Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

28. Júlí 2006

LANGT GENGIÐ SEGIR VALGERÐUR UTANRÍKISRÁÐHERRA – HLÆGILEGT RUGL

Ég var á útifundinum við sendiráð Bandaríkjanna á Laufásvegi í kvöld og klappaði þegar þú fagnaðir því að ríkisstjórn Íslands krefðist vopnahlés í Líbanon. Auðvitað fögnuðum við þessu. En svo fór ég heim og hlustaði á fréttir. Frétttastofa Sjónvarpsins sagði að utanríkisráðherra hefði sent utanríkisráðherra Ísraels harðort bréf og Valgerður, utanríkisráðherra, sagði að vissulega væri "langt gengið" með þessu bréfi. Hvílkt endemis rugl og hjá fréttastofu Sjónvarps er þetta sljóleiki og dómgreindarleysi eða hrein fréttafölsun. Þegar bréf ríkisstjórnarinnar er skoðað fer því afar fjarri að bréfið sé harðort. Formúleringin er hin gamalkunna, að Ísrael hafi rétt til að verja sig; Íslendingar skilji að staðan "sé flókin"  og að það sé bráðnauðsynlegt að Ísraelar verji sig..."vital need of Israel to defend itself". Engu að síður séu aðstæður oðnar þannig fyrir hundruð þúsunda að Ísraelar eru hvattir til að "leita leiða" til að koma á vopnahléi...
Haffi

27. Júlí 2006

ÞAKKA FRAMTAK VG GAGNVART OFBELDI ÍSRAELS

Þakka greinaskrifin um ofbeldið gegn Palestínumönnum og innrásina í Líbanon. Sérstaklega var ég ánægður með bréf þingflokks VG til forseta ísraelska þingsins. Það var kominn tími til að láta í sér heyra vegna ofbeldis ísraelska hersins gegn saklausu fólki í Palestínu og Líbanon. Er ekki kominn tími á útifund og það meira að segja...
HH

26. Júlí 2006

Á EKKI AÐ KANNA KOSTI OG GALLA EVRUNNAR?


Hvernig líst ykkur á að hefja aðildarviðræður um kosti og galla evru og sjá svo til eða vitið þið kannski allt um evru...?
Jón Þórarinsson

25. Júlí 2006

UM LYFJAVERSLUN OG GREINDARLEG RÖK FRJÁLSHYGGJUNNAR

Sú var tíð að mest lá á því í íslensku samfélagi að selja Lyfjaverslunina sem við þegnarnir áttum - skuldlausa. Gengu ákveðin öfl (Sjálfstæðisflokkurinn) ötullega fram í því að koma gjörningi þessum í höfn. Beitt var hinum ódauðlegu, varanlegu og einu rökum frjálshyggjunar: "Ríkið á ekki að vera að vasast í... bla bla bla". Engum vörnum var við komið, enda rökin afar sterk og greindarlega fram sett eins og ævinlega úr þeirri áttinni. Helst var að skilja að þessi Lyfjaverslun okkar væri helsti dragbítur á framfarir og ...
Guðmundur Brynjólfsson

20. Júlí 2006

FLAGGAÐ Í HÁLFA STÖNG Á HÁLENDINU: TJÁ SORG SÍNA VEGNA LANDSINS SEM VERÐUR FÓRNAÐ

Það gladdi mig og ég fann til stolts að heyra viðtal við Laufey Erlu Jónsdóttur landvörð í Kverkfjöllum í útvarpsfréttum í gærkveldi  og einnig á baksíðu Morgunblaðsins í  dag. En flaggað var í hálfa stöng víða á hálendinu í gær. 19. júlí 2002 er dapur dagur í sögu þjóðarinnar en þá skrifuðu   íslensk stjórnvöld og erlendi álrisinn Alcoa undir viljayfirlýsingu um byggingu  álvers á Reyðarfirði og  mestu náttúruspjöll Íslandssögunnar af mannavöldum, Kárahnjúkavirkjun var sett af stað." Við viljum tjá sorg okkar vegna landsins sem verður fórnað undir virkjanir á hálendinu“ sagði Laufey Erla Jónsdóttir, sem hefur á hverju ári síðan þá tjáð náttúrunni tilfinningar sínar og annarra landvarða með þessum hætti.
 Mér er líka misstæð barátta Vinstri grænna á Alþingi gegn þessum hervirkjum , en þá stóðu þið einir flokka með náttúru Íslands gegn Kárahnjúkaflokkunum, Framsókn, Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu sem allir studdu hermdarverkin við Kárahnjúka  hvort sem var á Alþingi eða í Borgarstjórn Reykjavíkur. Laufey minntist á að ..
.Hafdís Guðmundsdóttir

19. Júlí 2006

GAMALDAGS FRJÁLSHYGGJUTUÐI GERT HÁTT UNDIR HÖFÐI

Gott er að sjá að heimasíðan er aftur komin í gang en aldrei þessu vant kom ekkert inn á hana í nokkra daga. Ég man ekki eftir því að áður hafi þetta gerst! Ég saknaði þess að sjá ekki ný skrif á ogmundur.is, því það er orðin föst rútína hjá mér að opna síðuna með morgunkaffinu. Hvað um það, þá er eitt sem veldur mér heilabrotum og hlýtur svo að eiga við um fleiri. Út kom skýrsla formanns matvælaverðsnefndar eins og alþjóð veit. Að baki henni stóð hann einn en ekki nefndin sem hann stýrði. Hins vegar fóru nefndarmenn og fulltrúar þeirra samtaka sem að baki þeim standa að tjá sig um málefnið. Skyldi vera jafnræði með þeim og sjónarmiðum þeirra gert jafnhátt undir höfði í fjölmiðlum? Aldeilis ekki. Þeir sem hafa uppi gamla...
Grímur G.

8. Júlí 2006

OF STERKT ORÐALAG UM SPILAKASSA?

Las grein þína hér á síðunni um spilakassana, ekki þá fyrstu. Mér finnst rosalega sterkt orðalag hjá þér að "frábiðja sér ræðuhöld um ágæti Rauða krossins, Landsbjargar og HÍ á meðan þessir aðilar hafa fé af veiku fólki". Við þessa upptalningu mætti svo væntanlega bæta SÁÁ að ógleymdri íþróttahreyfingunni eins og hún leggur sig (eða er Lottóið og Getraunirnar þar sem aldurstakmarkið er ekkert undir aðra sök seld heldur en kassarnir)? Stóra spurningin er, og henni hef ég aldrei heyrt þig svara og kalla því eftir því hér...
Tumi Kolbeinsson

7. Júlí 2006

ÞAKKIR FYRIR UMFJÖLLUN UM SPALAFÍKN

Mér þótti gott að sjá bréfið frá Ágústi um spilafíknina. Sjálf þekki ég þennan vanda vel því sonur minn er háður þessum fjanda. Það er hárrétt hjá Ágústi að þetta friðþægingartal þeirra sem reka spilakassana um að flestir sem spili geri það fyrir lítinn pening og sjálfum sér að skaðlausu, er algerlega út í hött. Það er þessum aðilum til vansa að gera út á veikt fólk og get ég skrifað upp á hvert einasta orð þitt Ögmundur í grein þinni hér á síðunni um fjármögnun Háskóla Íslands. Ég hef enga þolinmæði fyrir þetta tal um “háskóla í fresmtu röð” ef hann á að komast þangað með því að...
Helga

6. Júlí 2006

UMKRINGD SIÐLEYSI

Í sambandi við grein þína um starfslokagreiðslu fyrrum forstjóra Straums-Burðaráss, langar mig að benda á eftirfarandi: Hugsanlegt er að deyfð fólks gagnvart málinu megi meðal annars rekja til fulltrúa þess á Alþingi. Á Alþingi tóku forystumenn stjórnarandstöðunnar höndum saman við þá Halldór og Davíð og sviku út forréttindi sjálfum sér til handa. Eftirlaunaforréttindi með lítilli 50% launahækkun til formanna stjórnarandstöðunnar sem viðbit. Þótt litið sé fram hjá launahækkun til formanna stjórnarandstöðuflokkanna, hafa Samtök atvinnulífsins virt eftirlaunaforréttindin ein til 50 milljóna kr. starfslokagreiðslu fyrir þingmenn og til 100 milljóna kr. starfslokagreiðslu fyrir ráðherra. Síðustu fréttir af málinu eru þær að...
Hjörtur Hjartarson

4. Júlí 2006

AÐ GERA ÚT Á SJÚKLEIKA FÓLKS MEÐ SPILAVÍTISVÉLUM

...Sem virkum spilafíkli fer það mest í taugarnar á mér þegar forsvarsmenn halda þeim þvættingi fram að stærstur hluti teknanna komi frá fólki sem setji 500-þúsundkall í kassana og láti það got heita. Sem einstaklingur sem spilað hefur í þessum kössum í langan tíma, mér og mínum nánustu til mikils skaða, get ég sagt með fullri vissu að a.m.k. 90 prósent þeirra peninga sem í spilakassa fara eru frá sjúku fólki sem lagt hefur fjárhag, og það sem verra er, geðheilsu sína og sinna nánustu í rúst. Ég geri mér grein fyrir því að ...
Ágúst

3. Júlí 2006

NEYTENDUR HAFÐIR AÐ FÉÞÚFU – STJÓRNMÁLAMENN AÐ FÍFLUM

Ég horfði á Kastljós Sjónvarpsins í kvöld þar sem fjallað var um lyfjaverð. Landlæknir sagði að mönnum hlyti að hafa verið ljóst hvað í vændum var þegar lyfjasalan var gefin “frjáls” í stjórnartíð Kratanna á fyrri hluta tíunda áratugarins. Ég man ekki betur en á þetta væri bent og þá einkum af hálfu BSRB. Menn vildu hins vegar ekki hlusta á varnaðarorðin. Nú horfa menn upp á afleiðingarnar – einokun þar sem neytendur og skattgreiðendur eru hafðir að féþúfu – og stjórnmálamenn að fíflum (það er að segja sumir þeirra).Væri ekki ástæða til að ...
Grímur

2. Júlí 2006

ÞÖRF Á BYLTINGU?

Þakka þér fyrir umfjöllun þína um starfslokasamninginn hjá forstjóra Straums Burðaráss uppá milljarð. Reyndar er ástæða til að þakka Blaðinu fyrir að segja okkur fréttir af þessu máli. Það segir sína sögu að það myndi taka láglaunamann 555 ár - eða frá fæðingu Kristófers Kólumbusar árið 1451 - að vinna fyrir þessum starfslokasamningi! Ef þessi samlíking þín opnar ekki augu manna fyrir misréttinu þá er samfélagið orðið blint. Síðan er hitt að nú talar ríkisstjórnin um aðhaldsaðgerðir. Hver skyldi eiga að sýna aðhald? Skyldu það vera milljarðamæringarnir sem hafa farið ránshendi um samfélagið? Nei, ríkisstjórninni kemur ekki til hugar að anda á þá vini sína. Þeir sem eiga að sýna aðhald eru... 
Sunna Sara

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta