Frá lesendum
30. Nóvember 2007
SJÁ EFTIR AÐ KJÓSA SAMFYLKINGUNA - VILJA ÚT Á VINNUSTAÐINA!
...Mér finnst gott að vita að þið eruð allavega ekki til sölu og það eiga margir eftir að sjá eftir að kjósa Samfylkinguna og aðra flokka sem gerast þjónar valdsins hvenær sem það býðst. Ef þið verðið borin ofurliði í þinginu og málfrelsi fólksins í gegn um ykkur sem kaus ykkur sem sína fulltrúa tekið af ykkur þá verðið þið að fara út í þjóðfélagið og heyja ykkar baráttu þar...
Guðmundur frá Hofi
Guðmundur frá Hofi
29. Nóvember 2007
FLOTTIR Í BLEIKU
Það gladdi mitt femínista hjarta þegar ég sá forsíðumyndina af ykkur Steingrími Joð í vikublaðinu Austra í gær. Þarna finnst mér þið sýna samstöðu í verki með þingfélaga ykkar, Kolbrúnu Halldórsdóttur, umvarðandi þá lit-kyngreiningu sem enn tíðkast... mig langar að biðja þig Ögmundur minn að birta...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
24. Nóvember 2007
HEILRÆÐI FYRIR STELPUR
Ungar konur elska best,
þær óttast vart sinn herra.
En sá sem konur svíkur mest
má sjálfur tár sín þerra.
Hafðu bæði háð og spott,
hörku skalt þú sýna,
aðeins það er gilt og gott
sem gleður sálu þína.
...
Kristján Hreinsson
þær óttast vart sinn herra.
En sá sem konur svíkur mest
má sjálfur tár sín þerra.
Hafðu bæði háð og spott,
hörku skalt þú sýna,
aðeins það er gilt og gott
sem gleður sálu þína.
...
Kristján Hreinsson
23. Nóvember 2007
Á LEIÐ TIL TUNGLSINS?
Frábær þótti mér myndskreytingin við grein þína um einkavæðingartal formanns Læknafélagsins. Það er engu líkara en formaðurinn telji lækna gjörsamlega óháða umhverfi sínu – að störfum á tunglinu. Ríkið hefur aldrei læknað neinn, sagði Birna Jónsdóttir, formaður lækna! Það er nefnilega það. Bara rosalega klárir læknar. En þegar kemur að því að greiða á reikninginn? Þá er hægt að ...
Sunna Sara
Sunna Sara
22. Nóvember 2007
UM MIKILVÆGI IÐNMENNTUNAR
Í tilefni allskyns áforma um hátæknifyrirtæki s.s.netþjónabú og önnur í þeim anda, væri ekki tímabært að ráðamenn menntamála og þingmenn hugleiddu eitthvað um iðnmenntun á Íslandi. Það er á hátíðlegum stundum rætt um eflingu byggða og nauðsynlegt sé að opna háskóla í hverju plássi en enginn nefnir að það þurfi kannski líka fólk með annarskonar menntun til að framkvæma hugmyndir og smíða uppfinningar háskólamannanna. Mér er sagt að í næsta útskriftarárgangi Iðnskólans í Reykjavík séu fjórir rafeindavirkjar. Hverjir eiga að tengja búnaðinn og halda ...
Þór Ólafsson
Þór Ólafsson
21. Nóvember 2007
SKEMMTILEGUR EGILL
Bókmenntaþáttur Egils Helgasonar í Sjónvarpinu þykir mér kærkomin sending. Þátturinn er bæði skemmtilegur og innihaldsríkur. Hafi Egill og Sjónvarpið lof og prís fyrir. Eitt þarf þó að laga. Þátturinn þarf að vera fyrr á kvöldin. Ég man að þú gagnrýndir það einhverju sinni Ögmundur, að íslensk verðlaunadagskrá um palestínska flóttamenn var sýnd seint um kvöld, á eftir nokkrum erlendum sápustykkjum. Á sú gagnrýni ekki einnig við um ...
Grímur
Grímur
19. Nóvember 2007
VERSLUNARSTOFNUN FYRIR HEILBRIGÐISKERFIÐ UMRÆÐULAUST?
...Á að koma upp þessu nýja skrifræðisbákni umræðulaust? Það vill svo til að ég tala af reynslu sem starfandi læknir í Svíþjóð um árabil, tiltölulega nýkominn heim í kerfið hér, sem þrátt fyrir allt er ekki eins slæmt og menn vilja vera láta. Staðreyndin er nefnilega sú að innan heilbrigðiskerfis verður ALLTAF togstreita um fjármagn. Aldrei gleyma því. Sú togstreita verður ekki úr sögunni með þessari nýju stofnun Guðlaugs Þórs, heilbrigðisráðherra. Hún er fyrst og fremst sett á laggirnar til að einkavæða heilbrigðisþjónustuna...
Læknir
Læknir
19. Nóvember 2007
ÞAÐ HEFUR GEFIST VEL AÐ HUGSA SEM ÞJÓÐARFJÖLSKYLDA!
...Þvert á móti á að stefna að því að bæta og uppfæra allan opinberan rekstur í heilbrigðisgeiranum, stanslaust! Þú mátt bóka það Ögmundur, að það verður ekki betur gert með einkaframtakinu en hinu opinbera! Það hefur hvergi í heiminum tekist betur gagnvart hinum sjúku, að einkaframtakið taki við hjúkrunargeiranum af hinu opinbera. Í Bandaríkjunum er rándýrt einkarekið heilbrigðiskerfið bókstaflega að hrynja um sjálfa sig vegna ofurkostnaðar og getuleysis! Auðvitað er líf og hjúkrun tryggð þeim sem hafa nóga peninga þar sem auðvaldið ræður lögum og lofum. Það á hins vegar ekki við um “gráan” almenning sem verður að líða. Fólk verður að íhuga þetta, áður en það verður of seint! Staðreyndirnar blasa við...
Helgi
Helgi
18. Nóvember 2007
EFTIRLAUNALÖGIN AFNUMIN FYRIR JÓL?
...Var það misskilningur hjá mér að til stæði að hraða afgreiðslu á frumvarpi Valgerðar Bjarnadóttur um eftirlaun ráðherra, þingmanna og fl.? Verður frumvarpið ekki afgreitt fyrir jól?
Haffi
Haffi
17. Nóvember 2007
ÞJÓRSÁ ÞAKKAR ÞÉR GUÐFRÍÐUR LILJA!
...Það gladdi hjarta mitt í liðinni viku að heyra tilfinningarnar vella í brjósti Guðfríðar Lilju, varaþingmanns þíns Ögmundur, þegar hún beindi máli sínu til ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega Samfylkingarinnar, út af virkjunaráformum í Þjórsá. Stjórnarsinnar á þingi og í kjölfarið einnig fjölmiðlar, túlkuðu ummæli Lilju sem árás á sveitarstjórnir, sem eiga land að Þjórsá. Þannig tókst að firra Samfylkinguna, sem fer með umhverfismálin ábyrgð! Ósköp var það ódýrt og vesælt. Lilja var fyrst og síðast að gagnrýna þau sem bera ábyrgð á umhverfismálum á Íslandi. Ég heyrði frammíköllin á þingi þegar Lilja tók upp hanskann fyrir Þjórsá. Frammíkallarar reiddust því sem hún hafði fram að færa. Þeir reiddust málefnalegum rökum hennar og ákalli hennar um að þyrma náttúruperlum í Þjórsá. En þó þetta lið hafi reiðst er ég sannfærð um að...
Sunna Sara
Sunna Sara
16. Nóvember 2007
GAGNRÝNI ÞARF AÐ EIGA VIÐ RÖK AÐ STYÐJAST
...Þar sem ég vann fréttina vil ég spyrja að því hvernig þú færð þetta út?? Ég nefndi hvergi styrk til RÚV á nafn í fréttinni, þvert á móti. Og í viðtali við mig útlistar dagskrárstjóri Sjónvarpsins í hverju samningurinn felst. Það er að peningurinn renni til þriðja aðila en ekki RÚV. Fjölmiðlamenn eru ekki yfir gagnrýni hafnir, og tek ég henni fyrir mitt leyti fagnandi. Ég vil hins vegar að hún eigi við rök að styðjast...
Guðfinnur Sigurvinsson,
fréttamaður Sjónvarps
Guðfinnur Sigurvinsson,
fréttamaður Sjónvarps
13. Nóvember 2007
ANNARLEGAR GJAFIR AUÐVALDSINS!
...Einhverstaðar á hnattkringlunni væru slíkar “gjafir” taldar annarlegar svo ekki sé meira sagt. Hvernig væri að þetta auðvaldsfólk væri látið greiða meiri og réttmætari skatta svo þjóðfélagið þyrfti ekki að lifa á ölmusugjöfum úr vasa þess; skatta af því sem það græðir á samfélags-systkinum sínum, sem þrælar myrkranna á milli, iðulega með heimili sín á vonarvöl, háð duttlungum þeirra sem ákveða verðlag og vexti en sem nú þykjast vera að “gefa” almenningi blóðpeninginn tilbaka! Mér rennur í skap. Ef fólk heldur að auðvaldið “gefi” þjóðfélaginu peninga út í loftið og að ástæðulausu, þá er það meira en lítið galið...
Úlfur
Úlfur
12. Nóvember 2007
UM BJÖRGÓLF OG RÚV: EKKERT SAMKRULL
...Björgólfur Guðmundsson er auðvitað ekki að styrkja Ríkisútvarpið eða dagskrárgerð á þess vegum um eina krónu. Og RÚV mun ekki eiga honum neina gjöf að gjalda.
Skuldbinding BG felst í því að leggja jafn mikið og RÚV til framleiðslu á leiknu íslensku sjónvarpsefni hjá sjálfstæðum framleiðendum næstu þrjú árin.
Ávinningur RÚV - og almennings - er einfaldlega að fá meira af leiknu íslensku efni til sýningar og ekki er um að ræða neinskonar afsal á dagskrárvaldi eða "samkrull" í því tilliti...
Páll Magnússon
Skuldbinding BG felst í því að leggja jafn mikið og RÚV til framleiðslu á leiknu íslensku sjónvarpsefni hjá sjálfstæðum framleiðendum næstu þrjú árin.
Ávinningur RÚV - og almennings - er einfaldlega að fá meira af leiknu íslensku efni til sýningar og ekki er um að ræða neinskonar afsal á dagskrárvaldi eða "samkrull" í því tilliti...
Páll Magnússon
11. Nóvember 2007
EINHVER MUNUR Á FRAMSÓKN OG SAMFYLKINGU?
Sérðu einhvern mun á núverandi ríkisstjórn og þeirri sem áður sat? Stutt en afgerandi svar óskast. Sjálfur sé ég engan mun á núverandi hjálparkokki Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingunni og fyrrverandi, nefnilega Framsókn. Munurinn er enginn, hvort sem litið er til innanríkismála eða utanríkisstefnunnar. Reyndar hefur mér komið NATÓ þjónkun Samfylkingarinnar á óvart...
Haffi
Haffi
10. Nóvember 2007
TIL HAMINGJU MEÐ KVENNABLÓMANN!
Hjartanlega sammála þér Ögmundur um hve vel Svandís Svavarsdóttir hefur staðið sig sem oddviti VG í Reykjavík, ef þá ekki oddviti félagshyggjufólks í borginni, því auðvitað er hún það. VG er með frábært fólk í stafni, ekki síst kvenfólk, hina skeleggu og eldkláru Katrínu varaformann og þingkonu, Auði Lilju, formann UVG, Guðfríði Lilju, framkvæmdastýru þingflokks og varaþingmann í Kraga (sem að sjálfsögðu ætti að vera á þingi!!!), baráttukonurnar á Alþingi Álfheiði, Kolbrúnu og Þuríði, að ógleymdri Drífu Snædal, framkvæmdastýru flokksins. Svo má ekki gleyma öllum hinum konunum í bæjarstjórnum, í verkalýðshreyfingunni, hjá femínistum, náttúruverndarsinnum, mannréttindasamtökum eða á vaktinni annars staðar fyrir ...
Sunna Sara
Sunna Sara
8. Nóvember 2007
HUGLEIÐINGAR UM VÍNMÁLIÐ
Í Silfri Egils þar sem Sigurður Kári mætti með sýnishorn úr Heimdalli með sér, ásamt tveimur heiðurskonum úr Vinstri grænum og Samfylkingunni, þeim Guðfríði Lilju og Svanfríði Ingu, þá bar ýmislegt á góma. Sigurður sat við sinn keip í vínmatvörumálinu og var kostulegt að sjá upplitið á honum, þegar Svanfríður sagði hvernig verslunin með áfengi yrði í sinni heimabyggð ( Dalvík ) ef frumvarpið yrði að lögum.
Það var greinilegt að SK hafði ekki hugsað málið frá sjónarhóli smærri byggðalaga vítt og breytt um landið.
Ein aðal rökin hjá SK fyrir áfengismatvörufrumvarpinu var að misnotkun fárra á áfengi ætti ekki að hindra aðgang hinna fjölmörgu, sem kunna með áfengi að fara...
Svo mælti Sigurjón EVGK
Það var greinilegt að SK hafði ekki hugsað málið frá sjónarhóli smærri byggðalaga vítt og breytt um landið.
Ein aðal rökin hjá SK fyrir áfengismatvörufrumvarpinu var að misnotkun fárra á áfengi ætti ekki að hindra aðgang hinna fjölmörgu, sem kunna með áfengi að fara...
Svo mælti Sigurjón EVGK
1. Nóvember 2007
EVRUSAMNINGAR?
...Svo kann að vera að það henti ýmsum fyrirtækjum og starfsfólkinu ekki síður einmitt prýðilega að fá kaupið greitt í evrum. Þar er ég að tala um fyrirtæki sem eru með sína starfsemi að uppistöðu til í útlandinu og starfsfólkið þar með annan fótinn. Yfirleitt er ég þér sammála um flest en hef efasemdir um afstöðu þína í þessu máli.
Grímur
Grímur
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!
...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLÆTI
...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIÐ VONBRIGÐUM!
...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGÐ Í MUNNINN
Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓÐ KVEÐJA
...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson
Jón Jón Jónsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












