Frá lesendum
31. Október 2007
FJÖLMIÐLAR STANDA SIG EKKI
...Ég hlustaði á sjónvarpsrásina frá Alþingi í dag. Þar sá ég Guðlaug Þór, heilbrigðisráðherra, engjast einsog orm á öngli í tilsvörum um hvers vegna hann styddi brennivínsfrumvarp þeirra Sigurðar Kára, sjálfstæðismanns og Ágústs Ólafs, varaformanns Samfylkingarinnar, frjálshyggjustráka, sem vilja hefja sölu á bjór og víni í matvörubúðum. Guðlaugi Þór finnst greinilega meira um vert að koma vel út sem trúverðugur stuttbuxnastrákur í frjálshyggjudeild Sjálfstæðisflokksins, en að vera ábyrgðarmaður heilbrigðisþjónustunnar í landinu, sem ...
Sunna Sara
Sunna Sara
29. Október 2007
FYRIRTÆKIN ALÞJÓÐLEG NEMA ÞEGAR NOTA ÞARF UTANRÍKISÞJÓNUSTUNA ÓKEYPIS
Þakka þér fyrir grein þína um útrásina og hlutverk forseta Íslands í því samhengi. Í mínum huga er nú mál málanna að byggja upp dýpri pólitíska umræðu um útrásina og er þetta ágætur upptaktur. Útrásin er að mínu viti annars vegar heimild smásölubankanna á Íslandi til að gambla með innistæður og lífeyrissjóði eftirlitslaust og hins vegar með eftirlitslausri skuldasöfnun (Ísland er skuldugasta þjóð heims, skv. OECD). Þegar verið er að hafa áhyggjur af stöðu íslensku fyrirtækjanna, þá segjast þau vera alþjóðleg, en þegar á að nota utanríkisþjónustuna til ókeypis markaðsfærslu, þá eru þau ...
Eyvindur
Eyvindur
29. Október 2007
EIGUM VIÐ AÐ LÁTA LÖGFRÆÐINGANA HAFA OKKUR AÐ FÍFLUM?
...Frávísunarkrafa Orkuveitunnar verður tekin fyrir eftir viku. Hún byggist á því að Svandís eigi ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Hún eigi ekki í Orkuveitunni og hafi hvorki fjárhagslega né persónulega hagsmuni af málinu.”
Þessi málsgrein er tekin af vef RÚV. Hvaða rugl er þetta, er OR ekki sameign okkar Reykvíkinga, Skagamanna og íbúa Borgarfjarðar? Kópavogur, Garðabær og fleiri seldu OR sinn hlut í Sameignarfélaginu. Ekki veit ég betur en Svandís búi í Reykjavík og eigi því ...
Reykvíkingur og einn af eigendum OR.
Þessi málsgrein er tekin af vef RÚV. Hvaða rugl er þetta, er OR ekki sameign okkar Reykvíkinga, Skagamanna og íbúa Borgarfjarðar? Kópavogur, Garðabær og fleiri seldu OR sinn hlut í Sameignarfélaginu. Ekki veit ég betur en Svandís búi í Reykjavík og eigi því ...
Reykvíkingur og einn af eigendum OR.
25. Október 2007
Á AÐ GERA ÍSLAND ÓBYGGILEGT?
Ég get eiginlega varla ímyndað mér lengur hvernig aðstæður á Íslandi verða í framtíðinni. Ef að einhver hringir í slökkviliðið á hann þá von á því að verða spurður: " Hvernig viltu borga útkallið"? Eða...
Magnús Jónsson
Magnús Jónsson
25. Október 2007
VG, HÁEFFUN OG OFURLAUN
... Hvað finnst þér þá um hana Svanhildi þína Kaaber, sem samþykkti ofurlaun útvarpsstjóra? Verða kjarakröfur BSRB í samræmi við þetta? Eigum við ekki bara öll að fá 100% hækkun?
Bjarni Kristinsson
Bjarni Kristinsson
22. Október 2007
SAMMÁLA KATRÍNU JAKOBSDÓTTUR
...Útrás í samkrulli við slíka braskara er gersamlega út í hött og siðlaus. Þess vegna verður að byrja upp á nýtt og ýta bröskurunum út. Við skulum ekki gleyma því að þeir komu inn í skjóli myrkurs og ólöglegra samninga. Þeim samningum þarf því ekki einu sinni að segja upp eins og málið blasir við frá mínum bæjardyrum. Við getum og eigum að láta gott af okkur leiða til aðstoðar öðrum þjóðum með því að nýta þekkingu okkar í orkumálum. Það gladdi mig að heyra hinar samfélagslegu áherslur í málflutningi Katrínar...
Haffi
Haffi
21. Október 2007
STUÐNINGUR ÚR KÓPAVOGI
Við sem vorum stuðningsmenn þínir í síðustu alþingiskosningum, lýsum yfir fullum stuðningi við andóf þitt og annarra þingmanna Vinstri grænna við tilraunir Sigurðar Kára og nokkurra annarra unglinga, til að koma víni og bjór inn í matvöruverslanir. Þær umræður sem verið hafa í fjölmiðlum um þessi mál hafa fyrst og fremst einskorðast við aukið aðgengi að áfengi og hvort þetta muni breyta því magni sem þjóðin neytir. En það hangir mikið fleira á spýtunni sem hefur lítið eða ekki verið minnst á...
Sigurjón Antonsson
Hafsteinn Hjartarson
Sigurður Flosason
Steinar Lúðvíksson
Svanur Halldórsson
Sveinn Jóhannsson
Sigurjón Antonsson
Hafsteinn Hjartarson
Sigurður Flosason
Steinar Lúðvíksson
Svanur Halldórsson
Sveinn Jóhannsson
20. Október 2007
VISTVÆNN TVÍSKINNINGUR
Sigríður frá Brattholti má aldrei gleymast! Ég vil taka undir með þér að allt þetta tal um sjálfbærar virkjanir er afskaplega vanhugsað. Framsókn tuðaði stöðugt um þetta. Á þessu er tuðað á Bessastöðum síknt og heilagt. Ólafur Jóhann, milli og rithöfundur, tuðar stöðugt á þessu og margir margir fleiri. Allt þetta fólk virðist mér vera tilbúið að fórna dýrmætustu náttúrperlum okkar til að virkja í þágu álrisa sem síðan nota orkuna til að framleiða sprengjuflugvélar og einnota kókdósir. Allt á þetta að vera gert á sjálfbæran vistvænan hátt. Ég er við það að fá ofnæmi fyrir þessum vistvæna tvískinnungi. Sjálfbærni er ekki lausnarorð...
Sunna Sara
Sunna Sara
19. Október 2007
ÁFENGISMÁLIÐ!
..Sárgrætilegra var þó að verða vitni af slælegri frammistöðu Þórólfs Þórlindssonar, forstjóra Lýðheilsustöðvarinnar, sem er á háum launum hjá skattgreiðendum til að gæta og vernda þjóðina frá heilsuskemmandi siðleysi og úrkynjun, ásamt gjörræði pólitíkusanna. Þórólfur sagðist ekki vera á sama máli og flutningsmenn áfengisfrumvarpsins – persónulega! En svo var að skilja að stofnunin hefði á því skilning að við þyrftum að laga okkur að breyttum heimi. En erum við ekki að reyna að breyta heiminum til góðs? Var Lýðheilsustofnun ekki sett á laggirnar einmitt til að hafa góð og uppbygggileg áhrif? Eða var til hennar stofnað til að finna pólitískum vildarvinum starf? Ég leyfi mér að spyrja.
Úlfur
Úlfur
18. Október 2007
HVER ER ENGINN?
Sjónvarpsstöðvarnar sögðu okkur frá því í fréttum að Geir H. Haarde hefði óvænt haldið ræðu á fundi hjá sjálfstæðissamtökunum Verði. Ekki skil ég af hverju heimsókn formannsins og ræðuhöld eru sögð óvænt. Í augum almennings hlýtur framganga Geirs H. Haarde að vera sjálfsögð. Í viðtölum að fundi loknum sagðist formaður Sjálfstæðisflokksins hafa hvatt fundarmenn til að snúa bökum saman og horfa fram á veg. Hann vitnaði líka til ummæla sem Jóhann Hafstein einn forvera núverandi formanns í embætti lét falla. Geir sagði eitthvað á þessa leið þegar hann vitnaði til Jóhanns: Enginn einn maður er merkilegri en Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur. Það er athyglisvert að Geir skuli vitna til ...
Ólína
Ólína
18. Október 2007
BRETTABJÓR OG PAPPAVÍN
...Ómenning sú, sem boðuð hefur verið í frumvarpinu um sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum er engan veginn samboðin okkur Íslendingum, sem greiðum hæsta áfengisverð í heimi. Þetta er ávísun á lélega vínmenningu, lélegt og einhæft vöruúrval og kemur til með að rústa bæði innflutningi og framleiðslu á bjór og léttvíni. Með þessu fyrirkomulagi, yrði mest allri léttvíns- og bjórsölu komið í hendurnar á örfáum aðilum, sem nú þegar ráða öllu á matvörumarkaði og stýra neysluvenjum landans eftir gróðasjónarmiðum einum. Sala, innflutningur og dreifing á einni hendi. Brettabjór frá Euroshopper og Krónu og pappavín í kartonum...... “
Sigurbergur
Sigurbergur
17. Október 2007
HVAÐ SKYLDU BÍLASALAR SEGJA UM BRENNIVÍNSFRUMVARPIÐ?
...Ummæli læknisins í þá veru að alkóhólisma á Grænlandi megi skýra í ljósi aðhaldssamrar áfengisstefnu skilur Sigurði Kári þannig að nú sé um að gera að fylla allar hillur í Nóatúni og Bónus af brennivíni. Þá sé þess eflaust skammt að bíða að við verðum laus við áfengisbölið. Stórfenglastar eru þó yfirlýsingar Sigurðar Kára um að "fjöldi lækna", sem hann hafi ráðfært sig við telji "ekki samhengi á milli aðgengis og neyslu áfengis." Hverjir skyldu þetta nú vera? Gæti verið að þeir væru flestir úr Sjálfstæðis/Samfylkingarflokknum? Hvað skyldu bílasalar úr sama flokki segja, eða hárgreiðslumeistarar? Hvað með lögfræðinga úr Heimdalli? Gæti verið að þeir séu líka sammála Sigurði Kára og félögum um að fela eigi markaðsöflunum að höndla með brennivín? Auðvitað hlýtur þetta að snúast um...
Grímur
Grímur
16. Október 2007
FELLIÐ FRUMVARPIÐ
Enn á ný fara nokkrir þingmenn á stað með frumvarp til laga til þess að heimila verslunum að selja léttvín og bjór. Einu rökin hjá þeim eru að viðskiptavinir geti keypt sér rauðvínsflösku með steikinni. Ef mig langar í rauðvín með steikinni munar mig ekkert um að fara í ÁTVR og kaupa flösku. Í dag eru í gildi lög sem banna að unglingum yngri en 18 ára megi selja tóbak og sama gildir um þá sem afgreiða tóbak. Nú er staðan þannig að mikið af afgreiðslufólki er undir þessum aldri og enginn gerir athugasemdir við að þessir ungu starfskraftar selji tóbak. Og eins verður það með áfengi, þessi börn verða farin að...
Sigurbjörn Halldórsson.
Sigurbjörn Halldórsson.
15. Október 2007
HVENÆR VERÐUR KOMIÐ NÓG?
Því meira sem umbúðirnar eru teknar utan af Orkuveitusukkinu því verra verður málið. Þetta hefði þurft að gera með Landsbankann, Búnaðarbankann, SR-Mjöl, Símann og öll hin einkavæðingarspillingarmálin. Þetta var reynt en með misjöfnum árangri. Nú berrassa bófarnir sig sjálfir! En pólitíkin má ekki bregðast. Ekki svo að skilja að ég óttist það en þess verður ekki langt að bíða að ...
Haffi
Haffi
14. Október 2007
HÁVAXTASTEFNA DÝRU VERÐI KEYPT
...Á tólf mánaða tímabilinu frá júlí 2006 til júníloka 2007 námu vaxtagjöld þjóðarbúsins 225 milljörðum króna (nettó 119 milljarðar). Við upphaf hækkunarferils stýrivaxta í maí 2004 nam hækkun vísitölu neyzluverðs um 4% á ársgrundvelli. Liðlega tveimur árum síðar, í ágúst 2006, höfðu meint verðlækkunaráhrif hærri stýrivaxta ekki skilað sér - hækkun vísitölu neyzluverðs á ársgrundvelli var liðlega tvöfalt hærri, eða 8.6%. Ávextir hávaxtastefnu Seðlabanka Íslands síðan maí 2004 hafa því verið keyptir dýru verði...
Gunnar Tómasson
Gunnar Tómasson
12. Október 2007
EÐALVÍN OG ÓDÝRT KASSAVÍN
...Hin nýja forysta í Sjálfstæðisflokknum sá ekkert athugavert við að eiga viðskipti með reitur Orkuveitunnar við eigendur Glitnis. Það gerði hins vegar gamli Sjálfstæðisflokkurinn. Hann spyrnti við fótum og gerði sitt til að koma í veg fyrir kaupskapinn. Meðal annars þeir sem einhverjir eigendur Glitnis gerðu atlögu að í auglýsingum fyrir alþingiskosningar í vor. Meirihlutinn féll í Reykjavík vegna átakanna milli gamla Sjálfstæðisflokksins og nýju forystunnar. Forystunnar sem boðar í blaðaauglýsingum þessa dagana haustferð með sjálfstæðisfólki í Reykjavík um helgina. Ein ástæðan fyrir því að Davíð Oddsson gerði það sem enginn hafði áður gert, að fara fram gegn sitjandi formanni Sjálfstæðisflokksins, var sú niðurlæging sem flokkurinn hafði mátt þola á landsvísu undir forystu Þorsteins Pálssonar næstu fimm ár á undan. Hann stýrir nú Fréttablaði Baugs og er þar með gömlum aðstoðarmanni sínum Ara Edvald í spunaverksmiðju Hringsins. Undanfarið hefur mátt greina meiri velvild í garð hinnar nýju forystu Sjálfstæðisflokksins í tveimur blöðum, Fréttablaði og 24Stundum. Hefur þetta einkum komið fram í afstöðunni til ...
Ólína
Ólína
12. Október 2007
ERTU SÁTTUR?
...Ótrúleg frétt ef rétt reynist að Svandís stökkvi í fang Binga eftir allan þann góða málstað í þessu REI dæmi. Við fyrsta tækifæri er hún komin í samstarf við höfund á þessum ósóma og svínaríi. Ég hefði ekki trúað þessu eftir málflutning ykkar. Ert þú sáttur við þetta?
Þorsteinn
Þorsteinn
11. Október 2007
MILLINN OG VILLINN
Bjarni Ármanns, mikill milli,
metur fyrirtækið dýrt
meðan gamli góði Villi
getur ekki hugsað skýrt.
Kristján Hreinsson
11. Október 2007
GÓÐ TÍÐINDI!
...Mér leist mjög vel á það sem forustumenn nýju borgarstjórnarinnar sögðu á blaðamannafundinum við Tjörnina. Meðal annars sagði Dagur að þetta yrði félagshyggju borgarstjórn sem hefði ekki í huga að selja einstaklingum sameignir þjóðarinnar, sem sé orkuna. Ef ég skyldi allt rétt sem sagt var þarna, líst mér vel á mannskapinn og stefnu hans í borgarmálum. Það var sorgarfundur á hlaðinu heima hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni fyrrverandi borgarstjóra, þar sem hann og félagar gáfu blaðamönnum yfirlýsingar sínar. Þeir sögðust hafa þá einu hugsjón að selja einkafyrirtækjum eignir borgarbúa og landsmanna og losa þjóðina við áhyggjur af þeim, á forsendu þess að þeir væru svo velviljaðir almenningi (kjósendum) að þeir vildu ekki fara í ...
Þjóðúlfur
Þjóðúlfur
11. Október 2007
NOKKRIR "VÍSURÆFLAR"
Leit til lofts og bað þá Feðga Báða
blessaða að losa mig við kláða.
Þeir litu jú á
ljótt var að sjá
en leist ekki á þennan snáða...
Steingrímur
10. Október 2007
ÚTRÁS, INNRÁS EÐA ÁRÁS?!
...Nær lagi væri að tala um “innrás,” þegar auðvaldið ræðst inná eignir þjóðarinnar og hirðir þær fyrir skít á priki og græðir margfalt andvirðið “sem þeir greiða” með tekjum eignanna samdægurs og “viðskiptin” fara fram. Í raun þurfa þeir ekki að greiða eyri því það er hægðarleikur fyrir þá að fá bið á greiðslunum eða að fá stutt lán hjá guðfeðrum sínum og greiða það eftir kaupin sem margfaldast snögglega eins og var með bankana, símann og fleira, sem fólk má aldrei gleyma, og sem er nú að endurtaka sig með orkuna, vatnið, fiskimiðin og landeignir! Ekki er aðeins um að ræða ...
Helgi
Helgi
9. Október 2007
GRÓÐAGUTTAR OG GRÁGLETTNI ÖRLAGANNA
Það er gott að nú hafa gróðaguttarnir gengið fram af þjóðinni. Mætti ég þá minna á að Bjarni Ármannsson og Hannes Smárason voru lykilmenn í að selja þjóðinni gagnagrunnskonceptið. Hannes stýrði útfærslunni á Nasdaq og Bjarni sex milljarða sölunni á gráa markaðnum sem keyrði upp allar væntingarnar.
Það er svo gráglettni örlaganna að gamla íhaldið með...
Jóhann
8. Október 2007
AÐ KUNNA AÐ ÁVAXTA SITT PUND
...Hjörleifur B. Kvaran settur forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, samþykkti laun Bjarna Ármannssonar og heimild hans til kaupa á 500 milljóna króna hlut á sérkjörum. Hjörleifur er settur í stól Guðmundar Þóroddsonar tímabundið, meðan að sá síðarnefndi gegnir forstjórastarfi REI. Og það verður að hafa í huga að Guðmundur ætlaði sér að kaupa hluti fyrir 100 milljónir og Hjörleifur átti einnig að njóta sérkjara. Bjarni gerist svo stjórnarformaður REI og sem slíkur sest hann niður og ákveður, með lægra settum stjórnarmönnum, hvert gengið á hlutabréfum REI eigi að vera. Þar með á Bjarni sjálfur beinan þátt í að hækka verðgildi eigin bréfa um 500 milljónir króna samkvæmt fréttum. Er þessi framkoma sæmandi? Hún þarf reyndar ekki að koma á óvart því Bjarni Ármannsson er einn helsti upphafsmaður að því að innleiða þann kúltur í opinberri stjórnsýslu/bönkunum að greiða stjórnendum alls kyns bónusa tengdum árangri. Það var þegar ...
Grillir
Grillir
7. Október 2007
VEL HEPPNUÐ LÝTAAÐGERÐ ÞORGERÐAR KATRÍNAR
Ég horfði á Silfur Egils í dag og heyrði síðan fréttir seinna um daginn í sömu stöð. Þar var básúnað það sjónarmið Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins að henni hefði fundist of hratt farið í sameiningu Geysis Green og Reykjavík Energy Invest. Þá hefðu kaupréttarsamningarnir verið of háir. Því miður var Þorgerður Katrín ekki spurð hvort hún styddi það að undið yrði ofan af þessu alvarlega spillingarmáli sem áhöld eru um hvort standist lög. Hlustandinn fékk þá mynd í fréttum að varaformaður Sjálfstæðisflokksins vildi aðra stefnu varðandi einkavæðingu orkunnar. Þeir sem horfðu á Þorgerði í Silfrinu fengu allt aðra tilfinningu því þar kom skýrt fram að hún telur þessa þróun almennt í himnalagi. Yfirlýsingarnar virðast fyrst og fremst settar fram til að...
Haffi
Haffi
5. Október 2007
EKKI TÚLKA UMFRAM ÞAÐ SEM MEINT ER
...Ég verð þó að gera athugasemdir við túlkun þína á ummælum mínum sem birtust í sjónvarpsfréttum 2. október sl. Í fyrsta lagi segi ég hvergi að fráleitt sé að reisa álver á Suðvesturhorninu. Ég segi að í ljósi þeirrar skerðingar sem varða á þorskkvótanum í sumar og þeim vanda sem steðjar að landsbyggðinni „sé skynsamlegt í stöðunni að einbeita sér að einu álveri og það álver sé álverið á Bakka við Húsavík. Við erum ekkert að slá álverið í Helguvík af". Þessi ummæli á ekki að túlka öðruvísi en skv. orðanna hljóðan þeirra. Ég tek svo fram að ég styð atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum í hvívetna en tel í ljósi þeirrar þenslu sem er á suðvesturhorninu að best sé að forgangsraða framkvæmdunum á þennan hátt. Þar er ég með hagsmuni landsins alls að leiðarljósi. Í annan stað fullyrðir þú að ég fari með rangt mál. Það er ekki rétt...
Höskuldur Þórhallsson
Höskuldur Þórhallsson
4. Október 2007
BÓNUS EIGNAST ORKUVEITU
...Það hefði enginn flokkur á Íslandi og ekkert fyrirtæki staðið vörð um, byggt upp og rekið með jafn glæsilegum hætti Orkuveitu Reykjavíkur með sama hætti og Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert. Faðir minn var þeirrar skoðunar að í rekstri Orkuveitunnar væri ballestin í Sjálfstæðisflokknum fólgin. Í því fyrirtæki yrði áþreifanlegust sú samfélagslega ábyrgð sem forystumenn flokksins hefðu sýnt áratugum saman. Þetta keypti ég. Í dag stríddi ég föður mínum á því að nú hefðu hans eigin menn afhent Jóni Ásgeiri í Bónus og FL Group Orkuveitu Reykjavíkur. Föður mínum var ekki skemmt og ég sá eftir að hafa ekki setið á mér. Mér hefur hins vegar verið hugsað til þess sem hann sagði þegar við kvöddumst í kvöld...
Kveðjur,
Ólína
Kveðjur,
Ólína
4. Október 2007
LANDRÁÐ
Fyrir nokkru síðan velti ég fyrir mér hvað væri í vændum, þegar birtust á forsíðu Mogga myndir af lögreglu við mannfjöldastjórn. Í einfeldni minn hélt ég að það væru kjarasamningar um áramót, sem stjórnvöld væru að undirbúa sig fyrir, en auðvitað er það einkavinavæðing og sjálftekja svokallaðra "fulltrúa almennings”, sem gæti farið fyrir brjóstið á þessum sama almenningi. Orkuveituskandallinn er svo grófur að maður hefur ekki hugmyndaflug til að ímynda sér neitt slíkt....Og þar sem ég veit að Ríkislögreglustjóri les póstinn þinn, þá er ég fullviss um að hann mundi ekki hafa ...
Sigurbergur
Sigurbergur
3. Október 2007
DOKTOR ÖSSUR AND MR. BLOGG
VG ræðumenn voru bestir í umræðunum á Alþingi í gær. Framsókn má þó eiga að hún var bráðskemmtileg einsog þegar Bjarni Harðarson benti á að afleitt væri að breyta þyrfti almanntryggingakerfi landsmanna fyrir þá sök eina að Ásta Ragnheiður skildi ekki kerfið. Ekki var Guðni síður góður þegar hann skaut á sérfræðing í málefnum Þingvallarurriðans, dr. Össur Skarphéðinsson , hæstvirtan iðnaðarráðherra, sem gjarnan brygði sér í gervi stjórnarandstæðings þegar kvöldaði. Í næturhúmi sæti bloggarinn dr. Össur og skyti út og suður - og ekki alltaf óvægið – jafnvel á ábúendur í Stjórnarráði Íslands. Nokkuð smellin tilvísun í dr. Jekyll and mr. Hyde í frægum enskum reyfara. Prik til Guðna. Þó verð ég að segja að...
Grímur
Grímur
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












