Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

31. Október 2006

VINSTRI MENN OG SKATTHEIMTAN

Lærið þið aldrei neitt, þið vinstri menn? Ekki einu sinni af reynslunni? Og svo er mótsögnin í umræðum ykkar og rökum brosleg. Í einu orði kvartið þið yfir skattahækkunum og í öðru yfir skattalækkunum! Þið virðist ekki skilja enn að því minna sem hið opinbera hrifsar til sín af fjármagni sem í umferð er því betur vinnur fjármagnið í þjóðfélaginu...
Gunnar Th. Gunnarsson

30. Október 2006

VERKTAKAR VIRKJAÐIR

...Almenningur er á móti því að hlutafélagavæða Ríkisútvarpið. Engan hef ég hitt sem er sáttur við þá gjörð. Nema nokkra verktaka, kvikmyndaframleiðanda og músíkanta, sem ég sé skrifa hástemmdar greinar um hve hamingjusamir þeir séu yfir þessu frumvarpi. Eitthvað fara þessi skrif viðskiptavina RÚV fyrir brjóstið á mér. Kannski á að skoða þetta sem fyrirhyggju í viðskiptum. Ekki kann ég að meta hana. Mér finnst meira að segja lítið til hennar koma.
Sunna Sara

29. Október 2006

MORGUNBLAÐIÐ OG KALDASTRÍÐIÐ TÖPUÐU Í PRÓFKJÖRI ÍHALDSINS

Hvers vegna tapar maður í prófkjöri Íhaldsins sem ber höfuð og herðar yfir mótframbjóðendur sína hvað varðar vitsmuni og atgervi? Það gerir Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sem ekki nær öðru sæti eins og hann vildi en hafnar í því þriðja sem hann vildi ekki. Björn hefur margt til að bera og ótvíræða kosti umfram mótframbjóðendur sína, en samt ...
Haffi

27. Október 2006

OFURLAUN HJÁ EKKI FYRIRTÆKI FRAMSÓKNA

Ég þakka þér svar við spurningu minni um Samvinnutryggingar (hér). Ég hefði átt að vita að þar leyndist Finnur Ingólfsson. En hvað um það, ekki amalegt að vinna hjá ekki fyrirtæki á ofur launum. Sjá frétt af ruv.is .Hver er réttur okkar viðskiptavina Samvinnutrygginga í samvinnufélaginu? Hvað borgaði þetta fyrirtæki í kosningasjóð ...
Fyrrverandi viðskiptavinur Samvinnutrygginga.

25. Október 2006

EIN DÝRASTA LÓÐ ÍSLANDSSÖGUNNAR?

...Í úrskurði þessum er fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins fært á silfurfati á 3ja hundrað milljónir króna í bætur fyrir eignanám á 3,6 ha spildu við Rauðavatn. Rökstuðningur nefndarinnar er sérstaklega allra athygli verður: hver fermetri í eigu fyrrum framkv.stj. er metinn á verði og lagt til grundvallar hæsta fermetraverð sem greitt hefur verið fyrir á höfuðborgarsvæðinu. Ljóst er að verulegur hluti þessarar einna dýrustu lóðar Íslandssögunnar verður einungis helgunarsvæði samgöngumannvirkja, vega og hringtorgs! Þar verður sennilega lítið byggt, kannski ekki nokkur skapaður hlutur. Þá er gróður á spildunni metinn á 6.4 milljónir eða meira en góð frístundalóð kostar! Dýr myndi allur gróðurinn í Kárahnjúkadölum verða metinn...
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ

23. Október 2006

EFTIRLAUNAFRUMVARPIÐ: ENGAR BLEKKINGAR!

...Ég vildi benda þér á blekkingarfrumvarp Samfylkingarinnar, sem nú er í bígerð. Það ætlar að rætast sem ég óttaðist: Boðað frumvarp Jóhönnu og Margrétar um skerðingu á eftirlaunum "æðstu manna"er fyrirlitleg blekking...Andstaða þjóðarinnar við eftirlaunalögin byggðist ekki á því að fyrrverandi ráðherrar gætu verið í fullu starfi og þegið jafnframt eftirlaun. Þann agnúa afhjúpuðu fjölmiðlar mánuðum eftir að lögin voru samþykkt. Andstaðan byggðist á forréttindahyggjunni sem grasseraði í frumvarpinu, eins og þú veist... Ekkert hálfkák, enga uppgerð, engar blekkingar. Hér er uppkast að frumvarpi...
Hjörtur Hjartarson

22. Október 2006

ORÐSTÍR SVAVARS HEFUR ALLTAF VERIÐ Í GÓÐU LAGI !

Ég hef lesið greinar þínar um samskipti þeirra Jóns Baldvins, Steingríms Hermannssonar og Svavars Gestssonar af athygli. Ég er sammála þér að auðvitað áttu þeir tvímenningar að koma hreinna fram gagnvart Svavari. Mér finnst það sannast sagna aumt af þeim að geta ekki viðurkennt það og beðist afsökunar. Hitt ætla ég þó að sé rétt að hvorugur þeirra JBH né SH hafi trúað nokkru misjöfnu upp á SG varðandi Austanmenn. Það gerði þjóðin ekki heldur eins og þú reyndar segir. Í ljósi þessa þykir mér þú gera of mikið úr þessum landráðabrigslum. Þau voru aldrei sett fram nema þá af einstaka öfgamanni sem vildi sverta vinstri menn og halda Rússagrýlunni á lífi. Ástæðan fyrir því að Svavar varð fyrir skeytum nokkurra hægri öfgamanna var einfaldlega sú að hann var mjög öflugur talsmaður vinstri stefnu. Þess vegna var reynt að grafa undan honum og gera hann ótrúverðugan. Aldrei hef ég hins vegar ...
Samfylkingarmaður sem áður var í Alþýðubandalagi

21. Október 2006

EIGUM NÓG AF HEIMABÖKUÐUM ÞJÓFUM

...Ég er sammála þér og Sunnu Söru, hvað komu Roman Abromovits og hans líka til landsins snertir. Mér skilst að Roman Abromovits sé góðvinur Ólafs Ragnars og konu hans...Kemur hann með Bónus flugvél, eða í sinni eigin? Ögmundur, við eigum nóg af okkar eigin heimabökuðu þjófum sem eru ekkert betri miðað við fólksfjölda, og eftir er að afgreiða...
Úlfljótur

20. Október 2006

STÓRÞJÓFUR Í OPINBERRI HEIMSÓKN?

Ég las um það í Blaðinu að Roman Abromovits, Chelsea-eigandi, væri kominn til Íslands í opinberri heimsókn á vegum forsetaembættisins. Ef ég man rétt þá er var Abromovits einna afkastamestur í hópi þeirra manna sem stálu eignum rússnesku þjóðarinnar á einkavæðingartímanum í Rússlandi. Finnst þér rétt Ögmundur að bjóða stórþjófi í opinbera heimsókn til Íslands, jafnvel þótt Íslendingar geti hagnast á því? Mér finnst það ekki. Forsetaembættið á að...
Sunna Sara

19. Október 2006

ÁKALL UM HJÁLP

...Ef markaðslögmálið á eingöngu að ráða eins og ráðherrann sagði í Kastjlósi og hvalveiðimenn fá að veiða hrefnur óheft inni í Faxaflóa, mun það þýða endalok hvalaskoðunar í flóanum.  Hvalveiðimenn munu reyna að hámarka hagnaðinn og lágmarka kostnaðinn og veiða hrefnur hvar sem til þeirra næst.  Það verður að friða Faxaflóann fyrir öllum hvalveiðum....Hafsúlan hvalaskoðun hefur gert út á hvalaskoðun síðan 1998.  Í sumar vorum við með 14 starfsmenn, fyrirtækið er ekki rekið með tapi og fær enga styrki frá hinu opinbera í sinn rekstur. Hér fyrir neðan er bréf sem við fengum í júní á þessu ári og annað sem kom í morgun...
Einar Steinþórsson

18. Október 2006

VG STÓÐ EINN FLOKKA NÁTTÚRUVAKTINA Á ALÞINGI

...Vinstri hreyfingin grænt framboð greiddi atkvæði gegn Kárahnjúkavirkjun en Framsókn, Samfylking og Íhaldið greiddu atkvæði með Kárahnjúkavirkjun. Ég man ekki betur en að Frjálslyndi flokkurinn hafi líka greitt atkvæði gegn Kárahnjúkavirkjun alla vega var Ólafur F Magnússon sá sem talaði gegn þessari virkjun og...
Jón Þórarinsson

17. Október 2006

ÞURFA ÞINGMENN AÐ VERA LOÐNIR UM LÓFANA?

Á forsíðu Morgunblaðsins sl. sunnudag  er greint frá því, að nú sé hart barist í prófkjörsslag Sjálfstæðisflokksins vegna þingkosninga að vori. Lengi vel voru það einkum lögfræðingar sem voru valdir á lista Sjálfstæðisflokksins en nú þurfa þeir sem hyggja að leggja fyrir sig þingmennsku að vera sæmilega loðnir um lófana til þess að geta gert hosur sínar grænar fyrir verðandi kjósendum. Mér finnst vera uggvænlegt að auðurinn sé sífellt að verða aðalatriðið en ekki hugsjónir og sannfæring fólks. Áður fyrr var...
Guðjón Jensson

16. Október 2006

KRAFAN ER: ÖLL SPILIN Á BORÐIÐ !

...Það gengur algerlega fram af mér að menn skuli voga sér að fara erlendis og semja við erlent ríki fyrir hönd íslensku þjóðarinnar og undirrita, að sögn forsætisrráðherrans “nýjan varnarsamning”  við Bandaríkin.  Þessi samningaferð Geirs Haarde, Björns Bjarnasonar og Valgerðar Sverrisdóttur til að undirrita nýjan varnarsamning við Bandaríkin er gerð án umfjöllunar á háttvirtu Alþingi Lýðveldisins, án umræðu og samþykkis utanríkimálanefndar, og að mér skilst án leyfis forseta Íslands, sem skal vera allavega í samráði í samningsgerðum stjórnvalda við útlönd og verður að samþykkja þá, svo ég vísi aðeins til 21. greinar stjórnarskrárinnar.
Að umræddir ráðherrar skuli vera í tygjum við hina bandarísku FBI, sem er innanríkislögregla Bandaríkjanna, er...
Helgi

15. Október 2006

AÐFÖR AÐ RÉTTINDUM LAUNAFÓLKS

Mig langar til að þakka þér kærlega fyrir bréfið góða sem þú sendir mér og öðrum íbúum Snæfellsbæjar, varðandi aðför meirihluta Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Snæfellsbæjar, að starfsmönnum bæjarins. Það er nefnilega svo, að þessi ógeðfellda aðför, er ekki bara aðför að einum tilteknum starfsmanni íþróttahússins, heldur að öllum íbúum bæjarins. Yfirvöld Snæfellsbæjar eru með framgöngu sinni að segja: ef þið sitjið ekki og standið, talið og hugsið, eins og við viljum, skulið þið hafa verra af. Því miður sýnist mér að valdstjórnaræði...
Jóhannes Ragnarsson, Ólafsvík.

13. Október 2006

MUELLER, HAARDE OG BJARNASON

Mogginn á það til að bregða sér í skemmtigallann og rífa sig upp úr gráu hversdagslegu farinu, sem einkennir hann enn, þótt tíminn hafi stungið þetta annars ágæta dagblað af. Fyrir okkur lesendur jafnast skemmtidagar Moggans á við að lesa ljóð, eða jafnvel frekar flókna glæpasögu, útlenda. Svona dagur var í dag. Bjartur, tær og spennandi. Síða tvö í Mogganum. Fyrst fréttin um að sími utanríkisráðherra hafi verið hleraður og efasemdir fyrrverandi samgönguráðherra um að það hafi verið svo. Síðan neðri fréttin á sömu síðu svo að segja í sama ramma: Samstarf á nýjum grunni fer vel af stað. Þarna standa þeir Bjarnason, Mueller og Haarde i höfuðstöðvum FBI, bandarísku ríkislögreglunnar sem Hoover gerði svo fræga, og þarna voru þeir samkvæmt yfirlýsingum forsætisráðherra vegna “plaggsins” sem...
Ólína

12. Október 2006

KAUPMAÐURINN Á AÐ LÆKKA VÖRU SÍNA, EKKI ALMENNINGUR MEÐ SKATTALÆKKUNUM Á KAUPMANNINUM

Ég las umræðu þína og Gríms um lækkun matarskatts.  Ég er svolítið ósammála ykkur báðum, en þó sammála á vissum sviðum. Jú auðvitað verður að hafa matarverð eins lágt og hægt er, en svo er einnig með húsnæði, rekstur á bifreið, verð á fatnaði og lærdómstækjum, sérstaklega fyrir börn, o.s.f.v., o.s.f.v.
Jafnframt því að lækka skatta á matvælum, ætti að hækka alla skatta á auðkýfingunum, til dæmis tekjuskatt og eignaskatt. Það mætti hækka óskattlagt kaup fólks og afnema algjörlega tekjuskatt á öldruðum upp að t.d. 200.000 kr. á mánuðu með skattfrjálsum tekjum.  Látum ... 
Helgi

11. Október 2006

GRUNN UMRÆÐA UM MATARVERÐ

Ósköp er hún einhliða umræðan um lækkun matarskatta. Nánast allir virðast vera sammála um ágæti þessara aðgerða. Frá mínum bæjardyrum er þetta ekki eins einfalt mál og menn vilja vera láta. Í fyrsta lagi er það óumdeilt að því lægri skattar þeim mun betra fyrir neytandann þröngt skoðað. Ef þetta hins vegar leiðir til þess að neytandinn þurfi að greiða hærri gjöld annars staðar, t,d. á sjúkrahúsum, þá horfir málið öðru vísi við. Það vill nefnilega gleymast að skattalækkun þýðir tekjurýrnun hjá ríkissjóði og sveitarsjóðum! Þetta hefur nánast ekkert verið rætt í tengslum við fyrirhugaða lækkun á virðisaukaskatti á matvörur, nema þá að sagt hafi verið ...
Grímur

10. Október 2006

HELGI OG KJÖLFESTAN Í FL GROUP

Sú var tíðin að ég tryggði mínar litlu eignir hjá Samvinnutryggingum. Skyndilega var ég orðinn viðskiptavinur VÍS við sameiningu Samvinnutrygginga og Brunabótafélag Íslands sem var í ríkiseign.
Hvað um það nú er Helgi nokkur Guðmundsson...
F yrrverandi viðskiptavinur Samvinnutrygginga.

9. Október 2006

FÆÐINGARORLOFIÐ OG JAFNRÉTTIÐ

... Í stefnuskrá VG er kafli um jafnrétti. Mig langar til að spyrja þig, sem formann Fjölskyldu- og styrktarsjóðs, hvort að það samræmist stefnu flokksins að greiða ekki körlum úr sjóðnum?
Haraldur Geir Eðvaldsson

8. Október 2006

EIGA ÞEIR AÐ FÁ KVÓTANN SEM ÖSKRA HÆST?

Húsvíkingar hefðu betur fylkt liði í baráttu gegn kvótakerfi sem rænt hefur samfélagið drúgri lífsbjörg og einnig leitað í margrómaða hugmyndaauðgi Þingeyinga um atvinnuuppbyggingu. Samfélagið hefur ekki staðið sem skyldi að byggðastefnu og þar með atvinnuuppbygingu á landsbyggðinni á hálfan annan áratug. Þín orð Ögmundur, spurning: vildir þú geta úthlutað kvóta? Og þá til hverra? þeirra sem ...
Pétur

7. Október 2006

SKYNSAMLEGAR REGLUR BETRI EN ENGAR?

Varðandi umræðuna um símahleranir og njósnir á árum Kalda stríðsins sem hafa orðið töluverðar á undanförnum vikum er spurning hvort af tvennu illu væri ekki hyggilegt að fremur væru sett skynsamleg lög um þessi mál en engin. Þar þarf að kveða skýrt á um það við hvaða skilyrði megi hlera síma og stunda njósnir og í hvaða tilgangi. Slíkar heimildir þurfa auðvitað að vera mjög þröngar og rökstyðja þyrfti þörfina hverju sinni. Eitt af skilyrðunum er, að öll gögn beri að varðveita og að þau...
Guðjón Jensson

6. Október 2006

UM BROTTHVARF HERSINS

Nú er herinn farinn - það er að segja líkamlega. Þessi her fer aldrei úr vitund þjóðarinnar - etv. sem betur fer. En þó er það einnig miður. Viðskilnaðurinn er í þeim anda sem til var stofnað í upphafi: Smánarlegur fyrir íslenska þjóð og íslenskt land. ...Ég rakst á - ég held ekki fyrir tilviljun - limru eftir Þorstein Valdimarsson. Hún er svona:

Það er svipað um hernámið hér 
og helvítis rykið hjá mér: 
Það seiglast að falla, 
það svínar út alla - 
og sést ekki fyrr en það fer.

Mér sýnist þetta nokkuð rétt - eða hvað?
Guðmundur Brynjólfsson

5. Október 2006

TJÁNINGARFRELSIÐ BER AÐ VIÐRA - EINNIG ÞEIRRA SEM HAFA RANGT FYRIR SÉR

... eigum við að kenna þeim um morðin og ofbeldið á saklausu fólki ásamt pyntingabúðum víðsvegar um heim ásamt flugi með ódæmda fangana í íslenskri flughelgi? ... Nei, Ögmundur, það gerum við ekki. Látum þá bara skammast sín ef þeir hafa einhvern manndóm til þess!  Hugsandi fólk sér í gegnum málatilbúnað þeirra!
En minnumst ætíð með þakklæti, þeirra góðu Íslendinga sem börðust fyrir herlausu og sjálfstæðu Íslandi!   Fyrir Íslandi án erlendrar hersetu!!   Fyrir Frjálsri þjóð!!!
Helgi

4. Október 2006

ER TÆKIFÆRI TIL BANKAYFIRTÖKU ?

...Líklegt er að þessi versnandi lánskjör bitni á viðskiptavinum bankanna  innanlands því ekki geta þeir boðið viðskiptavinum sínum erlendis þessi lánskjör.
Af kauptíðindum bankanna má skilja að unnir hafi verið miklir varnarsigrar með þessari fjármögnun og eftirspurn eftir skuldabréfum þeirra hafi verið langt umfram framboð. Er það óeðlilegt í ljósi þess hvað almennt gerist á þessum markaði, er ekki ástæða til að halda að hægt sé að gera mun betur í þessum málum? Víst er að einkavæðing bankanna hefur ekki skilað okkur betri lánskjörum og þeir vísu menn sem nú í  stafni standa hafa ekki staðið undir væntingum þrátt fyrir ...
Bjarni

1. Október 2006

ÖR Á ÞJÓÐARSÁLINNI

Mér finnst sjálfsögð sú krafa að Alþingi verði kallað saman áður en fyllt verði á Hálslón. Í fyrsta lagi til að ákveða hvort þörf sé á rannsókn á öllu ferlinu og í framhaldi hvort ekki eigi að fresta fyllingu lónsins á meðan rannsóknarnefnd Alþingis kanni málið. Saga málsins mun viðhalda þeim klofningi sem verður meðal þjóðarinnar ef af verður. Þetta er óafsakanlegt...
Ingvar

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta