) né öðrum kjörnum fulltrúum okkar á alþingi um þetta mál síðan. Þetta er nokkuð sérstakt einkum nú þegar virkilega er verið að takast á um þessi mál í samfélaginu. Hvað veldur þessari djúpu þögn…
Kveðja,
Tumi Kolbeinsson
11. Desember 2007
Lastu þennan pistil eftir Gilzenegger, hann var grófur brandari, en að skilja hann sem hótun um hópnauðgun, er eitthvert mesta rugl sem ég hef séð. Og hvað þá að samsama þann pistil á alla sem finnst femínistarnir komnir út í öfgar...
Ólafur
10. Desember 2007
...Fimm milljarðar eru ekki miklir peningar þegar um er að ræða alla öryrkja og alla aldraða á Íslandi. Síðan ætla þau að svelta velferðarkerfið. Og til hermála setur Samfylkingin á annan milljarð! Hvar er jafnaðarfólkið...
Haffi
9. Desember 2007
...Í annað skipti á hennar stjórnmálaferli er það hlutskipti hennar og annarra Krata að leiða Sjálfstæðisflokkinn til valda á Íslandi. Eins og jafnan er allt lagt í að gera sem mest úr einhverjum molum til öryrkja og aldraðra – en á sama tíma búa þau í haginn fyrir fjármagnsöflin. Eins gott að kíkja við hjá Fjölskylduhjálpinni...
Grímur
8. Desember 2007
…Til að auka virðingu og virkni Alþingis legg ég til að það verði sett regla um að ekki sé fundarfært ef minna en 2/3 alþingismanna sitji fundinn. Mér finnst það óvirðing við þjóðina ef alþingismenn sitja ekki fund. Þætti gaman að fá viðbrögð.
Nils
7. Desember 2007
Menn skulu vita að “NATO” er „varnarbandalag“ Norður Atlantshafsþjóðanna og var stofnað af leppum Bandaríkjanna, Rússum og kommúnismanum til höfuðs. Við Íslendingar gengum í bandalagið á þeirri forsendu að um varnarbandalag væri að ræða, en þjóðin var svo sannarlega ekki einróma í þeim gjörðum og er það væntanlega ekki enn þó mikið hafi verið gert til að heilaþvo hana...
Úlfur
6. Desember 2007
…Á það má benda, að einstaklingur má afla sér allt að 100 þús. kr. í vinnutekjur án þess að það komi til frádráttar ellilífeyris almannatrygginga. Hvers vegna gildir ekki það sama um greiðslur frá lífeyrissjóðum a.m.k. fyrir sömu upphæð? Það er fullkomið óréttlæti að láta þá einstaklinga sem hófu greiðslur á grundvelli blekkinga 1974 og nú eru að fara á marg verðfelldan lífeyri uppskerða svikin loforð og fyrirheit. Það er ranglæti af verstu tegund að þeir skuli ekki í það minnsta njóta sömu réttinda og þeir sem afla sér viðbótartekna…
Gunnar Gunnarsson
5. Desember 2007
Þú spyrð hvort við hefðum sætt okkur við að Danir færu með okkar utanríkismál. Það vantar illilega aftanvið setninguna. Danir fóru með utanríkismál Íslendinga í umboði Alþingis. ÖLL mál voru í höndum Alþingis með tilkomu fullveldis...
Borgþór
4. Desember 2007
Með festu gegn Putin nú fara þeir mikinn,
um fláttskap í kosningum saka þeir hann,
en til þess að kanna þar svindlið og svikin
við sendum þeim auðvitað framsóknarmann.
Kristján Hreinsson, skáld
3. Desember 2007
Ég segi fyrir mitt leyti að mér finnst launamunurinn – á milli láglaunafólks og hátekjufólks, óháð kyni, skipta máli ekki síður en staða kynjanna. Reyndar finnst mér aðal meinsemdin í þjóðfélaginu vera vaxandi kjaramisrétti og það þarf að gæta þess að misskiptingin sé ekki einvörðungu rædd á kynbundnum forsendum... Eins saknaði ég í Silfri Egils og það var að við skyldum ekki upplýst um launakjörin hjá einkafyrirtækinu hennar Margrétar Pálu. Ég gef mér að hún eigi fyrirtækið og stýri því þótt skattborgarinn standi straum af kostnaðinum – en hvað skyldi hún borga sínum vinnukonum?...
Sunna Sara
2. Desember 2007
...Ef þjóðin telur rétt að vopna einhvern hluta lögregluliðs síns þá er rétt að leggja það til að sérsveit vopnaðra manna verði byggð upp undir stjórn lögreglustjóra á eftirtöldum stöðum með tilliti til alþjóðaflugvalla og til þess að draga úr hættunni sem fylgir því að einn maður ráði yfir þessum vopnaher: Akureyri, Egilsstaðir, Höfuðborgarsvæði og Keflavík. Ert þú tilbúinn að skara þennan eld og stöðva þessa andlýðræðislegu þróun?
Þórður Eric
1. Desember 2007
...Það þýðir ekki að hver berjist fyrir sínum einkakækjum, sértrúnaði og kenndum, hver í sínu horni og enginn viti hvert skuli stefna. Fólk verður að gera sér grein fyrir þeirri alvörustundu sem upp er runnin. Það er Í ALVÖRU verið að stela eignum þjóðarinnar. Það er Í ALVÖRU verið að eyðileggja velferðarsamfélagið með því að fela það í hendur gróðaöflum, ekki bara íslenskum heldur einnig alþjóðlegum. Ef baráttan og baráttufólkið er ekki meðvitað um þetta, meðvitað um að baráttan verður að horfa til hagsmuna almenings, til þjóðarinnar; að baráttan verður að vera þjóðleg og markviss – ef menn eru ekki meðvitaðir um þetta þá...
Úlfur
1. Desember 2007
...Hins vegar getum við lagt til einhvern skerf með þekkingu jarðvísindamanna og tækniþekkingu, sem við eigum þá að "selja" eins ódýrt og unnt er þegar í hlut eiga miklu fátækari lönd en Ísland. Góð leið til þess er að efla Jarðvísindaháskóla sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Í umræðum undanfarna daga hefur maður heyrt að Orkuveitan geti hagnast um einhverja miljarða, jafnvel tugi miljarða, á þátttökunni í REI, sem væri þá hugsanlega hægt að nota til að greiða niður orkukostnað Íslendinga. En einhvers staðar koma þeir peningar frá og maður veltir fyrir sér hvort það sé siðferðilega réttlætanlegt að láta fátækt fólk í þriðja heiminum greiða niður orkukostnað Reykvíkinga.
Jón Torfason