Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

31. Ágúst 2006

NÚ BRÁST KASTLJÓSI BOGALISTIN

...Ef það er rétt sem þú segir hér á síðunni, Ögmundur, að Steingrímur J. Sigfússon hafi verið búinn að fallast á að mæta Valgerði Sverrisdóttur í Kastljósi en hún hafi neitað að mæta nema ein, eins og þú getur þér til um að hafi gerst, þá áttu Kastljósmenn að láta Steingrím mæta einan en ekki Valgerði, sem setti afarkostina. Í sæti Valgerðar hefði mátt setja spjald þar sem á stæði að hún hefði neitað að mæta til þess að verja sinn málstað frammi fyrir pólitískum andstæðingi sínum. Sjónvarpið á ekki að láta bjóða sér þessa framkomu, ekki bara fyrir eigin hönd, heldur fyrir hönd okkar hlustenda og áhorfenda. Mér fannst ...
Sunna Sara

30. Ágúst 2006

HVER ER AFSTAÐAN TIL FÓSTUREYÐINGA?

...Mig langar að vita hvaða afstöðu Vinstri græn taki til fóstureyðinga? Gott væri ef að í svari kæmi fram t.d hvort þið séuð með eða á móti...
Steini

29. Ágúst 2006

HJÖRTUR ÓSAMMÁLA ÞORSTEINI - ÉG SAMMÁLA HIRTI

Í leiðara Fréttablaðsins 29. ágúst fjallar Þorsteinn Pálsson um þátt Valgerðar í því að leyna upplýsingum fyrir Alþingi. Þorsteinn telur ekki réttmætt að krefjast afsagnar ráðherrans. Í fyrsta lagi vegna þess að ráðherranum bar engin lagaskylda til að koma upplýsingunum á framfæri við Alþingi og hins vegar vegna þess að ráðherrann verður "ekki sakaður um að hafa hindrað að kjörnir fulltrúar almennings kæmust á snoðir um efni skýrslunnar. Það má til að mynda ráða af því einu að skýrslan var afhent Landsvirkjun. Í stjórn hennar sitja lýðræðislega kjörnir fulltrúar löggjafarsamkomunnar ...", eins og segir í leiðaranum.
Þetta er hæpin röksemdarfærsla hjá Þorsteini en ...
Hjörtur Hjartarson

25. Ágúst 2006

RÍKISSTJÓRNIN FARI FRÁ !

Þú talar réttilega um “pólitískt misferli” vegna þagnarskyldunnar sem sett var á vísindanmenn, sem gagnrýndu Kárahnjúkaframkvæmdina. Í framhaldinu spyrðu hvernig ríkisstjórnin ætli að axla ábyrgð. Það er bara eitt að gera. Fyrrverandi iðnaðarrráðherra, Valgerður Sverrisdótttir á að segja af sér vegna málsins þegar í stað. Helst vildi ég losna við ríkisstjórnina alla, ekki bara vegna þessa máls heldur vegna þess hvernig hún hefur leikið land og þjóð á þeim þremur kjörtímabilum sem hún hefur setið! Kjósendum gefst sem betur fer tækifæri til þess að hreinsa út úr Stjórnarráðinu í Alþingiskosningum næsta vor. Það er hins vegar að mínu mati ...
Haffi

20. Ágúst 2006

ALLT ER ÞEGAR ÞRENNT ER

Það var glatt á hjalla hjá þeim Framsóknarmönnum nú um helgina. Þeir sem töpuðu voru sagðir meiri stjórnmálamenn en áður (hvað sem það þýðir), sem sé ungmennafélagsandinn sveif yfir vötnunum. Lítið var rætt um pólitík, enda stefnan löngu týnd og reyndar óþörf, völd er grunnur góðrar ráðningarstofu.
Hins vegar var farið með gamanmál, mikið var hlegið af því þegar Jón Sigurðsson lagði túnþökur hjá Guðna Ágústssyni og græna hliðin snéri upp, en sem kunnugt er þá er Framsóknarflokkurinn frægastur fyrir að ...
Runki frá Snotru 

16. Ágúst 2006

SEGJAST ÞURFA SKAGFIRSKU JÖKULÁRNAR LÍKA

Það er alveg hárrétt að virkjanamálin hér í Skagafirði eru á fullri ferð undir yfirborðinu eins og oddviti VG í Skagafirði vekur athygli á og þú tekur einnig undir hér á heimasíðu þinni. Fremur hljótt er farið með þessi áform nú og kæmi mér ekki á óvart að lítið yrði látið á þeim bera fram yfir næstu kosningar. Í bænarskjalinu fræga sem forystumenn Sjálfsstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar  hér Skagafirði sendu frá sér sl. vetur lýstu þeir sig reiðubúna til að fórna Jökulánum undir...
Skagfirðingur

13. Ágúst 2006

TRÚ OG PÓLITÍK

Ég var að hlusta á mjög áhugaverðan þátt Jóns Ólafssonar og Ævars Kjartanssonar í morgun (sunnud) þar sem fjallað er m.a. um kenningar bókstafstrúarmanna um Ísrael og endalok heimsins og áhrif slíkra kenninga á stefnu Bandaríkjanna og stuðning trúarhópa þar við Ísrael. Þessi þáttur var víst fyrst sendur út 2003 - en er ekki síður aktúell í dag (sjá ruv.is). 
Læt einnig fylgja tengil á magnaða grein um þessi mál sem birtist í ameríska tímaritinu Vanity Fair (sem varla telst til byltingarblaða!)... 
Jón Þórisson

12. Ágúst 2006

MANNSKYNSSÖGUNNI VERÐUR EKKI BREYTT EFTIR Á

...Eins og málum er nú komið styð ég heilshugar og virði tilvist Ísraelsríkis og óska Ísraelum og nágranaþjóðunum friðar, öryggis og velmegunar um alla framtíð. En, ef Ísraelar halda að þeim takist að tryggja og  treysta öryggi sitt með yfirgangi og hernaðarofbeldi gagnvart nágrannaþjóðum sínum, þá skjátlast þeim herfilega. Annars er undarlegt hve glámskyggnir menn eru iðulega á bandamenn sína. Þannig eiga forsvarsmenn Bretlands og Bandaríkjanna ekki nógu sterk orð um trúarofstæki leiðtoga Írans. Þeir virðast hins vegar ekki sjá hvað Íran og Ísrael eiga sameiginlegt. Bæði ríkin eru byggð á trúarbrögðum ef ekki trúarofstæki. Ísrael er fyrst og síðast ...
Velvakandi

11. Ágúst 2006

ÖFUGMÆLA MÁLFLUTNINGUR

...Nú svo kemur Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri með þau rök að fjármagnstekjuskatturinn sé í raun allt að því 20-30% þar sem hann sé reiknaður einu sinni ári og sé greiddur til ríkisins eftir á. Verðbólguálagið sé þar að auki tapa fjármagnseigenda. En ég fæ ekki betur séð en verðbólgan vinni einnig með þeim því þeir greiða mun minna í skatt einmitt vegna verðbólgunnar, þar sem hundraðkallinn var verðmætari í fyrra en hann er núna. Í raun ættu fjármagnseigendur að greiða dráttarvexti af skattinum en ekki öfugt. Það má til sanns vegar færa, að ...
Rúnar Sveinbjörnsson

10. Ágúst 2006

OFURLAUNATVÖFELDNI

...Nú ganga margir fram og hneykslast þessi ósköp sem á undanförnum árum hafa hrósað þessu nýríka útrásarliði og dásamað dugnað þess og snilld. Ég man ekki eftir því að Morgunblaðið eða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi tekið mikið undir með ykkur Vinstrigræningjum þegar þið voruð að andæfa þessari einkavæðingarstefnu og gróðastefnu, sem auðvitað elur svonalagað af sér. Hvað halda menn, að það sé hægt að skrúfa hér þjóðfélagið áfram í átt til græðgis og gróðahyggju á öllum sviðum án þess að fá fylgifiskana með sem eru...
Gunnar

9. Ágúst 2006

GOTT HJÁ FORSVARSMÖNNUM VERSLUNARMANNA, EN....

Gott er að heyra forsvarsmenn verslunarmanna lýsa yfir áhyggjum af kjaraþróuninni í landinu. En með fyllstu virðingu fyrir því ágæta fólki, langar mig þó til að spyrja hvort það hafi ekki einmitt verið VR sem lagði af kauptaxtakerfið í samningum sínum og hvatti þess að í staðinn ætti hver og einn einstaklingur að semja beint við forstjórann um launin sín og freista þess að ná eins miklu fram einn síns liðs. Hver man ekki eftir auglýsingaherferðinni þar sem kvenfólk var hvatt til að hafa sig vel til fyirir forstjóraviðtalið! Er það ekki nákvæmlega þetta sem síðan hefur gerst? Þeir sem ...
Haffi 

8. Ágúst 2006

ÚTLENDINGAR RÁÐNIR TIL AÐ PÍNA NIÐUR LAUNIN

...Hinn ágætlega haldni kunningi minn sagði að fjárhagsstaða fyrirtækisins væri slík að það þyrfti að spara á öllum sviðum, þá helst hvað laun starfsmanna snerti ásamt þjónustu við farþega. þess vegna væri almennings-sætunum svo þétt staflað saman, að fólk gæti ekki rétt úr sér, jafnvel í langflugi, alla leið frá Keflavík til San Francisco. Í framhaldi af þessari ályktun sagði hann að fyrirtækið ætlaði að ráða Pólverja til að ferma og afferma flugvélarnar til að spara pening.
Ég spurði hann hvort hann virkilega teldi að það skipti sköpum fyrir fjárhagslega afkomu fyrirtækisins að pína niður laun lægst launaða fólkisins í farangursafgreiðslunni hjá fýrirtæki vel að merkja sem greiddi hákörlum sínum hundruð miljóna á ári og jafnvel einum þeirra sem hafði ekki starfað nema í nokkra mánuði, vel yfir hundrað miljónir, bara fyrir að hætta, utan...
Helgi

7. Ágúst 2006

ÍSLENDINGAR EIGA AÐ LÍTA SÉR NÆR

Ég var að lesa ágæta grein Þorleifs Gunnlaugssonar á síðunni þinni.  Ég er sammála flestu sem þar kemur fram viðvíkjandi innrás Ísraelsmanna í Líbanon, morðunum þar og skemmdaverkunum, í skjóli Bandaríkjanna og Bretlands.
Hryðjuverk Síonista í skjóli ríkistjórna Bandaríkjanna og Englands eiga sér engar málsbætur... Það má vera kaldranalegt að segja sannleikann, en hann er sá að við Íslendingar eigum nóg með sjálfa okkur. Við getum lítið gert annað en að gaspra upp í vindinn gagnvart hörmungunum erlendis og staðreyndin er sú, að margur potturinn er brotinn hjá okkur sjálfum sem okkur ber að laga, áður en við förum að segja öðrum þjóðum fyrir verkum. 
Úlfljótur

6. Ágúst 2006

EINHLIÐA SKRIF UM ÍSRAEL GAGNRÝND

Fyrir stuttu síðan kaus ég vinstri græna og var ánægður með það, vildi sjá ykkar sem leiðandi afl í borginni. Sjálfur er ég ekki mikið pólitískur, en mér leist bara vel á flokkinn og hugmyndir flokksins í mikilvægum málum. En að undanförnu hef ég verið að fylgjast með skrifum þínum og ummælum vinstri manna á því ástandi sem ríkir fyrir botni Miðjarðarhafs. Ég sé mikið eftir að hafa kosið flokkinn þinn eftir að ég sé hversu einhliða skoðanir ykkar eru á ástandinu þar. Ég hef verið í mörg ár mikill vinur Ísraels, en ég tek það fram að...
Steini

5. Ágúst 2006

RÉTT HJÁ JÓNI BJARNASYNI

Það var hárrétt ábending hjá Jóni Bjarnasyni, alþingismanni, í kvöldfréttum RÚV, að það er iðulega – kannski oftast – við fjárveitingavaldið að sakast þegar stofnanir fara fram úr fjárlögum en ekki við þær sjálfar eða stjórnendur þeirra. Ég starfa á sjúkrahúsi og hef ég fylgst af forundran með umræðunni að undanförnu um meint ábyrgðarleysi ríkisstofnana vena framúrkeyrslna. Það er líka rétt, sem fram kom í viðtalinu við Jón Bjarnason að stundum er fjárveiting skorin við nögl af yfirveguðum pólitískum ásetningi. Það var til dæmis gert á mínum vinnustað, Landspítalanum. Um það er ég sannfærð. Þetta var gert til þess að...
Ein starfandi á LHS

4. Ágúst 2006

BEINUM REFSIAÐGERÐUM GEGN BANDARÍKJUNUM !

...Er ekki hægt að beita Bandaríkin viðskiptaþvingunum? T.d. með því að hætta að kaupa kók. Mætti ekki flytja íbúa Ísraels til USA...?
Sólveig

3. Ágúst 2006

SÝNUM Í VERKI ANDSTÖÐU VIÐ MANNRÉTTINDABROT !

Þorleifur Gunnlaugsson, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík hvetur í grein sinni hér á síðunni að stjórnmálasambandi verði slitið við Ísrael og viðskiptabann sett á landið.  Ég vil taka undir þetta, það er orðið löngu tímabært. Við verðum að sýna það í verki að við erum á móti drápum á saklausu fólki og eyðileggingunni sem fylgir stríði Ísraels á nágrannaríki sín. Frá því Ísrael var stofnuð hefur ríkisstjórn þess hvorki farið eftir ályktunum Sameinuðu þjóðanna, né alþjóðalögum. Það þýðir ekki að taka alltaf á brotum Ísraela með silkihhönskum. Eigum við að að horfa upp á ...
Salmann Tamimi

3. Ágúst 2006

MÓTSAGNAKENNDUR MOGGI

Morgunblaðið stærir sig af því að greina á milli frétta annars vegar og ritstjórnarpistla hins vegar. Ég skal viðurkenna að stundum tekst blaðinu þetta bærilega. Það þýðir hins vegar að mótsagnirnar í Mogga verða oft tröllvaxnar. Það gerist þegar skoðanir blaðsins eru mjög á skjön við veruleikann. Fréttir af nýlegum fundi við sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík voru myndarlegar og réttar – meira aðsegja settar á forsíðu – reyndar eins og tilefni var til. Ég tók líka eftir því að Morgunblaðið gerði mjög vel grein fyrir bréfi þingflokks VG til forseta ísraelska þingsins nýlega, þar sem þið mótmæltuð stríðsglæpum Ísraela. Morgunblaðið skyldi vel að það var verulega fréttnæmt að íslenskur þingflokkur gripi til þessa ráðs.  Auðvitað mættu fréttir Morgunblaðisins af stríðsrekstri Ísraela vera gleggri en þar er blaðið á sama báti og flestir vestrænir fjölmiðlar, sem óneitanlega eru mjög hallir undir Ísraela. Þegar kemur að skoðunum blaðsins í leiðurum og Staksteinaskrifum blasir við miklu einleitari mynd.  Skoðunum blaðsins verður varla lýst öðru vísi en...
Haffi

2. Ágúst 2006

BRANDARI ÁRSINS?

Ég fletti upp í dagatalinu mínu til þess að sjá hvort við værum einhvers staðar nærri 1. apríl, þegar ég las um það í blöðum fyrir nokkrum dögum að hingað til lands hefði komið hópur þingmanna úr allsherjarnefnd fulltrúadeildar japanska þingsins  til að kynna sér einkavæðingu á Íslandi og læra af Íslendingum um hvernig ætti að bera sig að! Og hverjir skyldu lærimeistararnir hafa verið? Jú, það var helbláir ráðuneytisstarfsmenn og starfsmenn einkavæðingarnefndarinnar, sem sett var á laggirnar í umboði þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar. Skyldu japönsku þingmennirnir hafa fengið að hitta S-hópinn? Skyldi þeim hafa verið boðið á málverkasýningu Björgólfs Landsbankaeiganda, þar sem hann sýnir Kjarvalsmálverk, sem hann ...
Sunna Sara

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta