Frá lesendum
31. Janúar 2007
BÖRN FÁI AÐ VERA BÖRN
Hvað er brýnast nú í málefnum þjóðarinnar. Er það kosningaréttur barna? Væri ekki hepplegra að berjast fyrir því að börn fái t.d. viðunandi heilbrigðisþjónustu og félagslega þjónustu sem þau þurfa á að halda. Eigum við ekki að leyfa þeim ... að vera börn sem lengst? Ég held að það sé meiri þörf á að gæta réttinda þeirra. T.d. væri ágætt að koma þeirri reglu ...
Sigríður K.
Sigríður K.
30. Janúar 2007
NÆST JAFNVÆGI Á VINSTRI KANTINUM?
...En fylgistapið stafaði af því sagði hún að við þorum þegar hinir þegja. Hún hélt ræðu um efnið í flokki sínum á laugardag en meginhluti ræðunnar fjallaði annars um Baug. Annar leiðtogi stjórnarandstöðunnar hélt ræðu sama dag og talaði mest um útlendinga en gleymdi að geta þess sem er aðalatriðið að innflutt vinnuafl hefur bjargað efnahagslífinu í byggingarkranafrumskóginum Íslandi. Svo kom Jón Baldvin Hannibalsson og talaði skynsamlega um efnahagsmál en lét þess ekki getið að öll pólitíkin sem hann rakti út úr sér var pólitík VG; hann gat hins vegar ekki höfundar...
Sigríður Þórarinsdóttir
Sigríður Þórarinsdóttir
29. Janúar 2007
EKSTRABLAÐIÐ, DV OG FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR
Ég sef alveg sæmilega á nóttunni þótt mér finnist stundum orðræðan í fréttum svo klisjukennd að það stappar nærri hinu ómögulega. Til dæmis þegar viðskiptaráðherra boðaði að hann hygðist láta kanna af hverju byrgjar ... Á sama hátt er það furðulegt að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skuli ekki vera spurð um hvort henni þyki vænlegt til forystu ... að gera að sínum úr sér gengin slagorð Ekstrablaðsins danska og DV þegar það blað fór ekki beint með himinskautum, þorum þegar aðrir þegja. Eða þarf hún kannske ekki að segja kjósendum ...
Ólína
Ólína
28. Janúar 2007
AÐ ÞORA OG ÞEGJA
...Mér sýnist hið sama vera að gerast í þessu máli og í Reykjavík forðum. Þegar Ingibjörg Sólrún, þáverandi borgarstjóri, treysti sér ekki í andstöðu gegn Kárahnjúkavirkjun þegar atkvæði var greitt um það í borginni hvort heimila ætti Landsvirkjun að ráðast í náttúruspjöllin fyrir austan, þá var einmitt sagt að þetta væri á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Nú á að leika sama leikinn. Það sé ekki flokksforystu Samfylkingarinnar að taka afsötðu til kröfu Alcans um stækkun álbræðslunnar – þetta sé algerlega málefni Hafnfirðinga. Og er ég þá kominn að efni þessa bréfs.
Er það þetta sem formaður Samfylkingarinnar kallar að þora í stjórnmálum? Væri kannski ...
Haffi
Er það þetta sem formaður Samfylkingarinnar kallar að þora í stjórnmálum? Væri kannski ...
Haffi
27. Janúar 2007
LEIÐARAHÖFUNDUR ÁN JARÐTENGINGAR
...Ekki hefur leiðarahöfundur Morgunblaðsins frétt af þjónustu Símans þar sem fólk hefur orðið að bíða dögum og jafnvel vikum saman eftir einföldum viðgerðum, sem áður tók dagpart að kippa í lag, þessi þjónusta hefur fjarlægst fólkið. Ekki hefur leiðarahöfundurinn heldur frétt af sífellt versnandi þjónustu fyrrverandi ríkisbanka út um land þar sem útibú hafa verið lögð niður, útlánaheimildir útibússtjóra verið takmarkaðar, þjónusta hækkuð (ég hef frétt af að lánastofnanir eru farnar að taka allt að 5% lántökugjald og jafnvel 5% uppgreiðslugjald) og fleira í ...
V.B.
V.B.
26. Janúar 2007
“...OG ÞAR AF LEIÐANDI STÆKKUN ÁLVERSINS."
...En ég geri kröfu til þess að hann komi hreint fram gagnvart okkur sem erum stækkuninni andvíg. Í fréttum hefur hann gefið í skyn að þar sem fulltrúar VG hafi komið að vinnu um deiliskipulagstillögu Alcans, ásamt fulltrúum allra flokka hljóti flokkurinn að styðja deiliskipulagið. Lúðvík talar í því samhengi um að þverpólitísk samstaða sé um deiliskipulagið. Og þar sem kjósa á um deiliskipulagið lesa menn það út að VG styðji stækkun! Þessu hefur VG mótmælt. Lúðvík bæjarstjóri sættir sig hins vegar ekki við þau mótmæli og sakar VG um útúrsnúninga. Í Morgunblaðinu í gær segir bæjarstjórinn að stækkun álversins...
Haraldur
Haraldur
24. Janúar 2007
ÞRÆÐIR BETSSON LIGGJA VÍÐA
Í tilefni af umfjöllun þinni um Betsson og fjárhættuspil á netinu langar mig til að benda þér á athyglisverða grein þar sem hagsmunaþræðir eru raktir. Fram keumur að þeir liggja víða...
NN
NN
24. Janúar 2007
ÞORÐU ÞEGAR HINIR ÞÖGÐU
...Lesandinn má vel ímynda sér að hún/hann séu stödd í fjölskylduboði. Þar er talað um allt milli himins og jarðar og meðal annars það að skattar séu allt of háir. Það er vinsælt umræðuefni. Hver þorir þar að segja: Heyrðu nei, það er ekki rétt. Það vantar þvert á móti meiri peninga í sjúkrahúsin. Það var ekki vinsælt að segjast vera á móti stóriðjustefnunni þegar annar hver maður á landinu hafði tekið lán til að kaupa trukk og gröfu. En einhver varð að segja satt. Einhver varð að hafa kjark. Einhver varð að þora. Það voru VG sem þorðu. Flokkurinn sem...
Sigurður Bjarnason
Sigurður Bjarnason
23. Janúar 2007
ALCAN OG SAMFYLKINGIN
Það er alltaf eitt sem gleymist í allri umræðunni þegar það er verið að ræða álmálin. Það er nefnilega þannig að það var eitt af fyrstu verkum Samfylkingarinnar í Hafnarfirði að selja Alcan land undir álverið. Það gerðist 30. desember 2003.
Það er þess vegna ekkert hægt að halda því fram af Samfylkingunni í Hafnarfirði að hún sé á móti álversstækkuninni. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði sagðist líka á sínum tíma, þegar umhverfisnefnd Hafnarfjarðarbæjar mótmælti stækkun að bæjarstjórnin væri á öðru máli.
Svo á núna að kjósa um þetta af því að þetta sé meiriháttarmál. Það er fínt að gera það, en ekki nóg. Landið á allt að kjósa um svona hluti. En ætli Samfylkingin vilji það?
Ekki vildi Samfylkingin á alþingi leyfa almenningi að kjósa um Kárahnjúkavirkjun. Þess vegna er það ekki bara...
Sandra
20. Janúar 2007
ÓLÖGLEG STARFSEMI AUGLÝST
Varðandi Betsson málið. Er ekki ólöglegt að auglýsa visvítandi ólöglega starfsemi? RÚV, 365, S1 &co eru allir að taka við auglýsingafé vitandi hvað þeir eru að auglýsa...
Hermann Jónsson
Hermann Jónsson
18. Janúar 2007
"TRYGHEDSNARKOMANER"
...Annað hvort er fréttastofa RÚV að reyna að þegja í hel átökin á Alþingi eða þá að fréttaleg vanmetakennd hefur gripið um sig þar sem djarfir menn og framhleypnir ættu að halda um stjórnvölinn. Þarf ekki einmitt með einkavæðingu RÚV að skapa möguleika á að hrista upp í stjórnendaliðinu Ögmundur? Annars er merkilegt hve mjög stjórnarsinnum liggur á að klára RÚV málið. Menn gætu haldið að fagráðherrann væri tímabundinn, þyrfti að komast á ólympíuleika eða HM til að sinna brýnum skyldum sínum fjarri heimahögunum.
Ólína
Ólína
12. Janúar 2007
ÞAÐ ÞARF NÝJA HAGSTJÓRN !
...Hitt er ljóst og allt annað mál að íslenska hagkerfið er lítið og það er flókið að taka við áhrifum heimsvædds hagkerfis á svo litla mynteiningu. En það er verkefni til að takast á við; það á að gera með góðri hagstjórn. Góð hagstjórn er ekki það að lækka skatta á þenslutímum. Ekki heldur það að efna til stóriðjukapphlaups um land allt á sama tíma. Háu vextirnir eru í raun ekki heldur Seðlabankanum að kenna; þeir eru niðurstaða vitlausrar hagstjórnar sem ríkisstjórnin ber ábyrgð á. Til að halda niðri verðlagi - líka á matvælum - þarf ...
Sigurður Bjarnason
9. Janúar 2007
TÆKIFÆRISMENNSKA?
...var að lesa pistil þinn um Alcan og Kryddsíldina og langar að forvitnast hjá þér, þar sem bæði þú og formaður þinn hafið nú báðir nánast misst málið yfir þessu hneyksli að ykkar mati, hvers vegna þið gerðuð ekki þessar athugasemdir fyrir ári síðan þegar kryddsíldin var þá í boði Alcan? Ég vil segja fyrir mitt leyti að ég er ekki fylgjandi stækkun álversins í Straumsvík en ég er jafnframt algjörlega á móti því að stjórnmálamenn leggist á sama plan og þú og Steingrímur hafið...
Sigurður J.
Sigurður J.
7. Janúar 2007
ER ÓMARI EKKI ÓSKAÐ TIL HAMINGJU?
Þú segir í erindi þínu "FORSÆTISRÁÐHERRA OG FORMENN STJÓRNMÁLAFLOKKANNA Í BOÐI ALCAN!!!" að stjórnmálaforingjar hafi verið í boði Alcan. Er það þess vegna sem enginn stjórnmálaforingjanna, ekki einu sinni VG, óskaði Ómari Ragnarssyni til hamingju með að vera valinn Maður ársins 2006? ...
Guðmundur Jónsson
Guðmundur Jónsson
6. Janúar 2007
EIGNARRÉTTURINN GETUR ORÐIÐ HJÁRÆNULEGUR
...Nokkur orð um eignarréttinn. Hver maður hefur vissulega sinn eignarrétt og hann ráðstafar honum að vild - að öllum líkindum. Það er nefnilega það, það er þetta: "að öllum líkindum". Eignarréttur nær skammt ef einhverskonar böl yfirtekur þann vilja sem hefur með téðan rétt að gera. Fíkn, fátækt, andleg og félagsleg nauðung - allt þetta gerir eignarrétinn hjárænulegan og margumtalað "frelsi" líka. Í heimi þar sem dagurinn á morgunn er í móðu eða jafnvel ekki til, í heimi þar sem...
Guðmundur Brynjólfsson
Guðmundur Brynjólfsson
5. Janúar 2007
GEGN AUÐVALDI - KJÓSUM VG
...Er ekki kominn tími til þess að við sem minna höfum heldur en milljarðamæringarnir förum að berjast af alvöru gegn valdi auðsins ? Ég bara spyr vegna fréttar úr þínu nýja kjördæmi um lóðaúthlutun í Kópavogi og svekkelsi Þorsteins Baldvinssonar út af því að fá ekki endalóðina sem var dregin út. Úr því að hann fékk ekki...
Sveinn Elías Hansson
Sveinn Elías Hansson
5. Janúar 2007
SÝNUM ÍSLENSKA FÁNANUM ÞÁ VIRÐINGU SEM HONUM BER
...Það gleður mig að þú hafir tekið á móti þjóðfána okkar, sem barist var fyrir, við sjálfstæði þessarar þjóðar. Ég hef fylgst með baráttu Péturs, fyrir meiri virðingu fyrir þjóðfána okkar og réttri notkun hans. Hvernig er það eiginlega með prótokol meistara Forseta embættis og allra ráðuneyta, hafa þeir ekki skyldum að gegna til að farið sé að lögum um notkun þessa sameinigartákns og stolts okkar, sem barist var svona mikið fyrir? Ég hef búið langt burtu þ.e. á Nýja Sjálandi og þar er fáninn okkar heilagur Íslendingum í orðsins fyllstu merkingu þess orðs. Getið þið alþingismenn...
Jóhannes Arason
Jóhannes Arason
3. Janúar 2007
ENN UM EIGNARRÉTT OG MANNRÉTTINDI
...Eignarréttindi eru mjög vanmetin. Menn rugla þeim saman við eignir, og þau séu aðallega fyrir hina ríku. Eignarlaus maður hefur jafn mikil eignarréttindi og ríkur maður. Mállaus maður hefur jafn mikið skoðana- og tjáningarfrelsi og ræðuskörungurinn...Feimni vinstri manna og hjárænuháttur gagnvart eignarrétti, sem á rætur í úreltum trúarkenningum, stendur vinstri mönnum fyrir þrifum.
Milljónir þræla í Bandaríkjunum ...
Jóhann J. Ólafsson
Milljónir þræla í Bandaríkjunum ...
Jóhann J. Ólafsson
2. Janúar 2007
SIGURSVEIT SEND Í KRAGANN
...Þá er það greinilegt að þeir sem eru með Ögmundi geta sótt inn á nýjan kjósendaakur, til dæmis Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sem verður að teljast með alsterkustu frambjóðendunum í vor. Þá er Gestur Hafnfirðingur Svavarsson væntanlega eini frambjóðandinn á listum vorsins í kjördæminu sem sameinar það að vera á móti álversstækkun og að búa í Hafnarfirði. Mireya Samper hlýtur að hafa mikið aðdráttarafl í Kópavogi. Og Andrea Ólafsdóttir er þekktur femínisti og baráttukona í umhverfismálum, sem hefur vakið mikla almenna athygli. Það er því margt sem bendir til þess að það sé sigursveit sem VG sendir inn í sv - kjördæmið undir forystu Ögmundar Jónassonar. Sigurði kæmi ekki á óvart þó útkoman í suðvestur-kjördæmi í vor yrði...
Sigurður Bjarnason
Sigurður Bjarnason
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












