Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

31. Desember 2007

GÓLAÐ ÚT AF FÁEINUM FLÖSKUM

...En hvað um víngjafir almennt, hafa þær tilætluð áhrif á þiggjandann eins og þið kommarnir viljið vera láta? Rannsóknir sýna ótvírætt að svo er ekki. Í 95% tilvika gleymist gefandinn eða þá að þiggjandinn kennir gefandanum um ýmis asnaprik sem hann...
Þjóðólfur

31. Desember 2007

TROJUHESTAR FJÁRMÁLAHEIMSINS

...En Guðfríður Lilja Grétarsdóttir benti réttilega á það í Silfri Egils í gær að í sínum huga snerist þetta alls ekki um eina flösku af víni heldur væri þetta fyrst og fremst táknrænt um það hvernig stjórnmála- og fjármálaheimurinn væru  að renna saman í einn graut. Þetta er mergurinn málsins, ekki ein rauðvínsflaska til eða frá. Össur Skarphéðinsson sagðist í sama þætti hafa fengið gjafir frá samtökum fatlaðra. Ágætt, enginn að amast við því  enda ...
Haffi

30. Desember 2007

FLJÚGANDI NÝÁRSKVEÐJUR

Ég sendi þotuliði landsins mínar bestu nýárskveðjur með óskum um hundruða milljarða gróða...
Loptur

30. Desember 2007

SAMFYLKINGIN: KLAPP Á KOLLINN FRÁ GEIR

Mér berst blaðið 24Stundir inn um bréfalúguna daglega. Í gær var þar grein eftir Helga Hjörvar, alþingismann, að mæra Sjálfstæðisflokkinn og mátti hann vart vatni halda yfir því að fá að vera með Íhaldinu í ríkisstjórn. Öðru vísi mér áður brá því sami Helgi gekk hart fram í gagnrýni á fyrri ríkisstjórn, þ.e. þegar Framsókn sat með Íhaldinu á sama stað og Samfylkingin situr nú. Þetta er svoldið skrítið þegar haft er í huga að engin breyting hefur orðið á stjórnarstefnunni nema þá helst að nú er harðar gengið eftir...
Sunna Sara

27. Desember 2007

BANKAR OG FASTEIGNABRASK

Rakst á umræðu frá 4. apríl 2005 hjá þér þar sem lesandi sendi inn hugleiðingu varðandi " fasteignabrask bankanna ".  Sá þó engin svör eða frekari umræðu. Var eitthvað meira fjallað um þetta og ef svo, er hægt að ...
Freyr

26. Desember 2007

LITLU JÓLIN Í SAMFYLKINGUNNI

Nú fer það fjöllum hærra að ungir Samfylkingarmenn ætli að skera upp herör gegn ráðningu héraðsdómara á Akureyri. Finnst það vera mál málanna að lýsa á hinar pólitísku tengingar við ráðninguna. Gott og vel, ágætt að einhverjir  nenni að hugsa um þetta sem mér finnst þó varla geta talist mál málanna. Það sem mér finnst vera mál málanna er að ungt Samfylkingarfólk skuli taka því þegjandi að Þjórsánni sé fórnað á altari stóriðju, heilbrigðiskerfið einkavætt, lagst í duftið fyrir hernaðarhyggju Bush og NATÓ - allt án þess að heyrist  múkk frá hinni ungu Samfylkingu. Dauðaþögn. Ungu Samfylkingarfólki virðist vera ...
Grímur

23. Desember 2007

GLEÐILEGA HÁTÍÐ

Ættingjum okkar og vinum, sem og landsmönnum öllum, sendum við...
Sigurfljóð Hermannsdóttir og fjölskylda

23. Desember 2007

AÐGÁT SKAL HÖFÐ

Ungur var ég að árum þegar ég las ljóð Einars Benediktssonar, Einræður Starkaðar, og enn hefur sá mannúðar boðskapur sem þar er að finna ekki liðið mér úr minni. Oft finnst mér að "hneykslunarhellur" nútímans, sem ekkert "misjafnt mega sjá", mættu að ósekju lesa þetta ljóð Einars. Þar á meðal eru "samviskuhellurnar" sem súpa nú hveljur yfir því að nýskipaður héraðsdómari...
Þjóðólfur

21. Desember 2007

HVAÐ MEÐ EFTIRLAUNA-FRUMVARPIÐ?

Sér þingflokkur VG ekki sæng sína upp reidda?  http://dv.is/frettir/lesa/2138 ...
Hjörtur

21. Desember 2007

HEILBRIGÐISRÁÐ-HERRA VERÐUR AÐ SVARA RÖKUM MEÐ RÖKUM

Ég þakka fyrir að þú skulir vekja athygli á grein Rúnars Vihjálmssonar, prófessors í heilsuhagfræði, um íslenska heilbrigðiskerfið og framtíð þess. Ég las þessa grein og er ég þér sammála um að þeir sem nú stýra ferðinni í heilbrigðisráðuneytinu verða að svara röksemdum manna á borð við Rúnar, áður en þeir setja allt upp í loft. Ráðherra verður að svara rökum með rökum. Ágæt grein Gunnars Alexanders Ólafssonar, sem þú einnig vitnar í, hafði farið framhjá mér en Dahlgren að sjálfsögðu ...
Haffi

21. Desember 2007

BLÓM Í HÉRÐASDÓMI

Í víti og ræsi vaxa blóm
sem vekja skömm og hrylling,
þau herja nú á Héraðsdóm,
þau heita Vald og Spilling.
...
Kristján Hreinsson, skáld

18. Desember 2007

HEILRÆÐI FYRIR STELPUR

Ungar konur elska best
þær óttast vart sinn herra.
En sá sem konur svíkur mest
má sjálfur tár sín...
Kristján Hreinsson, skáld

17. Desember 2007

MISSKIPTING ÓGNAR SAMHELDNI

Ég vildi bara þakka þér fyrir frábæra síðu Ögmundur, ég er ein þeirra fjölmörgu sem hlakka til að lesa pistlana þína á hverjum degi, enda er síðan eitt öflugasta málgagn réttsýni í okkar samfélagi... Ég vil sérstaklega fá að taka undir grein ykkar Þuríðar Einarsdóttur um nauðsyn þess að hækka laun fólks í almannaþjónustunni. Það ætti að vera ólíðandi fyrir okkur öll að horfa upp á hvernig þeir hópar sem síst skyldi - þær stéttir sem raunverulega halda samfélaginu gangandi - hafa dregist aftur úr...
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

17. Desember 2007

RÁFAÐ UM SKÓGINN

Stundum er haft á orði að fólk sjái ekki skóginn fyrir trjánum  þegar það einblínir á einstaka þætti máls en áttar sig ekki á heildarsamhengi hlutanna.  Ekki veit ég  hvort það er vísvitandi gert hjá „Þingskapameirihlutanum" á þingi, sem þið kallið svo, að hamast á því að deilurnar um ný þingskapalög hafi eingöngu snúist um lengd ræðutíma. Ég hef sannfærst um að svo var  alls ekki...
Sunna Sara

17. Desember 2007

DRÖGUM RÉTTA LÆRDÓMA

Pistill þinn með fyrirsögninni "VINIR ÍSLANDS?" er góður og málefnalega hárréttur að öllu leyti!    Það er einnig hughreystandi að Morgunblaðsmenn og aðrir fjölmiðlar sáu hið hræðilega ofbeldi gegn saklausri íslenskri konu í heimsókn til Bandaríkjanna og höfðu manndóm í sér til að bregðast við í anda sjálfstæðrar þjóðar sem lætur ekki svívirða saklausan landa sinn átölulaust! 
Úlfur

17. Desember 2007

HVERJIR FÓÐRUÐU KANANN?

Merkileg þótti mér ábending þín í Silfri Egils í gær um fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur á þingi um aðgang bandarískra lögregluyfirvalda að upplýsingum um Íslendinga frá fyrri tíð.  Ég fletti þessu upp á Alþingisvefnum og verð ég að segja að mér þykir harla undarlegt að þetta skyldi ekki fá meiri umfjöllun en raun bar vitni...
Grímur

14. Desember 2007

GUÐLAUGUR OG SLÁTURFÉLAGIÐ

Oft hefur þú verið óvæginn við pólitíska andstæðinga en nú er mér nóg boðið. Að tengja heilbrigðisráðherra landsins, Guðlaug Þór Þórðarson, við Sláturfélag Suðurlands finnst mér svo ósmekklegt að engu tali tekur...
Sigurfljóð Hermannsdóttir

12. Desember 2007

UM KIRKJU, RÍKI, SKÓLA OG VG

Nú á sér mikil umræða um aðskilnað skóla og kirkju. En aðskilnaður skóla og kirkju var einmitt málamiðlunin á landsfundi VG í hitteðfyrra þegar þjóðkirkjumálið var til umfjöllunar. Ég hef ekki heyrt eitt einasta orð frá þér (sem varst þó lykilmaður í þessari málamiðlun) né öðrum kjörnum fulltrúum okkar á alþingi um þetta mál síðan. Þetta er nokkuð sérstakt einkum nú þegar virkilega er verið að takast á um þessi mál í samfélaginu. Hvað veldur þessari djúpu þögn…
Kveðja,
Tumi Kolbeinsson

11. Desember 2007

GRÓFUR BRANDARI EÐA HÓTUN?

Lastu þennan pistil eftir Gilzenegger, hann var grófur brandari, en að skilja hann sem hótun um hópnauðgun, er eitthvert mesta rugl sem ég hef séð. Og hvað þá að samsama þann pistil á alla sem finnst femínistarnir komnir út í öfgar...
Ólafur

10. Desember 2007

ERU JAFNAÐARMENN GENGNIR ÚR SAMFYLKINGUNNI?

...Fimm milljarðar eru ekki miklir peningar þegar um er að ræða alla öryrkja og alla aldraða á Íslandi. Síðan ætla þau að svelta velferðarkerfið. Og til hermála setur Samfylkingin á annan milljarð! Hvar er jafnaðarfólkið...
Haffi

9. Desember 2007

JÓHANNA OG FJÖLSKYLDUHJÁLPIN

...Í annað skipti á hennar stjórnmálaferli er það hlutskipti hennar og annarra Krata að leiða Sjálfstæðisflokkinn til valda á Íslandi. Eins og jafnan er allt lagt í að gera sem mest úr einhverjum molum til öryrkja og aldraðra – en á sama tíma búa þau í haginn fyrir fjármagnsöflin. Eins gott að kíkja við hjá Fjölskylduhjálpinni...
 Grímur

8. Desember 2007

HVERNIG AUKA MÁ VIRÐINGU ALÞINGIS

…Til að auka virðingu og virkni Alþingis legg ég til að það verði sett regla um að ekki sé fundarfært ef minna en 2/3 alþingismanna sitji fundinn. Mér finnst það óvirðing við þjóðina ef alþingismenn sitja ekki fund. Þætti gaman að fá viðbrögð.
Nils

7. Desember 2007

GÓÐ GREIN HJÁ EINARI

Menn skulu vita að “NATO” er „varnarbandalag“ Norður Atlantshafsþjóðanna og var stofnað af leppum Bandaríkjanna, Rússum og kommúnismanum til höfuðs. Við Íslendingar gengum í bandalagið á þeirri forsendu að um varnarbandalag væri að ræða, en þjóðin var svo sannarlega ekki einróma í þeim gjörðum og er það væntanlega ekki enn þó mikið hafi verið gert til að heilaþvo hana...
Úlfur

6. Desember 2007

HRÓPANDI RANGLÆTI GAGNVART LÍFEYRISÞEGUM

…Á það má benda, að einstaklingur má afla sér allt að 100 þús. kr. í vinnutekjur án þess að það komi til frádráttar ellilífeyris almannatrygginga. Hvers vegna gildir ekki það sama um greiðslur frá lífeyrissjóðum a.m.k. fyrir sömu upphæð? Það er fullkomið óréttlæti að láta þá einstaklinga sem hófu greiðslur á grundvelli blekkinga 1974 og nú eru að fara á marg verðfelldan lífeyri uppskerða svikin loforð og fyrirheit. Það er ranglæti af verstu tegund að þeir skuli   ekki í það minnsta njóta sömu réttinda og þeir sem afla sér viðbótartekna…
Gunnar Gunnarsson

5. Desember 2007

FULLVELDIÐ OG UTANRÍKISMÁLIN

Þú spyrð hvort við hefðum sætt okkur við að Danir færu með okkar utanríkismál. Það vantar illilega aftanvið setninguna. Danir fóru með utanríkismál Íslendinga í umboði Alþingis. ÖLL mál voru í höndum Alþingis með tilkomu fullveldis...
Borgþór

4. Desember 2007

ÓMETANLEG REYNSLA

Með festu gegn Putin nú fara þeir mikinn,
um fláttskap í kosningum saka þeir hann,
en til þess að kanna þar svindlið og svikin
við sendum þeim auðvitað framsóknarmann.
Kristján Hreinsson, skáld

3. Desember 2007

HVER SKYLDU VERA VINNUKONULAUNIN HJÁ MARGRÉTI PÁLU?

Ég segi fyrir mitt leyti að mér finnst launamunurinn – á milli láglaunafólks og hátekjufólks, óháð kyni, skipta máli ekki síður en staða kynjanna. Reyndar finnst mér aðal meinsemdin í þjóðfélaginu vera vaxandi kjaramisrétti og það þarf að gæta þess að misskiptingin sé ekki einvörðungu rædd á  kynbundnum forsendum... Eins saknaði ég í Silfri Egils og það var að við skyldum ekki upplýst um launakjörin hjá einkafyrirtækinu hennar Margrétar Pálu. Ég gef mér að hún eigi fyrirtækið og stýri því þótt skattborgarinn standi straum af kostnaðinum – en hvað skyldi hún borga sínum vinnukonum?...
Sunna Sara

2. Desember 2007

EMBÆTTI RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA Á AÐ VERA SMÁTT Í SNIÐUM

...Ef þjóðin telur rétt að vopna einhvern hluta lögregluliðs síns þá er rétt að leggja það til að sérsveit vopnaðra manna verði byggð upp undir stjórn lögreglustjóra á eftirtöldum stöðum með tilliti til alþjóðaflugvalla og til þess að draga úr hættunni sem fylgir því að einn maður ráði yfir þessum vopnaher: Akureyri, Egilsstaðir, Höfuðborgarsvæði og Keflavík. Ert þú tilbúinn að skara þennan eld og stöðva þessa andlýðræðislegu þróun?
Þórður Eric

1. Desember 2007

ÚT Á VINNUSTAÐINA!

...Það þýðir ekki að hver berjist fyrir sínum einkakækjum, sértrúnaði og kenndum, hver í sínu horni og enginn viti hvert skuli stefna. Fólk verður að gera sér grein fyrir þeirri alvörustundu sem upp er runnin. Það er Í ALVÖRU verið að stela eignum þjóðarinnar. Það er Í ALVÖRU verið að eyðileggja velferðarsamfélagið með því að fela það í hendur gróðaöflum, ekki bara íslenskum heldur einnig alþjóðlegum. Ef baráttan og baráttufólkið er ekki meðvitað um þetta, meðvitað um að baráttan verður að horfa til hagsmuna almenings, til þjóðarinnar; að baráttan verður að vera þjóðleg og markviss – ef menn eru ekki meðvitaðir um þetta þá...
Úlfur

1. Desember 2007

FÁTÆKAR ÞJÓÐIR EIGA EKKI AÐ GREIÐA NIÐUR RAFMAGN Í REYKJAVÍK

...Hins vegar getum við lagt til einhvern skerf með þekkingu jarðvísindamanna og tækniþekkingu, sem við eigum þá að "selja" eins ódýrt og unnt er þegar í hlut eiga miklu fátækari lönd en Ísland. Góð leið til þess er að efla Jarðvísindaháskóla sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Í umræðum undanfarna daga hefur maður heyrt að Orkuveitan geti hagnast um einhverja miljarða, jafnvel tugi miljarða, á þátttökunni í REI, sem væri þá hugsanlega hægt að nota til að greiða niður orkukostnað Íslendinga. En einhvers staðar koma þeir peningar frá og maður veltir fyrir sér hvort það sé siðferðilega réttlætanlegt að láta fátækt fólk í þriðja heiminum greiða niður orkukostnað Reykvíkinga.
Jón Torfason

30. Nóvember 2007

SJÁ EFTIR AÐ KJÓSA SAMFYLKINGUNA - VILJA ÚT Á VINNUSTAÐINA!

...Mér finnst gott að vita að þið eruð allavega ekki til sölu og það eiga margir eftir að sjá eftir að kjósa Samfylkinguna og aðra flokka sem gerast þjónar valdsins hvenær sem það býðst. Ef þið verðið borin ofurliði í þinginu og málfrelsi fólksins í gegn um ykkur sem kaus ykkur sem sína fulltrúa tekið af ykkur þá verðið þið að fara út í þjóðfélagið og heyja ykkar baráttu þar...
Guðmundur frá Hofi

29. Nóvember 2007

FLOTTIR Í BLEIKU

Það gladdi mitt femínista hjarta þegar ég sá forsíðumyndina af ykkur Steingrími Joð í vikublaðinu Austra í gær. Þarna finnst mér þið sýna samstöðu í verki með þingfélaga ykkar, Kolbrúnu Halldórsdóttur, umvarðandi þá lit-kyngreiningu sem enn tíðkast... mig langar að biðja þig Ögmundur minn að birta...
Þjóðólfur

24. Nóvember 2007

HEILRÆÐI FYRIR STELPUR

Ungar konur elska best,
þær óttast vart sinn herra.
En sá sem konur svíkur mest
má sjálfur tár sín þerra.

Hafðu bæði háð og spott,
hörku skalt þú sýna,
aðeins það er gilt og gott
sem gleður sálu þína.
...
Kristján Hreinsson

23. Nóvember 2007

Á LEIÐ TIL TUNGLSINS?

Frábær þótti mér myndskreytingin við grein þína um einkavæðingartal formanns Læknafélagsins. Það er engu líkara en formaðurinn telji lækna gjörsamlega óháða umhverfi sínu – að störfum á tunglinu. Ríkið hefur aldrei læknað neinn, sagði Birna Jónsdóttir, formaður lækna! Það er nefnilega það. Bara rosalega klárir læknar. En þegar kemur að því að greiða á reikninginn? Þá er hægt að ...
Sunna Sara

22. Nóvember 2007

UM MIKILVÆGI IÐNMENNTUNAR

Í tilefni allskyns áforma um hátæknifyrirtæki s.s.netþjónabú og önnur í þeim anda, væri ekki tímabært að ráðamenn menntamála og þingmenn hugleiddu eitthvað um iðnmenntun á Íslandi. Það er á hátíðlegum stundum rætt um eflingu byggða og nauðsynlegt sé að opna háskóla í hverju plássi en enginn nefnir að það þurfi kannski líka fólk með annarskonar menntun til að framkvæma hugmyndir og smíða uppfinningar háskólamannanna. Mér er sagt að í næsta útskriftarárgangi Iðnskólans í Reykjavík séu fjórir rafeindavirkjar. Hverjir eiga að tengja búnaðinn og halda ...
 Þór Ólafsson

21. Nóvember 2007

SKEMMTILEGUR EGILL

Bókmenntaþáttur Egils Helgasonar í Sjónvarpinu þykir mér kærkomin sending. Þátturinn er bæði skemmtilegur og innihaldsríkur. Hafi Egill og Sjónvarpið lof  og prís fyrir. Eitt þarf þó að laga. Þátturinn þarf að vera fyrr á kvöldin. Ég man að þú gagnrýndir það einhverju sinni Ögmundur, að íslensk verðlaunadagskrá um palestínska flóttamenn var sýnd seint um kvöld, á eftir nokkrum erlendum sápustykkjum. Á sú gagnrýni ekki einnig við um ...
Grímur

19. Nóvember 2007

VERSLUNARSTOFNUN FYRIR HEILBRIGÐISKERFIÐ UMRÆÐULAUST?

...Á að koma upp þessu nýja skrifræðisbákni umræðulaust? Það vill svo til að ég tala af reynslu sem starfandi læknir í Svíþjóð um árabil, tiltölulega nýkominn heim í kerfið hér, sem þrátt fyrir allt er ekki eins slæmt og menn vilja vera láta. Staðreyndin er nefnilega sú að innan heilbrigðiskerfis verður ALLTAF togstreita um fjármagn. Aldrei gleyma því. Sú togstreita verður ekki úr sögunni með þessari nýju stofnun Guðlaugs Þórs, heilbrigðisráðherra. Hún er fyrst og fremst sett á laggirnar til að einkavæða heilbrigðisþjónustuna...
Læknir 

19. Nóvember 2007

ÞAÐ HEFUR GEFIST VEL AÐ HUGSA SEM ÞJÓÐARFJÖLSKYLDA!

...Þvert á móti á að stefna að því að bæta og uppfæra allan opinberan rekstur í heilbrigðisgeiranum, stanslaust!  Þú mátt bóka það Ögmundur, að það verður ekki betur gert með einkaframtakinu en hinu opinbera!  Það hefur hvergi í heiminum tekist betur gagnvart hinum sjúku, að einkaframtakið taki við hjúkrunargeiranum af hinu opinbera. Í Bandaríkjunum er rándýrt einkarekið heilbrigðiskerfið bókstaflega að hrynja um sjálfa sig vegna ofurkostnaðar og getuleysis! Auðvitað er líf og hjúkrun tryggð þeim sem hafa nóga peninga þar sem auðvaldið ræður lögum og lofum. Það á hins vegar ekki við um “gráan” almenning sem verður að líða.  Fólk verður að íhuga þetta, áður en það verður of seint!  Staðreyndirnar blasa við...
Helgi

18. Nóvember 2007

EFTIRLAUNALÖGIN AFNUMIN FYRIR JÓL?

...Var það misskilningur hjá mér að til stæði að hraða afgreiðslu á frumvarpi Valgerðar Bjarnadóttur  um eftirlaun ráðherra, þingmanna og fl.? Verður frumvarpið ekki afgreitt fyrir jól?
Haffi

17. Nóvember 2007

ÞJÓRSÁ ÞAKKAR ÞÉR GUÐFRÍÐUR LILJA!

...Það gladdi hjarta mitt í liðinni viku að heyra tilfinningarnar vella í brjósti Guðfríðar Lilju, varaþingmanns þíns Ögmundur, þegar hún beindi máli sínu til ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega Samfylkingarinnar, út af virkjunaráformum í Þjórsá. Stjórnarsinnar á þingi og í kjölfarið einnig fjölmiðlar, túlkuðu ummæli Lilju sem árás á sveitarstjórnir, sem eiga land að Þjórsá. Þannig tókst að firra Samfylkinguna, sem fer með umhverfismálin ábyrgð! Ósköp var það ódýrt og vesælt. Lilja var fyrst og síðast að gagnrýna þau sem bera ábyrgð á umhverfismálum á Íslandi. Ég heyrði frammíköllin á þingi þegar Lilja tók upp hanskann fyrir Þjórsá. Frammíkallarar reiddust því sem hún hafði fram að færa. Þeir reiddust málefnalegum rökum hennar og ákalli hennar um að þyrma náttúruperlum í Þjórsá. En þó þetta lið hafi reiðst er ég sannfærð um að...
Sunna Sara

16. Nóvember 2007

GAGNRÝNI ÞARF AÐ EIGA VIÐ RÖK AÐ STYÐJAST

...Þar sem ég vann fréttina vil ég spyrja að því hvernig þú færð þetta út?? Ég nefndi hvergi styrk til RÚV á nafn í fréttinni, þvert á móti. Og í viðtali við mig útlistar dagskrárstjóri Sjónvarpsins í hverju samningurinn felst. Það er að peningurinn renni til þriðja aðila en ekki RÚV. Fjölmiðlamenn eru ekki yfir gagnrýni hafnir, og tek ég henni fyrir mitt leyti fagnandi. Ég vil hins vegar að hún eigi við rök að styðjast...
Guðfinnur Sigurvinsson,
fréttamaður Sjónvarps

13. Nóvember 2007

ANNARLEGAR GJAFIR AUÐVALDSINS!

...Einhverstaðar á hnattkringlunni væru slíkar “gjafir” taldar annarlegar svo ekki sé meira sagt.  Hvernig væri að þetta auðvaldsfólk væri látið greiða meiri og réttmætari skatta svo þjóðfélagið þyrfti ekki að lifa á ölmusugjöfum úr vasa þess; skatta af því sem það græðir á samfélags-systkinum sínum, sem þrælar myrkranna á milli, iðulega með heimili sín á vonarvöl, háð duttlungum þeirra sem ákveða verðlag og vexti en sem nú þykjast vera að “gefa” almenningi blóðpeninginn tilbaka! Mér rennur í skap. Ef fólk heldur að auðvaldið “gefi” þjóðfélaginu peninga út í loftið og að ástæðulausu, þá er það meira en lítið galið...
Úlfur

12. Nóvember 2007

UM BJÖRGÓLF OG RÚV: EKKERT SAMKRULL

...Björgólfur Guðmundsson er auðvitað ekki að styrkja Ríkisútvarpið eða dagskrárgerð á þess vegum um eina krónu. Og RÚV mun ekki eiga honum neina gjöf að gjalda.
Skuldbinding BG felst í því að leggja jafn mikið og RÚV til framleiðslu á leiknu íslensku sjónvarpsefni hjá sjálfstæðum framleiðendum næstu þrjú árin.
Ávinningur RÚV - og almennings - er einfaldlega að fá meira af leiknu íslensku efni til sýningar og ekki er um að ræða neinskonar afsal á dagskrárvaldi eða "samkrull" í því tilliti...
Páll Magnússon

11. Nóvember 2007

EINHVER MUNUR Á FRAMSÓKN OG SAMFYLKINGU?

Sérðu einhvern mun á núverandi ríkisstjórn og þeirri sem áður sat? Stutt en afgerandi svar óskast. Sjálfur sé ég engan mun á núverandi hjálparkokki Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingunni  og fyrrverandi, nefnilega Framsókn. Munurinn er enginn, hvort sem litið er til innanríkismála eða utanríkisstefnunnar. Reyndar hefur mér komið NATÓ þjónkun Samfylkingarinnar á óvart...
Haffi

10. Nóvember 2007

TIL HAMINGJU MEÐ KVENNABLÓMANN!

Hjartanlega sammála þér Ögmundur um hve vel Svandís Svavarsdóttir hefur staðið sig sem oddviti VG í Reykjavík, ef þá ekki oddviti félagshyggjufólks í borginni, því auðvitað er hún það. VG er með frábært fólk í stafni, ekki síst kvenfólk, hina skeleggu og eldkláru Katrínu varaformann og þingkonu, Auði Lilju, formann UVG, Guðfríði Lilju, framkvæmdastýru þingflokks og varaþingmann í Kraga (sem að sjálfsögðu ætti að vera á þingi!!!), baráttukonurnar á Alþingi Álfheiði, Kolbrúnu og Þuríði, að ógleymdri Drífu Snædal, framkvæmdastýru flokksins. Svo má ekki gleyma öllum hinum konunum í bæjarstjórnum, í verkalýðshreyfingunni, hjá femínistum, náttúruverndarsinnum, mannréttindasamtökum eða á vaktinni annars staðar fyrir ...
Sunna Sara   

8. Nóvember 2007

HUGLEIÐINGAR UM VÍNMÁLIÐ

Í Silfri Egils þar sem Sigurður Kári mætti með sýnishorn úr Heimdalli með sér, ásamt tveimur heiðurskonum úr Vinstri grænum og Samfylkingunni, þeim Guðfríði Lilju og Svanfríði Ingu, þá bar ýmislegt á góma. Sigurður sat við sinn keip í vínmatvörumálinu og var kostulegt að sjá upplitið á honum, þegar Svanfríður sagði hvernig verslunin með áfengi yrði í sinni heimabyggð ( Dalvík ) ef frumvarpið yrði að lögum.
Það var greinilegt að SK hafði ekki hugsað málið frá sjónarhóli smærri byggðalaga vítt og breytt um landið.
Ein aðal rökin hjá SK fyrir áfengismatvörufrumvarpinu var að misnotkun fárra á áfengi ætti ekki að hindra aðgang hinna fjölmörgu, sem kunna með áfengi að fara...
Svo mælti Sigurjón  EVGK

1. Nóvember 2007

EVRUSAMNINGAR?

...Svo kann að vera að það henti ýmsum fyrirtækjum og starfsfólkinu ekki síður  einmitt prýðilega að fá kaupið greitt í evrum. Þar er ég að tala um fyrirtæki sem eru með sína starfsemi að uppistöðu til í útlandinu og starfsfólkið þar með annan fótinn. Yfirleitt er ég þér sammála um flest en hef efasemdir um afstöðu þína í þessu máli.
Grímur

31. Október 2007

FJÖLMIÐLAR STANDA SIG EKKI

...Ég hlustaði á sjónvarpsrásina frá Alþingi í dag. Þar sá ég Guðlaug Þór, heilbrigðisráðherra, engjast einsog orm á öngli í tilsvörum um hvers vegna hann styddi brennivínsfrumvarp þeirra Sigurðar Kára, sjálfstæðismanns og Ágústs Ólafs, varaformanns Samfylkingarinnar, frjálshyggjustráka, sem vilja hefja sölu á bjór og víni í matvörubúðum. Guðlaugi Þór finnst greinilega meira um vert að koma vel út sem trúverðugur stuttbuxnastrákur í frjálshyggjudeild Sjálfstæðisflokksins, en að vera ábyrgðarmaður heilbrigðisþjónustunnar í landinu, sem ...
Sunna Sara

29. Október 2007

FYRIRTÆKIN ALÞJÓÐLEG NEMA ÞEGAR NOTA ÞARF UTANRÍKISÞJÓNUSTUNA ÓKEYPIS

Þakka þér fyrir grein þína um útrásina og hlutverk forseta Íslands í því samhengi. Í mínum huga er nú mál málanna að byggja upp dýpri pólitíska umræðu um útrásina og er þetta ágætur upptaktur. Útrásin er að mínu viti annars vegar heimild smásölubankanna á Íslandi til að gambla með innistæður og lífeyrissjóði eftirlitslaust og hins vegar með eftirlitslausri skuldasöfnun (Ísland er skuldugasta þjóð heims, skv. OECD). Þegar verið er að hafa áhyggjur af stöðu íslensku fyrirtækjanna, þá segjast þau vera alþjóðleg, en þegar á að nota utanríkisþjónustuna til ókeypis markaðsfærslu, þá eru þau ...
Eyvindur

29. Október 2007

EIGUM VIÐ AÐ LÁTA LÖGFRÆÐINGANA HAFA OKKUR AÐ FÍFLUM?

...Frávísunarkrafa Orkuveitunnar verður tekin fyrir eftir viku. Hún byggist á því að Svandís eigi ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Hún eigi ekki í Orkuveitunni og hafi hvorki fjárhagslega né persónulega hagsmuni af málinu.”
Þessi málsgrein er tekin af vef RÚV. Hvaða rugl er þetta, er OR ekki sameign okkar Reykvíkinga, Skagamanna og íbúa Borgarfjarðar? Kópavogur, Garðabær og fleiri seldu OR sinn hlut í Sameignarfélaginu. Ekki veit ég betur en Svandís  búi í Reykjavík og eigi því ...
Reykvíkingur og einn af eigendum OR.

25. Október 2007

Á AÐ GERA ÍSLAND ÓBYGGILEGT?

Ég get eiginlega varla ímyndað mér lengur hvernig aðstæður á Íslandi verða í framtíðinni. Ef að einhver hringir í slökkviliðið á hann þá von á því að verða spurður: " Hvernig viltu borga útkallið"? Eða...
Magnús Jónsson

25. Október 2007

VG, HÁEFFUN OG OFURLAUN

... Hvað finnst þér þá um hana Svanhildi þína Kaaber, sem samþykkti ofurlaun útvarpsstjóra? Verða kjarakröfur BSRB í samræmi við þetta? Eigum við ekki bara öll að fá 100% hækkun?
Bjarni Kristinsson

22. Október 2007

SAMMÁLA KATRÍNU JAKOBSDÓTTUR

...Útrás í samkrulli við slíka braskara er gersamlega út í hött og siðlaus. Þess vegna verður að byrja upp á nýtt og ýta bröskurunum út. Við skulum ekki gleyma því að þeir komu inn í skjóli myrkurs og ólöglegra samninga. Þeim samningum þarf því ekki einu sinni að segja upp eins og málið blasir við frá mínum bæjardyrum. Við getum og eigum að láta gott af okkur leiða til aðstoðar öðrum þjóðum með því að nýta þekkingu okkar í orkumálum. Það gladdi mig að heyra hinar samfélagslegu áherslur í málflutningi Katrínar...
Haffi   

21. Október 2007

STUÐNINGUR ÚR KÓPAVOGI

Við sem vorum stuðningsmenn þínir í síðustu alþingiskosningum, lýsum yfir fullum stuðningi við andóf þitt og annarra þingmanna Vinstri grænna við tilraunir Sigurðar Kára og nokkurra annarra unglinga, til að koma víni og bjór inn í matvöruverslanir. Þær umræður sem verið hafa í fjölmiðlum um þessi mál hafa fyrst og fremst einskorðast við aukið aðgengi að áfengi og hvort þetta muni breyta því magni sem þjóðin neytir. En það hangir mikið fleira á spýtunni sem hefur lítið eða ekki verið minnst á...
Sigurjón Antonsson
Hafsteinn Hjartarson
Sigurður Flosason
Steinar Lúðvíksson
Svanur Halldórsson
Sveinn Jóhannsson
  

20. Október 2007

VISTVÆNN TVÍSKINNINGUR

Sigríður frá Brattholti má aldrei gleymast!  Ég vil taka undir með þér að allt þetta tal um sjálfbærar virkjanir er afskaplega vanhugsað. Framsókn tuðaði stöðugt um þetta. Á þessu er tuðað á Bessastöðum síknt og heilagt. Ólafur Jóhann, milli og rithöfundur, tuðar stöðugt á þessu og margir margir fleiri. Allt þetta fólk virðist mér vera tilbúið að fórna dýrmætustu náttúrperlum okkar til að virkja í þágu álrisa sem síðan nota orkuna til að framleiða sprengjuflugvélar og einnota kókdósir. Allt á þetta að vera gert á sjálfbæran vistvænan hátt. Ég er við það að fá ofnæmi fyrir þessum vistvæna tvískinnungi. Sjálfbærni er ekki lausnarorð...
Sunna Sara

19. Október 2007

ÁFENGISMÁLIÐ!

..Sárgrætilegra var þó að verða vitni af slælegri frammistöðu Þórólfs Þórlindssonar, forstjóra Lýðheilsustöðvarinnar, sem er á háum launum hjá skattgreiðendum til að gæta og vernda þjóðina frá heilsuskemmandi siðleysi og úrkynjun, ásamt gjörræði pólitíkusanna. Þórólfur sagðist ekki vera á sama máli og flutningsmenn áfengisfrumvarpsins – persónulega! En svo var að skilja að stofnunin hefði á því skilning að við þyrftum að laga okkur að breyttum heimi. En erum við ekki að reyna að breyta heiminum til góðs? Var Lýðheilsustofnun ekki sett á laggirnar einmitt til að hafa góð og uppbygggileg áhrif? Eða var til hennar stofnað til að finna pólitískum vildarvinum starf? Ég leyfi mér að spyrja.
Úlfur

18. Október 2007

HVER ER ENGINN?

Sjónvarpsstöðvarnar sögðu okkur frá því í fréttum að Geir H. Haarde hefði óvænt haldið ræðu á fundi hjá sjálfstæðissamtökunum Verði. Ekki skil ég af hverju heimsókn formannsins og ræðuhöld eru sögð óvænt. Í augum almennings hlýtur framganga Geirs H. Haarde að vera sjálfsögð. Í viðtölum að fundi loknum sagðist formaður Sjálfstæðisflokksins hafa hvatt fundarmenn til að snúa bökum saman og horfa fram á veg. Hann vitnaði líka til ummæla sem Jóhann Hafstein einn forvera núverandi formanns í embætti lét falla. Geir sagði eitthvað á þessa leið þegar hann vitnaði til Jóhanns: Enginn einn maður er merkilegri en Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur. Það er athyglisvert að Geir skuli vitna til ...
Ólína

18. Október 2007

BRETTABJÓR OG PAPPAVÍN

...Ómenning sú, sem boðuð hefur verið í frumvarpinu um sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum er engan veginn samboðin okkur Íslendingum, sem greiðum hæsta áfengisverð í heimi. Þetta er ávísun á lélega vínmenningu, lélegt og einhæft vöruúrval og kemur til með að rústa bæði innflutningi og framleiðslu á bjór og léttvíni. Með þessu fyrirkomulagi, yrði mest allri léttvíns- og bjórsölu komið í hendurnar á örfáum aðilum, sem nú þegar ráða öllu á matvörumarkaði og stýra neysluvenjum landans eftir gróðasjónarmiðum einum. Sala, innflutningur og dreifing á einni hendi. Brettabjór frá Euroshopper og Krónu og pappavín í kartonum...... “
Sigurbergur 

17. Október 2007

HVAÐ SKYLDU BÍLASALAR SEGJA UM BRENNIVÍNSFRUMVARPIÐ?

...Ummæli læknisins í þá veru að alkóhólisma á Grænlandi megi skýra í ljósi aðhaldssamrar áfengisstefnu skilur Sigurði Kári þannig að nú sé um að gera að fylla allar hillur í Nóatúni og Bónus af brennivíni. Þá sé þess eflaust skammt að bíða að við verðum laus við áfengisbölið. Stórfenglastar eru þó yfirlýsingar Sigurðar Kára um að "fjöldi lækna", sem hann hafi ráðfært sig við telji "ekki samhengi á milli aðgengis og neyslu áfengis." Hverjir skyldu þetta nú vera? Gæti verið að þeir væru flestir úr Sjálfstæðis/Samfylkingarflokknum? Hvað skyldu bílasalar úr sama flokki segja, eða hárgreiðslumeistarar? Hvað með lögfræðinga úr Heimdalli? Gæti verið að þeir séu líka sammála Sigurði Kára og félögum um að fela eigi markaðsöflunum að höndla með brennivín? Auðvitað hlýtur þetta að snúast um...
Grímur

16. Október 2007

FELLIÐ FRUMVARPIÐ

Enn á ný fara nokkrir þingmenn á stað með frumvarp til laga til þess að heimila verslunum að selja léttvín og bjór.  Einu rökin hjá þeim eru að viðskiptavinir geti keypt sér rauðvínsflösku með steikinni.  Ef mig langar í rauðvín með steikinni munar mig ekkert um að fara í ÁTVR og kaupa flösku.  Í dag eru í gildi lög sem banna að unglingum yngri en 18 ára megi selja tóbak og sama gildir um þá sem afgreiða tóbak.  Nú er staðan þannig að mikið af afgreiðslufólki er undir þessum aldri og enginn gerir athugasemdir við að þessir ungu starfskraftar selji tóbak.  Og eins verður það með áfengi,  þessi börn verða farin að...
Sigurbjörn Halldórsson.

15. Október 2007

HVENÆR VERÐUR KOMIÐ NÓG?

Því meira sem umbúðirnar eru teknar utan af Orkuveitusukkinu því verra verður málið. Þetta hefði þurft að gera með Landsbankann, Búnaðarbankann, SR-Mjöl, Símann og öll hin einkavæðingarspillingarmálin. Þetta var reynt en með misjöfnum árangri. Nú berrassa bófarnir sig sjálfir! En pólitíkin má ekki bregðast. Ekki svo að skilja að ég óttist það en þess verður ekki langt að bíða að ...
Haffi  

14. Október 2007

HÁVAXTASTEFNA DÝRU VERÐI KEYPT

...Á tólf mánaða tímabilinu frá júlí 2006 til júníloka 2007 námu vaxtagjöld þjóðarbúsins 225 milljörðum króna (nettó 119 milljarðar). Við upphaf hækkunarferils stýrivaxta í maí 2004 nam hækkun vísitölu neyzluverðs um 4% á ársgrundvelli. Liðlega tveimur árum síðar, í ágúst 2006, höfðu meint verðlækkunaráhrif hærri stýrivaxta ekki skilað sér - hækkun vísitölu neyzluverðs á ársgrundvelli var liðlega tvöfalt hærri, eða 8.6%. Ávextir hávaxtastefnu Seðlabanka Íslands síðan maí 2004 hafa því verið keyptir dýru verði...
Gunnar Tómasson

12. Október 2007

EÐALVÍN OG ÓDÝRT KASSAVÍN

...Hin nýja forysta í Sjálfstæðisflokknum sá ekkert athugavert við að eiga viðskipti með reitur Orkuveitunnar við eigendur Glitnis. Það gerði hins vegar gamli Sjálfstæðisflokkurinn. Hann spyrnti við fótum og gerði sitt til að koma í veg fyrir kaupskapinn. Meðal annars þeir sem einhverjir eigendur Glitnis gerðu atlögu að í auglýsingum fyrir alþingiskosningar í vor. Meirihlutinn féll í Reykjavík vegna átakanna milli gamla Sjálfstæðisflokksins og nýju forystunnar. Forystunnar sem boðar í blaðaauglýsingum þessa dagana haustferð með sjálfstæðisfólki í Reykjavík um helgina. Ein ástæðan fyrir því að Davíð Oddsson gerði það sem enginn hafði áður gert, að fara fram gegn sitjandi formanni Sjálfstæðisflokksins, var sú niðurlæging sem flokkurinn hafði mátt þola á landsvísu undir forystu Þorsteins Pálssonar næstu fimm ár á undan. Hann stýrir nú Fréttablaði Baugs og er þar með gömlum aðstoðarmanni sínum Ara Edvald í spunaverksmiðju Hringsins. Undanfarið hefur mátt greina meiri velvild í garð hinnar nýju forystu Sjálfstæðisflokksins í tveimur blöðum, Fréttablaði og 24Stundum. Hefur þetta einkum komið fram í afstöðunni til ...
Ólína

12. Október 2007

ERTU SÁTTUR?

...Ótrúleg frétt ef rétt reynist að Svandís stökkvi í fang Binga eftir allan þann góða málstað í þessu REI dæmi. Við fyrsta tækifæri er hún komin í samstarf við höfund á þessum ósóma og svínaríi. Ég hefði ekki trúað þessu eftir málflutning ykkar. Ert þú sáttur við þetta?
Þorsteinn

11. Október 2007

MILLINN OG VILLINN

Bjarni Ármanns, mikill milli,
metur fyrirtækið dýrt
meðan gamli góði Villi
getur ekki hugsað skýrt.
 
Kristján Hreinsson

11. Október 2007

GÓÐ TÍÐINDI!

...Mér leist mjög vel á það sem forustumenn nýju borgarstjórnarinnar sögðu á blaðamannafundinum við Tjörnina.  Meðal annars sagði Dagur að þetta yrði félagshyggju borgarstjórn sem hefði ekki í huga að selja einstaklingum sameignir þjóðarinnar, sem sé orkuna.  Ef ég skyldi allt rétt sem sagt var þarna, líst mér vel á mannskapinn og stefnu hans í borgarmálum. Það var sorgarfundur á hlaðinu heima hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni fyrrverandi borgarstjóra, þar sem hann og félagar gáfu blaðamönnum yfirlýsingar sínar. Þeir sögðust hafa þá einu hugsjón að selja einkafyrirtækjum eignir borgarbúa og landsmanna og losa þjóðina við áhyggjur af þeim, á forsendu þess að þeir væru svo velviljaðir almenningi (kjósendum) að þeir vildu ekki fara í ...
Þjóðúlfur

11. Október 2007

NOKKRIR "VÍSURÆFLAR"

Leit til lofts og bað þá Feðga Báða
blessaða að losa mig við kláða.
Þeir litu jú á
ljótt var að sjá
en leist ekki á þennan snáða...
Steingrímur

10. Október 2007

ÚTRÁS, INNRÁS EÐA ÁRÁS?!

...Nær lagi væri að tala um “innrás,” þegar auðvaldið ræðst inná eignir þjóðarinnar og hirðir þær fyrir skít á priki og græðir margfalt andvirðið  “sem þeir greiða” með tekjum eignanna samdægurs og “viðskiptin” fara fram.  Í raun þurfa þeir ekki að greiða eyri því það er hægðarleikur fyrir þá að fá bið á greiðslunum eða að fá stutt lán hjá guðfeðrum sínum og greiða það eftir kaupin sem margfaldast snögglega eins og var með bankana, símann og fleira, sem fólk má aldrei gleyma, og sem er nú að endurtaka sig með orkuna, vatnið, fiskimiðin og landeignir! Ekki er aðeins um að ræða ...
Helgi  

9. Október 2007

GRÓÐAGUTTAR OG GRÁGLETTNI ÖRLAGANNA

Það er gott að nú hafa gróðaguttarnir gengið fram af þjóðinni. Mætti ég þá minna á að Bjarni Ármannsson og Hannes Smárason voru lykilmenn í að selja þjóðinni gagnagrunnskonceptið. Hannes stýrði útfærslunni á Nasdaq og Bjarni  sex milljarða sölunni á gráa markaðnum sem keyrði upp allar væntingarnar.
Það er svo gráglettni örlaganna að gamla íhaldið með...
Jóhann

8. Október 2007

AÐ KUNNA AÐ ÁVAXTA SITT PUND

...Hjörleifur B. Kvaran settur forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, samþykkti laun Bjarna Ármannssonar og heimild hans til kaupa á 500 milljóna króna hlut á sérkjörum. Hjörleifur er settur í stól Guðmundar Þóroddsonar tímabundið, meðan að sá síðarnefndi gegnir forstjórastarfi REI. Og það verður að hafa í huga að Guðmundur ætlaði sér að kaupa hluti fyrir 100 milljónir og Hjörleifur átti einnig að njóta sérkjara. Bjarni gerist svo stjórnarformaður REI og sem slíkur sest hann niður og ákveður, með lægra settum stjórnarmönnum, hvert gengið á hlutabréfum REI eigi að vera. Þar með á Bjarni sjálfur beinan þátt í að  hækka verðgildi eigin bréfa um 500 milljónir króna samkvæmt fréttum.  Er þessi framkoma sæmandi? Hún þarf reyndar ekki að koma á óvart því Bjarni Ármannsson er einn helsti upphafsmaður að því að innleiða þann kúltur í opinberri stjórnsýslu/bönkunum að greiða stjórnendum alls kyns bónusa tengdum árangri. Það var þegar ...
Grillir

7. Október 2007

VEL HEPPNUÐ LÝTAAÐGERÐ ÞORGERÐAR KATRÍNAR

Ég horfði á Silfur Egils í dag og heyrði síðan fréttir seinna um daginn í sömu stöð. Þar var básúnað það sjónarmið Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins að henni hefði fundist of hratt farið í sameiningu Geysis Green og Reykjavík Energy Invest. Þá hefðu kaupréttarsamningarnir verið of háir. Því miður var Þorgerður Katrín ekki spurð hvort hún styddi það að undið yrði ofan af þessu alvarlega spillingarmáli sem áhöld eru um hvort standist lög. Hlustandinn fékk þá mynd í fréttum að varaformaður Sjálfstæðisflokksins vildi aðra stefnu varðandi einkavæðingu orkunnar. Þeir sem horfðu á Þorgerði í Silfrinu fengu allt aðra tilfinningu því þar kom skýrt fram að hún telur þessa þróun almennt í himnalagi. Yfirlýsingarnar virðast fyrst og fremst settar fram til að...
Haffi

5. Október 2007

EKKI TÚLKA UMFRAM ÞAÐ SEM MEINT ER

...Ég verð þó að gera athugasemdir við túlkun þína á ummælum mínum sem birtust í sjónvarpsfréttum 2. október sl. Í fyrsta lagi segi ég hvergi að fráleitt sé að reisa álver á Suðvesturhorninu. Ég segi að í ljósi þeirrar skerðingar sem varða á þorskkvótanum í sumar og þeim vanda sem steðjar að landsbyggðinni „sé skynsamlegt í stöðunni að einbeita sér að einu álveri og það álver sé álverið á Bakka við Húsavík. Við erum ekkert að slá álverið í Helguvík af". Þessi ummæli á ekki að túlka öðruvísi en skv. orðanna hljóðan þeirra. Ég tek svo fram að ég styð atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum í hvívetna en tel í ljósi þeirrar þenslu sem er á suðvesturhorninu að best sé að forgangsraða framkvæmdunum á þennan hátt. Þar er ég með hagsmuni landsins alls að leiðarljósi. Í annan stað fullyrðir þú að ég fari með rangt mál. Það er ekki rétt...
Höskuldur Þórhallsson

4. Október 2007

BÓNUS EIGNAST ORKUVEITU

...Það hefði enginn flokkur á Íslandi og ekkert  fyrirtæki staðið vörð um, byggt upp og rekið með jafn glæsilegum hætti Orkuveitu Reykjavíkur með sama hætti og Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert. Faðir minn var þeirrar skoðunar að í rekstri Orkuveitunnar væri ballestin í Sjálfstæðisflokknum fólgin. Í því fyrirtæki yrði áþreifanlegust sú samfélagslega ábyrgð sem forystumenn flokksins hefðu sýnt áratugum saman. Þetta keypti ég. Í dag stríddi ég föður mínum á því að nú hefðu hans eigin menn afhent Jóni Ásgeiri í Bónus og FL Group Orkuveitu Reykjavíkur. Föður mínum var ekki skemmt og ég sá eftir að hafa ekki setið á mér. Mér hefur hins vegar verið hugsað til þess sem hann sagði þegar við kvöddumst í kvöld...
Kveðjur,
Ólína

4. Október 2007

LANDRÁÐ

Fyrir nokkru síðan velti ég fyrir mér hvað væri í vændum, þegar birtust á forsíðu Mogga myndir af lögreglu við mannfjöldastjórn. Í einfeldni minn hélt ég að það væru kjarasamningar um áramót, sem stjórnvöld væru að undirbúa sig fyrir, en auðvitað er það einkavinavæðing og sjálftekja svokallaðra "fulltrúa almennings”, sem gæti farið fyrir brjóstið á þessum sama almenningi. Orkuveituskandallinn er svo grófur að maður hefur ekki hugmyndaflug til að ímynda sér neitt slíkt....Og þar sem ég veit að Ríkislögreglustjóri les póstinn þinn, þá er ég fullviss um að hann mundi ekki hafa ...
Sigurbergur

3. Október 2007

DOKTOR ÖSSUR AND MR. BLOGG

VG ræðumenn voru bestir í umræðunum á Alþingi í gær. Framsókn má þó eiga að hún var bráðskemmtileg einsog þegar Bjarni Harðarson benti á að afleitt væri að breyta þyrfti almanntryggingakerfi landsmanna fyrir þá sök eina að Ásta Ragnheiður skildi ekki kerfið. Ekki var Guðni síður góður þegar hann skaut á sérfræðing í málefnum Þingvallarurriðans, dr. Össur Skarphéðinsson, hæstvirtan iðnaðarráðherra, sem gjarnan brygði sér í gervi stjórnarandstæðings þegar kvöldaði. Í næturhúmi sæti bloggarinn dr. Össur og skyti út og suður - og ekki alltaf óvægið – jafnvel á ábúendur í Stjórnarráði Íslands. Nokkuð smellin tilvísun í  dr. Jekyll and mr. Hyde í frægum enskum reyfara. Prik til Guðna. Þó verð ég að segja að...
Grímur

27. September 2007

HJARTANS ÞAKKIR TIL MOGGANS

En hvað þarft þú að tileinka þér til að mega klifra upp á ráðherrakoll Moggans? Það er nú tómt skitterí að mati kennarans, einungis smáviðvik við auðstéttina. Þú þarft bara að sýna henni smávægilega gjafmildi: gauka að henni auðlindum þjóðarinnar og hlaða svo orkugeiranum undir afturendann á þotuliðinu svo það nái aukinni flughæð yfir þræla sína og öðlist betra útsýni til að eygja ónumin lönd  ...  Þar gleymir Mogginn að benda skjólstæðingum sínum á ýmsa fýsilega kosti, m.a. á holræsakerfið. Í því liggja að sjálfsögðu  ...  langar mig loks að biðja þig að birta með bréfi mínu leiðara Moggans því hann er hreint afbragð og mun sóma sér vel á væntanlegri markaðshyggjudeild Þjóðminjasafnsins sem fyrr eða síðar verður opnuð í þeirri góðu stofnun við hátíðlega athöfn...
Þjóðólfur

26. September 2007

HINGAÐ OG EKKI LENGRA – ÞÖKK SÉ ÖSSURI

Eins döpur og ég varð þegar ég heyrði Ingibjörgu Sólrúnu boða það sem almenningur er búinn að fá nóg af hresstist ég mikið við að heyra í Össuri Skarphéðinssyni í kvöldfréttum í gær. Hann virðist vita hvað klukkan slær hjá meirihluta landsmanna því ef ég skildi hann rétt boðaði hann löggjöf á haustþingi sem mun tryggja meirihlutaeigu samfélagsins í mannvirkjum og dreifikerfi þeirra dýrmætu orkulinda sem eru sameign allrar þjóðarinnar. Um leið og ég vona að ég hafi misskilið formann...
Anna Jóna

26. September 2007

VILLI SANNAR SIG

Um leið og ég flyt sjálfstæðismönnum þakkir mínar vil ég minna á að því miður fara ekki alltaf saman orð og efndir í pólitíkinni. R-listinn sem sat að völdum samfellt í 12 ár hér í borg var með það stimplað í stefnuskrá sína allan tímann að byggja upp almenningssamgangnakerfið. Árangurinn varð hins vegar minni en enginn. Allt sem laut að þessum málaflokki reyndist ómarkvisst fálm út í loftið. Stundum spyr maður sig hvað ami eiginlega að okkur vinstrimönnum. Erum við allt of oft fastir í einhverjum starfshópum og kjaftaklúbbum, leitandi að fullkomnum lausnum en svo gerist stundum nákvæmlega ekki neitt? Ekki svo að skilja að R-listinn gerði margt gott og þar á meðal var sannkölluðu grettistaki lyft í leikskólamálum í hans tíð. En mér finnst að vinstrimenn megi...
Ingi Þórðarson

20. September 2007

ÞARF AÐ FRELSA SAMFYLKINGUNA FRÁ ÍHALDINU!

...Getur verið að þú hamist meira á Samfylkingunni en Sjálfstæðisflokki því þú teljir hana standa ykkur VG-urum nær en Íhaldið og sért fyrir vikið henni reiðari fyrir að vera ekki í stjórn með ykkur? Ef svo er þá er ég þér sammála. Ég er kjósandi Samfylkingarinnar sem vildi alls ekki sjá þessa ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Fyrir alla muni hættu að skamma Samfylkinguna út í eitt. Í þess stað eiga allir góðir og gegnir vinstri menn að sameinast um að frelsa okkur frá Íhaldinu og mynda vinstri stjórn í landinu.
Kristján Sig.

20. September 2007

ER VERIÐ AÐ KOMA Á TVÖFÖLDU HEILBRIGÐISKERFI?

Hver er afstaða ykkar í BSRB til þeirra breytinga sem ASÍ og SA eru að semja um varðandi breytingu á rétti til örorkubóta og greiðslna í veikindum? Sjálfur er ég öryrki og finnst ég vera búinn að reyna alveg nóg án þess að þurfa að horfa upp á skerðingar á rétti mínum. Eða til hvers halda menn að boðað sé til þessara breytinga? Til þess að spara peninga að sjálfsögðu.  Ég blæs á að þetta sé gert til nokkurs annars enda lagt upp í leiðangurinn með sparnað í huga. Halda menn að við fylgjumst ekki með? Og hvað segir þú um þá staðhæfingu Öryrkjabandalagsins að verið sé að koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi ...
Öryrki

20. September 2007

AÐ LÁTA OFBELDI VIÐGANGAST ÁTÖLULAUST

..."Glæpur" námsmannsins var að fara fram úr einni mínútu sem honum hafði verið ætluð fyrir fyrispurnina! Hann var m.a. að vísa í staðhæfingar í bók Gregs Palsts um kosningasvindl Bush, forseta og spurði Kerry í ljósi þessa hvers vegna hann hefði verið eins fljótur og raun bar vitni að viðurkenna ósigur í kosningunum. Síðan spurði hann Kerry hvers vegna hann hefði ekki greitt atkvæði með vantrausti á Bush... lengra komst hann ekki. Ég hvet lesendur til að horfa á vídeóupptöku af atburðinum en slóðin er hér að neðan og frásögn Gregs Palasts. Aðfarir lögreglu eru ótrúlegar en verst er aðgerðarleysi viðstaddra - að meðtöldum John Kerry sem lætur ofbeldið viðgangast átölulaust.
Haffi 

19. September 2007

ATLOTIN Á FLEKASKILUNUM

Allt um það; mér finnst að þú hafir of oft að undanförnu vegið fremur harkalega að utanríkisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Sem bókaútgefanda tel ég bráðnauðsynlegt að þú skrifir nú svo sem eins og eina eró-pólitíska skáldsögu fyrir mig til útgáfu fyrir jólin – gefir Ingibjörgu hvíld og hleypir þess í stað nýju blóði í gamla bókmenntagrein sem á rætur að rekja til 18. aldar og hófst til vegs og virðingar með hinni ódauðlegu ...
Þjóðólfur

19. September 2007

ÞJÓÐLEGT STJÓRNMÁLAAFL VERKALÝÐSHREYFINGARINNAR!

...Höfum ofarlega í huga að andstæðingurinn er vel skipulagður, svífst einskis og hefur ótakmarkaða peninga að baki sér, en vill meira. Andstæðingurinn er óseðjandi auðvald! Gripdeildirnar hafa gengið alltof langt og það verður að byrja á að endurheimta þýfið aftur og hafa hendur í hári þeirra sem hafa stolið sameignum þjóðarinnar, svívirt og svikið þjóðina!
Helgi

19. September 2007

HVAR ERU JAFNAÐARMENNIRNIR?

...Það er von að þú spyrjir “Hvar Eru Kratarnir,” eða öllu heldur JAFNAÐARMENNIRNIR, því Jafnaðarmennirnir virðast hafa horfið með Jóni syni Hannibals en kratar sem nú kalla sig Samfylkingu virðast mér ekki beinlínis vera til að hrópa húrra fyrir - meira í ætt við Blair hinn breska en alvöru Jafnarðamenn með stórum staf!
Ég er einna mest hissa á hvernig Össur Skarphéðinsson og hans fylgjendur geta þolað svívirðuna, getur það virkilega verið að aurarnir freisti?  Af hinum gat ég búist við öllu þannig að þeir valda mér síður vonbrigðum - þótt aumari séu! 
Þetta er sama spurningin sem var spurð hér áður...
Þjóðúlfur

18. September 2007

EIGA KJARASAMNINGAR EKKI FRAMTÍÐ FYRIR SÉR?

...Nú get ég vitnað um það að mitt félag, SFR, hefur staðið sig vel, gert samninga og reynt allt til að hífa okkur félagsmennina upp launalega séð. Hitt vekur athygli hversu góð staða félagsmanna VR er því að því er mér skilst gerir það félag enga kjarasamninga og er orðið eins og hver önnur háeffuð skemmtibúlla. Er þetta kannski það sem koma skal hjá opinberum starfsmönnum? Mun skemmtifélagsformið breyta okkar lífsstandard?
Þórður Þórhallsson Laugdal

16. September 2007

DÝRMÆTUSTU AUÐLINDIRNAR Á EKKI AÐ SELJA

...Hitt get ég tekið undir að það verður að stöðva þessi ósköp. Þetta eru tvímælalaust alvarlegustu mistök sem hér hafa verið gerð í langan tíma af hálfu stjórnvalda og er þó af nógu að taka. Það er nefnilega rétt sem þú hefur bent á Ögmundur að það er bókstaflega verið að selja landið - dýrmætustu auðlindir þess  - í hendur fjárgróðamanna.
Guðrún Guðmundsdóttir

15. September 2007

LANDRÁÐ?

Landráð er stórt orð. Og það á að fara varlega með að nota það. Þetta orð er mér þó ofarlega í sinni þessa dagana. Einu sinni var það kallað landráð að svíkjast aftan að okkar eigin þjóð í þágu erlendra manna. Mér finnst ríkisstjórnin vera að gera nákvæmlega þetta með því að þjóna erlendu auðvaldi og veita því eignarhald á íslenskum auðlindum með sölinni á orkuveitunum. Sannast sagna hefur mér þótt Illugi Gunnarsson nýbakaður alþingsmaður Íhaldsins hinn mætasti maður. Þess vegna þyrmdi yfir mig að heyra hann ganga erinda peningavaldsins í viðræðu við þig í Spegli RÚV í gær.  Það var engu líkara en maðurinn væri á mála hjá peningapakkinu. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum – svona hefði Einar Oddur, tengdafaðir hans heitinn ekki talað – eða hvað? Ég hvet menn til að hlusta á...
Haffi

14. September 2007

ALLT ER FALT

Saga Íslendinga hefur gengið í bylgjum. Stundum hefur okkur vegnað vel og stundum illa. Stundum höfum við gengið í gegnum niðurlægingartímabil og á öðrum stundum hefur andinn risið hátt. Því miður óttast ég að það skeið sem nú stendur yfir einkennist af meiri niðurlægingu en flest önnur tímaskeið í sögu þjóðarinnar. Ástæðan er ekki sú að okkur vegni illa efnalega. Þvert á móti þá eru efnin nóg nú um stundir -það er að segja þegar á heildina er litið. En allt er líka falt. þar liggur niðurlægingin. Sú kynsló0ð sem nú ræður virðist reiðubúin að selja frá þjóðinni allar eignir hennar. Sú sala er ekki auðveldlega afturkræf. Þú hvetur til þess Ögmundur að við...
Grímur

13. September 2007

EINN OG SAMI MAÐURINN

Í framhaldi af skrifum þínum um sparisjóðina þá vil ég benda þér á "skoðun Viðskiptaráðs." Sérstaklega málsgreinina: "Viðskiptaráð telur því æskilegt að leita sanngjarna leiða við að koma eigin fé sjóðanna að fullu til handa stofnfjáraðilum". Formaður Viðskiptaráðs er jafnframt stjórnarmaður í Spron. Sjá...
Áhugamaður um sparísjóði í þágu almennings

12. September 2007

SEÐLABANKI Í SJÁLFHELDU

...Ef Seðlabanki Íslands sneri við blaðinu - lækkaði stýrivexti og tæki upp raunhæfa útlánastjórnun - þá myndi útstreymi gjaldeyris vegna carry trade orsaka stórfellda lækkun á gengi krónunnar. Við þessu á Seðlabankinn ekkert ráð - enda liggur rót vandans í langvarandi vanhæfni hans á sviði peningastjórnunar.
Gunnar Tómasson

9. September 2007

EKKI BAUÐ ÉG ÞEIM Í MAT

Alltaf öðru hvoru voru að berast fréttir af hátíðarkvöldverðum fyrri ríkisstjórna. Fimm-rétta máltíðir íRáðherrabústaðnum eða á Þingvöllum til að halda upp á hve lengi ríkisstjórnin hefði setið eða hve mikil afrek hún hefði unnið. Hver man ekki eftir þeim Halldóri og Davíð voteygum á Ráðherrabústaðs-tröppunum eftir að hafa haldið upp á eigið ágæti þar innandyra – allt á kostnað skattborgarans! Ég ætlaði varla að trúa eigin eyrum  og augum þegar ég heyrði og las að Samfylkingin væri núna komin á þetta kavíar-bragð. Kannski var þetta bara barnaskapur í mér að halda að þau væru eitthvað skárri. Sannast sagna sé ég engan mun á Samfylkingu og Íhaldi. Nákvæmlega sama ...
Guðrún Guðmundsdóttir

8. September 2007

ÚTLÁNUM BANKA VERÐI TAKMÖRK SETT

Spurningin var hvernig gera mætti peningastjórnun Seðlabanka Íslands skilvirkari:
1. Seðlabankinn setur sér ákveðin markmið peningastjórnunar varðandi innlenda verðþróun og greiðslujöfnuð við útlönd 2008.
2. Seðlabankinn telur þessi markmið krefjast þess að útlánaaukning viðskiptabankanna verði ekki meiri en 20% frá árslokum 2007 til ársloka 2008.
3. Þar sem stýrivextir hafa sýnt sig vera óvirkt stjórntæki, þá er spurningin hvernig Seðlabankinn geti tryggt að útlánaaukning viðskiptabankanna samrýmist markmiðum peningastjórnunar?
4. Einfalt og skilvirkt stjórntæki væri að takmarka útlánaaukningu einstakra banka við ...
Gunnar  Tómasson

5. September 2007

DROTTNINGAR KOMNAR Á KREIK

Ekki brást ríkisstjórnarsjónvarpið ohf sínu fólki í kvöld. Drottningarviðtalið við forsætisráðherra á sínum stað, honum strokið með hárunum eins og litlum kettlingi og leyft að mala um hlutina án þess að minnsta tilraun væri gerð til að spyrja gagnrýnna spurninga, hvað þá fylgja einhverju eftir. (Gaman væri að vita hvort Páll hefur skutlað honum heim á eftir í fína bílnum). Geir var orðinn svo gjörsamlega týndur að þjóðin var farinn að gera um það brandara og þá er rokið til og drifið upp viðtal. Ég man ekki eftir einum einasta stjórnarandstæðingi í kastljósinu í háa herrans tíð en mörgum væmnum þáttum með ráðherrunum. Aldrei eru þessir menn ...
Jónatan

4. September 2007

HVERS VEGNA FORSTJÓRAR STYÐJA HÁEFFUN

Mér varð illt þegar ég heyrði Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóra, lýsa því yfir að hann vilji ekki að Orkuveita Reykjavíkur verði seld. Það sé aðeins verið að breyta forminu á fyrirtækinu með því að gera það að hlutafélagi. Í nánast öllum tilvikum þegar stofnanir í eigu samfélagsins hafa verið einkavæddar á undanförnum árum hefur viðkvæðið verið þetta: Við erum bara að háeffa, ekki selja. Alltaf hafa þetta reynst vera ósannindi. Í gær var framkvæmdastjóri SA mættur í útvarp að taka undir með Reykjavíkur-Íhaldinu. Hann sagði að þetta væri liður í því að losna við pólitíkusa úr stjórnum stofnana. Það er nefnilega það. Lýðræðið þvælist fyrir þeim. Vont að hafa Svandísi Svavarsdóttur með sínar...
Sunna Sara

2. September 2007

HÁVAXTASTEFNA SEÐLABANKANS: LEIKHÚS FÁRÁNLEIKANS

...Athugun á hagtölum Seðlabanka Íslands varðandi útlán lánakerfisins 2006 vekur þá spurningu hvort verið sé að hengja bakara fyrir smið með einróma umsögn Seðlabanka Íslands og starfsmanna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um starfsemi Íbúðalánasjóðs og áhrif hennar á það sem ekki verður um deilt: Að væntingar Seðlabanka Íslands og starfsmanna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um skilvirkni hávaxtastefnu Seðlabanka Íslands hafa ekki gengið eftir undanfarin misseri...
Gunnar Tómasson

30. Ágúst 2007

LÚÐVÍK: SAMEINUÐ SAMFYLKING GEGN VATNALÖGUM

Það gladdi mig að heyra í fréttum hve jákvæður þú varst í garð Össurar Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra og Samfylkingarmanns vegna ákvörðunar hans um að fram fari endurskoðun vatnalaganna. Nú á stjórnarandstaðan einmitt að taka Össur og ríkisstjórnina á orðinu og styðja iðnaðarráðherrann sem mér heyrist vera staðráðinn í því að afnema hin umdeildu einkaeignarréttarákvæði vatnalaganna. Lúðvík, þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir þingflokkinn standa órofa að baki Össurar...
Haffi

28. Ágúst 2007

VAKNIÐ ÍSLENDINGAR!

...Í raun er “markaðslögmálið” eins og það er nú túlkað af einkaauðvaldshyggjufólki, blekking og hugarórar til að verja og réttlæta óforskömmuheit og græðgissýki þess! Maður leitar eftir stórum orðum en verður nánast orðvant.
Almenningur verður að taka í taumana áður enn auðvaldið hefur stolið lýðræðinu og réttmætum eignum íslensku þjóðarinnar!  Að bíða lengur, getur reynst þjóðinni dýrt!
Það er nú í fullum gangi hjá auðvaldinu að ræna auðæfum landsins, hvort sem það er raforka, vatn eða annað,  auðæfum sem eru og eiga vera sameiginleg einkaeign allrar íslensku þjóðarinnar um ókomna tíð ...
Helgi

25. Ágúst 2007

HLEGIÐ Í BETRI BÍL

Nokkuð er nú rætt um kostnað við kaup útvarpsstjóra á bifreið sem hann kaus sér þegar Ríkisútvarpið var enn ríkisstofnun og ekki ohf. Bílamál þessi eru hugsanlega jakatoppur sem skýst fyrir tilviljun úr kafinu. Kannski er ráðslagið alvanalegt hjá ríkisforstjórum. Kannski eru þau forstjóri Tryggingastofnunar, þjóðleikhússtjóri, eða aðrir ríkisforstjórar sem röðuðust formlega í launaflokk með útvarpsstjóra þegar hann var hjá ríkinu öll á Audi Q7? Kannski þarf laun verkamanns á einu ári til að borga af bílum þess og kannski önnur til að þvo, snyrta og bóna fákana. Langar þig ekki Ögmundur til að vita það hjá Ríkisendurskoðun hvort eða hve margir ríkisforstjórar eru á bílakjörum eins og fullyrt er að útvarpsstjóri hafi verið á í fyrra? Annað smáatriði tengt Ríkisútvarpinu. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, gerði að mínum dómi heiðarlega tilraun til þess ...
Stefán

24. Ágúst 2007

SAMMÁLA JÓNI BJARNASYNI UM FJÁRLÖG OG FRAMÚRKEYRSLU

Ég er algerlega sammaála Jóni Bjarnasyni alþingismanni í umræðunni um framúrkeyrslu opinberra stofnana. Fjölmiðlar beina sjónum sínum að opinberum stofnunum og setja þær á sakamannabekk ef þær fara framúr fjárlögum. En þær hafa lögbundnum skyldum að sinna. Veikt fólk og slasað verður þannið að fá aðhlynningu á sjúkrahúsi þótt fjárveitingarvaldið hafi skammtað viðkomandi stofnun of litla fjármuni í þessu skyni. Á að vísa sjúklingum frá? Hvað ef stórslys verða? Þau geta kostað sjúkrahús milljónatugi. Jón Bjarnarson hefur talað um...
Guðrún Guðmundsdóttir

23. Ágúst 2007

HVERS VEGNA FÆR PÁLL EKKI ÞOTU?

Visir.is er að býsnast yfir því að Páll Magnússon, forstjóri RÚV ohf, aki um á dýrum bíl. Afnotagjaldsgreiðendur RÚV borgi 200 þúsund krónur á mánuði til rekstraleigu einkabifreiðar Páls. Einhver kann að spyrja hvers vegna Páll Magnússon eigi öðrum starfsmönnum RÚV ohf fremur, að fá bíl undir sig, kostaðan af skattgreiðendum. Ekki hugsa ég svo smáa hugsun. Mér finnst einboðið að...
Haffi

22. Ágúst 2007

SAMMÁLA VILHJÁLMI Þ. VILHJÁLMSSYNI!

...Ég er fullkomlega sammála Vilhjálmi Þ. borgarstjóra að ekki eigi að reka áberandi áfengisverslun í miðbæ Reykjavíkur, því það felur í sé ákveðna auglýsingu og hvetur söluna.  Ég tel áfengisneyslu mjög hættulega sem leiðir óhjákvæmilega til unglinganeyslu, sem aftur leiðir oft til hverskonar vímu- og fíknilyfjaneyslu.  Ég mundi styðja áfengisneyslubann, en geri mér fyllilega ljóst að slíkt eigi ekki hljómgrunn meðal þjóðarinnar, svo ég sætti mig við óáberandi áfengissölu ríkisins, og að það megi alls ekki leyfa sölu áfengis utan áfengisverslana ríkisins...
Helgi

20. Ágúst 2007

UM REYKINGAR Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI

Fyrir fáeinum dögum skrifaði Hafdís bréf hér á heimasíðu þína Ögmundur sem fjallaði um reykingabann á Keflavíkurflugvelli. Auðvitað hefur Hafdís fullan rétt á skoðun sinni á þessu máli, sem sýnist saklaus við fyrstu sýn.  Í yfirlætislausu lesendabréfi Hafdísar sem fyrst og fremst virðist skrifað til að taka upp hanskann fyrir reykingafólk sem þjáist af “smókleysi” eftir langt flug kemur þó fram afstaða sem ég tel afar varhugaverða svo ekki sé fastar að orðið kveðið. Hafdís bendir á að “reykingar séu skilyrðislaust bannaðar á veitingarstöðum sem öðru opinberu rými,"  og telur það hárrétt.  Þetta er auðvitað vegna þess hversu hættulegar og hvimleiðar reykingar eru, sérstaklega...
Helgi

18. Ágúst 2007

RAGNAR ARNALDS OG BERNHÖFTSTORFAN

Inngrip Ragnars Arnalds til  þess að vernda Bernhöftstorfuna var það sem skipti sköpum. Þetta þarf að koma fram í framhaldi af grein Guðjóns Friðrikssonar. Þar vantar nefnilega einn þátt málsins: Ekki þann þátt að Ragnar Arnalds menntamálaráðherra ákvað að friða torfuna. Heldur þann þátt  sem Ragnar Arnalds fjármálaráðherra var ábyrgur fyrir og laut að endurreisn torfunnar sem hefði aldrei orðið ef ríkissjóður hefði ekki sinnt verkinu af myndarskap. Og í framhaldi af því varð til Minjavernd sem hefur nú bjargað...
Sigurður Bjarnason

17. Ágúst 2007

REYKINGABANN Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Í KASTLJÓSINU

Einn af mínum uppáhaldsfréttamönnum, Helgi Seljan, fór mikinn í Kastljósi Sjónvarpsins í gær út af reykingum á Keflavíkurflugvelli. Bent var á að þetta samræmdist ekki landslögum. Reykingar væru fortakslaust bannaðar innandyra á veitingastöðum og í opinberu rými. Eflaust hárrétt. En þarf ekki að...
Hafdís

16. Ágúst 2007

SVARS ÓSKAÐ: ER KEFLAVÍK ENN HERFLUGVÖLLUR?

...Ég læt fylgja með eftirfarandi af heimasíðu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, FAA....Vildu íslenskir fjölmiðlamenn vera svo góðir að spyrjast fyrir um hvað valdi því að farþegaflugvélum sem lenda á alþjóðaflugvelli okkar eru send skilaboð um að þær séu að lenda á herflugvelli.
Áhugamaður um flugmál

15. Ágúst 2007

VERKALÝÐSFORKÓLFAR OG KJARAMISRÉTTIÐ

Við stelpurnar vorum að glugga í tekjublað Frjálsrar verslunar í matartímanum um daginn eftir að hafa slegið saman í eintak. Þar rákumst við á nokkra verkalýðsforingja sem af og til semja fyrir okkur upp á kúk og kanel eða 140 til 160 þúsund á mánuði en eru sjálfir með á bilinu 600 til 1350 þúsund krónur mánuði. Einni okkar varð á orði að best væri að fá Hreiðar Má Sigurðsson í stéttabaráttuna að því gefnu að hlutföllin milli Hreiðars verkalýðsforingja og okkar yrðu sambærileg og við núverandi kónga. Hreiðar er með 64 millj. og 872 þús. kr. betur á mánuði sem þýðir miðað við framangreindar hlutfallsforsendur milli okkar og....
Sigga Gumm.

7. Ágúst 2007

HÚRRA FYRIR RÍKISSTJÓRNINNI?

...Kaupþing-banki hefur hækkað útlánsvexti. Nú verður ennþá erfiðara að kaupa íbúð sem þó var nógu erfitt. Fyrst þrengdi Jóhanna félagsmálaráðherra að Íbúðalánasjóði með því að lækka lánshlutfallið. Það þýddi að fólk þyrfti að leita á náðir bankanna í ríkari mæli en áður. Jafnframt sagði félagsmálaráðherra að þetta væru skýr skilaboð til bankanna um að þrengja að lántakendum. Ráðherrann og ríkisstjórnin hljóta því að hafa fagnað ákaft vaxtahækkun Kaupþings-banka. Allt er því að ganga upp fyrir þau. Ekki fyrir íbúðakaupendur. Ég tek ekki þátt í ...
Haffi

1. Ágúst 2007

1200 HUNDRUÐ INN OG 1200 ÚT, OG ALMENNINGUR BORGAR

...Hefði ekki rökrétt framhald á þeirri baráttu verið að koma í veg fyrir að einstaklingur flytti suður með þær 1200 milljónir króna sem eigandinn, sjómenn og verkafólk í landi skópu saman í sjávarþorpi á Vestfjörðum í 25 ár? Þær 1200 milljónir sem einn einstaklingur fer með er nákvæmlega upphæðin sem iðnaðarráðherra ætlar okkur hinum að greiða uppí skuld Byggðastofnunar svo hún geti forðað fyrirtækjum frá fárinu sem varð þegar kvótinn var seldur! Fyrirgefðu fröken, en er ekki eitthvað bogið við þetta kerfi, sagði ...
Ólína

31. Júlí 2007

BITLINGASPILLINGIN Í LEIFSSTÖÐ

...Þú virðist ekki átta þig á því Ögmundur, að þriðji Samfylkingarstjórnarmaðurinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem nú var skipaður, Sigrún Jónsdóttir, var kosningastjóri Samfylkingarinnar og prófkjörstjóri eins ráðherra flokksins, Þórunnar Sveinbjarnardóttur, samgönguráðherra fyrir síðustu kosningar. Er það þetta sem átt er við þegar talað er um gagnsæja og heiðarlega stjórnsýslu, umræðustjórnmál og hvað það nú allt heitir.....? Er þetta ekki bara gamaldags bitlingapólitík?
Sunna Sara

30. Júlí 2007

GENGUR EKKI AÐ VIRÐA LÝÐRÆÐIÐ Á EINUM STAÐN EN EKKI ÖÐRUM

...Auðvitað er vonlaust að ná samningum við Palistínumenn nema að leita eftir samningum við Hamas sem fengu afgerandi stuðning í lýðræðislegum kosningum. Það gengur ekki að berjast fyrir lýðræði í einu ríki og virða það svo ekki öðru.
Kær kveðja.
Tr.Ó.

25. Júlí 2007

AFÞAKKA KVENNAMÆRÐ

Sannast sagna varð ég gáttuð á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra og yfirlýsingum hennar frá botni Miðjarðarhafsins. Ekki bara það að hún hafi fylgt línu Bush hins bandaríska í yfirlýsingum heldur hinu hvernig hún misnotar kvennapólitíkina. Þetta segi ég sem kona. Fyrir fáeinum dögum var sýndur sjónvarpsþáttur um píanósnillinginn og hljómsveitarstjórann Daniel Barenboim, sem þú gerðir að umtalsefni hér á síðunni Ögmundur. Í þættinum var sýnt þegar Barenboim fékk afhend verðlaun í Knesset, ísraelska þinginu. Verðlaunahafinn Daniel Barenboim, hélt ræðu. Menntamálaráðherra Ísraels, bandbrjáluð fasistakelling, reiddist ræðunni og hellti sér yfir Barenboim. Mér kom þetta í hug þegar Ingibjörg Sólrún fór að mæra utanríkisráðherra Ísraels sem er kona...
Guðrún Guðmundsdóttir

24. Júlí 2007

STRÍÐ ERU SPROTTIN AF ILLRI RÓT

...Hitt eru klassísk sannindi og aldrei of oft á þau minnst að stríðum ber jafnan að hafna og andæfa. Þau spretta fram af illri rót og orsakast af ranglæti og yfirgangi þótt þeir sem kynda undir ófriðareldana reyni að fegra ástæður og réttlæta vopnaskak ekki síst vopnaframleiðendur. Öll sáttaviðleitni verður að byggjast á söguþekkingu og  skilningi á aðstæðum og fela í sér samkennd gagnvart fórnarlömbunum, sem svívirt eru, limlest og líflátin. Þetta á ekki síst við um átökin langvinnu fyrir botni Miðjarðarhafs. Því aðeins getur rödd Íslands hljómað til að draga úr þeim ófriði og öðrum, að hún tali máli þekkingar og samkenndar ...
Gunnþór   

21. Júlí 2007

UTANRÍKISSTEFNAN OG BITLINGAPÓLITIKIN Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI

...En reyndar var það nú annað sem ég ætlaði að nefna og það er nýja stjórnin sem hún skipaði í Flugstöðinni. Ekki var nú mikilli lýðræðis- eða valddreifingarhugsun fyrir að fara þar. Hún skipar þrjár Samfylkingarmanneskjur og tvo Sjálfstæðismenn svo ríkisstjórnarflokkarnir einoka stjórnina eins og þeir séu einir til eða hafi 100% fylgi. Auðvitað er lágmark að einn eða tveir stjórnarmenn komi frá stjórnarandstöðunni meðan þetta er algert ríkisfyrirtæki. Og ekki verður nú séð að Ingibjörg hafi valið einhverja sérfræðinga í fyrirtækjarekstri eða flugmálum. þetta er meðhöndlað eins og gamaldags flokksbitlingur til fyrrverandi eða fallinna þingmanna og bæjarfulltrúa. það er rétt sem einhver benti á hér á síðunni að Samfylkingin líkist alltaf meir og meir ...
Jón Kaldi  

19. Júlí 2007

GÓÐUR JÓN BJARNASON HJÁ MORGUNHANANUM

Sannast sagna finnst mér orðið einna bitastæðast fréttaefni að finna á Útvarpi Sögu og er ég að verða fastur hlustandi Morgunhanans, Jóhanns Haukssonar. Hann er iðulega með vitibornar vangaveltur og prýðileg viðtöl, naskur að finna vinkla sem aðrir fjölmiðlar koma ekki auga á eða forsóma. Þú gagnrýnir hér á síðunni Ögmundur, að fréttaflutningur um hlutafélagavæðingu sparisjóðanna hafi verið einhæfur og  var ég sammála þér þangað til ég hlustaði á þátt Jóhanns Haukssonar á Útvarpi Sögu í morgun. Þar var mættur Jón Bjarnason, þingmaður VG. Viðtalið við JB var mjög gott enda þekkir hann þessi mál vel og þorir að tala umbúðlaust. Fyrir það á hann ...
Haffi

17. Júlí 2007

ÓNANÍ Á LJÓSVAKNUUM

Fyrir skemmstu skrifaði Jón Þórarinsson þér bréf. Þar sagði Jón að ekki hefði gengið eftir sá spádómur “að Rúv myndi loga stafna á milli eftir að það yrði hlutafélagavætt”. Ég held að ástandinu í RÚV megi í augnablikinu líkja við kraumandi eld í mosa sem er að verða að skógareldi. Engar fréttir berast af því hvernig rekstrarsnillingurinn útvarpsstjórinn ætlar að rétta af bullandi tap á fjölmiðlinum. Mér er sagt að uppsafnað tap sé um 520 milljónir króna. Annað sem dagskrársnillingurinn útvarpsstjórinn hefur borið inn í RÚV í dagskrá er sá leikur að eldi sem helst verður líkt við “ónaní” dagskrárgerðarmannsins. Dagskrárgerðin felst í að  ...
Stefán

16. Júlí 2007

MOGGINN BRÁÐUM BÚINN MEÐ KRATARÚNTINN

...Ég verð nú að segja að því er ég sammála þér Ögmundur að erfitt var að horfa upp á félagsmálaráðherra í flennifyrirsögn á forsíðu og í opnuviðtali sl. sunnudag gagnrýna hávaxtastefnu í sama mund og hún herðir að okkur húsnæðiskaupendum. Ákvörðun félagsmálaráðherra að lækka lánshlutfall frá Íbúðalánasjóði þýðir að ég fæ þaðan 13 hundruð þúsund kr. lægra lán en ég ella hefði fengið. Það þýðir að ég þarf að sækja þessa peninga annað – á hærri vöxtum! Er hægt að taka ráðherrann alvarlega – eða Moggann ef því er að skipta?
Grímur

14. Júlí 2007

ÓTRÚLEG BRÁÐABIRGÐALÖG!

Eina skynsamlega skýringin sem ég hef heyrt á því að ríkisstjórnin skuli hafa sett bráðabirgðalög um notkun raflagna og raffanga til að þurfa ekki að breyta rafmagnskerfinu í herstöðinni fyrrverandi í Keflavík, er sú að enn blundi í brjósti ríkisstjórnarinnar sú von að Kaninn snúi aftur! Það var með ólíkindum að lesa um það í fréttum að ríkistjórnin sjái tilefni til að setja bráðabirgðalög, svo Íslendingar geti búið í óíbúðarhæfu húsnæði. Raflagnir standast ekki...
Rúnar rafvirki

6. Júlí 2007

ENGIR SÝNILEGIR ELDAR Í RÚV

Því var spáð að Rúv myndi loga stafna í milli eftir að það yrði hlutafélagavætt, það hefur ekki ennþá gengið eftir... 
Jón Þórarinsson

5. Júlí 2007

EKKI BARA STEFNA THATCHERS HELDUR LÍKA REAGANS!

... Þarna kemur nefnilega fram að Samfylkingin aðhyllist brauðmolahagfræði Reagans. Hún gekk út á að skapa hinum burðugu í þjóðfélaginu tækifæri til athafna – til að baka sín stóru brauð – með skattalækkunum og afnámi hvers kyns hindrana – þá myndi mylsnan sem hryti af borðum hinna efnuðu skila sér til almennings! Um þetta hefur þú oft fjallað hér á síðunni en þetta virðist mér vera boðskapur Samfylkingarinnar samkvæmt fyrrnefndu viðtali. Og síðan er það himinhár launamunur. Hátekjugræðgin er ekki vandamálið að mati viðskiptaráðherra....
Sunna Sara

29. Júní 2007

ÖRYGGISRÁÐ SÞ: ENN LEGGUR UTANRÍKISRÁÐHERRA LAND UNDIR FÓT

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, er að hætti forvera sinna lögst í heimsreisur undir því yfirskyni að hún sé að afla Íslandi stuðnings til að komast í Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna. Í gær var það Evrópa og nú er það Afríka. Ég spyr um kostnað og þá ekki síður um tilganginn með þessu brölti. Sannast sagna hélt ég að við stjórnarskitpin yrði horfið frá þessari gömlu þráhyggju Halldórs Ásgrímssonar, sem mánuðum og árum saman fór vítt og breitt um heiminn í þessum erindgjörðum. Þannig voru þessar heimsreisur allavega réttlættar. En er þetta virkilega besta leiðin til að við látum gott af okkur leiða á alþjóðavettvangi? Viljum við fulltrúa í Öryggisráðið til að standa þar Natóvaktina? Mér þótti ekki lofa góðu hve glaður aðstoðarutanríkisráðherrann hjá Bush Bandaríkjaforseta var eftir fundinn með Ingibjörgu Sólrúnu nú nýlega. Þessi fulltrúi Bush kvaðst ...
Sunna Sara

24. Júní 2007

STÓRIÐJUVANDI ÖSSURAR - HVÍ KENNA ÖÐRUM UM?

...Össur stóriðjuráðherra hefur nú stimplað sig í hóp óbreyttra sem koma skoðunum sínum á framfæri á þessari síðu. Býð ég hann velkominn í hópinn og vona að hann nái sem fyrst fyrri flughæð en nú liggur hann sem kunnugt er límdur við ál-egg Framsóknar í Látrabjargi Íhaldsins. Það hlutskipti fer honum ekki vel og ljóst að vanlíðanin undan ísköldum eggjunum er mikil; vanlíðan sem hann vill ekki viðurkenna hvers vegna til er komin og reynir því af veikum mætti að benda á aðrar orsakir, kenna einhverju öðru um. Og hann hefur valið þá ótrúlegu leið, karlgreyið, að skella skuldinni á Vinstri græna. Þetta minnir mig aðeins á ...
Þjóðólfur

23. Júní 2007

VG OG STÓRIÐJAN

Finnst þér ekki að Haffi, sem skrifar sem lesandi, sé á hálum ís þegar hann dregur í efa afstöðu Samfylkingarinnar til álvers í Helguvík? Haffi vísar til ummæla vesæls iðnaðarráðherra, og miklu kokhraustari umhverfisráðherra á Alþingi þegar spurt var út í byggingu álversins. Sjálfum finnst mér ádeila Haffa á hálum ís því stefna Samfylkingarinnar er nákvæmlega hin sama og VG í þessu efni. Við höfum sagt, að ekki verði gefin út frekari leyfi til rannsókna og nýtinga á óröskuðum svæðum fyrr en fyrir liggi rammaáætlun um náttúruvernd og nýtingu. Við höfum líka sagt, að ríkisstjórnin muni ekki leggja fram sérstakt frumvarp sem bannar beinlínis tilteknar framkvæmdir. Hið merkilega er, að þetta er nákvæmlega það sem formaður VG...
Össur.

22. Júní 2007

MERKILEGUR ÞÁTTUR UM MERKISMANN

Ég varð hugsi eftir að ég las pistil þinn um Andrés Björnsson, fyrrverandi útvarpsstjóra hér á síðunni 18. júní, daginn eftir þjóðhátíðardaginn. Ég þakka þér fyrir að vísa á slóðina á útvarpsþátt Gunnars Stefánnsonar, þess ágæta útvarpsmanns, um Andrés. Ég er búinn að hlusta á þáttinn allan tvívegis. Hann er mjög góður og minnir á gamla daga - en einnig nýja. Sá samanburður er ekki alltaf góður...
Grímur

21. Júní 2007

KATTARÞVOTTUR GAGNVART ÍRAK ER NÁNAST VERRA EN EKKERT

... Því beið fólk með öndina í hálsinum eftir ákveðinni afstöðu í þessu máli þegar Samfylkingin fór í ríkisstjórn. En ekkert skeði. Samþykkt var að lýsa yfir að ríkisstjórn Íslands harmaði núverandi stríð í Írak, eins og að það væri eitthvað sérstakt þar sem allt fólk heims harmar það, þá ekki síst Bandaríkjaforseti og þeir sem hafa staðið að þessu ólöglega og siðlausa stríði. Enda er það ekki málið hvort við hörmum innrásina og pyntingarnar, bölið og þjófnaðinn í Írak, sem fer ekki á milli mála. Krafan er sú að íslensk stjórnvöld ...
Helgi

14. Júní 2007

JÓNAS UM ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐINN

Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri með meiru, skrifar ágætan pistil á heimasíðu sína um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Mér sýnist það vera í þeim anda sem oft hefur sést á þessari síðu um þá stofnun. Ég tek undir með Haffa að það er með ólíkindum hve gagnrýnislausir íslenskir fjölmiðlar eru um "ráðgjöf" Alþjóðagjaldeyrissjóðsins...
NN

12. Júní 2007

ÍSLENSKIR FJÖLMIÐLUNGAR ERU ÁHYGGJUEFNIÐ

...Áhyggjuefnið er hins vegar ekki Alþjóðagjaldeyrissóðurinn, þar eru bara einstaklingar með múrsteina í hausnum. Þeim vorkennum við. En hvað með íslenska fjölmiðlunga sem taka við boðskapnum frá múrsteinafólkinu fullkomlega gagnrýnislausir? Vorkennum við þeim eða reiðumst við þeim?
Haffi

11. Júní 2007

FRÁLEITUR BOÐSKAPUR ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐSINS

Hvað finnst þér um ályktanir sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins? Ráðleggingar til ríkisstjórnar um að hækka ekki laun opinberra starfsmanna og huga að því að flytja inn erlent vinnuafl frá löndum utan Evrópusambandsins til að minnka spennu á vinnumarkaði (? með lægri launum?) stakk mig og mér finnst leitt að sjá engan gagnrýna þessar ráðleggingar. Mig langar líka að vita afhverju þessi ...
Bergþóra

9. Júní 2007

FRÁBÆR LILJA

Það var mér mikið ánægjuefni að sjá Guðfríði Lilju á þingi frá fyrsta degi þinghaldsins í vor. Mér voru það mikil vonbrigði að hún hlaut ekki kosningu í nýafstöðnum Alþingiskosningum, einmitt sú manneskjan sem helst af öllum hefði þurft að komast á þing – og átti það svo sannarlega skilið! Lilju er þó framtíðin, það sannfærðist ég um þegar ég ...
Sunna Sara

8. Júní 2007

ÚT Á HVAÐ GEKK FAGRA- ÍSLAND-STEFNAN?

Ég hlustaði af athygli á svör Samfylkingarráðherranna, Þórunnar og Össurar við fyrirspurnum um álverksmiðju í Helguvík á Alþingi, hvort til standi að reisa hana. Ýmsir fyrirvarar voru tilgreindir af hálfu ráðherranna, hvar ætti að taka orkuna, það þyrfti leyfi og svo framvegis. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar Lúðvík Bergvinsson sagði reyndar á þá leið að um væri að ræða ákvörðun fyrirtækja sem kæmu stjórnvöldum lítið við! En af öllu þessu verður mér spurn, gekk ekki Fagra Ísland út á fortakslaust stóriðjuhlé í fimm ár? Við skulum ekki gleyma því að jafnvel þótt ekki reyndist nauðsynlegt að ...
Haffi

7. Júní 2007

HVOR ER VARASAMARI OFBELDISNMAÐURINN EÐA HINN VÆRUKÆRI VALDAMAÐUR?

...Mér er mikið niðri fyrir og sumum finnst ég eflaust taka djúpt í árinni. Það á þó ekki við um þá sem hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi sjálfir. Það get ég fullyrt að þeim finnast þetta vera orð í tíma töluð! Það verður að horfast í augu við þann veruleika sem stjórnvöld hafa verið að skapa hér undanfarin ár: Með Schengen og öllum þeim ókostum sem fylgt hafa alþjóðavæðingunni er landið nú opið fyrir alls kyns óþjóðalýð og var ekki bætandi á dreggjarnar í okkar eigin samfélagi. Hér er líka búið að kynda undir lægstu hvatir manna með botnlausri græðigsvæðingu og árum saman var það látið viðgangast að sjálft þjóðarflugfélagið auglýsti ferðir til Íslands, nánast þannig að líkja mætti Íslandi við Sódómu norðursins! Til hvers konar fólks halda menn að slíkar auglýsingar höfði? Hverjir skyldu það hafa verið...
Helgi

1. Júní 2007

EKKI Í STUÐI

Ég var eins og þú alin upp við að hlusta þegar forseti Íslands talar opinberlega. Fyrst Ásgeir, þá Kristján, Vigdís og nú síðast Ólafur. Á góðum degi endurspegluðu orð allra það sem bærðist með þjóðinni. Allir forsetarnir fluttu misjafnlega góðar ræður. Sumir fluttu jafnvel slakar tölur. Þingsetningarræða forseta Íslands í dag fellur í þann hóp. Mér þótti ræðan fremur yfirborðskennd, fannst hún einkennast um of af frösum, sjálfhverfu og engu var líkara en að höfundurinn hefði kastað til hennar höndunum. Kannske hefur hann ekki verið í stuði. Verst þykir mér þegar forseti bregður sér í biskupsham og...
Ólína

31. Maí 2007

ORT UM KOSSABANDALAGIÐ

Vegna myndar, þar sem Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún kysstust innilega þegar þau voru að mynda Viðhaldið, varð þessi vísa til...
Kristján Hreinsson

31. Maí 2007

LEIKUR EKKI SAMA OG VERULEIKI

...Þú segir í greininni að nauðgun sé ofbeldi og tengir það beint við umræddan leik. Leikurinn er ógeðslegur og það er sláandi að svona leikir skuli vera til, en það er ekki hægt að setja samasem merki milli sýndarleiks og raunverulegs kynferðislegs ofbeldis. Mér finnst undarlegt að ég þurfi að benda þér á að þegar menn spila leikinn RapeLay þá er það ekki raunveruleikinn, alveg eins og skotleikir er ekki raunveruleikinn. Við tilkynnum ekki lögreglunni ef við verðum varir við tölvuleiki á netinu þar sem fólk er skotið til bana vegna þess að þetta eru einmitt "leikir".
Þótt mér og þér þyki einhverjir tölvuleikir með eindæmum ógeðslegir getum við ekki farið fram á að það verði sett í lög að banna þá. Það er ekki okkar að ákveða. Um leið og ofbeldi verður raunverulegt þá er hægt að grípa í taumana...
Björn Björnsson

30. Maí 2007

STÖÐUGLEIKI OG ÓTTI

...Vel má vera að VG og Framsóknarflokkurinn standi nú frammi fyrir uppgjöri í röðum stuðningamanna sinna fyrir þá sök eina, að forystumennirnir komu flokkum sínum ekki í ríkisstjórn, hvorki til hægri né vinstri. Það uppgjör bíður þá nýs dags. Mér býður hins vegar í grun, að það uppgjör gæti orðið hjóm eitt, borið saman við þau átakaefni, sem lúra í vatnsskorpu stjórnarsáttmálans, að ekki sé talað um það apalhraun stjórnmálanna, sem Samfylkingin er, og uppgjör formannanna, sem frestað var með yfirlýsingu um sátt og samlyndi sem hengd var upp í strætóskýlum í Reykjavík mánuði fyrir kosningar. Ég sá að fyrrum samstarfsmaður núverandi iðnaðarráðherra túlkaði ...
Stafán

29. Maí 2007

FRÁBÆR HÖNNUN Á GÖNGULAGI

Myndirnar af þeim Ingibjörgu Sólrúnu, Geir okkar Haarde, T. Blair og G.W. Bush eru prýðilegar. Ég er þér þakklát fyrir að birta þetta á síðunni. Mér finnst Ingibjörg Sólrún hafa náð göngulaginu betur en Geir, sérstaklega armsveiflunum. Hann er einhvern veginn daufari, mér finnst hann skorta sömu innlifun og hún greinilega hefur fyrir stundinni. Svo er Geir náttúrlega ekki eins hljólbeinóttur og Bush. Það dregur aðeins úr líkindum með þeim. Sennilega er það hestamennskan í uppvexti. Er það ekki rétt hjá mér að George W. sé frá Texas? Cowboys? Þrátt fyrir allt þetta finnst mér Geir samt gera sig betur en George þegar þeir "taka ganginn." Hver skyldi hafa hannað...
Sunna Sara

28. Maí 2007

KRISTJÁN UM GUÐNA

Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og núverandi formaður Framsóknarflokksins, sagðist í síðustu vikur vera ánægður með að losna úr amstri stjórnarinnar og sagðist nú vera búinn að taka útúr sér beislið og laus nið hnakkinn...
Kristján Hreinsson

28. Maí 2007

BURT MEÐ EFTIRLAUNALÖGIN

Ég er enn við sama heygarðhornið, búinn að senda þér fyrirspurn áður og búinn að ræða þetta persónulega við Atla Gíslason. þ.e. eftirlaunalögin frá 2003... Þú sem aðrir verður að viðurkenna hverskonar mismunun þessi fjandi veldur bæði kynjaskipt, búsetuskipt og stéttskipt í þessu þjóðfélagi. Opnið nú augun, lofið þjóðinni þessu og þjóðin lofar ykkur .
Þórbergur Torfason, Hala

27. Maí 2007

T VÆR MYNDIR - SAMA SETTIÐ

Þegar Blair og Bush koma saman fram til að verja Íraksstríði, svo dæmi sé tekið. Þá taka þeir ganginn, eins og sagt er í Ameríku, – ganga ákveðnum skrefum eftir rauðum dregli í takt og stilla sér svo upp við þar til gerð púlt í húsi, sem ber sama nafn og auglýsingastofa ...
Stefán

26. Maí 2007

KOSSABANDALAGIÐ

Almennt er ég mikið gefinn fyrir kossa. Í minni sveit kysstust vinir og ættingjar þegar með þeim urðu  fagnarðarfundir. Þetta átti bæði við um konur og karla. Ég hef sem aðrir fylgst með samningafundum þeirra Ingibjargar Sólrúnar og Geirs Hilmars á misgengissvæðinu við Þingvallavatn. Þau virtust sammála í einu og öllu. Hvorki stóð heilbrigðisstefna Íhaldsins í Samfylkingunni né Írak og Fagra Ísland og Unga Ísland á að bíða eftir stöðugleika því eins og nýr félagsmálaráðherra segir, þá þurfa fátæk börn að gera sér grein fyrir því að það má ekki stofna til útgjalda sem setja verðbólguna í gang. Allra síst væri fátæku börnunum greiði gerður með því að efna til útgjalda...
Haffi

25. Maí 2007

ÁSTIR SAMLYNDRA HJÓNA

Það var rafmagnað andrúmsloft hjá okkur í Snotru í gær.  Ný ríkistjórn var komin til valda og Framsókn á útleið. í tilefni dagsins hafði ég sett feita bita af saltkjöti í pottinn og eftir matinn settist fjölskyldan fyrir framan sjónvarpið til að fylgjast með landsfeðurnum undirrita margboðað samkomulag. Þarna sátum við sem sé eins og  Bart Simpson fjölskyldan bandaríska í sófanum, ég, konan mín og börnin okkar tvö uppkomin. Bjart var og napurt á Þingvöllum að sögn fréttamanns, sem átti vel við augnablikið. Því næst er myndavélinni beint inn í Þingvallabæinn þar sem forsætis- og utanríksráðherrann,  sitja eins og nýgift hjón, allavega leyna sterkir og rafmagnaðir straumar milli þeirra sér ekki. Feiminn spyr forsætisráðherra...
Runki frá Snotru   

24. Maí 2007

"ÖRÓTTUR HÖGNI"

Ég sé að iðnaðarráðherra Baugsstjórnarinnar er að biðjast afsökunar á því á vefsíðu sinni að samstarfi ykkar er lokið. Skiljanlega tregablandið hjá ráðherra, sem hengdi hatt sinn og staf á snaga í ókunnugu húsi. Í húsi þar sem ekki er tekinn aðgangseyrir við innganginn. Hann greiða menn nefnilega með því að veita húsráðendum verulegan afslátt af skoðun sinni og meiningu, en umfram allt með því sem menn fallast á að gera, eða láta hafa sig útí, eins og menn nefna það afsakandi eftir á. Högninn, iðnaðarráðherrann, er meistari fléttunnar, en um hann er hægt að segja það sagt var um annan mann: Hann er mikill plottari...
Ólína

23. Maí 2007

HEFÐIR ÞÚ SKRIFAÐ SVONA FRÉTT?

...Hefðir þú skrifað svona frétt á gamla RÚV? Þetta er reyndar dæmigert um gagnrýnislausa - eða kannski hlutdræga - fréttamennsku, sem nú tíðkast í alltof ríkum mæli. Í kvöld var sagt frá því í hinu opinbera hlutafélaqi RÚV, að SA og ASÍ tækju nýrri ríkisstjórn afar vel. Síðan var birtur viðtalsbútur við forseta ASÍ þar sem hann kvaðst "hóflega bjartsýnn" en reynslan yrði að kveða upp sinn dóm. Gefa þessi ummæli tilefni til fullyrðinga RÚV ohf.?
Gamall hippi eða ef til vill ungur, spurning um ljósár eða jafnvel ríkistjórn.

21. Maí 2007

FRÉTTASKÝRENDUR OG BJÖRN BJARNASON

...Ég vona að við séum mörg sem bíðum eftir því að fréttaskýrendur og leiðarahöfundar taki til alvarlegrar umræðu áhrif auðmanna á opinberar umræður með auglýsingum, og með því að hafa menn í vinnu. Kannske þurfum við að bíða jafn lengi eftir umræðum um það eins og viðbrögðum við því að tugur atkvæða Íslendinga í útlöndum voru ónýtt fyrir mistök. Er það ekki álíka alvarlegt fyrir lýðræðiselskandi þjóð og ef upp kæmu 102% atkvæða úr kjörkassa í Reykjavík norður? En spá mín er sem sé sú að Björn verði ekki í Baugsstjórninni.
Ólína

20. Maí 2007

ÞAÐ HVERFÐIST UNDIR BJARKAR BÖRK...

...Það er ekkert nýtt undir sólinni. Annað en kannski það, að þurfa 43 þingmenn til að búa til starfhæfan 32 þingmanna meirihluta. Þetta er eins og að vera svo hræddur um að missa niðrum sig, að menn setja á sig bæði axlabönd og belti, og spenna svo á sig fallhlíf og flotholt til að vera viss.
En af hverju er hin fölnaða rós svo hrædd? Er hún kannski hrædd við fólkið?
Fólkið sem man Viðeyjarstjórnina, og varð kannski fyrir barðinu á ákvörðununum sem þá voru teknar? Kannski óttast hún líka að hennar bíði sömu örlög og biðu eins glæsilegasta leiðtoga jafnaðarmanna, Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem ...Ég kaus Samfylkinguna Ögmundur og ekki VG og þess vegna þetta bréf. Ég taldi mér trú um að forysta hennar væri sér meðvituð um sögulegt hlutverk jafnaðarmanna...
Stefán

19. Maí 2007

STÓRFRÉTT RÚV UM FYRSTU KONUNA

...Rúsínan í karlrembuenda Ríkisútvarpsins og prófessorsins, með hliðsjón af tilboðum VG og Framsóknar til Samfylkingarinnar, er svo að flagga því að þegar stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefjist verði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrst kvenna til að fara fyrir slíkum viðræðum íslensks stjórnmálaflokks! Ég spyr: Er til of mikils mælst að Ríkisútvarpið reyni að gera örlítið betur við landsmenn í fréttaflutningi sínum?
Þjóðólfur

19. Maí 2007

HUGMYND FYRIR HELLE OG MONU

Það verður mikilvægt fyrir sögu jafnaðarmannahreyfingarinnar á Norðurlöndum ef  Ingibjörgu Sólrúnu tekst að mynda stjórn undir formann Sjálfstæðisflokksins. Tímamót. Aldrei hefði Monu Sahlin dottið í hug að mynda stjórn með Moderatarna, sænska íhaldsflokknum, sem sýnir bara hvað hún hefur lítið ...
Sigurður

18. Maí 2007

PÆLT Í TÖLUM:

"Sigur"  Samfylkingarinnar var sérstaklega athyglisverður því hann var tap um 2 þingmenn og á fimmta prósent. Jón Baldvin á sök á því tapi að einhverju leyti; hann hlýtur að hafa dregið amk. 0, 2 % eða kannski meira. En talan er ekki glæsileg eða sú sama og Margrét Frímannsdóttir dró að landi 1999 og Samfylkingarfólk talaði sérstaklega illa um þá útkomu Margrétar. Og úr því að hún er nefnd á nafn: Þingmönnum Samfylkingarinnar í kjördæmi Margrétar fækkar um helming; voru 4 en eru 2 - kallar. Mest er tap  Samfylkingarinnar í atkvæðum í Reykjavík norður; tapið er 7,1 %. Minnst í Norðvestur  - kjördæmi, 2  % slétt og reyndar tapar Samfylkingin  tvisvar til þrisvar sinnum meira í þéttbýli en dreifbýli. - Sá maður sem átti að taka við formennsku af Ingibjörgu Sólrúnu ...
Sigurður

18. Maí 2007

VG MUN STÆKKA

Mér finnst að VG hafi verið sjálfri sér samkvæm og ef þjóðin vill á annað borð heiðarlega stjórnmálamenn þá muni VG bara stækka og verða öflugra í framtíðinni...
Ágúst Ingi

17. Maí 2007

TEKIÐ UNDIR MEÐ BIRNI BJARNASYNI

...Hvernig bar að skilja þessi orð? Er það árangurinn í störfum forráðamanna Baugs sem eiga að ráða því hvort þeir eru dæmdir, eða ekki? Nei, lögmaðurinn getur ekki verið þeirrar skoðunar. Á að taka sérstakt tillit til landvinninga Íslendinga á Bretlandseyjum, frægð þeirra og frama, þegar þar til bærir menn taka ákvörðun um rannsókn meintra sakamála, eða þegar dómar eru kveðnir upp? Er það af þessum sökum sem Jóhannes Jónsson telur sig geta keypt sér samblástur gegn Birni Bjarnasyni? Ef skilningur manna er þessi þá eru menn í raun að tala um tvenns konar réttarfar. Kannske er hugmyndin sú, að réttast væri að setja líka sérstök refsilög sem gilda um auð- og valdamenn? Ekki bara sérstök ...
Ólína

16. Maí 2007

MINNIHLUTASTJÓRNIR GÆTU VERIÐ BETRI

Það er ekki fjarstæða að nefna minnihlutastjórn eins og ætla mætti af viðbrögðum sumra. Það gerði Framsóknarflokkurinn 1978 svo dæmi sé nefnt eftir ósigur sinn þá í kosningunum. Það væri reyndar til bóta fyrir lýðræðið að ekki sé minnst á ...
Sigurður

16. Maí 2007

FRAMSÓKN HEFUR ENGU TAPAÐ Í HÖFUÐSTAÐNUM

Sú della flýgur nú fjöllunum hærra að Framsóknarflokkurinn hafi beðið afhroð í kosningunum og í framhaldinu er fullyrt að flokkurinn eigi ekkert upp á dekk í Stjórnarráðinu. Einkum hafa menn talað digurbarkalega um háðulega útreið flokksins í höfuðstaðarnefnunni Reykjavík. En hvað segir sagan okkur um atkvæðamagn Framsóknarflokksins þar í gegnum tíðina? Í þeim efnum ætti að vera treystandi á tölur Hagstofu Íslands annars vegar og Ríkisútvarpsins ohf. hins vegar og við þær er stuðst hér. Af handahófi tek ég árið 1959 sem dæmi til samanburðar við nýafstaðnar kosningar. Í alþingiskosningum í október 1959 fékk Framsóknarflokkurinn 4.100 atkvæði í höfuðstaðnum. Samanlögð atkvæði í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur nú á dögunum voru hins vegar 4.266. Og Þetta kalla menn stórtap!! Flokkurinn hefur ...
Þjóðólfur

15. Maí 2007

HVAÐ MEÐ MINNIHLUTASTJÓRN FRAMSÓKNAR?

Nú hefur þú Ögmundur varpað fram þeirri hugmynd að við framsóknarmenn verjum minnihlutastjórn VG og Samfylkingar falli. Þetta er rausnarlega boðið en annar og miklu meira spennandi kostur er sá að þið í VG og Samfylkingunni verjið minnihlutastjórn Framsóknarflokksins falli. Það væri meira í takt við vilja þjóðarinnar og útkomu okkar framsóknarmanna í kosningunum þar sem við óneitanlega unnum góða varnarsigra víða um land nema þá kannski helst á mölinni. Hvað segir þú um þennan valkost Ögmundur, er ekki vert að ...
Jón

11. Maí 2007

ENN UM BANKANA

Ég mun að öllum líkindum veita Vinstri grænum mitt atkvæði í komandi kosningum en áður en áður en ég tek endanlega ákvörðun um það væri ég til í að heyra fra þér hvaða rök liggja að baki þess að aukin jöfnuður fáist í landinu með því að bankarnir eða önnur fjármálafyrirtæki fari úr landi. Með fyrirvara um að þessi orð þín hafi ekki verið tekin úr samhengi í fréttaflutningi...
Hlynur Páll Pálsson

9. Maí 2007

BLOGGAÐ UM FEMINISTA, ÖGMUND OG BANKANA

...Ég vil vekja athygli á tvennu sem fram hefur komið á netinu að undanförnu. Annars vegar skrifum Sóleyjar Tómasdóttur um konur og kosningar og hins vegar skrifum Árna Þórs Sigurðssonar sem hrekja útúrsnúningaherferð Framsóknarflokksins um að VG, og þá sérstaklega þú Ögmundur, viljið reka bankana úr landi. Eftir lestur pistils Árna Þórs þarf enginn lengur að velkjast í vafa um staðreyndir máls. Ég læt hér fylgja slóðir á þessar ..
Sigríður Einarsdó.ttir

9. Maí 2007

JÓN ER EKKI INNI

Eftir eina viku
aftur vilja á þing
þeir er sættir sviku
og selja blóm og lyng,
þeir er landið ljósa
leigja - álvers þý -
en loksins - loks skal kjósa
landi þing á ný.
...

8. Maí 2007

BLEKKINGAR UM EFTIRLAUNAFRUMVARPIÐ AFÞAKKAÐAR

Umræðu um eftirlaunahneykslið mun ekki slota í bráð - og ég vona sannarlega að Vinstrihreyfingin – grænt framboð kveði snimmendis upp úr með afstöðu sína í því máli þannig að eftir verði tekið – fyrir kosningar: Er VG reiðubúin að afnema eftirlaunalögin frá í desember 2003 eða breyta þeim þannig að alþingismenn og ráðherrar búi við sömu lífeyrisréttindi og aðrir opinberir starfsmenn? Ég bíð með öðrum orðum spenntur eftir svari þínu við grein minni í mbl. á laugardaginn var.
Ástæða þess að ég skrifa þér nú eru hins vegar orð Jóhönnu Sigurðardóttur í Blaðinu í dag, 8. maí. Þar er hún enn að reyna að blekkja kjósendur með því að láta líta út fyrir að ágreiningurinn um eftirlaunahneykslið snúist fyrst og fremst um ...
Hjörtur Hjartarson

7. Maí 2007

HVERNIG Á AÐ EFLA SJÁVARBYGGÐIRNAR?

...Ég óska þér og þínum velgengni í komandi kosningum. En eitt brennur á mér þar sem ér er með þér í kjördæmi: Hvernig sérð þú fyrir þér lausn á vanda Vestfjarða (sem og annarra sjávarbyggða)? Engin launung að ég ætla þér atkvæði mitt svo þetta svar ...
Fyrrum sjalli.

6. Maí 2007

GÁTA

...Ef það kostar 40 milljarða að koma skattleysismörkum á þann stað sem þau voru árið 1994 og ef skuldir ríkisins hafa á þessu tímabili minnkað úr 240 milljörðum "niður í nánast ekki neitt" (Þorgerður Katrín, í sjónvarpinu 05.05.2007). Hverjir hafa þá greitt niður skuldir ríkissjóðs?
Hjörtur

6. Maí 2007

ÞAÐ VERÐUR AÐ RÆÐA VATNALÖGIN!

Varðandi framgang Bechtel í Cochabamba er kannski rétt að benda á að kröfur Aguas del Tunari (dótturfélagsins sem fékk vatnsveituna) væru verjanlegar undir þeim íslensku vatnalögum sem að óbreyttu taka gildi í nóvember. Sá ískyggilegi grunur læðist að manni að þau hafi verið sett til að gera eitthvað slíkt mögulegt. Það er algjör lífsnauðsyn að koma þessu vatnalagamáli ...
Herbert Snorrason

5. Maí 2007

HVER ER AFSTAÐAN TIL LÍFEYRISFORRÉTTINDANNA?

Ég vildi vekja athygli á yfirlýsingu frá Þjóðarhreyfingunni, því það er beðið eftir afstöðu VG til afnálífeyrisforréttinda "æðstu ráðamanna" sem voru lögfest í desember 2003: YFIRLÝSING UM AFNÁM LÍFEYRISFORRÉTTINDA Þjóðarhreyfingin – með lýðræði fagnar heitstrengingum stjórnmálamanna um afnám lífeyrisforréttinda hæstaréttardómara, ráðherra og alþingismanna. Lagasetningin frá í desember 2003 gengur gegn hugmyndum landsmanna um lýðræði og jafnrétti...
Hjörtur Hjartarson 

4. Maí 2007

SAMHLJÓMUR Í STJÓRNARANDSTÖÐU

Mér líkaði vel að heyra samhljóminn í stjórnarandstöðunni í kjördæmaþættinum á RÚV í Suð-vesturkjördæmi í gær. Auðvitað á að gefa bæði Sjálfstæðisflokki og Framsókn frí frá stjórnarstörfum næsta kjörtímabil, ella hefði Sjálfstæðisflokkur setið í 20 ár og Framsókn í 16 ár. Svo löng valdaseta er spillandi og voru þessir flokkar þó fyrir ekki lausir við spillingu. Því fór reyndar fjarri að svo væri. Mjög fjarri. Við vitum að Framsókn vill ekkert stopp. Bara meiri völd og meiri spillingu. Ennþá nær kjötkötlunum. Ekkert stopp. Og Sjálfstæðisflokkur hefur ekki beinlínis á móti meiru af svo góðu. Sá sem...
Haffi

3. Maí 2007

MYNDUÐ ÞIÐ LOKA HRAÐBRAUT?

Er það rétt sem ég heyri frá frambjóðendum Sjálfstæðismanna að Vinstri hreyfingin grænt framboð sé alfarið á móti einkareknum menntskólum? Einnig langar mig að vita hvort Vinstri grænir mundu loka skólum eins og Menntaskólanum hraðbraut ef þeir kæmust til valda ? ...
Rúnar Örn Birgisson

2. Maí 2007

HUGSJÓNIR Í VINNUFÖTUM

...Þetta eru hugsjónir fyrir fáa sem logið er inná allan almenning, eða eru þeir margir sem hafa þegið það sem Bjarni Ármannsson hlaut frá þeim í forgjöf sem nú vilja klæðast vinnufötum utan yfir hráa helmingaskiptahugsjónina? Svei, Ögmundur, svei. Ég skora á þig að birta myndina af því þegar Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson koma glaðhlakkalegir frá því að kaupa Búnaðarbankann fyrir slikk af eftirmanni Finns í embætti iðnaðar-og viðskiptaráðherra. Það er skylda stjórnarandstöðunnar að hengja þá mynd upp eins víða og mögulegt er. Í þeirri mynd felst óréttlætið og spillingin sem hér hefur komið á, þar eru lifandi komnar “hugsjónir á vinnufötum”...
Stefán

1. Maí 2007

HAGSMUNAFÉLAGIÐ GRÆÐGIN

Það var einkar viðeigandi að ganga frá starfslokasamningi Bjarna Ármannssonar 1. maí á hátíðis-  og baráttudegi verkalýðsins. Hann fær víst 800 milljónir króna. Það er auðvitað alveg upplagt að verkamenn og verkakonur Íslands geri þetta að kröfu sinni í tilefni dagsins að þau fái framvegis minnst 800 milljónir króna þegar þau láta af störum. Það eina sem er flókið er að skilja af hverju hér var látið staðar numið; af hverju ekki 1000 milljónir til að rúnna þetta af. Þetta verður áreiðanlega  góð viðmiðun fyrir Friðrik Sófusson sem senn ...
Sigríður

30. Apríl 2007

FRAMSÓKNARBRÆÐUR Í LYKILSTÖÐUM

Mikil átök eiga sér greinilega stað á bak við tjöldin í Framsóknarflokknum. Klíkan sem nú ræður þar á bæ hikar ekki við, 2 vikum fyrir kosningar að skipta um stjórnarformann Landsvirkjunar. Jóhannes Geir er greinilega ekki lengur í réttu klíkunni. Hann varð að víkja fyrir Páli Magnússyni, fyrrverandi aðstoðarmanni Valgerðar Sverrisdóttur. Öllum meðulum er beitt til að trygga sér áframhaldandi valdastöðu í samvinnu við þau ofursterku fjármálaöfl sem að baki flokksins standa. Aðilarnir sem leggja flokknum til fjármagn til að hann haldi völdum svo lengi sem sætt er, leggja að sjálfsögðu línurnar um væntanlega "einkavinavæðingu" orkufyrirtækjanna. Þar þarf nauðsynlega að hafa trygga menn í lykilstöðum. Þar ber Páll greinilega af öðrum, verandi bróðir Árna Magnússonar, fyrrverandi félagsmálaráðherra Framsóknar, sem ...
Ísmann

29. Apríl 2007

UDE AT SVÖMME

Allan þann tíma sem Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur verið á sundi í laug í öðru kjördæmi og í hvert skipti sem hann hefur bætt á sig enn einni samlokunni hef ég velt fyrir mér skilaboðunum í auglýsingunni. Og ég viðurkenni að ég er alveg rugluð. Grettissundið, hinn sterki, gæti verið stef, en þá þvælist samlokan fyrir. Samlokan tákn óhollustunnar. Formaðurinn syndir gæti verið tilvísun í hinn sterka leiðtoga, t.d. Maó formann sem sagður er hafa synt jafn lengi í Gula-fljóti og búast má við að Jón syndi nú í Kópavogslauginni fyrir kosningarnar. Kannske eru...Hugurinn leitaði norður í Öxnadal þegar ég sá að Sjálfstæðisflokkurinn reynir nú að höfða inn á miðjuna með lánsslagoði gamla Alþýðuflokksins og mér datt í hug:
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.
Hverjar skyldu nú vera ærnar, kýrnar, og smalinn í auglýsingum Sjálfstæðisflokksins?
Ég læt þér eftir að ...
Ólína

28. Apríl 2007

VELSÆLD MÆLD Í MEGAVÖTTUM

Það vantar sannarlega ekki á merkar yfirlýsingar nú í aðdraganda alþingiskosninga. Jóhannes Geir stjórnarformaður Landsvirkjunar til 10 ára fengi nokkuð örugglega bikar, ef um "markverðar" yfirlýsingar væri keppt, þegar hann í gær tjáði fréttamönnum, tárvotum augum að hann skildi ekki hvers vegna sér væri nú hafnað. Hann færi ekki fram á að fá að sitja nema ár til viðbótar sem stjórnarformaður. Hann bætti því síðan við að í sinni stjórnartíð hefði raforkuframleiðsla Landsvirkjunar í megavöttum talið tvöfaldast og hagsæld þjóðarinnar að sjálfsögðu samsvarandi! Þetta minnir á viðhorfin og áróður í Sovétríkjunum í tíð Stalíns. Þá var fólki talin trú um að auknu framleiðslumagni talið í milljónum tonna fylgdi sjálfkrafa samsvarandi aukin lífsgæði...
Nú ríður á að þessi þagnarmúr spillingarinnar verði rofinn...
Ísmann

27. Apríl 2007

LITLI OG STÓRI

Fyrir ekki löngu síðan tók Morgunblaðið upp á því að birta “fréttaskýringar” á forsíðu. Knappar í forminu og tilraunin hefði getað orðið skemmtileg nýbreytni. Fersk eins og nýi framkvæmdastjórinn í góðra vina hópi. Mér þótti Agnes Bragadóttir brotlenda tilrauninni með “fréttaskýringu” um afdrif auðlindamálsins á Alþingi og um álverskosningarnar í Hafnarfirði. Í báðum “fréttaskýringunum” kom fram að blaðamanni Styrmis virtist eitthvað uppsigað við Samfylkinguna. Var Össur Skarphéðinsson svo af einhverjum dularfullum ástæðum, sem enn hafa ekki verið opinberaðar, notaður til að berja á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Hinn fréttaskýrandi blaðamaður bað svo...Getur verið að það sé þess vegna sem menn skrifa ekki fréttaskýringar um ríkisfjármálin, að það sé einfaldara og betra í flokkspólitískum tilgangi að halda sig bara við frasana, sem svo auðveldlega geta leitt menn inn á refilsstigu? Mér finnst Davíð heill, en hinir ekki...
Ólína

27. Apríl 2007

EINAR EYJÓLFSSON OG NORÐMENN

Eyfirðingur hefur nú gert samning fyrir hönd stjórnvalda hér um að Íslendingar greiði fyrir veru norskra hermanna sem kynnu að vilja æfa vopnaskak á íslensku landi. Um leið og hætta skapaðist í heimi hér hyggjast Norðmenn hverfa á brott og vilja í engu verja “alþýðu karla og kvinna, unga menn og gamla, sæla og vesla” komi til átaka. Af þessu tilefni er rétt að nefna ræðu Einars Eyjólfssonar Þveræings sem hann flutti þá Ólafur Haraldsson sendi út hingað...Og þegar er Einar hafði þetta mælt og innt allan útveg þenna þá var öll alþýða snúin með einu samþykki að þetta skyldi eigi fást. Sá Þórarinn þá erindislok sín um þetta mál.” 
...Ekki legg ég mat á þetta ráðslag. En óhætt er að segja að nú er nyrðra önnur öld og aðrir siðir...
Stefán

26. Apríl 2007

FRAMSÓKN AÐ STELA FORMENNSKU Í LANDSVIRKJUN

Hvað var Jón Sigurðsson að gera með Rannveigu Rist á bak við luktar dyr iðnaðarráðuneytisins? Hvernig stendur á því að enginn reynir að ganga á eftir honum með beittar spurningar um málið? Hann neitaði blaðamanni strax eftir fundinn með Rannveigu og hann kemst enn upp með það að segja ekki neitt. Það er ekki hægt. Langlíklegast er að hann sé að lofa Alcan álveri á Keilisnesi. Er það svo? Ég skora á  blaðamenn að knýja fram niðurstöðu í málinu. Margt bendir til þess að niðurstaðan - þrátt fyrir allt talið um stóriðjustopp  - verði stóriðjusvindl. Og nú er Framsóknarflokkurinn að tryggja  sér ...
Sigríður Þórarinsdóttir

26. Apríl 2007

ÍSLAND Í KJARNORKUKLÚBBINN?

....Hvað varðar áhrif á mannlífið gæti ég trúað að Írakar hefðu verið betur staddir ef kjarnorkusprengju hefði verið varpað á Baghdad! Evrópa án kjarnorkusprengja er verðugt markmið. En ef hún er markmið út af heimsöryggi, held ég að það séu fleiri atriði til að hugleiða. Og ef við hér á litla Íslandi erum of áhrifalítil til að fá nokkuð í þessu gert, eigum við þá ekki bara að skella okkur í kjarnorkuklúbbinn og láta í okkur heyrast? Ég hugsa að það væri ekki mikið dýrara ævintýri en Kárahnjúkar.
Herbert Snorrason

25. Apríl 2007

ER EITTHVAÐ AÐ?

Svo er Sjállfstæðisflokkurinn að fá meirihluta og það er haldið áfram með framkvæmdir; nú í Helguvík og Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra situr á leynifundum með Alcan um Keilisnes.
Ætlar kosningabaráttan að láta þetta fara fram hjá sér?
Stærri Sjálfstæðisflokk en nokkru sinni fyrr.
Nýtt álver í Helguvík.
Nýtt álver í Keilisnesi.
Er eitthvað að; á sljóleikinn að ráða kosningaúrslitunum?
Sigríður

23. Apríl 2007

VARÚÐ: ÞAÐ ER HÆTTA TIL HÆGRI !

Er einhver hætta á því að kjósendur verði látnir gleyma Kárahnjúkavirkjun í kosningunum 12. maí eins og þeir "gleymdu" Kárahnjúkavirkjun fyrir fjórum árum? Hvaða flokkur stóð þá vakt - aleinn?
Er einver hætta á því að kjósendur gleymi ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um að styðja  innrásina í Írak? - Hvaða flokkur hefur verið á þeirri vakt um sóma íslensku þjóðarinnar?  Oft aleinn.
Er einhver hætta á því að kjósendur gleymi vaxtaokrinu? Hvaða flokkur hefur talað skýrast um ruðningsáhrif stóriðjustefnunnar sem eru að birtast í vaxtaokri og byggðahruni?
Er einhver hæta á því að kjósendur gleymi Halldóri og Davíð?
Er ekki allt í lagi að...
Sigríður

22. Apríl 2007

VANÞEKKING OG AUMINGJAGÆSKA

...Samkvæmt skoðanakönnunum um helgina eru ríkisstjórnarflokkarnir að sækja í sig veðrið. Ástæðurnar eru mismunandi. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur þess að enginn virðist lesa stefnuskrá hans. Fólk virðist einfaldlega ekki þekkja til áforma Sjálfstæðisflokksins. Niðurlægingu Framsóknar þekkja flestir. Ég held að aukið fylgi þess flokks samkvæmt könnunum megi rekja til þess hve góðhjörtuð þjóðin er. Fólk vilji vera gott við þennan guðsvolaða flokk, veita honum hjálp og líkn. Þetta er það sem stundum er kallað aumingjagæska. Ertu sammála þessu mati Ögmundur? Hitt verða menn að hugsa í alvöru og það er þetta sem ...
Haffi

20. Apríl 2007

MÁ SPYRJA, KANNSKI?

...Og auðvitað er útkoma hinna flokkanna eftir því, nema auðvitað Vinstri grænna sem eru alltaf til vandræða; þeir eru samt - SAMT - með 20 % nærri því fimmta hvern kjósanda. Nú skal því spáð hér að þetta verði öðru vísu eftir viku þegar landsfundaeffekktinn fjarar aðeins út. Stóra skoðanakönnunarfyrirtækið hefði átt að geta þessara hugsanlegu skýringa í greinargerðum sínum í smáa letrinu. Var það kannski gert? Ekki sá ég það; en aðalaatriðið er að Guðmundur Steingrímsson var glaður og brosti gegnum 18 % tárin.
En kannski má ekki spyrja svona spurninga eins og hér er gert; þær eru örugglega ekki í handritinu.
En ég spyr samt.
Sigríður Þórarinsdóttir

20. Apríl 2007

HVAÐ SEGIR VG UM PALESTÍNU?

...Hver er stefna ykkar varðandi deilur Ísraelsmanna og Palestínumanna? Teljið þið það mikilvægt að viðurkenna tilvist Palestínu sem sjálfstæðs ríkis...?
Guðbjörn Dan Gunnarsson

19. Apríl 2007

HÖFUÐBÓLIÐ OG HJÁLEIGAN

...Mér finnst full ástæða til þess Ögmundur að þið þvingið það upp úr forystu Samfylkingarinnar hvort sá flokkur hefur í hyggju að vera ekki bara hækja, heldur bókstaflega göngugrind, fyrir þreyttan Sjálfstæðisflokk. Tónarnir sem heyrðust á landsfundi Samfylkingar, hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í sjónvarpi að loknum þeim fundi og hjá þeirra fyrsta manni í SV í kvöld, finnst mér gefa tilefni til að SF svari því á hvaða leið þau eru. Við sem viljum jafnaðarstjórn og ætluðum að kjósa Samfylkinguna flytjum okkur þá bara yfir á ykkur og tryggjum Samfylkingunni klassískt Alþýðuflokksfylgi. Ekki kýs maður Samfylkinguna til að mynda velferðarstjórn með Sjálfstæðismönnum eftir að hafa haft þá við stjórnvölinn í 16 ár. Það væri þá betra fyrir þá, sem trúa að leiðin að innsta kjarna jöfnuðar liggi í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, að fara beint á höfuðbólið og ...
Stefán

19. Apríl 2007

JÓNÍNA BJARTMARZ LEIKUR Í VERULEIKASJÓNVARPI RÍKISSTJÓRNARINNAR

Það er í raun ótrúlegt  hve ráðherrar leggjast lágt í því að koma sér á framfæri. Síðasta dæmið er frá því gær, þar sem Jónína Bartmarz er stödd á strandstað Wilson Muuga, þar sem næstum má halda að þar hafi hún haft forystu um björgun skipsins.
Þessu var því miður þveröfugt farið, pappírsdýrin í umhverfisráðuneyti Jónínu voru búin að þvæla málið fram og til baka. Enda þótt skipið væri íslenskt, var það með hentifána frá Kýpur, þannig að stjórn Nesskipa og  Guðmundur Ásgeirsson stjórnarformaður útgerðarfélagsins, gátu leikið sér með umhverfisráðuneytið og firrt sig allri ábyrgð. Í þessari stöðu átti ráðherra og ríkistjórnin öll að taka af skarið.
Hvað um það ekkert gerist í málinu fyrr en ráðnir eru til verksins hörkutól sem ...
Rúnar Sveinbjörnsson

18. Apríl 2007

HRIKALEGAR HÓTANIR

Margt er gott í ályktunum landsfundar Sjálfstæðisflokksins, einnig um  velferðarmál, en þar birtast líka hrikalegar hótanir um grundvallarbreytingar á velferðarkerfinu.  Dæmi:
1.  "Landsfundurinn vill nýta kosti fjölbreyttra rekstrarforma á sem flestum sviðum og tryggja þannig hagkvæma nýtingu opinbers fjármagns." Hér er semsé lögð áhersla á einkarekstur í heilbrigðiskerfinu; tvöfalt kerfi.
2. "Sjálfstæðisflokkurinn vill viðhalda almannatryggingum og að heilbrigðisþjónusta sé að mestu greidd úr sameiginlegum sjóðum." Á Norðurlöndunum hinum er heilbrigðisþjónusta ókeypis. Ég hef séð að VG vill fella niður sjúklingagjöld. Þannig á það að vera.
 3.  "Fundurinn telur að...
Sigurður Bjarnason

17. Apríl 2007

HVERS VEGNA ER VG ANDVÍGT VATNALÖGUNUM?

...Ég hef mikið velt einu fyrir mér varðandi deilurnar um vatnalögin nýju sem þið Vinstri-græn eruð svo ákaflega á móti. Af hverju er það svo, þegar að allir lögspekingar þessa lands telja að ekki sé um breytingu á núverandi réttarástandi? Er ekki hin raunverulega staða sú að um er að ræða einföldun á löngum og flóknum lögum?
Hafsteinn

16. Apríl 2007

ÍHALDIÐ HÓTAR AÐ EINKAVÆÐA HEILBRIGÐISKERFIÐ

...Samfylkingin talar mikið um það að hún sé nútímaleg eins og fyrri daginn en erfitt er að fá skilgreint hvað þar er átt við. Það ætti að vera viðfangsefni fjölmiðla. Íhaldið talar hins vegar skýrt og vill einakvæða raforkugeirann og heilbrigðiskerfið. Hvers vegna fjalla fjölmiðlar ekki gagnrýnið um þessar hótanir Íhaldsins?
Haffi

15. Apríl 2007

UM EFTIRLAUNAFRUMVARP OG SAMSTARF VG OG S

...En ég minni á það sem ég áður hef sagt að samstarfið þarf að vera mjög skilyrt. Semsagt ákveðið en skilyrt. Samfylkingin hefur nefnilega daðrað mjög við peningaöflin og þegar ISG talar um afturhaldssemi hef ég grun um að hún sé að agnúast út í það sem aðrir nefna prinsippfestu í vörn fyrir velferðarkerfið. Annars skrifa ég þetta fyrst og fremst til að taka undir með Pétri Tyrfingssyni í Silfrinu í dag og leiðrétta það hjá þér Ögmundur að Samfylkingin samþykkti ekki andstöðu við eftirlaunafrumvarpið eins og þú segir á síðunni þinni. Málið var sett í nefnd!
Sunna Sara

14. Apríl 2007

KEMST ÞÓTT HÆGT FARI Í TANNVERNDINNI

Grímur nokkur skrifaði hér á síðuna á dögunum og býsnaðist mikið yfir kynningu á kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins. Jón Sigurðsson formaður flokksins hefði komist svo að orði að þetta “væru ekki loforð heldur stefna”. Ekki er ég alveg sáttur við skrif Gríms sem segir að það sé "svosum ágætt að Framsókn hætti að lofa því allt svíkur hún." Þarna finnst mér hann vega ómaklega að Framsóknarflokknum því ekki verður það af flokknum skafið að hann hefur sýnt einmuna stefnufestu í kosningastefnuskrám sínum allt frá fæðingu, árið 1916.
Þessu til sönnunar vil ég bara benda á eitt dæmi hér um en það varðar ...
Þjóðólfur

13. Apríl 2007

UM AÐ HAFA SKOÐANIR

...Guðfríður Lilja sem var í Silfri Egils 1. apríl sl. og þetta er ekki aprílgabb, sagði að bæjarstjórnin í Hafnarfirði hefði átt að segja sína skoðun opinskátt um stækkun álversins í Straumsvík. Einhver kynni þá að líta svo á að bæjarstjórnin leiddi annan hópinn. Ég tek annars ofan af fyrir ...
Jón Þórarinsson

11. Apríl 2007

STJÓRNARFLOKKARINR VEKJA HROLL !

Allir ráðherrar Framsóknarflokksins birtust á fréttamannafundi í gær til að kynna stefnu sína. Jón Sigurðsson, formaður flokksins, kynnti útgjaldapakka sem mér skyldist að slagaði í tuttugu milljarða. Hann sagði að þetta væru ekki loforð heldur stefna! Hvað þýðir þetta? Það er svosum ágætt að Framsókn hætti að lofa því allt svíkur hún. En eru það ekki áherslur og stefna sem flokkarnir eru almennt að boða? Ég bara spyr. Þessi framsetning Framsóknar minnti hins vegar rækilega á öll sviknu loforðin.
Og Íhaldið er byrjað að lofa eða öllu heldur hóta áframhaldandi ...
Grímur

10. Apríl 2007

VILJA MENN FÁ LÍFEYRISÞEGA Á VINNUMARKAÐ?

Nú mun það víst vera svo, að lífeyrisþegar mega vinna sér inn 300.000 krónur á ári, áður en til skerðinga bóta kemur. Ég fór að skoða dæmið frá svolítið annarri hlið en þessari hefðbundnu, þ.e. gaman, gaman nú fara allir öryrkjar og ellilífeyrisþegar, sem vettlingi geta valdið, út á vinnumarkaðinn og bæta þar með bæði kjör sín og andlega líðan. Þetta er nú samt kannski ekki alveg svona rósrautt og fallegt, eins og e.t.v. má sjá hér á eftir...
Þórhildur Richter

9. Apríl 2007

HANDBREMSUSTOPP FRAMSÓKNAR

Þarf ekki að losa um einhverja skrúfu hjá Jóni Sigurðssyni, formanni Framsóknar eða hefur kannski einhver skrúfa forskrúfast í forritinu hjá honum? Það er augljóst að ráðgjafar Jóns og félaga segja þeim að hamra á því að stjórnarandstöðuflokkarnir vilji stoppa þjóðfélagið með því að hafna stóriðjustefnu Framsóknar. Í samræmi við þetta gengur nú á með einhverjum stopp/start, stopp,stopp,start/stopp aula-málflutningi. Síðan heyrist mér verið að reyna að koma handbremsu inn í þennan málflutning Framsóknarflokksins. Er hægt að ætlast til þess að ...
Haffi

8. Apríl 2007

EKKI GLEYMA EINSTÆÐUM FEÐRUM

Hvað varð um einstæðu feðurna hjá ykkur, eruð þið ekki orðnir of uppteknir af málefnum kvenna. Ég og mínir líkar eigum líka rétt á að vera til og hafa efni á því að taka þátt í þessu þjóðfélagi. Hvað ætlið þið að gera í málefnum einstæðra feðra? Þetta er verst setti hópur þjóðfélagsins en við virðumst vera hinir ósnertanlegu...
Arthur Þorsteinsson

7. Apríl 2007

EINKAREKSTRUR EÐA EINKAVÆÐING?

Mér leikur hugur á að vita hver munurinn er á einkavæðingu og einkarekstri, að þínum dómi. Þar á ég sér í lagi við heilbrigðis- og menntakerfi. Sem dæmi má nefna hvort þú telur það einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu þegar sérfræðilæknar reka læknastofur úti í bæ og hið opinbera greiðir kostnað vegna sjúklinga eða hvort það sé ...
Sigurður Hannesson

6. Apríl 2007

SA Í EIGIN HEIMI?

Lifa samtök atvinnulífsins í eigin heimi þegar þau mæla með stóriðju...? 
Jón Þórarinsson

5. Apríl 2007

HVAÐ VAKIR FYRIR "FRÉTTASTOFU" RÚV?

Ég vil leyfa mér að spyrja hvort viðtal í fréttatíma RÚV við Halldór Ásgrímsson, diplomat Íslands (okkar allra) á Norðurlöndum, í upphafi vikunnar hafi átt að þjóna einhverjum fréttatengdum tilgangi eða hvort einfaldlega var verið að reyna að gleðja tiltekinn stjórnmálaflokk sem ég varla nenni að nefna á nafn? Diplómatinn hafði akkúrat ekkert fram að færa í viðtalinu annað en að hann teldi að gamli flokkurinn sinn myndi reisa sig við fyrir komandi kosningar og að VG væri ekkert annað en loftbóla! Getur verið að "fréttastofa" RÚV líti á sig nú orðið sem eins konar loftbólu fréttamiðil? Öðru vísi mér áður...
Haffi

4. Apríl 2007

LÁTUM EKKI FÁTÆKT ÚTILOKA FÓLK FRÁ ÞJÓÐFÉLAGINU

...En þótt mér finnist VG mega gera betur þá hefur flokkurinn staðið velferðarvaktina langt umfram aðra flokka. Það gladdi mig mjög að lesa grein Gests Svavarssonar í Morgunblaðinu: Frelsi frá fátækt, menntunarleysi og veikindum. Hann hittir naglann á höfuðið. Fátækt útilokar fólk frá menntun og heilbrigðisþjónustu. Það er eitthvað meira en lítið að þegar svo er komið í þjóðfélagi sem vill láta kalla sig velferðarþjóðfélag! Þú ættir að fá Gest til að birta grein sína hér á síðunni...
Pétur Jónsson

3. Apríl 2007

HAFNARFJARÐARSIGRI ÞARF AÐ FYLGJA EFTIR Í VOR

Mig langar til að óska Hafnfirðingum til lukku með mjög afgerandi niðurstöðu í kosningunni í fyrradag. Og ekki síst er það baráttu mjög margra sem líst ekkert á hvert stefnir í atvinnumálum þjóðarinnar ...Þið þingmenn VG eigið sérstaklega þökk fyrir að gefa okkur frumkvæðið að þeirri hugsun að þetta væri ekki ómögulegt! Til lukku!!! Og við skulum fylgja þessu rækilega eftir í kosningunum í vor!!
Guðjón Jensson

3. Apríl 2007

MISRÉTTIÐ ER MESTA MEINSEMDIN

VG þarf að vera meira afgerandi varðandi velferðarmálin og í tillöguflutningi um að útrýma fátækt í landinu. Umhverfismál eru góðra gjalda verð en ég sakna þess að rætt sé af alvöru um velferðarmálin og hrikalegt misrétti sem ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur skapað í landinu á undanförnum árum. Hvers vegna er ekki meira hamrað á þessu málefni. Þið eruð eini flokkurinn sem er trúverðugur þegar velferðaþjónustan er annars vegar. Mér sýnist allir hinir flokkaarnir vilja einkavæða og þar með gera námsfólk og sjúklinga að ...
Sunna Sara

2. Apríl 2007

FER SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN LÍKA?

...Varðandi bankana sem munu fara úr landi ef ekki skattalöggjöfin er einsog þeir vilja hafa hana. Er ekki aðallega verið að tala um eigendurna? Borga ekki útibúin skatta í þeim löndum þar sem þau eru rekin. Vilja eigendur bankanna bara vera Íslendingar, að því tilskyldu að þeir fái vilja sínum framgengt? Hver er á munurinn á þeim og Alcan? Er það ekki ofbeldi að tala í hótunum? Myndast kauptækifæri ef "bankarnir" fara? Taka þeir með sér útibúin? Starfsfólkið? Byggingarnar? Þjónustuna? Eignirnar? Hverjir verða eftir? Bara Íslendingarnir? Verða þá allir atvinnulausir? Verða allir fátækir? Mun Hannes Hólmsteinn fara með þeim? Það er ekki verið að tala um...
Hjörtur

1. Apríl 2007

STÆKKUNARSINNI EN EKKI ÓSÁTTUR

...Ég var svipaðrar skoðunar og þú Ögmundur árið 1995 þegar álverið var stækkað því þú studdir það eins og þú hefur upplýst. Ég var ánægður að heyra það. Ég er þér hins vegar ekki sammála að aðstæður séu allt aðrar nú en þá. Þá þoli ég ekki þetta röfl um að álver séu slæmir vinnustaðir. Það hefur mikið gerst í aðbúnaði og mengunarvörnum álvera frá því álverið í Straumsvík tók til starfa!
En ástæðan fyrir því að ég er ekki óánægður með þessa niðurstöðu þótt ég sé stækkunarsinni er að ég hefði ekki getað hugsað mér að ..
Fyrrverandi starfsmaður í Straumsvík

1. Apríl 2007

STÓRKOSTLEG TÍÐINDI ÚR HAFNARFIRÐI

...Hafnfirðingar kjósa fjölbreytt atvinnulíf, hreint andrúmsloft og vilja hlífa náttúrunni. Lýðræðið vann sigur á peningavaldinu. Þann 12. maí kjósum við öll stóriðjustefnuna burt og tryggjum samfélagi og náttúru á Íslandi bjarta framtíð. Við snúum við blaðinu og kjósum nýja ríkisstjórn. Hafnfirðingar gáfu tóninn...
Svandís

31. Mars 2007

UPPLÝSINGA ÓSKAÐ UM KOSNINGAR Í VOR

... Ég er komin á lífeyri frá LSR og til að ná endum saman erum við hjónin búsett á Spáni megnið af árinu. Spurningin er; Þar sem við hjónin erum stuðningsmenn VG og verðum ekki á Ísl. þegar kosið verður til Alþingis. ...
G.J.

31. Mars 2007

ÚRSLITIN Í HAFNARFIRÐI MUNU HAFA LANDSÞÝÐINGU

...Hvernig stendur á því að ríkisstjórn Íslands stígur ekki fram og stoppar þennan yfirgang auðhringsins til dæmis með einu símtali? Í staðinn fer ríkisstjórnin í veislu austur á Reyðarfirði ekki af neinu öðru tilefni en því að með þvi móti telja ráðherrarnir sig vera að hjálpa systurhringnum í Hafnarfirði. Þar, á Reyðafirði, verður haldin veisla í kvöld segir Morgunblaðið. Ísland á þá, vona ráðherrarnir að verða vafið álljóma frá ystu víkum um allt land hringinn til Hafnarfjarðar. Er þetta smekklegt, má ég spyrja?  Þau verða þarna fyrir austan Valgerður Sverrisdóttir, Geir H. Haarde og svo blesssaður kallinn hann Jón Sigurðsson; mig tekur sárt að sjá hann í álfjötrunum. Sjálfsagt er honum...
Runólfur

31. Mars 2007

ALLT FYRIR ATKVÆÐIN?

...Á að fá atkvæði núna: Húsavík fegursti staður á jarðríki!!!!Mér finnst Mývatnssveitin falleg en ég er nú kannsi ekki hlutlaus þar. Ég bý ekki á Húsavík og það þarf að skapa störf fyrir fólkið sem er hér. Þau störf sem þú ert að óska / vona að verði til með stafstöðvum alþjóðlegra tölvufyrirtækja til dæmis eru ekki fyrir alla sem búa hér núna. Hvað með það fólk? Stór hluti þeirra sem vann í "Kísel" var og er ...
Unnur

31. Mars 2007

HVAÐ MEÐ UMHVERFISSKATT?

...Sem sagt nettóhagnaður fyrirtækisins verður um 430 milljóna króna lægri skattgreislur! Margur myndi hoppa hæð sína fyrir minni ávinning!! Nú er spurning hvort ekki sé sérstakt lag af þessum ástæðum að leggja fram frumvarp um umhverfisskatt á mengandi starfsemi t.d. álver? Við þurfum t.d. að leggja mjög mikla fjármuni til að binda koltvísýring með skógrækt. Kostnaður getur farið í milljón krónur vegna hvers hektara lands og því mikils um vert að leggja skatt á álfyrirtæki og aðra stóra aðila í mengun. Ég hefi í hyggju að skrifa meira um þetta mál en sennilega verður ekki af birtingu á því fyrr en eftir kosningar. Legg eindregið til að opna umræðu sem allra fyrst um þetta mikilsverða efni. Með því leggjum við auk þess mikilsverðan stuðning við ...
Guðjón Jensson 

30. Mars 2007

MISVÍSANDI AUGLÝSINGAR

Ég er sammála því sem fram kemur á blogsíðu Hafnfirðingsins Árna Guðmundssonar að vafasamt í meira lagi er hvernig Fjarðarpósturinn hanterar grein þína Ögmundur í síðasta tölublaðinu fyrir hinar örlagaríku kosningar um stækkun álversins í  Straumvík. Þú ert andvígur stækkun. Hins vegar kemur það ekki fram í fyrirsögn greinar þinnar. Inn í hana er hins vegar sett auglýsing ...
Haffi

30. Mars 2007

ALLIR Í KAFFIBANDALAGIÐ?

Ef Vinstri græn, Samfylking, Frjálslynd, Íslandshreyfingin og Framboð aldraðra og öryrkja myndu öll bjóða fram undir merki kaffibandalagsins yrði það ekki nóg til að koma í veg fyrir að ...
Jón Þórarinsson

30. Mars 2007

BER ALCAN ENGAR SKYLDUR?

Mig langaði til að spyrja þig hvort þér finnist ekki Alcan gera í raun lítið úr núvernadi starfsfólki sínu þegar gefið er í skyn að það verði að loka því álveri sem nú er í Straumsvík ef ekki fæst heimild til stækkunar, af því það verði svo fljótt úrelt. Hvað með allan mannauðinn, tækni- og verkþekkingu og öflugt starfslið? Er allt jákvætt tal um slíkt bara ...
Friðrik Dagur Arnarsson

29. Mars 2007

ALÞINGISKOSNINGAR OG MÁLEFNI NÁMSMANNA

...Það vekur alltaf jafn mikla furðu hjá mér að málefni námsmanna skuli gleymast og hverfa fyrir hverjar einustu kosningar.  Stundum hef ég það á tilfinningunni að við séum þjóðfélagshópur sem að skiptir engu máli hjá stjórnmálamönnum á Íslandi í dag. Það væri gaman að heyra frá þér hvort að þinn stjórnmálaflokkur ætli að beita sér í málefnum námsmanna.  Það fer allavega lítið fyrir þeirri baráttu miðað við umræðuna eins og hún er í dag.  Það er eins og að það gleymist hversu stórt hlutfall kjósenda við erum í raun og veru...
Jón Hnefill Jakobsson

28. Mars 2007

ORÐIN ÞREYTT Á AÐ BÍÐA

Ég var nú búin að ákveða að hætta að fylgjast með fréttum í byrjun mars þar sem einhæf framboðsumræða er ekki spennandi. En ég get ekki annað en fylgst með, það sem þú skrifar um fundinn á Húsavík 26. mars er alveg.... Hvað ANNAÐ á að gera í atvinnumálum Norðlendinga?? Við í Mývatnssveit erum búin að bíða þess að þetta "eithvað annað" komist á legg síðan Kiseliðjunni var lokað en það gerist ekkert. Ég veit ekki til þess að ...
Unnur Sig.

28. Mars 2007

ÁHUGAVERÐ HEIMSÓKN

...Listaháskóli Íslands kynnir stórviðburð fyrir áhugafólk um listir, stjórnmál og hugvísindi: Slóvenski heimspekingurinn Slavoj Žižek er væntanlegur til landsins og heldur fyrirlestur, föstudaginn 30. mars. Can Art still be Subversive? er yfirskrift fyrirlestrarins, sem verður fluttur í sal 132 í Öskju, kl. 16:30. Þá heldur Žižek fyrirlestur kl. 11 að morgni sama dags, við Háskólann á Bifröst: Tolerance as Ideology. Žižek er prófessor við Háskólann í Ljubljana, en hefur einkum...
Haukur Már Helgason

27. Mars 2007

HVER BORGAR BLOGGIÐ?

Það er ekki bara að framsóknarbloggarar ljúgi upp á Steingrím J. og Geir Haarde. Nú er vörn Péturs Gunnarssonar að verja sig með því að kenna um heimildarmanni sínum sem var fullur á bar í Reykjavík og hafði þar eftir öðrum fyllri söguna um fund Steingríms J. og Geirs Haarde. Var hann ekki blaðamaður útfarinn í vönduðum vinnubrögðum Moggans þessi drengur eins og forseti borgarstjórnar? Fennir fljótt í þau spor. Bloggarinn ungi kann greinilega ekki að ...
Þór

27. Mars 2007

VIRÐUM STARFSHEIÐURINN

Gott þið viljið virkja! Ég hef þá misskilið ykkur fram til þessa dags en ef VG vill virkja er allt í fína lagi! Varðandi áhættumat þá vil ég segja þetta. Ég er sjálfur verkfræðingur og þekki talsvert til við hönnunarferli. Það er einhver mikill misskilningur á ferðinni eða eitthvað annað. Áhættumat heitir á ensku Risk Assessment og er notað til að meta áhættu af notkun þeirrar vöru sem hönnuð er t.d. vélum af ýmsum gerðum, rafföngum og einnig mannvirkjum á borð við stíflur. Það er oft hluti af hönnunarvinnu að gera áhættumat og þá ber hönnuðinum sjálfum að meta áhættuna, gera matið. Það er óþarfi af stjórnmálamönnum að láta svo líta út sem eitthvað gruggugt sé við það...
Sveinn V. Ólafsson

26. Mars 2007

SENDIHERRA "FRÆÐIR" HÁSKÓLASTÚDENTA UM ÍRAK

þar sem þér er málið skylt bendi ég á vefslóð þar segir frá því plani sem umræða um innrásina í Írak var á í íslenskum háskóla fyrir fjórum árum. Kennari var helsti ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í öryggismálum, Albert Jónsson, sem nú gegnir stöðu sendiherra. Sjá hér...
NN

25. Mars 2007

MÉR VERÐUR ÓGLATT!

Sunnudags-Mogginn flytur forsíðuákall þeirra Páls Magnússonar, útvarpsstjóra og Óðins Jónssonar, fréttastjóra um sátt um Ríkisútvarpið. Upplýst hefur verið að þeir eru búnir að hækka launin við sig sjálfa – alla vega Páll, hinn bíður sennilega  knékrjúpandi  en vongóður. Búnir eru þeir að reka gamla og gegnumheila samstarfsmenn og nú biðja þeir um sátt um sjálfa sig! Ekki meiri óvissu um RÚV segja þeir! Ég er búinn að vera...
Starfsmaður RÚV – bráðlega ohf.

25. Mars 2007

VEGAMÁL Í ÍSLANDI Í DAG

...Það er sagt að tímasetningar séu heppilegar í pólitíkinni. Sumt af því sem maður er farinn að sjá í ljósvakanum er eins og raunveruleikasjónvarp. Þarna ræddu til dæmis tveir fyrrverandi starfsmenn Halldórs Ásgrímssonar um stjórnmál og fóru létt með að ræða um það eitt sem kom formanni borgarráðs vel. Eins og bein sending frá morgunverðarfundi í kosningastjórn á Hverfisgötunni. Blekkibragð (manipulation) á hæsta stigi, sorgleg þróun í þessum þætti hjá Stöð 2. Af hverju ræða fjölmiðlamenn þetta ekki á vefsíðum sínum? ...
Sigurjón

24. Mars 2007

LÝÐRÆÐIÐ FÓTUM TROÐIÐ...FRAMHALD

Ég greindi félaga mínum frá því í trúnaði, að það væri ég, sem hefði skrifað um aðkomu Samorku að stækkun álversins í Straumsvík. Hann gerði strax athugasemd við að ég skrifaði ekki undir nafni. Það virkaði ekki sterkt að fara í felur með skoðanir sínar. Ég tek undir þetta, en þau mál og málavextir geta komið upp að þegnarnir verða að geta tjáð sig undir dulnefni. Þegar svo er tel ég engin betur til þess fallinn en þingmaður minn og formaður BSRB, að birta á síðu sinni ...
Fyrrum starfsmaður Landsvirkjunar

24. Mars 2007

HVER Á FAXAFLÓAHAFNIR?

...Hvernig stendur á því að þar finnast allt í einu peningar?
Geta Faxaflóahafnir kannski leyst fleiri samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu eins og í Mosfellsbæ eða Hafnarfirði?
Gummi í Mosó

23. Mars 2007

FRAMSÓKN AFSKRIFUÐ Í REYKJAVÍK AF EIGIN MÖNNUM

Einn þriggja hörðustu framsóknarbloggaranna og sá sem er nánast tengdur forystumönnum Framsóknarflokksins fyrr og nú fjallar sem fyrr um VG í nýlegum bloggpistli sínum. Efnið er Framtíðarlandið og leið þeirra til að fá alþingismenn til að gera samning við sig fyrir hönd landsins. Þar er greint frá því hverjir hafi skrifað uppá hjá Framtíðarlandinu og vakin sérstök áhersla á umhverfisráðherranum með þessum orðum “Mér sýnist Jónína Bjartmars vera eini þingmaður eða þingmannsefni stjórnarflokkanna sem skráð hefur sig á listann.” Það er yfirlýsingin um að Jónína sé bara þingmannsefni sem farið hefur fyrir brjóstið á stuðningsmönnum hennar heyri ég. Finnst sumum...
Þór 

23. Mars 2007

FRÉTTASKÝRINGAR OG KU

Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, skrifar lítinn dálk í Morgunblaðið í dag um ku. Tilefnið er útleiðari í Fréttablaðinu, slúðurdálkurinn þar sem stundum er níðst á mönnum rétt eins og DV besætning tiltekins tímabils sé öll komin yfir á Fréttablaðið. Og Davíð tekst vel upp svo sem við var að búast. Útleiðari Fréttablaðsins og umfjöllun seðlabankastjóra um hann beinir sjónum mínum að svokölluðum fréttaskýringum Morgunblaðsins sem birtast nú á forsíðu blaðsins. Eða þeirri ákvörðun Styrmis og Einars að láta tiltekinn blaðamannahóp verða sýnilegri og gefa þeim meira frelsi til að auka spennuna á efni blaðsins, koma því á milli tannanna á fólki. Það er með fréttaskýringar eins og slúðrið. Það er hægðarleikur að setjast niður með...
Ólína

22. Mars 2007

VIRKJUM DYNJANDA

Nú er svo komið að  margir Íslendingar hafa gleymt einum ástsælasta syni  þessarar þjóðar, Jóni Sigurðssyni forseta. Eins og þeir vita sem til þekkja var Jón fæddur á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní árið 1811 og er því farið að styttast í 200 ára afmæli hans. Jafnhliða því að færri og færri muna eftir þessum mæta manni og öllu því sem hann lagði af mörkum til að þjóðin hlyti fullveldi þá fækkar stöðugt þeim sem byggja það landsvæði sem ól hann, þ.e.a.s Vestfirðina. Það er skylda okkar Íslendinga að gera nú átak og hefja minningu hans til vegs og virðingar á ný og jafnframt að styrkja byggð á æskuslóðum hans. Þess vegna skora ég á alla sanna Íslendinga að standa saman um væntanlega hugmynd ríkIsstjórnarinnar um veglega uppbyggingu á Hrafnseyri. Hvað væri meira við hæfi en reisa þar myndarlegt ....
Grámann í Garðshorni

21. Mars 2007

LÝÐRÆÐIÐ FÓTUM TROÐIÐ

Samorka hefur nú blandað sér í kosninguna um stækkun álversins í Straumsvík með auglýsingum og fréttatilkynningu, það ekki að ástæðulausu, ef málið er skoðað. Samorka er samband orku- og veitufyrirtækja sjá...Eins og sérst hafa allir þessir aðilar bullandi hagsmuna að gæta og starfa í umboði almannafyrirtækja, og því áróðusherferðin borguð af okkur orkuneytendum og skattgreiðendum.
Fyrrum starfsmaður Landsvirkjunar

21. Mars 2007

SPUNADRENGIR ÞAGNA

Athygli mína var vakin á því að þrír spunadrengir framsóknarforystunnar hefðu skyndilega misst áhuganna á að blogga um auðlindamálið. Varð þeim skyndilega stirt um stef þegar Geir H. Haarde, forsætisráðherra tilkynnti að þingmannafrumvarp um stjórnarskrá yrði ekki afgreitt á þinginu sem lauk aðfaranótt sunnudagsins. Hvorki Pétur Gunnarsson, Björn Ingi Hrafnsson, né þriðji framsóknarbloggarinn, hafa séð ástæðu til að skýra ágreining stjórnarflokkanna í auðlindamálinu. Hafa þeir þó allir greiðan aðgang að framsóknarforystunni sem gerð varð afturreka með frumvarpsdrög kennd við formann flokksins. Spunadrengirnir hafa heldur ekki gert mikið úr yfirlýsingum Jón Sigurðssonar...
Sigurjón

20. Mars 2007

FJÖLSKYLDUPÓLITÍK AÐ HÆTTI FRAMSÓKNAR: BJÓR Í VERSLANIR

Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi, er þekktastur fyrir að hafa verið stoð, stytta og helsti ráðgjafi Halldórs Ásgrímssonar allt þar til hann þreyttist svo að hann kaus að yfirgefa land. Borgarfulltrúinn er líka þekktur fyrir áhuga sinn á vexti og viðgangi fjölskyldunnar. Hann er til dæmis formaður nefndar sem skipuð var samkvæmt ráðleggingum hans sjálfs og ber heitið Nefnd um stöðu íslensku fjölskyldunnar. Undir því flaggi heldur framsóknarmaðurinn ræður um það sem fjölskyldum er fyrir bestu og þess utan hefur hann í orði  haldið hagmunum fjölskyldunnar mjög á lofti í borgarstjórn. Því er þetta rifjað upp að fjölskyldusinninn og framsóknarmaðurinn Björn Ingi Hrafnsson virðist ...
Þór

19. Mars 2007

ÓÁBYRG STEFNA VG Í UMHVERFISMÁLUM?

...Reyndar virðast VG vera voða hræddir við stíflur - þær eru svo illa gerðar og áhættumatið ekki pappírsins virði, sagði Álfheiður Ingad. síðasta sumar. Jahá, gott að fá það sérfræðiálit og var það alveg sérstaklega málefnanlegt innlegg í umræðu sem í kjarnann snýst um sjálfbæra þróun! Vatnsorka "Hydropower" er talið upp undir merkjum sjálfbærrar þróunar sem endurnýtanlegir orkugjafar og þá er rétt að snúa sér nú almennilega að því að nýta þá - um það ættu nú allir að geta verið sammála. Enda er lofthjúpurinn yfirfullur af CO2 - koltvísýrling. Hvers konar froðasnakk er þetta hjá VG að tala jöfnum höndum um sjálfbæra þróun sem "Divine" hugtak en meina samt eitthvað allt annað. Óábyrg stefna VG í umhverfismálum verður örugglega ekki endurnýtt enda alls ekki í anda sjálfbærrar þróunnar.
Kær kveðja.
Sveinn

19. Mars 2007

ÁBYRG STEFNA VG Í UMHVERFISMÁLUM

Í framhaldi af bréfi Sveins hér á síðunni vil ég taka undir með þér Ögmundur að því fer fjarri að við séum á móti sjálfbærri nýtingu vatnsorku til raforkuframleiðslu, hvorki hér á landi né annars staðar. Sjálfbær þróun (Sustainable Development) er einmitt grunnstefið í umhverfis, félags- og efnahagsstefnu VG og stefnumörkun flokksins miðast við að skila samfélaginu, náttúrunni og efnahagslífinu jafngóðu, og helst betra, til komandi kynslóða. Á þessu grundvallast einmitt afstaða okkar til  uppistöðulóna í jökulám almennt og þar með til Kárahnjúkavirkjunar.
Það er nefnilega  tómt mál að tala um endurnýtanlegar orkulindir  í vatnsorku þegar  verið er að stífla jökulá í risalóni sem fyllist af jökulaur og drullu á tilteknum tíma. Þar með er líftími virkjunarinnar liðinn og því lítil sjálfbærni í slíkri framkvæmd. Hér gildir einu hvort um er að ræða tugi eða jafnvel...
Álfheiður Ingadóttir

18. Mars 2007

AÐ LOKA HAFNARFIRÐI - PENINGAAUSTUR ALCAN - ER ÞETTA LÝÐRÆÐI?

...Af hverju að tapa þróunarsamkeppni byggðarlaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir Gunnari Birgissyni?  Til  að þóknast álverinu? Enginn er að leggja til að loka álverinu en það má í allri vinsemd benda á að ef álverið væri ekki þá væri Hafnarfjörður óðfluga að búa sig undir áð að verða örugglega  eins stór og Reykjavík. Er hægt að hugsa sér fallegra land á þessu svæði en Straumsvík og Óttarsstaði?  Nú er þeirri leið lokað og hún verður endanlega harðlæst ef álverið stækkar enn meira. Líklegt er að álverið loki fyrir möguleikana á þróun byggðar sem teldi 20 til 30 þúsund manns. Af hverju? Af hverju að stífla þróunarmöguleika Hafnarfjarðar enn...
Sigurður Bjarnason

14. Mars 2007

EKKI ÞINGMANNAFRUMVARP HELDUR ÞEIR GEIR OG JÓN

Þú talar um þingmannafrumvarp þeirrra Jóns og Geirs. Síðan hvenær er Jón Sigurðsson alþingismaður? Ég taldi að eina von Jóns Sigurðssonar yrði að vera tosaður inn á eyrunum sem ...
Borgþór  

13. Mars 2007

VIÐ VILJUM GAMLA GÓÐA ÍSLAND TIL BAKA !

Þið sópið að ykkur fylgi þessa dagana og menn eru að velta fyrir sér skýringum.
Ég hitti marga í mínu starfi og allir ræða þeir pólitík. Ég er þeirrar skoðunar að flestir Íslendingar vilji hreinlega fá gamla góða Ísland til baka, eins og það var fyrir 10-15 árum. Það eru allir búnir að fá nóg af einkavæðingu, fáránlegum auðmönnum, virkjunum, bankaokri, greiningardeildum lögreglu, olíuforstjórum og lögum sem á að setja til að vernda þetta nýja...
G.B.

12. Mars 2007

SPARISJÓÐUR SVARFDÆLA: 9 STARFSMENN OG 9 HUNDRUÐ MILLJÓNIR Í GRÓÐA!

...Til að samkeppni geti þrifist þurfa aðstæður að vera réttar, eftirlit hjálpar ekki. Einsog við vitum þá hefur vald og auður tilhneigingu til að þjappast saman. Þegar slíkt gerist þarf að afþjappa, skera í sundur og þvinga fyrirtæki til að skipta sér upp. Það þarf mikinn karakter til að þvinga slíkt fram. Samfélagið hefur alltaf átt erfitt með þetta verkefni. Næst besta leiðin er að skipa fyrirtækjum að keppa (þótt allir viti að það er blekking ein). Hver tími hefur sinn stíl. Hér á árum áður var aðferðin sú að tilnefna málsmetandi menn í nefnd sem var kölluð verðlagsráð. Sú nefnd ákvað verð á ýmsum nauðsynjum og þjónustu og hélt þannig úti sýndarsamkeppni. Nú tíðkast aðrar vinnuaðferðir. Verðlagsráð heitir núna Samkeppnisstofnun og hefur ..
.Eyvindur

11. Mars 2007

FJÖLDAHREYFING GEGN NEFSKATTI ÞORGERÐAR KATRÍNAR?

Ég saknaði þess að þú svaraðir ekki spurningu Ólínu hér á síðunni í gær. Hún spurði hvort þú myndir styðja samtök sem berðust gegn nefskatti Þorgerðar Katrínar, menntamálaráðherra, til að fjármagna hlutafélagið RÚV. Ólína segir í bréfi sem ég er hjartanlega sammála: "Myndir þú styðja samtök sem hefðu það að markmiði að láta reyna á nefskatt Þorgerðar fyrir dómstólum og berjast gegn nefskatti hennar þar til hann verður lagður niður. Við voru að velta því fyrir okkur nokkrar vinkonur hvort við ættum að ...
Sunna Sara

10. Mars 2007

AÐ KÓA MEÐ VALDHÖFUM

Ég fór að hugsa um það eftir kastljósið ríkissjónvarpsins í gærkvöld hvort manni þætti það skrítið ef þrír vinstri grænir sætu á kjörtíma í sjónvarpi og ræddu stjórnmálaástandið. Eða þrír framsóknarmenn til dæmis. Aldrei hefur maður séð þrjá framsóknarmenn ræða stjórnmálaástandið og gefa pólitískum andstæðingum sínum einkunn og niðurlægja eins og gerðist í gærkvöld. Mér myndi finnast það skrítið. Það sem er verst við þetta er að maður er næstum hættur að taka eftir því hvernig ríkissjónvarpinu er stjórnað, að minnsta kosti litlu fréttastofu útvarpsstjórans. Svona er það stundum maður stendur sig að því að kóa með valdhöfunum. Sá í sænsku blaði að sænskt hrökkbrauð hefur í annan tíma ekki selst meira í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að ein skemmtilegasta kynsystir mín í sjónvarpi vestanhafs...
Ólína

9. Mars 2007

TEKIÐ UNDIR MEÐ EYVINDI

...Ég ber fulla virðingu fyrir umhverfisbaráttu ykkar í VG og kvenfrelsisbaráttan er fín, líka utanríkisstefnan. Allt er þetta gott í bland. En það er baráttan fyrir réttlátara Íslandi sem skiptir öllu máli. Ég gef lítið fyrir misréttissamfélag, jafnvel þótt það sé í fögru og ómenguðu umhverfi. Eða eins og Eyvindur sagði; " Það er hins vegar hin einarða barátta fyrir félagslegu réttlæti, sem skilgreinir Vinstri Græna og gerir þá ólíka öllum flokkum og reyndist vera ferskur andblær í ..."
Halldóra Jónsdóttir

8. Mars 2007

UM AFNÁM EFTIRLAUNALAGA

Enn um eftirlaunalögin. Mér finnst svar þitt til Eddu langt frá því að duga. Spurningin snýst ekki um persónulega afstöðu þína heldur um það hvort VG ætlar að láta þessa spillingu gott heita eða beita sér gegn henni. Meðan flokkurinn heitir því ekki að afnema svívirðuna (sem hann ber sjálfur mikla ábyrð á), þá tekur hann fullan þátt í henni...
Hjörtur Hjartarson

7. Mars 2007

FJARSTÝRING HEGÐUNAR

Ef hægt er að laga til hegðun fólks eftir þínu höfði, þá er það ekki nauðsynlega jákvætt. Það að forstjóri Kók á Íslandi skuli berjast á móti skattlagninu á kók segir okkur ekkert um verðnæmi kóks, heldur aðeins hitt að hann er að reyna að minnka skatta á fyrirtæki sitt. Konsekvent skattlagning væri að hækka verðið upp fyrir greiðslugetu fátækra unglinga, en ekki bara nóg til að gera þeim lífið aðeins leiðara. Ef hegðunarstýring frá Alþingi á rétt á sér, þá mætti hugsa sér milljón prósent skatt á klámblöð, eins á kók. Hegðunarstýring með með tíkall hér og tíkall þar, skiptir aðeins máli í því samhengi að venja fólk við þá pólitísku breytingu sem er að verða í leyni, og frjálslyndir vinstri menn hafa barist gegn af hörku í Evrópu frá stríðslokum. Þetta er barátta gegn hvers kyns...
BJ

6. Mars 2007

EKKI LETISTJÓRNMÁL TAKK

...Þetta eru flókin vísindi en auðvelt að nálgast umræðuna. Nú er bráðum búið að stela öllum eignum þjóðarinnar, fyrst fóru sjávarauðlindir, verið er að ganga frá náttúrunni og lífeyrissjóðum. Allt undir merkjum stórgróða, og í skjóli svipaðrar skuldsetningar og á sér stað í Zimbabve.  Á meðan ræðir VG um verðnæmi gosdrykkja, eða hvað það nú heitir – einhver talaði um verðteygni hér á síðunni - bann við slæmri hegðun mannkynsins og að stjórnarskrárbinda afnám lýðræðislegra kosninga. Þarna fer flokkur sem hefur verið rænt af unglingum og skipað að fljúga til Kúbu...Það er ekkert að því að hafa feminista innanborðs í VG. Það er líka allt í lagi að hafa íhaldssama forræðishyggjumenn innanborðs. Slík afstaða er  þverpólitísk og á sína fylgismenn í öllum flokkum. Það er hins vegar hin einarða barátta fyrir félagslegu réttlæti, sem skilgreinir Vinstri Græna og gerir þá ólíka öllum flokkum og reyndist vera ferskur andblær í loftlausum vistarverum stjórnmálanna, þar sem samankomnir voru...
Eyvindur

5. Mars 2007

EKKI HÆGT AÐ VERÐSTÝRA HEGÐUN

Gaman væri við tækifæri að fá að sjá rannsóknir Lýðheilsustofnunar á verðteygni á Coca Cola, sérstaklega því sem lýtur að unglingum. Hvernig er hægt að rannsaka slíkt með leyfi? Þetta er yfirleitt álíka vísindalegt og töfralækningar í Swasilandi, (staðkvæmdarvörur, verðteygni, bull og vitleysa). Hver getur rannsakað þetta af viti? Ég fylgdist með þessari umræðu í Danmörku, þá vildi SF endilega setja krónu á kókið og gera aumingjana aðeins fátækari. Hagfræðiritgerð frá Bifröst bendir á að bæta megi kjör fátækra meira með því að lækka verð á tóbaki verulega heldur en með almennri lækkun á virðausauka. Svona umræða endar aldrei, en á meðan borða vansvefta uppeldislausir unglingar pizzu, drekka kók og horfa á videó, alveg sama hversu mikið verðið er hækkað. Þetta eru bara pyntingar úr fjarska. Það er ekki hægt að stjórna þjóðfélagi með því að...
BJ

4. Mars 2007

FORKASTANLEG EFTIRLAUNALÖG ÞINGMANNA

Í öllu stjórnmálaþvarginu í dag er ekki minnst á eftirlaun þingmanna, sem öllum finnst þó forkastanleg og ...
Edda

4. Mars 2007

FYRIRTÆKI Í REYKJAVÍK SITJI EKKI EIN AÐ HUGMYNDAAUÐ NÁMSMANNA

Í tengslum við nýlega spurningu sem birtist á síðunni, í tengslum við Marel, langar mig að benda á eitt atriði. Hér er ekki um að ræða rekstur sem Marel lagðist í að eigin frumkvæði, heldur keypti Marel upp fyrirtækið Póls - og það gegn þeim skilningi að rekstri á Ísafirði yrði ekki hætt. Það hefur væntanlega verið annaðhvort tímabundið eða ekki samningsbundið, en það er engum dulið að Marel stóð ekki undir væntingum bæjarbúa. Hér er því ekki um að ræða ókost við svonefndan hátækniiðnað, heldur öllu heldur við hið óhefta ofurveldi fyrirtækjanna sem nú virðist vera í tísku. Hvað varðar getuna til að reka fyrirtæki af þessu tagi á Ísafirði má setja upp spurningamerki...
Herbert Snorrason

2. Mars 2007

EKKI ÖLL EGGIN Í SÖMU KÖRFUNA !

...ert þú enn þeirrar skoðunar að hátækni- og þekkingariðnaður sé framtíðin í ljósi atburða á Ísafirði?
Þorsteinn Hauksson

1. Mars 2007

KÁTT ER Í BANKARANNINUM

Bjarni karlinn kaupir og selur.
Kátt er í banka-ranninum.
Þar eru á ferli úlfur og melur
í einum og sama manninum.
...
Kristján Hreinsson, skáld

1. Mars 2007

VERJUM TJÁNINGARFRELSIÐ

 ...Sé í pistli frá þér um aðför við tjáningafrelsið að þú ferð mikinn á móti þeim sem eru ekki sammála því ágæta fólki sem barðist gegn klámráðstefnunni. Ertu að gefa í skyn að þú viljir ritstýra mótmælendum þannig að þeir henti stefnu þinni...?
Magnús

28. Febrúar 2007

UM MUNINN Á ALMANNAHAG OG HAGSMUNUM GOSDRYKKJAFRAMLEIÐENDA

Þakka þér fyrir greinina um fátæktina í Morgunblaðinu á dögunum og fyrir athyglina sem þú hefur vakið á að með breytingu á virðisaukaskattinum sé veruleg hætta á að stuðla verði að frekari óhollustu. Holdarfar Íslendinga er nú þannig að full ástæða er til að vekja athygli á því enda glittir einmitt í holdarfarinu í stórkostlega aukningu heilbrigðisútgjalda í framtíðinni vegna fyrirséðra sjúkdóma. Í rökræðum eru stundum færð fram svo vitlaus sjónarmið að menn verða kjaftstopp. Þess vegna ætla ég ekki að gera að umtalsefni efnislega röksemdir ungs varaformanns Samfylkingarinnar í málinu. Hann á eftir að gera sér betur grein fyrir muninum á almannahag og hagsmunum gosdrykkjaframleiðenda. Ég tók eftir því á...
Ólína

28. Febrúar 2007

ENDURHÆFUM MANNESKJURNAR, EKKI BARA NÁTTÚRUNA !

... Margar góðar áætlanir eru á endurhæfingu náttúru landsins svo og velferðarmála. En ég hefi ekki komið auga á tillögur til úrbóta vegna fíkniefna og meðferðarmála. Meðferðarstöð Vogs undir skeleggri stjórn Þórarins Tyrfingssonar hefur kvartað sáran yfir að núverandi ríkisstjórn sýni of lítinn áhuga til styrkingar í þeim málum. Skora á þig Ögmundur að draga vagninn í þessum málum. Ég sem sendi þessar línur er óvirkur alkahólisti og segi hiklaust, að fagleg meðferð hefur bjargað lífi góðs sósíalista eins og svo...
Þ.Sig.

28. Febrúar 2007

HÆGRIHYGGJA VARAFORMANNS SAMFYLKINGARINNAR

Furðulegt er að ríkisstjórnin skuli hafa að engu tilmæli Lýðheilsustöðvar sem mæltist til þess að gosdrykkir og sykraðir drykkir yrðu ekki lækkaðir í verði nú um mánaðamótin eins og önnur matvara. Þú hefur gert þessu máli ágætlega skil hér á síðunni og á þingi . Í gærkvöldi rædduð þið svo málin þú og Ágúst Ólafur Ólafsson, alþingismaður. Ég ætlaði Samfylkingarinnar vegna að hafa sem fæst orð um þetta samtal ykkar, bæði af umhyggju fyrir þeim flokki og væntanlegu stjórnarsamstarfi ykkar. Meira að segja ætlaði ég að þegja þrátt fyrir að þessi þingmaður, sem jafnframt er varaformaður Samfylkingarinnar, virtist...
Haffi

28. Febrúar 2007

VARAFORMAÐUR SKLIGREINIR BANDAMENN SAMFYLKINGARINNAR!

Ágúst Ólafur Ágústsson fagnar því í á heimasíðu sinni í dag að ágreiningur skuli vera á milli VG og Samfylkingarinnar í skattlagningu á gosi. Hann segir: "Mér finnst það hreint út sagt ágætt að þessi munur sem er á milli Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í matvælamálinu komi fram."
Í annarri grein á heimasíðu sinni segir varaformaður Samfylkingar og er þá að fjalla um lækkun matvælaverðs, þar með talið verðlækkunarkröfu gosdrykkjaframleiðenda, sem Samfylkingin með hann sjálfan í broddi fylkingar studdi: "… Og hér í þessu máli á Samfylkingin bandamenn eins og ...
Sunna Sara

27. Febrúar 2007

ÁBENDINGAR TIL VG FRÁ STUÐNINGSMANNI

Ég er stuðningsmaður VG eða öllu heldur - ég hef verið stuðningsmaður VG. Sennilega verð ég það áfram því hjá ykkur eru þrátt fyrir allt skástu frambjóðendurnir og sumir hverjir mjög að mínu skapi. Þannig líkar mér vel verkalýðstónninn hjá þér Ögmundur þegar þú hvetur til þess að útrýma fátækt í landinu og þegar þú nánast einn stjórnmálamanna ert óhræddur við að vilja setja erki-kapítalistum landsins stólinn fyrir dyrnar. En hver er breiddin í þessum flokki? Þarf maður að vera feministi og styðja andlýðræðislega löggjöf sem mér heyrist flokkurinn vera að boða? Má maður ekki styðja jöfnuð og jafnrétti, þar með kynjanna, án þess að þurfa jafnframt að undirgangast...
Grímur H.  

27. Febrúar 2007

SPURT UM KJÖRIN

Sæll Ögmundur. Þetta er glæsileg síða sem þú heldur hér úti. Ég er ekki skoðanabróðir þinn í Pólitík, en les þessa síðu reglulega. Ég var að skoða glæsilega heimasíðu VG, þar kemur fram eftirfarandi um þig "Hlunnindi Alþingi greiðir fyrir símakostnað og áskrift dagblaða. Auk þess fæ ég greiddan kostnað, sem tengist þinginu og nam hann 190 þúsund krónum á sl. ári. Hér vegur þungt kostnaður við heimasíðu mína en einnig kostnaður vegna skjalaþýðinga". Mín spurning til þín er eftirfarandi: Borgar Alþingi fyrir þig heimasíðugerð ? Dagblaða áskrift ? Hvernig skiptist sá kostnaður...
Hjálmar Helgason

26. Febrúar 2007

SIGURSTRANGLEGUR FUNDUR !

Til hamingju með landsfundinn. Hann var sigurstranglegur þó sigrar séu langt frá því að vera í hendi. Ég var á setningu landsfundarins og fylgdist með honum svo í fjölmiðlum en áttaði mig best á því hvað þetta var sigurstranglegur fundur þegar ég sá þessi blogg í dag en úr þeim eru meðfylgjandi dæmi...
Sigurður Bjarnason

23. Febrúar 2007

VÍÐA ÞÖRF Á TILTEKT

Góður pistillinn þinn “TILRÆÐI VIÐ TJÁNINGARFRELSIÐ.” Málið er að það er ekki aðeins um að ræða að í landinu séu ofbeldismenn sem hóta og misþyrma fólki, og komast upp með það, heldur eru margir þessara ofbeldismanna í beinni þjónustu skipulegrar glæpastarfssemi, ef ekki alþjóðlegrar glæpastarfssemi! 
Þess vegna hef ég bent á að það er bráðnauðsynlegt að það sé upplýst hvaða Íslendingar standa að baki þessum sukkfundum í landinu, ásamt villimannahljómleikum sem plokka og spilla unglingunum með...
Helgi

22. Febrúar 2007

GAMANSAMUR JÓNAS

...Ég er með tillögu sem ég vil bera undir þig. Hvernig væri að Ísland fetaði í fótspor stórmenna á borð við mannvininn Hugo Chavez í Venesúela og þjóðnýtti allar matvöruverslanir? Það er hreint ógeðslegt að þurfa að borga auðvaldi landsins blóðpeninga fyrir rándýran mat. Matvöruverslun Ríkisins (MR) lengi lifi! ....
Jónas.

21. Febrúar 2007

VILL AÐ SAMFYLKINGIN SVARI

Það er augljóst að Samfylkingin skipuleggur þessa dagana níðskrif um VG vegna Varmármálsins.Það er satt að segja sumt þannig að það verður ekki beint kallað vináttuvottur. Þess vega vildi ég biðja þig, Ögmundur,  að taka eftirfarandi spurningar frá mér til birtingar og væri gaman ef þeir svöruðu á heimasíðu þinni:
1. Samfylkingin hefur alltaf í Mosfellsbæ stutt nefnda vegaframkvæmd. Hefur Samfylkingin á landsvísu aðra skoðun á vegi þessum en Samfylkingin í Mosfellsbæ?
2. Ef Samfylkingin vill ekki að vegurinn verði þar sem hann er ætlaður nú - hvar þá?
3. Er Samfylkingin kannski alfarið á móti því að leið verði opnuð þarna í sveitinni?
Ég mun fylgjast grannt með...
Gummi í Mosó

21. Febrúar 2007

MÍN FRÚ Á EINN VIN

Hræðilegur vandi blasir við vinaflokki þínum, Ögmundur, og þú hefur ekki tekið til varnar sem skyldi. Það eru allir vondir við Ingibjörgu Sólrúnu. Ekki fæ ég betur séð en að hún mæti stundum miklu skilningsleysi á heimasíðu þinni. Er leitt til þess að vita. En segja má að þar með bætist þú í hóp þeirra sem síst skyldi. Eini maðurinn sem finnur til með formanni  Samfylkingarinnar er rithöfundurinn orðhagi Hallgrímur Helgason. Hann tekur okkur hin á beinið svo um munar í Fréttablaðinu nýlega eins og senn verður rakið. Bendir HH reyndar á að mikill söfnuður illvirkja safnist að formanninum:  “Þeirra á meðal er eini hrafn landsins sem hegðar sér eins og rjúpa og skiptir flokkum eftir árstíðum. Þannig tókst honum að starfa í tveimur prófkjörum Samfylkingar á liðnu ári en styðja annan flokk í kosningunum þar á milli. Og daginn eftir seinna prófkjörið skipti fuglinn litum á ný og steig sigurdans á bloggsíðu sinni yfir því að formaðurinn hefði ekki hlotið nema 70% atkvæða í fyrsta sætið. Hver þarf andstæðinga þegar  hann hefur slíka krunkandi blárjúpu á öxlinni.” Góð spurning, finnst þér ekki, Ögmundur? Hver er annars þessi krunkandi blárjúpa? Er það...
 Sigurður Bjarnason

20. Febrúar 2007

KROSSAPRÓF

Hvaða flokkur var frá upphafi heill á móti Kárahnjúkavirkjun?
-  er það Framsóknarflokkurinn?
- er það Vinstri hreyfingin grænt framboð?
- er það Samfylkiningin?
...Þeir sem  verða með rétt svör við öllum fimm spurningunum fá sæmdarheitið stjórnmálafræðingar aldarinnar.
Hafliði H.

20. Febrúar 2007

INGIBJÖRG ER EKKI ALEIN Í HEIMINUM

Það er óhjákvæmilegt að segja það eins og það er: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var ekki ein í borgarstjórn á vegum R-listans eins og ætla má af örvæntingarskrifum Samfylkingarmanna þessa dagana. ISG var kosin í borgarstjórn með stuðningi Alþýðubandalags og Framsóknarflokks auk Kvennalista og Alþýðuflokks.  Í fyrirsvari fyrir Alþýðubandalagið var Guðrún Ágústsdóttir sem var forseti borgarstjórnar, en fyrir Framsóknarflokki fór Sigrún Magnúsdóttir. Þessar tvær konur leiddu ásamt ISG sigurför R-listans með öflugum stuðningi ...
Sigríður Þórarinsdóttir

19. Febrúar 2007

VALD TIL AÐ SEGJA SANNLEIKANN

Við, friðsamir Íslendingar, getum ekki stöðvað áætlanir Bandaríkjanna um að ráðast á Íran og leggja landið í rúst. Við getum veitt þeim þúsundum sem þar munu deyja og þeim þúsundum sem þar munu missa handlegg, fót eða lífsbjörgina, neina vernd. Því miður. Skrímslið að vestan er einfaldlega of öflugt fyrir smælingja eins og okkur.
En jafnvel smælingjar hafa vald. Valdið til að segja sannleikann. Við getum, bæði sem einstaklingar og sem þjóð bent á að...
Elías Davíðson

18. Febrúar 2007

HAGSMUNIR HEILDARINNAR OFAR ÖLLU ÖÐRU – BURT MEÐ KLÁMIÐ !

...Að sjálfsögðu á að vísa rumpulýð úr landi umsvifalaust og án undanbragða, ég tala nú ekki um þá sem koma til landsins í þeim yfirlýsta tilgangi að efna til ráðstefnu um glæpastarfsemi sína! Á að taka slíkum mönnum sem hverjum öðrum túristum?
Að sjálfsögðu var það fullkomlega eðlilegt að banna komu Vítisenglanna til landsins á sínum tíma. Vafi leikur hins vegar á þinni afstöðu Ögmundur í þessu máli ; manns sem ég tel góðan, sómakæran, greindan og heiðarlegan Íslending. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á, að þú hafir tekið upp hanskann fyrir glæpamennina...
Helgi Geirsson

17. Febrúar 2007

ER FLOKKSPÓLITÍK HLAUPIN Í VARMÁRDEILUNA?

Ég hef aldrei efast um hug þess fólks sem vill passa upp á Varmána í Mosfellsbæ. En eru ekki fleiri aðilar komnir að þessu máli en umhverfissinnar?  Ég tek eftir því hve Samfylkingin er áköf að reyna að nota þetta mál gegn VG – grein á grein ofan, jafnvel Össur Samfylkingarvesír, sem ég hélt að væri samherji þinn í samfylkingaráformum vinstri manna, heggur í þennan knérunn. Eftir því sem ég kemst næst hefur Samfylkingin samþykkt allar þessar tillögur og áform sem nú eru gagnrýnd. Hvílík ólukkans tvöfeldni! Þess vegna spyr ég þig Ögmundur, hvort þú...
Grímur

16. Febrúar 2007

TEKJUR ER EKKI SAMA OG HAGNAÐUR

Ég fylgdist með samræðum ykkar Landsbankastjórans í Kastljósi í kvöld. Ég tek eftir því að ein helsta málsvörn bankanna í umræðum um okur þeirra á íslenskum almenningi er sú að svo og svo mikill hluti tekna þeirra verði til erlendis í tengslum við útrásina miklu. Þannig gera þeir lítið úr þýðingu Íslands fyrir afkomu bankanna. Þeir nota orðið tekjur alveg konsekvent. Það veldur mér nokkrum vonbrigðum að þú eða einhver annar hafið ekki spurt hve hátt hlutfall hagnaðar bankanna verður...
Garðar

14. Febrúar 2007

ÞINGMAÐURINN Á BAUNINNI

...Þess vegna er þetta rifjað upp hér að  varaþingmaður Framsóknarflokksins Guðjón Ólafur Jónsson er svo viðkæmur að hann kvartar við forseta alþingis ef hann heyrir blótsyrði í þingsal, ekki í ræðustól, heldur í þingsal. Þá fer að verða vandlifað fyrir þingmenn ef þeir mega ekki nota þau orð sem þeim sýnist utan ræðustóls. Og þó sérstakleg vandlifað fyrir forseta; á forseti að setja blótmæli á menn? Eða kannski annan hér ónefndan mæli, en heyrst hefur að þingmenn hafi stundum, jafnvel þingkonur, farið með blautlegar vísur í hálfum hljóðum í þingsalnum. Nú veit Guðjón Ólafur Jónsson sem er að...
Sigurður Bjarnason 

13. Febrúar 2007

VÉLSKÓFLAN OG TÁRIN

Mikil undur eru að gerast í þeirri sveit Mosfellssveit sem Halldór Laxness kom inn á landakort heimsbókmenntanna. Að þessu sinni  er  ekki verið að dýpka, skýra né glöggva bókmenntaarfinn.  Að þessu sinni er okkur  í dag nýr frelsari fæddur í umhverfismálum sem hlekkjar sig grátandi við vélskóflur. Kemur flestum ánægjulega á óvart tilfinningaþunginn sem er á bak við málflutninginn  ekki síst þegar þess er gætt að hann kemur frá þeim mönnum sem forðum knúðu á um stærstu stóriðjuframkvæmdir Íslandssögunnar, reyndu til dæmis að knýja fram álver á...
Guðmundur í Mosó

12. Febrúar 2007

BANKAUMRÆÐA Á VILLIGÖTUM?

Það eru sumir sem sjá bara tvenna banka, ríkisbanka sem þarf að borga mikið með versus banka í einkaeigu sem hagnast um milljónatugi og skilar miklu í ríkiskassann. Er þessi umræða ekki ...
Jón Þórarinsson

10. Febrúar 2007

ER EKKI TÍMABÆRT AÐ SKOÐA HVERNIG MENN VERÐA MILLJARÐAMÆRINGAR?

....Er það ekki einsdæmi í hinum vestræna heimi að sjálfur viðskiptaráðherra hætti störfum og taki þátt í einkavæðingu sinnar eigin ríkisstjórnar - og nái á innan við 5 árum nokkur hundruð þúsund milljónum til sinna manna og stýri núna einum öflugasta fjárfestingarhóp landsins ??? Er ekki timabært að rifja aðeins upp hverjir tilheyra þessum hóp manna sem undir forystu fyrrum viðskiptaráðherra Íslands eru orðnir meðal auðugustu manna Íslands....og það á vel innan við 5 árum ???
JS

3. Febrúar 2007

SPILLT FRAMSÓKN Á FRAMFÆRI ALDRAÐRA!

...Ekki bætir úr skák að þessi sjóður sem á að fjármagna úrræði fyrir aldraða hefur mátt sæta því að ríkisstjórnin hefur tæmt hann til annarra verka á undanförnum árum! Þá kemur Framsóknarráðherrann Siv og notar hann í sína eigin þágu og síns spillta flokks!!! Á ekki að krefjast afsagnar ráðherrans?
Haffi

1. Febrúar 2007

FAGLEG SJÓNARMIÐ RÁÐI Á RÚV

Vildi rétt skýra betur sjónarmið mitt í Kastljósinu um RÚV-frumvarpið. Ég tel alveg augljóst að það, að færa mannaráðningar frá Útvarpsráði alfarið til útvarpsstjóra, er til þess fallið að draga úr flokkspólitískum ráðningum, þótt sjálfsagt verði þær ekki úr sögunni. Fer vitanlega eftir því hver útvarpsstjórinn er, en nú mun hann a.m.k. hafa möguleika til að láta sín faglegu sjónarmið ráða ein, sem hann hefur ekki nú. Hitt er svo annað hvort þetta sé stórkostlegt framfaraskref. Án þess að ég hafi ...
Ólafur Teitur

31. Janúar 2007

BÖRN FÁI AÐ VERA BÖRN

Hvað er brýnast nú í málefnum þjóðarinnar. Er það kosningaréttur barna? Væri ekki hepplegra að berjast fyrir því að börn fái t.d. viðunandi heilbrigðisþjónustu og félagslega þjónustu sem þau þurfa á að halda. Eigum við ekki að leyfa þeim ... að vera börn sem lengst? Ég held að það sé meiri þörf á að gæta réttinda þeirra.  T.d. væri ágætt að koma þeirri reglu ...
Sigríður K.

30. Janúar 2007

NÆST JAFNVÆGI Á VINSTRI KANTINUM?

...En fylgistapið stafaði af því sagði hún að við þorum þegar hinir þegja. Hún hélt ræðu um efnið í flokki sínum á laugardag en meginhluti ræðunnar fjallaði annars um Baug. Annar leiðtogi stjórnarandstöðunnar hélt ræðu sama dag og talaði mest um útlendinga en gleymdi að geta þess  sem er aðalatriðið að innflutt vinnuafl hefur bjargað efnahagslífinu í byggingarkranafrumskóginum Íslandi. Svo kom Jón Baldvin Hannibalsson og talaði skynsamlega um efnahagsmál en lét þess ekki getið að öll pólitíkin sem hann rakti út úr sér var pólitík VG; hann gat hins vegar ekki höfundar...
Sigríður Þórarinsdóttir

29. Janúar 2007

EKSTRABLAÐIÐ, DV OG FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR

Ég sef alveg sæmilega á nóttunni þótt mér finnist stundum orðræðan í fréttum svo klisjukennd að það stappar nærri hinu ómögulega. Til dæmis þegar viðskiptaráðherra boðaði að hann hygðist láta kanna af hverju byrgjar ... Á sama hátt er það furðulegt að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skuli ekki vera spurð um hvort henni þyki vænlegt til forystu ... að gera að sínum úr sér gengin slagorð Ekstrablaðsins danska og DV þegar það blað fór ekki beint með himinskautum, þorum þegar aðrir þegja. Eða þarf hún kannske ekki að segja kjósendum ...
Ólína

28. Janúar 2007

AÐ ÞORA OG ÞEGJA

...Mér sýnist hið sama vera að gerast í þessu máli og í Reykjavík forðum. Þegar Ingibjörg Sólrún, þáverandi borgarstjóri, treysti sér ekki í andstöðu gegn Kárahnjúkavirkjun þegar atkvæði var greitt um það í borginni hvort heimila ætti Landsvirkjun að ráðast í náttúruspjöllin fyrir austan, þá var einmitt sagt að þetta væri á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Nú á að leika sama leikinn. Það sé ekki flokksforystu Samfylkingarinnar að taka afsötðu til kröfu Alcans um stækkun álbræðslunnar – þetta sé algerlega málefni Hafnfirðinga. Og er ég þá kominn að efni þessa bréfs.
Er það þetta sem formaður Samfylkingarinnar kallar að þora í stjórnmálum? Væri kannski ...
Haffi  

27. Janúar 2007

LEIÐARAHÖFUNDUR ÁN JARÐTENGINGAR

...Ekki hefur leiðarahöfundur Morgunblaðsins frétt af þjónustu Símans þar sem fólk hefur orðið að bíða dögum og jafnvel vikum saman eftir einföldum viðgerðum, sem áður tók dagpart að kippa í lag, þessi þjónusta hefur fjarlægst fólkið. Ekki hefur leiðarahöfundurinn heldur frétt af sífellt versnandi þjónustu fyrrverandi ríkisbanka út um land þar sem útibú hafa verið lögð niður, útlánaheimildir útibússtjóra verið takmarkaðar, þjónusta hækkuð (ég hef frétt af að lánastofnanir eru farnar að taka allt að 5% lántökugjald og jafnvel 5% uppgreiðslugjald) og fleira í ...
V.B.

26. Janúar 2007

“...OG ÞAR AF LEIÐANDI STÆKKUN ÁLVERSINS."

...En ég geri kröfu til þess að hann komi hreint fram gagnvart okkur sem erum stækkuninni andvíg. Í fréttum hefur hann gefið í skyn að þar sem fulltrúar VG hafi komið að vinnu um deiliskipulagstillögu Alcans, ásamt fulltrúum allra flokka  hljóti flokkurinn að styðja deiliskipulagið. Lúðvík talar í því samhengi um að þverpólitísk samstaða sé um deiliskipulagið. Og þar sem kjósa á um deiliskipulagið lesa menn það út að VG styðji stækkun! Þessu hefur VG mótmælt. Lúðvík bæjarstjóri sættir sig hins vegar ekki við þau mótmæli og sakar VG um útúrsnúninga. Í Morgunblaðinu í gær segir bæjarstjórinn að stækkun álversins...
Haraldur

24. Janúar 2007

ÞRÆÐIR BETSSON LIGGJA VÍÐA

Í tilefni af umfjöllun þinni um Betsson og fjárhættuspil á netinu langar mig til að benda þér á athyglisverða grein þar sem hagsmunaþræðir eru raktir. Fram keumur að þeir liggja víða...
NN

24. Janúar 2007

ÞORÐU ÞEGAR HINIR ÞÖGÐU

...Lesandinn má vel ímynda sér að hún/hann séu stödd í fjölskylduboði. Þar er talað um allt milli himins og jarðar og meðal annars það að skattar séu allt of háir. Það er vinsælt umræðuefni. Hver þorir þar að segja: Heyrðu nei, það er ekki rétt. Það vantar þvert á móti meiri peninga í sjúkrahúsin. Það var ekki vinsælt að segjast vera á móti stóriðjustefnunni þegar annar hver maður á landinu hafði tekið lán til að kaupa trukk og gröfu. En einhver varð að segja satt. Einhver varð að hafa kjark. Einhver varð að þora. Það voru VG sem þorðu. Flokkurinn sem...
Sigurður Bjarnason

23. Janúar 2007

ALCAN OG SAMFYLKINGIN

Það er alltaf eitt sem gleymist í allri umræðunni þegar það er verið að ræða álmálin. Það er nefnilega þannig að það var eitt af fyrstu verkum Samfylkingarinnar í Hafnarfirði að selja Alcan land undir álverið. Það gerðist 30. desember 2003.
Það er þess vegna ekkert hægt að halda því fram af Samfylkingunni í Hafnarfirði að hún sé á móti álversstækkuninni. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði sagðist líka á sínum tíma, þegar umhverfisnefnd Hafnarfjarðarbæjar mótmælti stækkun að bæjarstjórnin væri á öðru máli.
Svo á núna að kjósa um þetta af því að þetta sé meiriháttarmál. Það er fínt að gera það, en ekki nóg. Landið á allt að kjósa um svona hluti. En ætli Samfylkingin vilji það?
Ekki vildi Samfylkingin á alþingi leyfa almenningi að kjósa um Kárahnjúkavirkjun. Þess vegna er það ekki bara...
Sandra

20. Janúar 2007

ÓLÖGLEG STARFSEMI AUGLÝST

Varðandi Betsson málið. Er ekki ólöglegt að auglýsa visvítandi ólöglega starfsemi? RÚV, 365, S1 &co eru allir að taka við auglýsingafé vitandi hvað þeir eru að auglýsa...
Hermann Jónsson

18. Janúar 2007

"TRYGHEDSNARKOMANER"

...Annað hvort er fréttastofa RÚV að reyna að þegja í hel átökin á Alþingi eða þá að fréttaleg vanmetakennd hefur gripið um sig þar sem djarfir menn og framhleypnir ættu að halda um stjórnvölinn. Þarf ekki einmitt með einkavæðingu RÚV að skapa möguleika á að hrista upp í stjórnendaliðinu Ögmundur? Annars er merkilegt hve mjög stjórnarsinnum liggur á að klára RÚV málið. Menn gætu haldið að fagráðherrann væri tímabundinn, þyrfti að komast á ólympíuleika eða HM til að sinna brýnum skyldum sínum fjarri heimahögunum.
Ólína

12. Janúar 2007

ÞAÐ ÞARF NÝJA HAGSTJÓRN !

...Hitt er ljóst og allt annað mál að íslenska hagkerfið er lítið og það er flókið að taka við áhrifum heimsvædds hagkerfis á svo litla mynteiningu. En það er verkefni til að takast á við; það á að gera með góðri hagstjórn. Góð hagstjórn er ekki það að lækka skatta á þenslutímum. Ekki heldur það að efna til stóriðjukapphlaups um land allt á sama tíma. Háu vextirnir eru í raun ekki heldur Seðlabankanum að kenna; þeir eru niðurstaða vitlausrar hagstjórnar sem ríkisstjórnin ber ábyrgð á. Til að halda niðri verðlagi - líka á matvælum - þarf ...
Sigurður Bjarnason

9. Janúar 2007

TÆKIFÆRISMENNSKA?

...var að lesa pistil þinn um Alcan og Kryddsíldina og langar að forvitnast hjá þér, þar sem bæði þú og formaður þinn hafið nú báðir nánast misst málið yfir þessu hneyksli að ykkar mati, hvers vegna þið gerðuð ekki þessar athugasemdir fyrir ári síðan þegar kryddsíldin var þá í boði Alcan? Ég vil segja fyrir mitt leyti að ég er ekki fylgjandi stækkun álversins í Straumsvík en ég er jafnframt algjörlega á móti því að stjórnmálamenn leggist á sama plan og þú og Steingrímur hafið...
Sigurður J.

7. Janúar 2007

ER ÓMARI EKKI ÓSKAÐ TIL HAMINGJU?

Þú segir í erindi þínu "FORSÆTISRÁÐHERRA OG FORMENN STJÓRNMÁLAFLOKKANNA Í BOÐI ALCAN!!!" að stjórnmálaforingjar hafi verið í boði Alcan. Er það þess vegna sem enginn stjórnmálaforingjanna, ekki einu sinni VG, óskaði Ómari Ragnarssyni til hamingju með að vera valinn Maður ársins 2006? ...
Guðmundur Jónsson

6. Janúar 2007

EIGNARRÉTTURINN GETUR ORÐIÐ HJÁRÆNULEGUR

...Nokkur orð um eignarréttinn. Hver maður hefur vissulega sinn eignarrétt og hann ráðstafar honum að vild - að öllum líkindum. Það er nefnilega það, það er þetta: "að öllum líkindum". Eignarréttur nær skammt ef einhverskonar böl yfirtekur þann vilja sem hefur með téðan rétt að gera. Fíkn, fátækt, andleg og félagsleg nauðung - allt þetta gerir eignarrétinn hjárænulegan og margumtalað "frelsi" líka. Í heimi þar sem dagurinn á morgunn er í móðu eða jafnvel ekki til, í heimi þar sem...
Guðmundur Brynjólfsson

5. Janúar 2007

GEGN AUÐVALDI - KJÓSUM VG

...Er ekki kominn tími til þess að við sem minna höfum heldur en milljarðamæringarnir förum að berjast af alvöru gegn valdi auðsins ? Ég bara spyr vegna fréttar úr þínu nýja kjördæmi um lóðaúthlutun í Kópavogi og svekkelsi Þorsteins Baldvinssonar út af því að fá ekki endalóðina sem var dregin út. Úr því að hann fékk ekki...
Sveinn Elías Hansson

5. Janúar 2007

SÝNUM ÍSLENSKA FÁNANUM ÞÁ VIRÐINGU SEM HONUM BER

...Það gleður mig að þú hafir tekið á móti þjóðfána okkar, sem barist var fyrir, við sjálfstæði þessarar þjóðar. Ég hef fylgst með baráttu Péturs, fyrir meiri virðingu fyrir þjóðfána okkar og réttri notkun hans. Hvernig er það eiginlega með prótokol meistara Forseta embættis og allra ráðuneyta, hafa þeir ekki skyldum að gegna til að farið sé að lögum um notkun þessa sameinigartákns og stolts okkar, sem barist var svona mikið fyrir? Ég hef búið langt burtu þ.e. á Nýja Sjálandi og þar er fáninn okkar heilagur Íslendingum í orðsins fyllstu merkingu þess orðs. Getið þið alþingismenn...
Jóhannes Arason

3. Janúar 2007

ENN UM EIGNARRÉTT OG MANNRÉTTINDI

...Eignarréttindi eru mjög vanmetin. Menn rugla þeim saman við eignir, og þau séu aðallega fyrir hina ríku.  Eignarlaus maður hefur jafn mikil eignarréttindi og ríkur maður.  Mállaus maður hefur jafn mikið skoðana- og tjáningarfrelsi og ræðuskörungurinn...Feimni vinstri manna og hjárænuháttur gagnvart eignarrétti, sem á rætur í úreltum trúarkenningum, stendur vinstri mönnum fyrir þrifum.
Milljónir þræla í Bandaríkjunum ...
Jóhann J. Ólafsson

2. Janúar 2007

SIGURSVEIT SEND Í KRAGANN

...Þá er það greinilegt að þeir sem eru með Ögmundi geta sótt inn á nýjan kjósendaakur, til dæmis Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sem verður að teljast með alsterkustu frambjóðendunum í vor. Þá er Gestur Hafnfirðingur Svavarsson væntanlega eini frambjóðandinn á listum vorsins í kjördæminu sem sameinar það að vera á móti álversstækkun og að búa í Hafnarfirði.  Mireya Samper hlýtur að hafa mikið aðdráttarafl í Kópavogi. Og Andrea Ólafsdóttir er þekktur femínisti og baráttukona í umhverfismálum, sem hefur vakið mikla almenna athygli. Það er því margt sem bendir til þess að það sé sigursveit sem VG sendir inn í sv - kjördæmið undir forystu Ögmundar Jónassonar. Sigurði kæmi ekki á óvart þó útkoman í suðvestur-kjördæmi í vor yrði...
Sigurður Bjarnason 
 

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta