Frá lesendum
31. Desember 2005
ÞÖRF Á MEIRI UMFJÖLLUN UM UMHVERFISMÁL
...Mér finnst margt af því sem þú tekur til umræðu hér á síðunni athyglisvert en mér finnst þó áberandi að umfjöllun um umhverfismál er allt of lítil. Nú ert þú þingflokksformaður flokks sem kennir sig við græna litinn sem þýðir að umfjöllun þarf að hafa meira vægi hjá öllum þingmönnum flokksins ekki bara Kolbrúnu og Þuríði. Þið hjá vinstri grænum þurfið að vera mun meira vakandi gagnvart ýmsu sem lítur að umhverfismálum og leggja meiri áherslu á þennan málaflokk annars er tómt mál að tala um grænan flokk...
Jakob
Jakob
21. Desember 2005
MÁNUDAGUR Í LÍFI IÐNAÐARRÁÐHERRA: HAMINGJUÓSKIR TIL BECHTEL OG SKEMMTILEG KVÖLDSTUND Í BOÐI ALCAN
Að öllu jöfnu hef ég engan áhuga á að fylgjast með lífi Valgerðar Sverrisdóttur. En hún er nú einu sinni iðnaðarráðherra og kemur fram fyrir hönd okkar allra sem slík. Þess vegna er það í sjálfu sér þakkarvert að hún skuli veita okkur innsýn í líf sitt í dagbók sem hún birtir á heimasíðu sinni... Hitt þykir mér vafasamara með hvaða hætti samskiptin eru við álrisana. Þar eru "framtíðaráformin" rædd yfir kvöldverði í boði álrisanna í Perlunni! Eftirfarandi er að finna í dagbók iðnaðarráðherra: "Rannveig Rist og Wolfgang Stiller fulltrúi Alcan buðu mér ásamt ráðuneytisstjóra mínum til kvöldverðarfundar í Perluna. Við ræddum framtíðaráform Alcan og ýmislegt fleira. Skemmtileg kvöldstund." Hér er ekkert snakk á kontór ráðherra eins og þegar minni mál hérlendra eru rædd. Þetta var...
Haffi
Haffi
15. Desember 2005
ERU FRAMSÓKN, SAMFYLKING, FRJÁLSLYNDIR OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR MIÐJUFLOKKAR?
...Mér blöskrar alveg hvernig hægt er að þvæla fram og aftur um hlutina í stjórnmálaumræðunni hér heima án þess að staldra við og spyrja grundvallarspurninganna. Fyrsta spurningin er auðvitað þessi. Er það sem hér er kallað miðja eiginleg "miðja", sem sagt "hlutlaus" afstaða eða mitt á milli meginstrauma hægri og vinstri stefnu? Framsóknarflokkurinn segist sjálfur vera miðjuflokkur og þar með er það bara tekið gott og gilt. En er hann það? Manst þú eftir nokkrum sköpuðum hlut sem sá flokkur hefur gert undanfarin ár sem ekki er meira og minna "hægra" megin við miðju stjórnmálanna eins og þau eru venjulega skilgreint. Samfylkingin undir forustu Ingibjargar Sólrúnar segist nú ætla að slást um miðjufylgið, sem er auðvitað fyndið í sögulegu ljósi því í Samfylkingunni áttu "vinstri" menn að sameinast ekki satt? Það má kannski fara að auglýsa svona eins og í gamla daga "vinstri menn sameinist á miðjunni, nefndin" Frjálslyndir telja sig... miðjuflokk, frjálslyndan miðjuflokk sjálfsagt og svo er Sjálfstæðisflokkurinn undir forustu Geirs sagður vera meira inn á miðjunni. Það er auðvitað undarlegt ástand í einu landi ef allir flokkar nema einn...
S. Pálsson
S. Pálsson
11. Desember 2005
HVER ER ÍSKARÍOT?
Ég sá í sjónvarpinu nokkra menn, þétta á velli, ganga inn kirkjugólf í Grafarvogi. Þar sem þeir röltu inn í helgidóminn drúptu þeir höfði eins og í lotningu, eða var þetta teikn að ofan, merki um hversu mjög mennirnir voru bugaðir, eða kannski auðmjúkir. Eða upplifðu þeir sig eins Jesú Krist í allt öðrum göngutúr. Þyrnikórónan var geislabaugur, eins og á sunnudagskólamyndum hvítasunnumanna, og álútir voru þeir, kannski vegna alls hagnaðarins sem þeir í skjóli fákeppni, einkavæðingar og skattalaga, sem breytt var í þeirra þágu á Alþingi, beygir þann sem ætti að brotna. Voru þeir kannski að leika Krist þessir menn í kompaníi við kirkjuna sem kennir sig við gröf? Kannski voru þeir að reyna að toppa symfóníuna, forsetann og KB banka sem buðu upp á einkasamkvæmi með söngvara. Manni er nú farið að detta í hug hvort gerist á undan að forsetinn fær sér nýja þjóð eða þjóðin nýjan forseta. Víst er að hann er að...
Ólína
Ólína
9. Desember 2005
EINKAVÆTT RAFMAGNSEFTIRLIT Í VERKI?
Það sló út hjá ykkur rafmagninu í þinginu í vikunni. Hvernig væri að spyrja Valgerði, iðnaðarráðherra um úttekt á rafkerfi Alþingishússins, hvort ekki sé munur að hafa nú "eðlilegt" rafmagnseftirlit í landinu, eftir að það var markaðasvætt. Staðreyndin er sú að rafmagnseftirlit í landinu hefur verið í lamasessi eftir að Framsóknarflokkurinn fór um það einkavæðingarhöndum og kemur vel á vondan að Alþingi skuli með þessum hætti vera minnt á nauðsyn þess að búa við gott rafmagnseftirlit.
Fyrrverandi starfsmaður rafmagnseftirlitsins.
Fyrrverandi starfsmaður rafmagnseftirlitsins.
8. Desember 2005
ÓVÆGIN GAGNRÝNI VALGERÐAR!
Þar kom að því að Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, léti stjórnarndstöðuna fá það óþvegið. Á óvægin hátt og algerlega umbúðalaust lét hún höggið ríða í fréttum í kvöld: "Stjórnarandstaðan er á móti stóriðjustefnunni" . Valgerður sagði ennfremur að andstaðan við fumvarp, sem hún hefur árangurslaust reynt að koma í gegnum þingið, og gengur út á að veita henni heimild til að úthluta rannsóknar- og nýtingarheimildum til orkufyrirtækja, sem vilja virkja til stóriðjunota, ef ég skil þetta rétt, sýndi svo ekki yrði um villst að...
Haffi
Haffi
7. Desember 2005
SÉRÍSLENSK RÉTTLÆTING?
...Ég vildi vekja athylgi þína á leiðara í Morgunblaðinu 28. nóv. þar sem verið var að prófa nýja söguskoðun, sem gengur út á að réttlæta innrásina í Írak. Ég býst við að hér sé á ferðinni séríslensk réttlæting. Enda er Íslendingum, sem baráttuglöðum þátttakendum í uppbyggingarstarfi Bandaríkjastjórnar í Írak, létt verk að útskýra. Vonandi að hugmynd Blaðsins eig eftir að sigra heiminn. Gaman væri líka að vita skoðun fræðimanna, til dæmis Magnúsar Bernharðs, á þessu merkilega fyrirbrigði, það er hinni "áhugaverðu stöðu í Mið-Austurlöndum um þessar mundir" og útleggingu Morgunblaðsins á henni. En hér er sem sagt...
HH
HH
27. Nóvember 2005
ER ÞINGKARL AMBAGA?
...Hef miklar áhyggjur af útþynningu tungunnar, sem er viðvarandi vandi. Er ekki hins vegar ráð að fara dusta af orðinu "maður" og árétta að það á bæði við um konur og karla. Eða eru karlar einungis þeir sem geta verið mannlegir og konur þá kvenlegar þegar talað er um humanity! Þingkonur er svo sem í lagi, en ambögurnar þingkarlar, sýslukonur, o.fl eru ekki fallegar né hafa nokkurt gildi í jafnréttisbaráttunni. Stóru málin eins og launaleynd, takmörkuð starfsréttindi trúnaðarmanna á vinnustöðum við að ná fram upplýsingum um launakjör o.fl halda áfram að verða...
Borgþór
Borgþór
26. Nóvember 2005
KÁRAHNJÚKAVANDI Í HNOTSKURN
Þrátt fyrir bölv og ragn vegna Kárahnjúka fer frændi minn þangað alltaf aftur - og aftur. Kemur svo þaðan enn verri en fyrr. Síðast spurði hann mig. “Getur það verið eðlilegt að vinna við það að snúa bor inní miðju fjalli í hálft ár án sýnilegs árangurs?”
“Er eitthvað vit í að líma saman grjót?” Síðan spurði hann: “Er eðlilegt að ég sé farinn að sakna Kolkrabbans og hafa samúð með Hannesi Hólmsteini?”
Svo endar hann alltaf á þessu...
Runki frá Snotru
“Er eitthvað vit í að líma saman grjót?” Síðan spurði hann: “Er eðlilegt að ég sé farinn að sakna Kolkrabbans og hafa samúð með Hannesi Hólmsteini?”
Svo endar hann alltaf á þessu...
Runki frá Snotru
18. Nóvember 2005
FRÁBÆRT AÐ FÁ GUÐMUND Á ÞING!
Það er frábært að fá Guðmund Magnússon inn á þing sem varamann þinn Ögmundur. Hann er góður málsvari okkar öryrkja einsog þú ert reyndar einnig sjálfur. Ég er ekki VG fyllilega sammála í Evrópumálum og er ekkert svona óskaplega uppsigað við Kárahnjúkavirkjun og ykkur í VG. Í samfélgsmálum er ég hins vegar...
Öryrki (sem mun kjósa VG )
Öryrki (sem mun kjósa VG )
17. Nóvember 2005
EKKI PÚKKA UPP Á SPILAVÍTISFURSTA Í OKKAR NAFNI
Ég les um það í fjölmiðlum að forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú hafi þegið boð um að vera viðstödd embættistöku Alberts II. fursta af Mónakó. Okkur er sagt að þessu fylgi veisluhöld, hersýning og fótboltaleikur "í tilefni embættistökunnar." Eflaust er það rétt, sem Morgunblaðsvefurinn segir okkur "að ýmsir þjóðarleiðtogar víðsvegar að úr Evrópu" verði einnig viðstaddir embættistökuna. Nú er Monakó furstadæmi sem fyrst og fremst byggir á spilavítum og þar með grundvallað á afar vafasömum grunni. Mér finnst forsetanum frjálst að heimsækja þetta fólk sem prívatpersóna en vafasamt að gera það í okkar nafni. Í nafni þjóðarinnar á ekki að ...
Sunna Sara
Sunna Sara
14. Nóvember 2005
ORÐNIR KOLVITLAUSIR?
Eru þið Guðmundur Gunnarsson, Össur og fleiri orðnir kolvitlausir í ummælum ykkar um starfsmannaleigur. Eru engin lög um neitt á Íslandi t.d. meiðyrði. Geta ríkisfyrirtæki notað glæpaaðferðir til að koma á hné fyrirtækjum sem þeim er illa við? Ég þekki hjónin sem stofnuðu 2B og veit að þau reyndu að gera allt eins rétt og löglegt sem kostur er og hafa samráð við alla þá aðila sem NÚ vilja koma þeim á kné, löglega eða ólöglega. Þau voru himinglöð í byrjun því að þetta var svo gaman, því báðir aðilar voru himinlifandi, bæði Pólverjar og ísl. atvinnurekendur. Svo varð fjandinn laus og...
Guðmundur Eiríksson, Selfossi
Guðmundur Eiríksson, Selfossi
13. Nóvember 2005
FRAMSÝNI HEFUR ÖÐLAST NÝJA MERKINGU
Ekki veit ég hvort okkur hér á Snotru misheyrðist, þegar menntamálaráðherrann okkar lýsti því yfir á Akureyri nýlega, að það sýndi framsýni hjá skólastjórn Háskólans á Akureyri að leggja niður tvær deildir af sex. Sjálfsagt hefði skólastjórnin að mati ráðherrans sýnt enn meiri framsýni ef hún hefði ákveðið að leggja skólann allan niður. Sjálf hefur Þorgerður menntamálaráðherra sýnt mikla framsýni í málefnum Listdansskóla Íslands því hún tilkynnti nýlega að til stæði að loka þeim skóla fyrir fullt og allt. Þessu var mótmælt eins og þeirri framsýni ráðherrans að vilja...
Runki frá Snotru
Runki frá Snotru
9. Nóvember 2005
SEINHEPPINN HALLDÓR - EÐA...?
Halldór Ásgrímsson svaraði í dag spurningum þingmanna Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Alþingi um álstefnu Framsóknarflokksins. Þessu voru gerð góð skil í sjónvarpsfréttum í kvöld. Framsókn er sem kunnugt er haldin óstöðvandi áhuga á að reisa álver. Þegar smíði eins álvers lýkur þarf að hefjast handa um smíði næsta álvers eða stækka þau álver sem fyrir eru. Engu líkara er en Framsókn vilji gera Ísland að einu stóru álveri. Stalín hefði ekki gert betur sagði Jón Bjarnason. Stundum hafa menn líkt áláfergju Framsóknar við trúarbrgögð. Spurning hvort formaður Framsóknaflokksins líti ekki einmitt svo á sjálfur eða var hann kannski bara seinheppinn þegar hann sagði...
Sunna Sara
Sunna Sara
7. Nóvember 2005
EFTRILAUNAHNALLÞÓRAN Á ALÞINGI
Þær eru margar og mis matarmiklar lífeyris og eftirlaunakökurnar í þessu þjóðfélagi sem þeir sem gegnt hafa ráðherra- og alþingismennsku hafa bakað sér, með hráefni frá okkur almúganum; alveg einstaka og matarmikla eftirlaunaköku og það sem meira er þeir geta farið að borða hana löngu áður en þeir í raun hætta störfum, eins og dæmin sýna. Síðan eru það starfsmenn ríkis og bæja. Á þeim bænum er alveg gulltryggt að kakan sem býður þeirra við starfslok, er alltaf fersk og heldur sínu næringargildi á öllum tímum. Komi í ljós að minnsta rýrnun hafi orðið á næringargildinu , þá er bara náð í meira fóður...
Sævar Helgason
Sævar Helgason
3. Nóvember 2005
HVENÆR ER KOSIÐ Í REYKJAVÍK?
Eru borgarstjórnarkosningar nú á föstudaginn? Það er algjörlega með ólíkindum hvað þessi fánýti slagur milli tveggja karla tekur mikið pláss, tíma og athygli fjölmiðla nú dögum og vikum saman. Talað er eins og verið sé að takast á um eitthvað sem máli skiptir. Á dögunum var í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 beinlínis sagt að borgarstjórnarkosningarnar byrjuðu nú á föstudaginn en þó tók steininn úr þegar Ólafur Þ. Harðarson prófessor var tekinn tali í fréttum Ríkissjónvarpsins og spurður hvernig hann læsi í ...
Fjóla
Fjóla
29. Október 2005
BJÓR. AUGLÝSINGAR, FÍKNIEFNABARÁTTAN OG FORSETI
...Strax að loknu viðtalinu við forsetann braut ríkissjónvarpið upp beina útsendingu með auglýsingum sem fer í bága við lög og reglur. Í auglýsingatímanum á eftir forsetaviðtalinu um fíkniefnavá voru síðan tvær bjórauglýsingar, sem líka gagna gegn lögum. Þarna var sem sagt forsetinn að berjast gegn fíkniefnum studdur af lyfjafyrirtækinu í ríkissjónvarpi í sjónvarpsþætti sem þetta kvöldið var borinn uppi af áfengisauglýsingum og allt settið skælbrosandi. Þar sem ég stóð yfir pottunum heyrðist mér liðið vera að bera saman siðferðisleg gildi og lagareglu. Gaman og þverstæðukennt að vera ...
Ólína
Ólína
28. Október 2005
ER EKKI MÁLFRELSI Í LANDINU?
...Telur formaður Samfylkingarinnar sig þess umkominn að gera einhvers konar samkomulag fyrir hönd þjóðarinnar um hvað megi segja og hvað ekki um kvótaþjófnaðinn, einhvern mesta glæp Íslandssögunnar! Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin eyrum þegar sagt var frá því í fréttum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefði troðið upp á LÍÚ þingi og boðið upp á sættir í kvótamálinu!! Útvegsmenn ættu að hætta að tala um að þeir ættu kvótann, sagði hún, aðrir að þegja um glæp þeirra og láta af ásökunum í þeirra garð. Er ekki ...
Haffi
Haffi
28. Október 2005
GOTT HJÁ JÓNI BJARNASYNI!
Það hljómar eins og grín, mjög kaldranalegt að vísu, að Símanum skuli hafa verið veitt sérstök markaðsverðlaun á sama tíma og fyrirtækið lokar þjónustustöðvum og rekur starfsfólk. Síðast var það dótturfyrirtækið Já sem fíraði konur á Ísafirði, sem sumar hverjar höfðu starfað um áratugi hjá Símanum. Það þurfti mann sem þorir, til þess að tala hreint út um þetta og segja sem var að það væri óskammfeilni af verstu gráðu að fá forseta Íslands, Ísfirðinginn Ólaf Ragnar Grímsson, til þess að afhenda verðlaunin! Maðurinn sem talaði tæpitungulaust um þetta...
Ísfirðingur
Ísfirðingur
27. Október 2005
SAMFYLKINGIN OG EINKAVÆÐINGIN
...Sannast sagna leið mér hálf illa undir viðtalinu við formann Samfylkingarinnar. Mér hefði fundist smekklegra að þegja. Hvers vegna fréttakonan spurði ekki út í hina hrópandi mótsögn í málflutningi formanns Samfylkngarinnar skil ég ekki. Það hefði verið eðlileg fréttamennska og síðan hefði ekki verið úr vegi að heyra rödd VG, eina flokksins sem alltaf andæfði sölu Símans, meðal annars á þeirri forsendu að það myndi bitna á starfsfólki, einkum ...
Sunna Sara
Sunna Sara
26. Október 2005
HÆKKUN FJÁRMAGNSTEKJUSKATTS OG HÚSALEIGAN
Sæll. Mér skilst að þú sért flutningsmaður að tillögu um að hækka fjármagnstekjuskatt úr 10 % í 18 %. Alltaf virðist þið halda að bara eitthvert ofsalega ríkt fólk greiði slíkan skatt, en ekki vesælustu fátæklingar þessa lands. Mikill er misskilningur þinn. Dæmi: Undir þennan skatt falla húsaleigutekjur. Ef hann verður hækkaður um 80 % (eða hvað sem er) mun húsaleigan hækka um það. Rýrðu ekki kjör hinna lægst launuðustu með þessari vanhugsuðu tillögu ykkar. Hugsaðu ...
Örn Johnson
Örn Johnson
24. Október 2005
HREINN OG STROKINN EN EKKERT NEMA..
Í sjónvarpinu sat hann kyrr,
svona hreinn og strokinn
en innrætið sem áður fyrr,
ekkert nema hrokinn.
Kristján Hreinsson, skáld21. Október 2005
ÞINGMENN BÚI VIÐ SÖMU EFTIRLAUNAKJÖR OG AÐRIR
Mig langar að vita hvernig það gat gerst að ráðamenn þjóðarinar haga sér eins og hálfvitar og að ekkert sé gert í því t.d. að heimta afsögn þeirra. Og hérna er ein hugmynd til að spara útgjöld hjá ríkinu: Segja upp öllum starfslokasamningum. Þingmenn eru ekkert of góðir til þess að lifa af eftirlaunum eins og aðrir í þessu landi. Lækkið launinn hjá þeim launahæstu...
Magnús Freyr Ingjaldsson
Magnús Freyr Ingjaldsson
20. Október 2005
SKERT FERÐAFRELSI BLINDRA
Heill og sæll félagi. Sá þitt ágæta svar varðandi hundahaldið. Eitt langar mig til að hnippa í þig með. Blindum er óheimilt enn að ferðast með blindrahundi í strætó í Reykjavík, einu höfuðborg Norðurlanda sem þannig háttar til um í málefnum blindra.
Kveðja,
Borgþór
Kveðja,
Borgþór
19. Október 2005
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR VILL EINKAVÆÐA
Nú vill Íhaldið einkavæða Landsvirkjun. En hvað þá með Íhaldið í borginni?? Vill það einkavæða Orkuveitu Reykjavíkur?? Og ef þeir neita því eins og ég geri ráð fyrir. Er þeim treystandi fyrir fyrirtækinu eftir þá ályktun sem kom frá landsfundinum???
Sigurður H. Einarsson
Sigurður H. Einarsson
18. Október 2005
ÓKEYPIS Í STRÆTÓ - RAUNHÆFUR KOSTUR?
...En segjum nú sem svo að bæjarfélögunum og þeim sem með þessi mál möndla fyrir þeirra hönd tækist nú að gera úr garði gott leiðakerfi með tíðum ferðum – mundi það eitt og sér duga til að fólk færi að nota almenningssamgöngur í æ ríkara mæli? Það held ég ekki. Ég held að það þurfi um leið að koma íbúum höfuðborgarsvæðisins á bragðið, kenna þeim í bókstaflegum skilningi að nota strætó, og það yrði best gert með því að hafa ókeypis í strætó. Og er ég þá ekki hugsa um einn dag, heldur amk. tíu ár eða svo. Með þessu móti tækist án efa að...
Þorleifur Óskarsson
Þorleifur Óskarsson
15. Október 2005
UM AFSTÖÐU TIL HUNDAHALDS
Ég var að velta fyrir mér hvar flokkurinn stendur varðandi hundahald í Reykjavík. Ég og fleiri hundaeigendur erum mikið að velta þessum málum fyrir okkur vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Ummæli Stefáns Jóns frá síðasta vetri eru mörgum hundaeigandanum minnisstæð. Sjá hér ...
Erla Hlyns
Erla Hlyns
14. Október 2005
ÞAR HITTI SKRATTINN ÖMMU SÍNA
Baugur og ónefndur brátt verða kvitt
og barátta þeirra mun dvína
því að andskotinn sjálfur hefur nú hitt
hina gráðugu ömmu sína.
Einar Guðmundsson
12. Október 2005
20% ÁLAGSGREIÐSLUR FYRIR DEKURVIÐTÖL?
Ég ákvað að skrifa þér þegar ég heyrði það í fréttum að Halldór Ásgrímsson væri farinn að halda mánaðarlega fréttamannafundi, bara svona um allt og ekkert. Þetta er víst siður í útlöndum hjá stóru köllunum eins og Bush og Blair og þeim. Ósköp held ég nú að fréttamennirnir séu fegnir að þetta er þó ekki nema einu sinni í mánuði því varla eru þetta miklar skemmtisamkomur. Annars hélt ég að ráðherrarnir og allra síst forsætisráðherra þyrftu ekki að boða fréttamenn til sín sérstaklega. Ég sé ekki annað en þeir baði sig stanslaust í fjölmiðlasviðsljósinu og fái endalaus dekurviðtöl í kastljósþáttunum. Ég man ekki betur en ég hafi...
Sveinbjörg
Sveinbjörg
11. Október 2005
BAUGUR OG SAMFÉLAGIÐ
Jón Ásgeir Jóhannesson mætti í viðtal á Stöð 2 í kjölfar úrskurðar Hæstaréttar sem vísaði öllum ákæruatriðunum í Baugsmálinu frá nema átta – og er það sem eftir stendur einna helst meint brot á tollalögum vegna innflutnings á fáeinum bifreiðum og kannski einum sláttuvélartraktor, ef ég man rétt. Jón Ásgeir var yfirvegaður í viðtalinu, já svo yfirvegaður var hann á þessum ágæta degi að hann var ekki einu sinni tilkippilegur í að tjá sig um æskilega brottrekstra og hagræðingu hjá lögreglunni sem hann hefur þó haft miklar skoðanir á að undanförnu. Margboðað skaðabótamál Baugs á hendur íslenska ríkinu bar örlítið á góma í viðtalinu en einnig í því máli var Jón varkár. Hann vildi ekki nefna neinar upphæðir, ekki td. hvort milljarðarnir sem hugsanlega yrðu sóttir í greipar ríkissjóðs yrðu einungis 5 eða kannski jafnvel 40. Á hinn bóginn upplýsti hann að öll mundi skaðabótasumman renna...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
10. Október 2005
FRÉTTIR ÚR KAUPHÖLLINNI
Ég sæki mikið inn á heimasíðu Kauphallar Íslands mér til skemmtunar og fróðleiks. Þar má finna fregnir af flóknum málum sem ekki er alltaf auðvelt að skilja en með skýrri og skorinorðri framsetningu renna margslungnir innviðir viðskiptalífsins ofan í mann eins og sykurlegnar pönnukökur. Ég vil t.d. benda á eftirfarandi tilkynningu um fyrirhugaðan flutning á eignarhaldi, sem birtist á vefnum sl. föstudag, nánar tiltekið kl. 17:10:20. Tilkynningin þessi er gott dæmi um þann tærleika í framsetningu sem svífur yfir vötnunum á kauphallarvefnum...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
9. Október 2005
UM KONUR OG KARLA Í FÆÐINGARORLOFI
22. september síðastliðinn var viðtal við þig sýnt í fjölmiðlum, þess efnis að feður hefðu ekki jafnan rétt á við mæður að sækja styrki úr Fæðingarorlofssjóði. Allar þær lagagerðir sem ég hef lesið benda til þess að kynin hafi jafnan rétt til styrkstöku. Gætir þú kannski frætt mig um þetta mál...?
Brynja Halldórsdóttir
Brynja Halldórsdóttir
6. Október 2005
VÍSA VARÐ TIL
...Af þessum sökum fæddist vísa sem fjallar um það hversu illa Dóri sést...
Af auðnu hljóta ekki jafnt
allir landsins feður,
já, víst er æði vandasamt
að vera illa séður.
Kristján Hreinsson
Af auðnu hljóta ekki jafnt
allir landsins feður,
já, víst er æði vandasamt
að vera illa séður.
Kristján Hreinsson
5. Október 2005
GEFÐU ÞJÓÐÓLFI FRÍ
...Ótrúlegt finnst mér langlundargeð þitt að birta nánast upp á hvern einasta dag skrif nafnleysingjans Þjóðólfs eins og þau eru nú yfirleitt ósmekkleg og leiðinleg. Veit ég að hér tala ég fyrir munn margra. Eins ágæt og þín heimasíða er þá held ég að svona skrif sem þessi nafnleysingi ástundar og tekin eru til birtingar fæli fólk frá síðunni og þar með frá þeim athyglisverðu greinum sem þar er oft að finna. Í Mbl. las ég nýlega ágæta grein eftir þig þar sem tjáningafrelsi, rit- og prentfrelsi kemur ma. við sögu. Var ég málflutningi þínum þar í einu og öllu sammála. Hins vegar finnst mér nafnleysinginn Þjóðólfur oftast stíga langt fram yfir þær skynsamlegu markalínur sem þú dregur...
Helga K. Gunnarsdóttir
Helga K. Gunnarsdóttir
3. Október 2005
HVERT LIGGUR ÞÍN LEIÐ DÓRI? HVAÐ SEGIR TÖLVUPÓSTURINN?
...Og Davíð er, sem kunnugt er, altmuligmann af guðs náð og Þorsteinn ætlaði á sínum tíma að leggja stund á sagnfræði, og taldi sig raunar gera það, en lauk lögfræðiprófi fyrir einhvern misskilning. Og það er fleira í pípunum ef marka má Tölvupóstinn sem birtir í morgun bréf frá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni til KG (sem blaðið fullyrðir að sé Kjartan Gunnarsson) og er það svohljóðandi...
Sending frá Þjóðólfi
Sending frá Þjóðólfi
30. September 2005
DAVÍÐ IN MEMORIAN
Við á Snotru höfum verið að ræða hvort Davíð Oddsson verði ekki settur í flokk “frelsishetjanna” Thatcers og Reagans. Öll eiga þau það sameiginlegt að auka frelsi hinna ríku til að kúga þá fátæku og gera þá ríku ríkari, selja eigur fólksins til þess að hægt verði að selja okkur þær aftur. (Járnbrautir, raforkurkefi banka og síma).
Eftir sitjum við með lág laun og fátækt. 100 þúsund kr. laun standa ekki undir kostnaði við húsnæði, klæði og fæði, hvað þá annað. Til þess að lifa á verkafólk ekki annarra kosta völ en vinna óhóflega yfirvinnu. Á meðan er ekki hægt að opna blað nema fjallað sé um ...
Runki frá Snotru
Eftir sitjum við með lág laun og fátækt. 100 þúsund kr. laun standa ekki undir kostnaði við húsnæði, klæði og fæði, hvað þá annað. Til þess að lifa á verkafólk ekki annarra kosta völ en vinna óhóflega yfirvinnu. Á meðan er ekki hægt að opna blað nema fjallað sé um ...
Runki frá Snotru
30. September 2005
ÚR TÖLVUPÓSTINUM Í MORGUN
Jón ritstjóri Tölvupóstsins lumar á ýmsu athyglisverðu í blaðinu í dag. Hann hefur gefið mér góðfúslegt leyfi til að nýta mér efnið að vild enda er hann mágur minn og hef ég svo sem ýmislegt á hann ef hann lætur ekki að stjórn. Ég vil leyfa lesendum síðunnar að gægjast í bréfið “Amma skrifar Árna sínum” sem hann mágur minn veiddi í netið í gær og áframsendi mér:..
Sending frá Þjóðólfi
Sending frá Þjóðólfi
28. September 2005
TÖLVUPÓSTURINN - NÝTT DAGBLAÐ MEÐ NÝJAR OG BREYTTAR ÁHERSLUR
Ánægjuleg viðbót við íslenska fjölmiðlaflóru barst inn um bréfalúguna hjá mér í morgun. Þetta er auðvitað dagblaðið Tölvupósturinn en ritstjóri og jafnframt eini starfsmaður þess er hinn þjóðkunni doktor Jón Samúelsson ... Eftir þennan lestur varð mér strax hugsað til þess að ekki væri nú ástandið svona skítt hjá mér og mínum. ...Uppskriftin að þessu nýja blaði er að mínum dómi afar vel heppnuð og innihaldið hefur fyrst og síðast góð áhrif á lesendur og ég held einnig samfélag okkar í heild. Og ekki veitir nú af á þessum ...
Tómas Adolf Treholt
Tómas Adolf Treholt
19. September 2005
iPod Í LAUNAUMSLAGIÐ
Sæll Ögmundur. Þú skrifar á heimasíðu þína þann 13.9.sl grein með yfirskriftinni ÞAÐ ÞARF AÐ JAFNA KJÖRIN Í LANDINU. Ekki efast ég um vilja þinn til þess að vinna að því og ég er sammála þér í því að hátt gengi krónunar hefur ekki skilað sér að fullu í lægra vöruverði, enda kröfur um háa arðsemi til eiganda hafðar í fyrirrúmi.
Sigurbjörn Halldórsson
Sigurbjörn Halldórsson
15. September 2005
MÚTUR VIL ÉG EKKI Í MINN VASA
Það er fallegt af þér Ögmundur að bera blak af þeim aðilum sem eru að fá sölupeninginn af Símanum og eru flaðrandi upp um ríkisstjórnina af ánægju, þakklæti, bukti og beygju. Þú segir hér á síðunni...Ég áfellist þennan mannskap alveg hiklaust og er þér fullkomlega ósammála að þessu leyti þótt ég sé eiginlega sammála þér um allt!. Mér verður hreinlega illt af því að horfa á þetta flaður í garð kapítalistanna sem eru að útdeila stolnum auði. Sjálf er ég öryrki og geðfötluð og vil ekki sjá einseyring af mútufé ríkisstjórnarinnar....
Gunna
Gunna
15. September 2005
ÁLFAR OG ÁLVER – HVER ER MUNURINN FYRIR LAND OG ÞJÓÐ?
Á sínum tíma, er ég var barn að aldri, trúði ég á álfa. Hvernig átti heldur annað að vera, ég sá þá með eigin augum út um allar koppagrundir, í hverjum hól og kletti, já í hverjum einasta grjóthnullungi á æskustöðvum mínum vestur í Trékyllisvík. Lengi vel velti ég því ekkert fyrir mér hvað álfarnir hefðu fyrir stafni til að hafa í sig og á. Ég sá þá aldrei gera neitt af viti, eins og sagt var til sveita í gamla daga, ég gat ekki betur séð en allan liðlangan daginn væru þeir við alls kyns leiki og annað sprell. Það var fyrst í kringum tíu ára aldurinn að ég spurði hann föður minn hvað allir þessir álfar hefðu sér til viðurværis. Drykklanga stund hugsaði hann sig um og sagði svo...
Þorsteinn Þjóðólfsson,
fyrrverandi sjómaður
Þorsteinn Þjóðólfsson,
fyrrverandi sjómaður
3. September 2005
KRÓNAN HÆTT AÐ VEITA UPPLÝSINGAR UM STÖÐU HAGKERFISINS
Ágætis grein um fjármál og vexti frá þér. Þessi vandamál væru ekki þau sömu ef við hefðum vit á að vera með í Evrunni. Röksemdir fyrir sjálfstæðum gjaldmiðli eru fyrst og fremt þær að gengi jafni kjörin, þeas. ef viðskiptakjör versna þá lækkar gengið. Þá minnkar kaupmáttur allra en í staðinn minnkar hættan á atvinnuleysi. Þessi kenning er rétt ef um er að ræða sveiflur 10% plús eða mínus. En hagkerfislegt sjálfstæði getur líka farið illa með þjóðarhag. Ef sveiflurnar verða miklar (einsog nú er) er hætta á að heilu atvinnugreinarnar verði ósamkeppnisfærar og þá fáum við fjöldaatvinnuleysi, ekki bara sveiflukennt atvinnustig, einsog við fengjum ef við værum tengd við stóran gjaldmiðil. Markaður verður að vera stór til að virka og hægt er að "hijacka" litlu hagkerfi af tiltölulega fámennum hópi spákaupmanna...Ísland er að verða "Gambler´s Paradise" þar sem rekstrarreikningur
fyrirtækjanna skiptir engu máli...
Þráinn
fyrirtækjanna skiptir engu máli...
Þráinn
1. September 2005
VERÐUR KANNSKI “LAUGARDAGSKVÖLD MEÐ VILLA” Í VETUR?
Það verður ekkert “Laugardagskvöld með Gísla Marteini” í sjónvarpinu í vetur, því miður fyrir okkur eldri borgarana sem áttum þar hauk í horni og gleðinnar fasta punkt í annars dapurlegri dagskrá Ríkissjónvarpsins.Gilli sækist nefnilega eftir því, enda þjóðþekktur orðinn af góðu einu, að verða borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. Hann hefur því eðlilega lítinn tíma til að spjalla og sprella fyrir okkur gamla fólkið um hverja helgi...Geri ég það hér með að tillögu minni að keppinautur Gísla um borgarstjórastólinn, Vilhjálmur Þórður Vilhjálmsson, játi sig strax sigraðan og taki upp keflið hans Gilla í sjónvarpinu. Þá fengjum við gamla fólkið “Laugardagskvöld með Villa” og yrðum ekki svikin af þeirri skemmtun – það get ég fullyrt eftir löng og skemmtileg kynni við Vilhjálm allt frá...
Ari Guðmundsson á Grafarbakka
Ari Guðmundsson á Grafarbakka
15. Ágúst 2005
SPURT UM KJÖR ALDRAÐRA
Munið þið reyna að komast í ríkisstjórn í næstu kosningum, og hvað ætlið þið að gera í málum aldraðra...?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir
Ólafía Margrét Ólafsdóttir
12. Ágúst 2005
ÚTBOÐ Á KOSTNAÐ STARFSFÓLKS
Ég vil bara benda á þegar sveitarfélög eru að selja eða bjóða út vélamiðstöð, sorphreinsun og fl., þá er oftar en ekki verið að henda út af vinnumarkaði fólki með takmarkaða starfsorku. Fólk sem getur unnið hálfan daginn, eða jafnvel í 8 tíma við ákveðin störf. Þetta fólk dettur út vegna þess að eigendurnir vilja fátt starfsfólk hraust með mikil afköst. Þetta á líka við um þvottahús spítalanna en þar...
Sigurður H. Einarsson
Sigurður H. Einarsson
11. Ágúst 2005
HERNAÐARÁRÓÐUR FRAMLEIDDUR Í KRÝSUVÍK
...Hver leyfir þetta eiginlega, eru það núverandi stjórnvöld, ofan á allt? Vonandi fara íslenskir kjósendur að átta sig á hvers konar endemis liðleskjur stýra landinu. Ég held að þjóðráð væri að íslensku dátarnir sem voru sendir í óleyfi til Afganistan, væru frekar sendir suður í Krýsuvík til að vernda land og þjóð fyrir þessum ágangi. Það er gott og blessað að hingað komi erlendir kvikmyndatökumenn en ég er sammála þér og séra Gunnþóri Ingasyni í Mogga-greininni sem þú vekur athygli á hér á síðunni, að þetta flokkast frekar undir hernaðaráróður en kvikmyndalist. Sigurður Á. Friðþjófsson skrifar skemmtilega grein í Frjálsa penna hér á síðunni en ekki get ég...
Hafsteinn
Hafsteinn
30. Júlí 2005
MÚNKHÁSEN OG BAKKABRÆÐUR SAMEINAST
Merkilegt er að þegar ég áðan opnaði heimasíðu þína Ögmundur, þá höfðum við
hér í Snotru verið að ræða um það sama, nema við gleymdum Múnkhásen barón.
Vissulega er það gleðilegt að Bakkabræður og Múnkhásen hafi sameinast ríkisstjórn Íslands. En við hér í Snotru höfum meiri áhyggjur af því hvernig þeir félagar ætla greiða lánin, varla eiga mennirnir 67milljarða. En hvað um það, ég kallaði í frúna og sagði henni að nú hefðu Bakkabræður og Múnkhásen sameinast. Ekki stóð á svari hjá þeirri gömlu...
Runki frá Snotru
hér í Snotru verið að ræða um það sama, nema við gleymdum Múnkhásen barón.
Vissulega er það gleðilegt að Bakkabræður og Múnkhásen hafi sameinast ríkisstjórn Íslands. En við hér í Snotru höfum meiri áhyggjur af því hvernig þeir félagar ætla greiða lánin, varla eiga mennirnir 67milljarða. En hvað um það, ég kallaði í frúna og sagði henni að nú hefðu Bakkabræður og Múnkhásen sameinast. Ekki stóð á svari hjá þeirri gömlu...
Runki frá Snotru
29. Júlí 2005
NÝSKIPAÐUR ÚTVARSPSSTJÓRI SETUR EKKI LANDSLÖG
Þá er Páll Magnússon orðinn útvarpsstjóri. Vonandi klárar hann sig í því starfi. Ekki þótti mér lofa sérlega góðu að hann fór að lofa umdeilt frumvarp menntamálaráðherra. Ég heyrði alla vega ekki betur, eða heyrði ég ekki rétt, að hann segði í einhverju viðtalinu að ný útvarpslög yrðu samþykkt fyrir áramót? Þarf ekki samþykki Alþingis til þess? Varla var Páll skipaður til að taka yfir...
Orri
Orri
26. Júlí 2005
BÖRN LÁTIN AUGLÝSA ÁFENGI
Ég er hjartanlega sammála þessari auglýsingu, sem þú ert með á síðunni um að sniðganga áfengissala sem auglýsa áfengi þvert á landslög. Ábendingar Árna Guðmundssonar eru einnig hárréttar um að börn sem koma sér upp heimasíðum eru óafvitandi gerð að lögbrjótum. Þau fá ókeypis aðgang að vef vistunarkerfi gegn því að "eigandinn" , fyrirtækið folk.is eða íslenska bloggsamfélagið fái að setja inn auglýsinga-banner frá sér. Börn sem ritstjórar á sínum heimasíðum eru því...
Anna
Anna
23. Júlí 2005
ÉG HELD... AÐ SKÁLDIÐ HAFI NOKKUÐ TIL SÍNS MÁLS
Jóel
22. Júlí 2005
EKKI GEFA VÉLAMIÐSTÖÐINA
Þakka þér fyrir að vekja athygli á Vélamiðstöðinni hér um daginn. Nú þegar tilboð hafa verið opnuð vil ég minna á orð þín: “Reykjavíkurborg er ekki skuldbundin að taka neinu tilboði sem berst. Við væntum þess að borgin muni hafa langtímahagsmuni borgarbúa í huga og jafnframt þær sérstöku aðstæður sem skapast hafa í fjármálalífinu.” Með þetta í huga er tilboð upp á 735 milljónir lítilsvirðing við Reykvíkinga og starfsmenn hennar, enda ekki fyrir húsnæðinu hvað þá meira.
Sjálfur vil ég bæta við eftirfarandi...
Fimmtugur Borgarstarfsmaður.
Sjálfur vil ég bæta við eftirfarandi...
Fimmtugur Borgarstarfsmaður.
21. Júlí 2005
HVAÐ MEÐ GUNNAR KRISTJÁNSSON?
Ég var að lesa pistil þinn um næsta útvarpsstjóra og er þér að mörgu leyti sammála, nema hvað ég teldi heppilegra að útvarpsstjóri kæmi ekki úr heimi stjórnmálanna. Ég leyfi mér að stinga upp á Gunnari Kristjánssyni presti á Reynivöllum. Þar fer maður sem væri vel til þess fallinn að gegna þessu mikilvæga hlutverki. Síðan er ég alveg sammála þér að fráleitt væri að skipa í þetta embætti einstakling sem er andsnúinn því að Ríkisútvarpið sé í almannaeign og undir almannastjórn. Því miður hefur...
Hafsteinn
Hafsteinn
16. Júlí 2005
FRAMSÓKNARFLOKKURINN í BLÚSSANDI SÓKN
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Ker hf og Vátryggingafélag Íslands gerðu fyrir Framsóknarflokkinn í gærkvöldi er flokkurinn með um 90% fylgi en aðrir flokkar talsvert minna. Spurt var: Hvaða stjórnmálaflokk myndir þú styðja ef kosið yrði til Alþingis á morgun. 89% kváðust mundu kjósa Framsóknarflokkinn.
Úrtakið var svokallað random úrtak úr félagaskrám flokksins og náði til 200 félaga. Svörun var með miklum ágætum...
Ebbi
Úrtakið var svokallað random úrtak úr félagaskrám flokksins og náði til 200 félaga. Svörun var með miklum ágætum...
Ebbi
15. Júlí 2005
LEIÐTOGAPRÓFKJÖR TIL AÐ FESTA LEIÐTOGA Í SESSI
Mikið er ég sammála gagnrýni þinni á hugmyndir sem fram hafa komið á hugsanlegt leðitogaprófkjör í R-listanum, í svari þínu til Hafsteins í lesendadálkinum í fyrradag. Þú segir réttilega að þetta hljómi sem "kall aftan úr fornöld", og ég held líka að sé rétt að þetta komi fyrst og fremst "úr hálsi þeirra sem vilja foringjaræði." Þeir sem mest leggja upp úr...
Sunna Sara
Sunna Sara
15. Júlí 2005
HVAÐ SKYLDI KFON FÁ FYRIR SÖLU SÍMANS?
Komið hefur í ljós á undanförnum vikum að Kaupfélag Framsóknar og nágrennis (KFON) hefur hagnast verulega á sölu ríkiseigna á liðnum árum. Þannig græddi kaupfélagsstjórinn sjálfur, Halldór Ásgrímsson, og pólitískir venslamenn hans í það minnsta hundruði milljóna króna á sölu Búnaðarbanka Íslands. Sumir, eins og til að mynda ríkisendurskoðandi, virðast svo gjörsamlega veruleikafirrtir, eða þá vel efnum búnir, að þeir kalla hundruði milljóna og jafnvel milljarða óverulegar upphæðir og þar af leiðandi...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
14. Júlí 2005
LANDAMÆRAGÆSLAN AUKIN
...Við hjónin í Snotru hugðust skoða framkvæmdirnar við Kárahnjúka nú í sumar, sem okkur hugnast ekki. Nú hefur Ríkislögreglustjóri gefið út yfirlýsingu samkvæmt Ríkisútvarpinu svo hljóðandi:
“RíkislögreglustjórI hefur farið fram á aukna landamæragæslu af ótta við að mótmælendur komi hingað til lands frá Skotlandi þar sem ...
Runki frá Snotru og frú.
“RíkislögreglustjórI hefur farið fram á aukna landamæragæslu af ótta við að mótmælendur komi hingað til lands frá Skotlandi þar sem ...
Runki frá Snotru og frú.
13. Júlí 2005
UM R-LISTA, PRÓFKJÖR OG LEIÐTOGA
Sæll Ögmundur. Þú hefur verið þögull sem gröfin um komandi borgarstjórnarkosningar. Öðru vísi mér áður brá...Ég var á sínum tíma félagi í Alþýðubandalaginu og minnist ég þess að í aðdraganda stofnunar Samfylkingarinnar skrifaðir þú eitt sinn dreifibréf þar sem þú sagðist ekki fylgjandi því að fólk með mjög mismunandi viðhorf gengi í eina pólitíska sæng. Þér fyndist hins vegar sjálfsagt að flokkar gerðu með sér samkomulag um samstarf eftir kosningar. Á þessari forsendu gagnrýndir þú bæði hugmyndirnar að baki R-listanum og síðar Samfylkingunni. Hefurðu skipt um skoðun? Og hvað með opið prófkjör? Á kannski að kjósa borgarstjórann beint – hafa "leiðtogaprófkjör" eins og heyrst hefur innan úr Samfylkingunni...?
Hafsteinn
Hafsteinn
1. Júlí 2005
BRAGÐ ER AÐ ÞÁ BARNIÐ FINNUR
...Og talið barst að annarri grúbbu. “Veist þú nokkuð hver á BT, Sena og Office one? Það er Dagur Group en ekki Baugur en ég held hins vegar að Baugur Group eigi Dag. Er það ekki pabbi?” Ég sagðist ekki vita það en spurði strákinn á móti hvort hann hefði ekki sagt fiskinum frá ástandinu í Framsóknarflokknum. Og ekki stóð á svari hjá stráknum: “Ég þarf þess ekki. Hann veit allt um spillinguna þar. Hann horfði á Valgerði ráðherra í Kastljósinu í gærkvöldi....
Þorleifur
Þorleifur
29. Júní 2005
ÁKALL UM UMBURÐARLYNDI GAGNVART REYKINGAMÖNNUM
Skemmtileg og fræðandi grein um Kristjaníu. Sammála þér í því að hægristjórnin sýnir þessu fólki ekki nægilegt umburðarlyndi. Það þarf jú enginn að búa þarna eða kaupa sér einhver vímuefni. Öllum sem mislíkar geta yfirgefið hverfið. Eigum við ekki líka að sýna þeim umburðarlyndi sem vilja koma saman einhversstaðar til að reykja sígarettur, t.d. á skemmtistöðum. Er ekki enn meiri ástæða til...
Oddgeir Einarsson
Oddgeir Einarsson
28. Júní 2005
RIGNINGIN, NÓBELSVERÐLAUNIN OG AFMÆLI BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS
Með hliðsjón af minnisleysi forsætisráðherra í tengslum við þátttöku hans í sölu og kaupum á Búnaðarbanka Íslands haustið 2002 tel ég mér skylt að benda á að 1. júlí næstkomandi verða 75 ár liðin frá stofnun bankans. 25 ára afmæli bankans, árið 1955, rifjaðist einmitt upp fyrir mér þegar forsætisráðherra horfði um öxl, heil 50 ár aftur í tímann, í þjóðhátíðarræðu sinni á 17. júní síðastliðinn. Við það tækifæri hentaði það honum að muna annars vegar eftir miklu rigningarsumri og svo hins vegar nóbelsverðlaununum sem Halldór Kiljan Laxness landaði á því ári. Þótt ótrúlegt sé var ég búinn að gleyma rigningarsumrinu mikla og vil því launa ráðherranum hæstvirtum greiðann með því að minna hann á þetta kærkomna bankaafmæli. Og af hverju ætti það ekki að henta hæstvirtum forsætisráðherra að...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
21. Júní 2005
HVER ER FORSÆTISRÁÐHERRA ÍSLANDS?
...Á þessu stigi málsins verður auðvitað hver og einn að trúa því sem hann vill um meint meðvitundarleysi Halldórs um eigin bankakaup. Engan hef ég þó enn talað við sem leggur trúnað á slíkt. Og af hverju trúir fólk ekki þessu meinta meðvitundarleysi? Þar veldur eflaust mestu sú einfalda og augljósa ástæða að hjá flestum að minnsta kosti mundi það teljast til þó nokkurra tíðinda að eiga þátt í því að kaupa heilan banka - að ekki sé nú talað um þegar svo óvenjulega hefur viljað til, eins og í tilviki Halldórs, að viðkomandi var hvort tveggja í senn; partur af “seljendagenginu” og “kaupendagenginu”. En samkvæmt minnisblaði Ríkisendurskoðunar munu...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
10. Júní 2005
JÁ, HVAÐ YRÐI SAGT Í EINKAFYRIRTÆKI GUÐLAUGUR ÞÓR?
...Á ráðstöfun fjármuna í opinberum stofnunum annars vegar og gróðafyrirtækjum á markaði hins vegar, kann þó að vera einn grundvallarmunur. Hann er sá að í einkafyrirtækjum fer gróðinn að mestu leyti niður í vasa eigenda og birtist í munaði í einkaneyslu þeirra, dýrlega búnum heimilum, sumarbústöðum, stórum dýrum bifreiðum og svo framvegis. Tal Guðlaugs Þórs um spartanska meðferð fjármuna í einkageiranum er því út í hött. Það má vel vera að hús og aðstaða sem Orkuveita Reykjavíkur hefur búið sjálfri sér, sé of kostnaðarsöm. Þetta snýr þó að aðstöðu starfsfólks og síðan öllum almenningi, eigendum Orkuveitunnar. Peningarnir fara í almannaþjónustu. Framhjá því má ekki horfa. Hitt skal tekið undir ...
Jóel
Jóel
9. Júní 2005
FRAMSÓKNARTENGINGIN VAR ÚTLISTUÐ HÉR Á SÍÐUNNI
Í febrúar birtist hér á síðunni lesendabréf frá Stefáni, sem ég las af athygli enda hefur komið á daginn að hagsmunatengsl Framsóknar við einkavæðinguna eru sterk og ámælisverð svo ekki sé djúpt tekið í árinni en einmitt þetta var umfjöllunarefni bréfsins. Ég hvet alla til að rifja efni þess upp. Þar sagði m.a.: "Ég hef ekki hugmynd um Ögmundur hvort bróðir Halldórs Ásgrímssonar er ennþá í stjórn VÍS (eins og hann var þegar Morgunblaðið birti úttekt sína í febrúar í fyrra) sem fékk að kaupa Búnaðarbankann með innlendum félögum og erlendum sjóðum en ætti stjórnarseta hans ekki að hafa gert fyrrverandi utanríkisráðherra vanhæfan til að koma með þeim afgerandi hætti að málinu á sínum tíma sem raun bar vitni? Ef stjórnarsetan tengist eign viðkomandi í Hesteyri ehf. sem Skinney-Þinganes, VÍS og Fiskiðjan Skagfirðingur áttu fyrir ári til jafns þá sýnist mér í ljósi “kjarnastarfsemi” VÍS í uppkaupum og áhrifum í KB banka að ástæða sé til að skoða mál þetta í fullri alvöru. Mér finnst líka fullkomlega eðlilegt að kanna hver eða hverjir eiga ...
Sunna Sara
Sunna Sara
6. Júní 2005
SÚRÁLSFRÉTTIR FALLA Á HLUSTIR STEINDAUÐRA FJÖLMIÐLA!
Þegar þú vaktir athygli á því fyrir fáeinum dögum hér á síðunni að ríkisrekið áróðursfyrirtæki væri að freista erlendra mengunarfyrirtækja að hasla sér völl á Íslandi, þá taldi ég sannast sagna að í landinu myndi skapast mikil umræða um þetta ruglaða siðleysi. En svo virðist sem fjölmiðlarnir séu dauðir og almenningur líka. Mið-Amería varð bananalýðveldi vegna fátæktar og undirokunar. Það er vesælla hlutskipti að gerast þræll – feitur og vel haldinn. Það sýnist mér ætla að ...
Haffi
Haffi
5. Júní 2005
HVAÐ YRÐI UM HEIMILI SEM HAGAÐI SÉR EINS OG RÍKISSTJÓRNIN?
1990, áður en núverandi stjórnvöld tóku við völdum voru skuldir þjóðarinnar 50% af landsframleiðslunni, en í dag eu þær 250% af landsframleiðslunni, ekki tekjum, heldur landsframleiðslunni. Hvað yrði um heimili þitt ef það hagaði sér ...
Áhugamaður um þjóðmál
Áhugamaður um þjóðmál
4. Júní 2005
GRÍMSSON MEÐ GRÍMU
...Daginn eftir var forsetinn grímulaus. Þá kynnti hann hugmynd um að Íslendingar fræddu Kínamenn um mannréttindi. Ráðamennina. Hættulegra væri að fræða fátækar stelpur í Kína um það hvernig varast ber íslenska arðræningja í fiskverkun. Varla má fræða um merkingu þrælahalds og mannsals. Varla má vara Kínverja við grímuklæddum forsetum og grímuklæddum braskvinum þeirra. Mannréttindi hvað ? Er ekki nóg að...
Baldur Andrésson
Baldur Andrésson
28. Maí 2005
GÚLAG ÍSLENSKRA STJÓRNMÁLA?
...Er ekki eitthvað bogið við það þegar aðeins helmingur "flokksbundinna" manna kýs í formannskjöri í flokki sem hefur ekki hugsað um annað í fleiri mánuði? Þrátt fyrir auglýsingastofur og tugi launaðra manna við að reka áróður í formannskjöri er uppskeran rýr. Mín tilfinning er að Samfylkingin sé orðin að pólitískum fangabúðum, eins konar pólitísku Gúlagi þaðan sem fólk á ekki afturkvæmt hafi það einu sinni stigið inn fyrir þröskuldinn. Þess vegna beini ég þeirri spurningu til ...
Sunna Sara
Sunna Sara
25. Maí 2005
TVEIR MENN Í EINUM? NÝJUSTU FREGNIR AF AÐSTOÐARMANNI FORSÆTISRÁÐHERRA
...Maður hlýtur að velta því fyrir sér hvort það sé æskileg blanda að í einum og sama manninum birtist okkur einn daginn æruverðugur aðstoðarmaður hæstvirts forsætisráðherra en hinn næsta sannkallaður hrokagikkur, já valdhrokinn uppmálaður, við skriftir á veraldarvefnum þegar pólitískir andstæðingar eiga í hlut. Þá hagar aðstoðarmaðurinn sér eins og óuppdreginn uppalingur í fámennum félagsskap – í réttnefndri klíku – og sést ekki fyrir í vitleysisgangi sínum. Um það hversu heppilegt þetta fyrirkomulag er og hvort að það getur yfirleitt gengið upp verður hver og einn að dæma...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
24. Maí 2005
HUGMYNDIR KOMNAR TIL ÁRA SINNA?
Ég vil spyrja þig Ögmundur hvort þú hafir engar áhyggjur af stöðu Ríkisútvarpsins - og fjáraustri þar á bæ- 3 milljarðar á hverju ári í rekstur útvarpsins. Eins vil ég spyrja þig hvort þú meinir það í fullri einlægni að allir einkamiðlarnir séu að framleiða sama poppið eða hvort verið geti að þetta svar þitt sé komið til ára sinna....
Helga Vala
Helga Vala
17. Maí 2005
VARA VIÐ MONT BLANC, MÆLI MEÐ FLETTISKILTI
Nú birtist í fréttum að forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, fyrrverandi varaformaður Framsóknar og fleiri ætli að klífa Mont Blanc í sumar. Ég er strax farinn að hlakka til að fá að fylgjast með fjallgöngunni í máli og myndum. Ég vona að fjölmiðlar hafi gert ráðstafanir. Gleði mín er þó blandin áhyggjum og langar mig til að koma hógværri spurningu á framfæri við spunamenn Halldórs. Gæti verið að menn ættu...
Nonni
Nonni
15. Maí 2005
Í VÍKING TIL KÍNA
...Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að það séu mikil forréttindi fyrir Íslendinga að fá að heimsækja Kína og að forsetaheimsóknin nú sé líklega ein sú mikilvægasta sem forseti hafi farið í um árabili....Ég verð alltaf jafn dapur þegar ég heyri frá stærsta fasistafokki heimsins, sem fótumtreður réttindi verkafólks og bænda og kallar sig kommúnistaflokk. Síðan bíða hin svokölluðu lýðræðisríki í röðum að fá að hitta böðlana í von um skjótfenginn gróða....
Rúnki marxisti
Rúnki marxisti
14. Maí 2005
ÞIÐ KUNNIÐ ÞAÐ KOMMARNIR BEST, AÐ LJÚGA MARGFALT Í MÁLI OG MYNDUM
....Mér var bent á það áðan að þú værir að birta myndir á heimasíðu þinni sem ég tók núna á dögunum á árshátíð Hrútavinafélagsins. Og hvílíkur spuni sem upp úr þér gengur í kringum myndirnar mínar, undir fyrirsögninni: Heimsforystan fest á filmu. Og svo bítur þú höfuðið af skömminni með því að eigna þær allar blaðasnápnum Steingrími Ólafssyni sem ekki þekkir muninn á fallegum hrúti og fljúgandi snjótittlingi, eins og raunar allt of títt er um unga framsóknarmenn nú á dögum. Áður en ég skrifa reikninginn á þig upp á höfundarlaunin vegna myndanna vil ég greina frá því ágæta fólki sem prýðir myndirnar mínar og er á tali við forsætisráðherra sem var heiðursgestur ...
Þórður Bogi Bogason
Þórður Bogi Bogason
14. Maí 2005
KAMARINN
Við Austurvöll stendur hin háreista höll,
til hliðar er gráleitur kamar
með saurkólígerlanna ógrynnin öll
og enginn vill koma þar framar.
til hliðar er gráleitur kamar
með saurkólígerlanna ógrynnin öll
og enginn vill koma þar framar.
Kristján Hreinsson, skáld
13. Maí 2005
NÚ VANTAR ALMENNILEGA SKÝRSLU UM EINKAVÆÐINGU
...En nú eru fleiri að átta sig á spillingunni og meira að segja grandvarir íhaldsmenn farnir að tala um “þjóðarrán” enda þótt þeir séu alls ekki andvígir einkavæðingu sem slíkri. Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar gera sér grein fyrir því að mikilvægt er að kæfa þessar raddir í fæðingu. Til þess berja þeir öfundar-bumbuna sína áfram en slá einnig á milda og ómþýða strengi gegn uppreisn íhaldsins. Gamalkunnum tónum, sem nú eru slegnir, er ætlað að sýna og sanna að úr því að fræðin segi að allir græði á einkavæðingunni þá skipti aðferðafræðin við hana og söluverð einstakra eigna nákvæmlega engu máli. Þetta nýmixaða tónverk flytur Bergþór Skúlason á netmálgagni Framsóknarflokksins, timinn.is, 6. maí síðastliðinn. Aðalstefið í verki Bergþórs er að...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
12. Maí 2005
ER EKKI HÆGT AÐ LYFTA HÆSTVIRTUM FORSETA UPP Á ÖRLÍTIÐ HÆRRA PLAN?
Ég fylgdist með eldhúsdagsumræðunum að venju og hafði bæði gagn og gaman af. Ræðumaður kvöldsins var að mínu mati tvímælalaust Össur Skarphéðinsson og finnst mér sífellt vænna um þann mann, eins og hann fór nú í mínar fínustu hér í denn þegar hann var eins og minkur í hæsnabúi Alþýðubandalagsins sáluga. En erindið var annars ekki að tjá vaxandi væntumþykju mína á Össuri heldur hitt að kvarta undan þeim truflandi bakgrunni sem áhorfendum er boðið upp á þegar sjónvarpað er frá Alþingi. Að baki ræðumanna ...
Hjálmar Þorsteinsson
Hjálmar Þorsteinsson
11. Maí 2005
STJÓRNARLIÐAR Í STUÐI
Þú sagðir í ræðu þinni á eldhúsdeginum að vandinn við fólk sem stundar partý í óhófi sé sá að það missi hæfileikann til að skoða umhverfi sitt af raunsæi, það missi fókusinn á veruleikann. Þetta sannaðist rækilega í ræðum stjórnarsinna, allar með tölu voru þær því marki brenndar að aumingja fólkið er greinilega enn í dúndrandi afmælisvímu eftir tíu ára samstarfsafmælið á dögunum. Skemmtilegasta dæmið þar um fannst mér innkoma Guðna landbúnaðarráðherra. Hann birtist sem jafnan fyrr eins og skrattinn úr heiðskíru lofti og byrjaði lofræðu sína um ríkisstjórnina á því að segjast hafa tekið sérstaklega eftir því að þú hefðir í ræðu þinni ekki vikið einu orði að Stalín. Ekki skildi ég alveg samhengið þarna hjá Guðna. Getur verið að hann sé ...
Guðfinna
Guðfinna
8. Maí 2005
RÚV OG FRÆÐSLUGILDIÐ
...Þegar skoðaður er listi yfir þá hagsmunaaðila sem fengu nýtt frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið til umsagnar er þar langur listi samtaka “menningarvita” en einungis einn aðili til umsagnar um fræðslugildi, Hagþenkir. Til að fyllsta jafnræðis sé gætt ætti hið minnsta að senda frumvarpið til umsagnar hjá Reykjavíkurakademíu, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Kennarasambandinu o.s.frv. Af þessu má ljóst vera að viðhorfsbreytinga er þörf ekki síður í ...
Á.Þ.
Á.Þ.
6. Maí 2005
JÁ, HVAR VAR ÖGMUNDUR EIGINLEGA OG HVAR VAR HANN BJÖRN INGI?
...Á heimasíðu sinni ræðst Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, að Ögmundi Jónassyni vegna framlags hans á útifundinum í Reykjavík á baráttudegi launafólks, 1. maí. Björn Ingi spyr fyrst með þjósti og varpar síðan nokkrum fúleggjum eins og ungum framsóknarmönnum er svo tamt í seinni tíð. Svona líta kræsingar aðstoðarmanns forsætisráðherra út, orðrétt... Að mínum dómi er það meira en skiljanlegt að ræða Ögmundar hafi farið fyrir brjóstið á Birni Inga og kumpánum hans - það er í hæsta máta eðlilegt að talsmenn gróðahyggjuaflanna fari með fúkyrðaflaumi og ...Ljóst er hins vegar að hann fór ekki með nein ósannindi um hvað húsbændurnir á stjórnarheimilinu töluðu ekki um á afmælisfundinum, ef marka má umfjöllun Morgunblaðsins 23. apríl síðastliðinn. Það getur Björn Ingi sannreynt ef hann kærir sig um. Afmælisfagnaðinn allan ...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
4. Maí 2005
BÆÐI ÁGÆT, EN HVORUGT NÓGU GOTT!
Ég reyni að fylgjast með öllu sem ég sé um formannskjörið í Samfylkingunni. Margt vekur þar athygli mína og undrun. T.d. að enginn skuli segja það sem mér finnst vera kjarni málsins... Gaman væri að heyra þitt álit....Menn minnast þess einnig að enginn vildi byrja við stýrið þegar Samfylkingin var stofnuð nema hann. Ingibjörg lét þá hvergi sjá sig og stundaði það reyndar á þeim tíma að sverja Samfylkinguna af sér...En það sem ég ætlaði að nefna er að sonur minn, sem er í tónlistarnámi, hann fékk allt í einu sendan atkvæðaseðil í þessari formannskosningu hjá Samfylkingunni án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Hann heldur helst að einn bekkjarfélagi sinn hafi skráð hann eða jafnvel einn kennarinn sem er í Samfylkingunni. Ég hef velt því fyrir mér hvort ...
J.G. fyrrv. Kvennalistakona
J.G. fyrrv. Kvennalistakona
2. Maí 2005
SAMMÁLA ÁRNA GUÐMUNDSSYNI UM DYLGJUR ÚR RÁÐUNEYTI
Ég var mjög sammála formanni félagsins míns, Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, þar sem hann mótmælir ruglinu úr aðstoðarmanni Halldórs Ásgrímssonar, Birni Inga Hrafnssyni. Hann leyfir sér að gera því skóna á skrifum á heimasíðu, sem síðan hefur verið haft eftir í blöðum, að varðstaða BSRB um almannaþjónustu og mannréttindi sé eitthvert þröngt pólitískt hagsmunapot frá þér komið Ögmundur...Skyldi þetta vera gert með vitund og vilja ráðherrans? Ég hvet fólk til að sjá hvernig Árni vísar dylgjum Björns Inga til föðurhúsanna. Það má sjá hér...
Hafnfirðingur í BSRB
Hafnfirðingur í BSRB
1. Maí 2005
ÚT VIL EK
...Íslendingarinir verða í skrýtinni stöðu. Í Afganistan njóta þeir stöðu hermanna sem væru þeir hluti af innrásarliðinu. Á herlausu Íslandi eru þeir þó óbreyttir borgarar. Þeir eru ýmisst eða, bæði og ! Huggun er að þúsundir málaliða og vígamanna frá ýmsum löndum starfa í Afganistan á svipuðum forsendum. Landið er löglaust og þar talar vopnavaldið. Þar skipta íslensk lög eða alþjóðalög engu máli. Hver bjargar sér sem best hann kann með hönd á gikk. Framlag Íslands er þjónusta við heimsveldið sem ber ábyrgð á hernámssvæðinu Afganistan. Vonandi meiða Íslendingarnir hvorki sjálfa sig né aðra við ...
Baldur
Baldur
27. Apríl 2005
VARAÞINGMAÐUR FRAMSÓKNAR OPNAR FÝLUPOKANN OG STURTAR YFIR ÞJÓÐINA
...Er nema von að menn velti því fyrir sér hvort hugur fylgi máli hjá Framsóknarflokknum í því nauðsynjamáli að opinbera fjármál stjórnmálaflokkanna og ráðamanna til að sporna gegn spillingu, sem sannarlega hefur til að mynda grasserað í stórfelldri einkavæðingu undanfarinna ára. Í þeim efnum öllum hefur Framsóknarflokknum orðið einstaklega vel ágengt og vissulega hefur flokkurinn að stórum hluta haft “forgöngu um þá vinnu”, svo notuð séu digurbarkaleg orð varaþingmannsins hér að ofan, og stýrt henni af mikilli leikni...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
27. Apríl 2005
SAMTÖK UM BÆTTA VÍNMENNINGU EÐA UM HEIMDALLARPÓLITÍK?
...Þegar leið á umræðuna kom betur og betur í ljós að samtökin tala greinilega fyrst og fremst máli þeirra sem vilja afnema ÁTVR og koma vínsölu inn í almennar matvöruverslanir. ... Mér fyndist heiðarlegra að samtökin kenndu sig við þann málstað en ekki bætta vínmenningu. Fólk á að koma hreint fram og undir réttu flaggi.
Sunna Sara
Sunna Sara
26. Apríl 2005
SPRETTHARÐARI EN HRYGNA ,VÍÐSÝNNI EN ÖRN
...Jón þessi bregður upp ógleymanlegri lýsingu á eiginleikum Ingibjargar og birtast allir þeir miklu mannkostir á heimasíðu hennar, ingibjörgsolrun.is. ...Kannski - og vonandi - eru þessar athugasemdir mínar á einhverjum misskilningi byggðar; kannski skil ég heldur ekki hugtökin umræðustjórnmál og lýðræði. En ef svo skyldi nú vilja til að málflutningur minn hér að ofan sé amk. á einhverjum rökum reistur verður því naumast neitað að sporin hræða. Í stjórnmálum almennt hafa nefnilega dýrðardyndlar sjaldnast reynst vel. Oftast hafa þeir unnið gegn frjálsri hugsun og undantekningarlaust er afar takmarkað rúm fyrir lýðræði, og þá helst bara að nafninu til...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
19. Apríl 2005
ÓTRÚLEGA MIKIL UMFJÖLLUN UM EINN MANN?
Ekki veit ég hvort viðræðuþátturinn við Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra í Ríkissjónvarpinu var hugsaður sem grín eða alvara af hennar hálfu. Valgerður var mætt á vettvang til að svara fyrir einkavæðingu ríkisstjórnarinnar. Hún sagði að það væri "ótrúlega mikið fjallað bara um einn þingmann" í sambandi við hagsmunatengsl einkavæðingarinnar. Ég tek undir með Valgerði að það er ótrúlega mikið fjallað um ...
Sunna Sara
Sunna Sara
15. Apríl 2005
BELTI OG AXLABÖND
Við í Snotru höfum verið að velta því fyrir okkur hvort maður þurfi að virkilega fara í Kvennó til að læra að girða sig. Samanber...Ég man ekki betur en þetta sé gamall frasi frá þér Ögmundur um beltið og axlaböndin þegar þú líktir verðtryggingu og breytilegum vöxtum við belti og axlabönd. Valgerður át þetta síðan upp og ekkert nema gott um það að segja að hún hrífist af frasanum. Hér í Snotru finnst okkur þó svoldið sérstakt hve Valgerður ráðherra virðist vera upptekin af því að fólk girði sig vel. Þegar ég var í bændaskólanum forðum daga og við buðum stelpunum í Kvennó og í Húsmæðraskólunum á
Runki frá Snotru
Runki frá Snotru
11. Apríl 2005
HOLDGERVINGUR STJÓRNARSTEFNUNNAR Í BÆTTUM LÍFSKJÖRUM OG STÓRBÆTTRI DREIFINGU LANDSINS GÆÐA
...En niðurstaðan er þessi: Verðmæti eignasafns Björgólfs Thors Björgólfssonar sem hrannast hefur upp á síðastliðnum 15 árum nemur 83 milljörðum íslenskra króna ef marka má úttekt hins virta ameríska tímarits, Forbes. Er þar væntanlega gengið út frá hreinni eign og hefur þá Björgólfur borið úr býtum að meðaltali röskar 15 milljónir króna á degi hverjum frá um 1990 og allt til ...En af hvaða erfiði hefur þessi einstaklingur þénað svona vel? Nú þekki ég ekki gjörla hvað hann hefur haft fyrir stafni frá 1990 en þó er mér kunnugt um að hann hefur komist yfir nokkur ríkisfyrirtæki, bæði hérlendis og erlendis, á umliðnum árum. Getur verið að útsölur undanfarinna ára og jafnvel hreinar gjafir á eignum almennings séu svona ábatasamar? Áfergja athafnaskálda landsins í kringum sýningarbás ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu þar sem Landssíma Íslands hefur nú verið stillt upp til “sölu” gefur vísbendingar þar um. Ekkert skal þó fullyrt um þessa tengingu að sinni en hitt er víst að ...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
7. Apríl 2005
FYRIRSPURN UM STARFSLOKASAMNING –GRÍN EÐA ALVARA?
Ég les í Fréttablaðinu í dag að fréttastjórinn sem aldrei kom til starfa á Ríkisútvarpinu muni fá starfslokasamning. Í blaðafréttinni segir m.a...Nú spyr ég þig Ögmundur sem formann BSRB, er þetta grín eða alvara? Er málið ekki frágengið? Myndu menn almennt fá starfslokasamning við slíkar aðstæður, það er að segja, þegar þeir, að eigin ósk, taka ekki við því starfi sem þeim hafði verið veitt? Þetta er almenn prinsipp spurning og þess vegna spyr ég þig ekki í eigin nafni heldur sem almennur félagsmaður í verkalýðssamtökum...
BSRB félagi
BSRB félagi
4. Apríl 2005
BANKAR Í FASTEIGNABRASKI
Ég tók eftir því að þú varst að leita fyrirspurna um banka í fasteignabraski. Mér datt í hug að þú hefðir áhuga á að vita að Frjálsi fjárfestingabankinn er að leika sér að fólki í fasteignakaupum. Ég lenti í að kaupa íbúð af aðila sem Frjálsi fjárfesingabankinn fjármagnaði og sá aðili stóð ekki við sitt og tafðist afhending frá því í ... Einnig vakti það athygli mína að bankar mega lögum samkvæmt ekki stunda fasteignabrask en Frjálsi fjárfestingabankinn á hins vegar fasteignafélagið Hlíðar sem er að kaupa upp mikið af lóðum í Norðlingaholti...
Friðbjörn
Friðbjörn
28. Mars 2005
FALLINN MEÐ FJÓRA KOMMA NÚLL
Er orðin frekar uggandi yfir endurteknum dæmum um það hvernig hagsmunum eigenda fjölmiðlasamsteypu Baugs og fréttum er blandað saman. Dæmunum fer fjölgandi. Þegar Páll fréttastjóri Stöðvar 2 samdi við Baug um að flytja Bobby Fischer til Íslands í einkaþotunni sem eigendur 365 ljósvakamiðla hafa aðgang að brást hann áhorfendum frétta. Þegar hann svo stuðlaði að því að fréttamaður Stöðvar 2 leiddi Fischer inn í bíl á vegum fyrirtækisins þá brást hann sem fréttastjóri. Þegar hann svo svippaði sér upp í framsæti jeppans á teinóttum jakkafötunum þá varð öllum sem á horfðu ljóst að þarna fór leikstjóri sýningarinnar. Fréttastjórinn sem í krafti fjár eiganda fjölmiðlaveldisins gerði allt sem í hans valdi stóð til að...
Ólína
Ólína
24. Mars 2005
ÞAÐ Á EKKI AÐ ÞAGGA NIÐUR Í FISCHER
Bobby Fischer segir að loka eigi herstöð Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli og reyndar líka sendiráði Kana. Eftir þessar yfirlýsingar var sagt að Bobby væri geðveikur. Ekkert veit ég um geðheilbrigði Bobbys Fischers. En ekki þykir mér þessar yfirlýsingar vera neitt annað en heilbrigðisvottur og svolítið hallærislegt að hlusta á stuðningsmenn hans, skelfingu lostna, reyna að þagga niður í honum. Hvað á maðurinn að segja, hnepptur í varðhald að kröfu Bandaríkjastjórnar fyrir að tefla á Balkanskaganum í trássi við kröfur herveldisins sem var þá í tímabundnum ofbeldisaðgerðum þar. Síðan hefur þessi maður þurft að sæta ...
Haffi
Haffi
22. Mars 2005
HERSETAN OG NIÐURLÆGINGIN
Ég sé í fréttum að fulltrúar Bandaríkjanna muni koma til landsins í apríl til að ræða við íslensk stjórnvöld um áframhaldandi hersetu á Íslandi. Íslensk stjórnvöld álykta að mikið sé í húfi að halda hersetunni í landinu, þar sem um sé að ræða atvinnusköpun á Suðurnesjum fyrir Íslendinga og telja jafnvel að það væri hagkvæmt að íslenskir skattgreiðendur greiði í það minnsta hluta fjárhagskostnaðar Bandaríkjanna við að halda hernum og skrani hans í landinu. Það er farið að ræða minna um hersetuna í samhengi við varnarmál, enda er flestum háðulegt öfugmæli. Nú skulu bandarískir skattgreiðendur greiða niður atvinulífið með áframhaldandi óþarfa hersetu ...
Helgi
Helgi
18. Mars 2005
HVER ER BALDUR OG HVER KONNI?
...Fróðlegt væri að heyra fréttmenn spyrja Finn Ingólfsson út úr um fréttastjóramálið. Framsóknarmenn í Reykjavík hvísla um það lágt að hann hafi í fárra manna hópi látið að því liggja, áður en matsferli Markúsar Arnar Antonssonar um umsækjendur var yfirstaðið, hver fengi starfið. Sömu menn hvísla um að Finnur Ingólfsson gangi undir nafninu “ósýnilegi maðurinn”, að hann sé maðurinn á bak við aðförina að Siv Friðleifsdóttur og kominn í þá sterku stöðu að vera með lyklavöldin að margslungnum leyndardómum Framsóknarflokksins. Hver er nú...
Ólína
Ólína
13. Mars 2005
ER HÆGT AÐ VERA VANHÆFARI?
Ótrúleg frétt var að berast: “Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, hefur sagt sig úr stjórnum Almenna lífeyrissjóðsins, Bakkavarar og Sindra hf. Brynjólfur situr að auki í stjórnum fleiri fyrirtækja. Bakkavör og fleiri fyrirtæki, svo sem KB-banki, eiga hlut í Meiði, fjárfestingafélagi sem hefur áhuga á að kaupa Símann..."...Það er sérstaklega tekið fram að hann ætli ekki að segja sig úr öllum fyrirtækjum sem hann situr í. það þýðir væntanlega að þau ætla ekki að kaupa Símann, það veit hann allavega. Maður sem situr í stjórn fyrirtækja hlýtur að eiga umtalsvert í viðkomandi fyrirtækjum eða vera fulltrúi klíku. Hvort Brynjólfur er í stjórn eða...
Rúnar Sveinbjörnsson
Rúnar Sveinbjörnsson
12. Mars 2005
VERÐUR LALLI NÆSTI LÖGREGLUSTJÓRI Í REYKJAVÍK?
Í tengslum við sérdeilis ósvífna valdníðslu við val og ráðningu fréttastjóra á fréttastofu RÚV laust því niður í kollinn á mér að ráðning Auðuns Georgs Ólafssonar væri svona álíka ráðstöfun og að dómsmálaráðherra mundi – að undangengnu vandlegu forvali milli hinna hæfustu manna - skipa Lalla Johns í embætti lögreglustjórans í Reykjavík. En við nánari umhugsun komst ég að sjálfsögðu að þeirri niðurstöðu að þarna væri ólíku saman að jafna. Lalli, einn þekktasti og jafnframt ...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
11. Mars 2005
ÞEGAR HVÍN Í ROKKUNUM
Ég hlustaði á þig á Talstöðinni í gær Ögmundur og er sammála þér að fráleitt er fyrir Framsóknarflokkinn að reyna að hvítþvo sig af ráðingarmálinu í RÚV þótt það kunni að vera rétt að sá nýráðni sé ekki flokksbundinn framsóknarmaður og að ákvörðun hafi ekki verið tekin á þingflokksfundi Framsóknar. Auðvitað eru þarna spunamenn flokksins að ..
.Haffi
.Haffi
8. Mars 2005
HAGSMUNATENGSLIN Á NETIÐ STRAX!
Danska ríkisstjórnin gerði kjósendum sínum grein fyrir því í dag í hvaða fyrirtækjum ráðherrarnir eiga. Þetta er gert til að almenningur megi sjá hvar hagsmunir ráðherranna eru. Forsætisráðherrann í Danmörku vill að ráðherrarnir geri hreint fyrir sínum dyrum gagnvart kjósendum. Í flóknu þjóðfélagi þar sem viðskiptahagsmunir einstaklinga geta hæglega tengst pólitísku valdi er þetta nauðsynlegt. Anders Fogh Sörensen hefur einfaldlega sett listann yfir eignir ráðherranna í fyrirtækjum á heimasíðu forsætisráðuneytisins. Slóðin er...
Stefán
Stefán
5. Mars 2005
SPILAFÍKN
Ögmundur við höfum rætt um félaga okkar og vini sem spilafíknin hefur tekið af öll völd. Einstaklinar misst aleigu sína. Yfirleitt er þetta vel gefið fólk, fíknin fer ekki í manngreinarálit fremur en alkahólsimi. Dapurlegast er þó að ...Geta eftirfarandi tillögur hreyft við málinu? ...
Rúnar Sveinbjörnsson
Rúnar Sveinbjörnsson
4. Mars 2005
STOFNANAHYGGJA HJÁ FRAMSÓKN
Það er greinilegt að í forystu Framsóknarflokksins er nú vaxandi áhugi á að Íslendingar haldi inn í í Evrópusambadið. Um þetta fóru fram umræður á nýafstöðnu þingi flokksins. En hvað er að gerast á vettvangi Evrópusambandsins? Ég nefni þjónustutilskipunina sérstak lega sem dæmi um ákvörðun ES sem kæmi til með að hafa bein áhrif á okkur ef hún yrði samþykkt. Ekki múkk um þetta hjá Framsókn. Enginn áhugi á innihaldi, aðeins umbúðum, bara hrá...
Hafsteinn Orrason
Hafsteinn Orrason
1. Mars 2005
OF FLÓKIÐ FYRIR ÞJÓÐÓLF
...þá finnst mér rétt að svara þér fáeinum orðum og játa um leið að þú hefðir vel mátt vera miklu fyndnari á minn kostnað. Ég hefði haft gaman af því, en þar sem „framlag” þitt til þarflegs samtals um RÚV bendir til þess að þú sért enn hræddari við stærðfræði en jafnvel ég, þá voga ég samt að spyrja þig: hvernig vilt þú tryggja RÚV nauðsynlegar tekjur á annan hátt en að reikna út skjástærðir og annað þess háttar (og hafa þar með her af gluggagæjum til að mæla)? Ég get komið með lagfæringu á þínu frumlega innleggi og hún er svona...
hágé.
hágé.
27. Febrúar 2005
RIDDARAR HAGSMUNAGÆSLUNNAR
Þakka svar. Ég er sammála þér um að fjölmiðlar hafi vanrækt skyldu sína vegna hlutverksins sem þeir þykjast stundum hafa og kallast að veita stjórnmálamönnum og fyrirtækjum aðhald. Innantóm orð á Íslandi. Það er rétt hjá þér líka að Morgunblaðið hefur haft uppi mesta viðleitni til að kortleggja atvinnulífið, en ritstjórn blaðsins er svo pólitísk að henni dettur ekki í hug að fjalla um það í leiðurum sem á þessu sviði er sett faglega fram á síðum blaðsins. Ég varð mér úti um samantekt blaðsins frá 5. febrúar 2004 um viðskiptablokkirnar í landinu. Þetta er góð úttekt og forvitnileg og hefði átt að kalla á miklar umræður í samfélaginu og á hinu pólitíska svið þar sem þú ert Ögmundur, en svo varð ekki. Þarna var fjallað um kaup S-hópsins á 45,8% hlut í Búnaðarbankanum. Stjórnmálamenn komu að því máli ofan, undir, til hliðar og aftan við Þarna er líka mikið fjallað um tryggingafélagið VÍS sem er stjórnað af hægri hönd forsætisráðherra. Þarna er kominn fyrirliði S-flokksins Finnur Ingólfsson fyrrverandi iðnaðar-og viðskiptaráðherra. Ég hef ekki hugmynd um Ögmundur hvort bróðir Halldórs Ásgrímssonar er ennþá í stjórn VÍS (eins og hann var þegar Morgunblaðið birti úttekt sína í febrúar í fyrra) sem fékk að kaupa Búnaðarbankann með ...
Stefán
Stefán
26. Febrúar 2005
SPILLING Í SYSTURFLOKKNUM
Ég hef stundum undrast þá miklu umræðu sem oft sprettur upp á hinum Norðurlöndunum þegar uppvíst verður að stjórnmálamenn þar eru nátengdir fyrirtækjum. Þegar í ljós kemur að þeir eiga í fyrirtækjum sem til dæmis eru í viðskiptum við ríki eða sveitarfélög eða tengjast stjórnmálalífinu eða öðrum hætti. Ég undrast vegna þess að hér hafa fjölmiðlar ekki gert mikið úr svona tengslum. Nýjustu dæmin um þetta eru að Sören Gade, varnarmálaráðherra, er einn af stórum hluthöfum í rússnesku svínabúi, og að eiginmaður þróunarmálaráðherrans...Þætti þér eðlilegt að fjölmiðlar beindu sjónum sínum að tengslum stjórnmálamanna hér við fyrirtækin í landinu, eða að eign stjórnmálamanna í fyrirtækjum...?
Stefán
Stefán
26. Febrúar 2005
ER PUNGUR Á VALGERÐI?
Skjár einn var tekinn í bakaríið á dögunum fyrir að sjónvarpa enskum knattspyrnuleikjum með enskum þulum en ekki íslenskum. Fróðlegt verður að sjá hvað gerist á sjónvarpsstöðinni Sýn í dag þar sem keppni framsóknarmanna í hrútspungakasti verður sýnd í beinni útsendingu. Spurningin sem brennur á vörum þeirra sem...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
24. Febrúar 2005
AF HVERJU BORÐA FORYSTUMENN FRAMSÓKNAR TINDABIKKJU?
Spakur maður sagði forðum að maðurinn lifði ekki á orðum sínum einum saman þótt vissulega þyrfti hann stundum að borða þau. Þetta á einkar vel við forystumenn Framsóknarflokksins þessa dagana og reyndar gott betur. Þeir hafa ekki við að éta ofan í sig alls kyns yfirlýsingar út og suður – vambirnar eru bókstaflega útkýldar. Nýjasta dæmið hér um er Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og snýst um nokkurra daga gamla yfirlýsingu hennar um einkavæðingu Landsvirkjunar. Hún kannast varla við orð sín lengur og reynir án afláts að éta ofan í sig einkavæðingar-óþverrann. Þessi viðleitni Valgerðar væri auðvitað afar virðingarverð ef hún héldi...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
24. Febrúar 2005
FJÖLMENNINGIN OG SVÍNAPYSLAN
Ég vil þakka fyrir mjög umhugsunarverða umfjöllun um sambúð/aðskilnað ríkis og kirkju hér á heimasíðu þinni í kjölfar ráðstefnu VG um þetta efni um síðustu helgi. Reyndar fannst mér vangavelturnar um fjölmenningarsamfélagið mest spennandi. Sannast sagna er ég nokkuð sammála þeim Hönnu Ragnarsdóttur og Kristínu Dýrfjörð um þetta efni; Hönnu að því leyti að hún vill ...
Hafsteinn Orrason
Hafsteinn Orrason
23. Febrúar 2005
VIÐ HVAÐ Á AÐ MIÐA AFNOTAGJÖLDIN?
Ég vil þakka Helga Guðmundssyni fyrir hugleiðingar hans um afnotagjald ríkisútvarpsins og framtíðarskipan þar á. Báðir viljum við öflugt ríkisútvarp og er það vel. Helgi gefur því á hinn bóginn undir fótinn að afsala öllum auglýsingum og þar með tekjum af þeim til einkastöðva. Slíku er ég alfarið á móti. Þá telur hann ráð að tengja útvarpsgjöldin við gjöld af fasteignum og veltir upp ýmsum möguleikum í því sambandi. Ekki er ég fráhverfur því að afnotagjaldið taki mið af rúmmetrafjölda húsnæðis, en það er einmitt einn valkosturinn sem Helgi sér í stöðunni. En ef ...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
21. Febrúar 2005
ÓBILGIRNI GETUR LEITT TIL EINANGRUNAR
Umfjöllun þín um málþing VG um samband ríkis og kirkju vekur óneitanlega margar spurningar. Þótt ég hafi ekki verið staddur á þinginu fannst mér ég fá góða innsýn í umræðuna. Það áhugaverða var í rauninni ekki spurningin um aðskilnað ríkis og kirkju heldur hitt hvernig fjölmenningarsamfélagið bregst við fólki af mismunandi trúarhópum. Þar fannst mér frásögn þín af erindi Hönnu Ragnarsdóttur, lektors við Kennaraháskólann einkar athyglisverð. Þótt ég sjái hvað þú ert að fara þegar þú tekur þá nálgun að "fólkið" eigi að laga sig að stofnunum samfélagsins, fremur en að stofnanir samfélagsins lagi sig að fólkinu þegar trúarbrögðin eru annars vegar. Viðfangsefnið sé ...
Grímur 107
Grímur 107
20. Febrúar 2005
MÁ ÉG ÞÁ BIÐJA UM DALLAS
...Það var umhugsunarvert við sjónvarpsþáttinn í RÚV í kvöld að ekkert var rætt um áherslur í stjórnmálum, aðeins um titla og vegtyllur. Af hverju er ekki spurt út í afstöðu þeirra Össurar og Ingibjargar Sólrúnar til brennandi mála líðandi stundar og framtíðarsýn? Það mætti til dæmis ræða einkavæðingu í velferðarþjónustunni, heilbrigðiskerfi og skólakerfi, til dæmis spyrja um afstöðuna til Áslandsskóla. Þetta yrðu þá að vísu ekki lengur þættir um fjölskyldudrama heldur eitthvað miklu leiðinlegra, stjórnmál. En ef ...
Sunna Sara
Sunna Sara
20. Febrúar 2005
NATO GETUR BARA DREPIÐ, EKKI BJARGAÐ
Fram kom í fréttum að í það minnsta 1000 börn hafi látist úr kulda og hungri í Afganistan. 28000 manns eru sögð í bráðri hættu. Foreldrar gefa börnum sínum ópíum til að lina þjáningar þeirra. Á sama tíma eru öflugustu tæki veraldar til staðar í Kabúl á vegum Nató og Bandaríkjamanna en með þeim er bara hægt að drepa, ekki bjarga. Þetta stríð studdu allir flokkar á Íslandi nema VG, er það ekki rétt ...
Rúnar
Rúnar
17. Febrúar 2005
TIL HAMINGJU MEÐ VIÐURKENNINGUNA JÓHANNA
Mig minnir að ég hafi séð haft eftir verkamanni úr Spunaverksmiðju hringsins í blaði að rannsóknarblaðamennska væri sprelllifandi á Íslandi. Ég neita því ekki að ég varð hugsi þegar ég las þetta og velti nokkuð fyrir mér ummælunum. Svo kom að því að blaðamenn lyftu sér upp og skiptu með sér blaðamannaverðlaunum. Um þau má hafa langt mál og vafalaust sýnist sitt hverjum um þá sem tilnefndir voru. Það sem mér þykir merkilegast við þessi blaðamannaverðlaun er að Jóhanna Kristjónsdóttir skuli ekki hafa verið tilnefnd til verðlauna fyrir ...Gott að til var Hagþenkir því Jóhanna á skilið að fá verðlaun fyrir blaðamennsku sína. Blaðamannasamtökin og dómnefndin hefðu...
Stefán
Stefán
17. Febrúar 2005
HVAÐ GERÐI KRISTINN AF SÉR?
Í fréttum er nú rækilega tíundað að mikil sátt hafi skapast innan þingflokks Framsóknarflokksins. Okkur er sagt að þingflokkurinn hafi komið saman til kvöldmáltíðar og yfir þrírétta máltíð tekið Kristinn H. Gunnarsson í sátt. Mér hefur þótt Kristinn maður að meiri fyrir að halda uppi merkjum sjálfstæðrar og gagnrýninnar hugsunar innan þingflokksins og þótt það fremur til marks um slappleika þingflokksins en styrkleika Kristins að hann hafi verið útilokaður frá áhrifum og hvers kyns vegtyllum fyrir afstöðu sína. Nú er það mál manna að þingflokkur Framsóknarmanna hafi ekkert breyst. Þess vegna held ég að glöggum manni, sem ég hitti að máli í dag, hafi ratast satt orð á munn þegar hann spurði...
N.N.
N.N.
16. Febrúar 2005
SKYLDI RÍKISSTJÓRNIN SKILJA SJÁLFA SIG?
Ég vil þakka Stefáni fyrir mjög upplýsandi bréf um hlutdeild Íslands í Íraksstríðinu hér á síðunni. Við lestur bréfsins rann upp fyrir mér að sennliega hafi ráðherrarnir tveir DO og HÁ aldrei fyllilega skilið hvað þeir voru að gera nema hvað Halldór hefur sennilega haldið að skuldbinding þeirra félaga hefði átt að leiða til þess að ...
Sunna Sara
Sunna Sara
15. Febrúar 2005
"RÍKISSTJÓRNARSJÓNVARPIÐ" TIL BJARGAR HALLDÓRI?
Alveg gengur fram af mér að sjá hvernig ríkissjónvarpið, sem greinilega væri réttara að kalla "ríkisstjórnarsjónvarpið", eltir Halldór Ásgrímsson þessa dagana fram og aftur um landið og kemur svo með hallærislegar langlokufréttir á kvöldin þar sem Halldór er yfirleitt ekki að segja nokkurn skapaðan hlut. Þegar hann er svo að fjalla um einhver deilumál líðandi stundar eins og einkavæðingu Símans með grunnnetinu þá fær hann einn að rausa um það og spilaðir langir eintalsþættir með þessu líka skemmtiefni þar sem hann tuðar um þetta á Verslunarþinginu eða yfir einhverjum hræðum á Framsóknarfundi á Selfossi. Ekki er svo mikið sem haft fyrir því ...Svo er sagt að Halldór sé með heilan hóp auglýsingamanna og áróðursmanna á launum hjá ríkinu...Hvað getum við skattborgararnir gert ..
Jóhann SG.
Jóhann SG.
15. Febrúar 2005
ENDURMENNTUN ALÞINGISMANNA
...Tilefni þess að spurningarnar vöknuðu hjá okkur yfir saklausum kaffibolla í kvöld eru yfirlýsingar forsætisráðherra eftir að hann fékk aftur málið. Fyrst ætlaði ráðherra að svara öllu um Íraksmálið sem þú birtir til allrar hamingju á netinu hjá þér. Eftir að hafa lesið viðtalið misstum við þráðinn í málinu öllu. Það lenti einhvern veginn allt í kross hjá kallinum. Svo ætlaði forsætisráðherra að útskýra Landssímamálið. Það lenti líka í tómu tjóni hjá ráðherranum. Fyrst segir hann að þjónustan batni með sölu Símans, svo segir hann að dreifikerfi landsbyggðarinnar batni við sölu Símans og svo bætir hann við í kvöld að fyrst vilji hann selja Símann og setja svo 800 milljónir í sjóð til að byggja upp dreifikerfi GSM meðfram þjóðveginum því enginn sé að sinna því. Í gærkvöldi fjallaði forsætisráðherra um afnotagjöld RÚV. Þau vill hann leggja niður af því þau séu barn síns tíma, rétt eins og menntamálaráðherrann sem er að bregðast við athugasemdum ESA sem hafa enn ekki borist! Þessi ruglandi og þessi þvæla er með slíkum endemum að...
Ólína
Ólína
11. Febrúar 2005
ÞEIR LJÚGA ENGU VESTRA
Það sem átti að verða skýrt reyndist svo loðið og teygjanlegt. Ég á við útskýringar forsætisráðherra á því sem gerðist í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Vestur í Bandaríkjunum hugsa menn skýrar og koma vel fyrir sig orði. Á blaðamannafundi um hádegisbil í utanríkisráðuneytinu bandaríska, 18. mars 2003, sagði Robert Boucher, talsmaður ráðuneytisins: “Það eru 30 lönd sem hafa fallist á að vera í hópi þeirra þjóða sem vilja afvopna Íraka tafarlaust. Þetta eru löndin sem við höfum leitað til og spurt: “Viljiði vera með?” og þau hafa sagt: “Já.” Talsmaður Colin Powells les síðan upp viljugu ríkisstjórnirnar og þar er Ísland á blaði...Það sem kannski er sérstaklega áhugavert við kattarþvott forsætisráðherra er að ráðherra er lítt og ekkert spurður um hinn langa aðdraganda þess að listi hinna viljugu landa verður til og vonandi hafiði í stjórnarandstöðunni meira þrek til að spyrja en kom fram í umræðum um málið í vikunni Ögmundur. Til dæmis um þetta...
Stefán
Stefán
10. Febrúar 2005
VAR ÞETTA KENNT Í LÆRÐA SKÓLANUM?
Ögmundur viltu spyrja fólkið þitt hjá símanum, hvernig 2-3 símaheimtaugar inn í hús, frá sitt hvoru símakerfinu geti lækkað símakostnað. Alla vega viljum við í Snotru aðeins eina símaheimtaug og eina rafmagnsheimtaug. Einnig nægir okkur eitt vatnsrör. Er ef til vill hægt að spara með að hafa...
Runki frá Snotru
Runki frá Snotru
8. Febrúar 2005
SÍMADÓNARNIR
Í lesendabréfi hér á síðunni fer Ólína mikinn út af því að Skjár einn skuli senda út knattspyrnuleiki með enskum þulum og þar á eftir ræðst hún harkalega að yfirstjórn Símans fyrir að bjóða notendum Breiðbandsins upp á kóngabláar myndir á Adult Channel.
Sammála er ég Ólínu um það að ekki er boðlegt að knattlýsingar fyrir Íslendinga fari fram á ensku. Hún lætur hins vegar vera að kvarta undan því að...
Með góðri kveðju,
Jón frá Bisnesi
Sammála er ég Ólínu um það að ekki er boðlegt að knattlýsingar fyrir Íslendinga fari fram á ensku. Hún lætur hins vegar vera að kvarta undan því að...
Með góðri kveðju,
Jón frá Bisnesi
6. Febrúar 2005
SIGUR LÝÐRÆÐISINS Í FRAMSÓKN
Eftirfarandi frétt var að berast . “Laganefnd Framsóknarflokksins hefur komist að þeirri niðurstöðu að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, sem haldinn var 27. janúar, hafi verið ólöglegur… Ég sendi þér línu um daginn Ögmundur, þar sem ég trúði ekki öðru en að flokkurinn gæti komið í veg fyrir fjölgun í flokknum og það konur. þeim tókst það. Eitt núll fyrir Framsókn. Gamlir félagar í flokknum geta nú aftur tekið gleði sína, allavega...
Runki frá Snotru.
Runki frá Snotru.
6. Febrúar 2005
OPINBERIR LÖGBRJÓTAR OG KLÁMHUNDAR?
...Mér finnst þetta vera svo mikið mál að það ætti að svipta Skjá 1/Símann útvarpsleyfinu, eða láta forstjórann fara og breyta ákvörðun hans. Þú mátt í leiðinni spyrjast fyrir um það hjá ábyrgðarmönnum Símans sem sendir dag hvern út klám á Breiðbandinu (Adult Channel) hvort þær útsendingar séu liður í menningarviðleitni hins opinbera, eða hluti af jafnréttisáætlun ríkisstjórnarinnar og Símans. H vernig á að vera hægt að gera kröfur til einkastöðva þegar hið opinbera fer á skjön við lög og úrskurði og hagar sér eins og hver annar klámhundur? Mér finnst í þessu enginn munur á framkvæmdastjóra súlustaðarins og forstjóra Símans. Þú mættir líka nefna stjórnarmenn Símans og Skjás 1 á nafn í máli þinu til að ...
Ólína
Ólína
5. Febrúar 2005
“KALDHÆÐNI ÖRLAGANNA” Í ÞJÓÐARBÓKHLÖÐUNNI
Ekki vísast hér til titils hinnar frábæru bókar eftir verðlaunahöfundinn Cassie Miles, sem út kom árið 1994, tilheyrandi þeirri ágætu rauðu seríu; Ástir og afbrot, og má sem flestar aðrar perlur bókmenntanna nálgast á þjóðbókasafni Íslendinga. Nei, hér vísast til ummæla Sigrúnar Klöru Hannesdóttur landsbókavarðar í DV í gær þar sem hún “harmar” nýskeðar “uppsagnirnar” á gamalgrónu starfsfólki Þjóðarbókhlöðunnar og segir það “kaldhæðni örlaganna að nýtt starfsmat sem færi starfsmönnum hærri laun þurfi að kosta nokkra þeirra vinnuna”. Með öðrum orðum kennir Sigrún þeim sem eftir sitja um atvinnumissi hinna. Þetta verður að teljast ...
Fyrrverandi starfsmaður Landsbókasafns Íslands í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Fyrrverandi starfsmaður Landsbókasafns Íslands í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
4. Febrúar 2005
TELUR ÞÚ AÐ BUSH MUNI SKERÐA ALMANNATRYGGINGAR?
Ef bandaríska þjóðin væri spurð þessarar spurningar myndi hún án efa svara játandi. Þar með væri ekki sagt að hún væri fylgjandi niðurskurði í tryggingakerfinu. Þetta datt mér í hug þegar ég sá skoðanakönnun Fréttablaðsins um Össur og Ingibjörgu Sólrúnu. Þar var spurt hvort þeirra menn teldu að myndi vinna í fyrirhuguðu formannskjöri í vor. Þeir sem hanna spurningar af þessu tagi vita að skoðanakannanir geta verið skoðanamyndandi. Eru þetta heiðarleg vinnubrögð? Ekki finnst mér það. Ekki svo að skilja að ég hafi...
Sunna Sara
Sunna Sara
3. Febrúar 2005
DAUÐINN Á GAZA KL. 23.00
Allt of sjaldan sinnir Ríkissjónvarpið því mikilvæga hlutverki að sýna athyglisverða og vekjandi þætti um alþjóðamál. Meðan svo er ástatt hlýtur það að vera lágmarkskrafa að það litla sem þó er boðið upp á sé sýnt á skikkanlegum útsendingartíma. En því er nú aldeilis ekki alltaf að heilsa. Í gærkvöldi var heimildarmyndin Dauðinn á Gaza á dagskránni og var kynnt á heimasíðu RÚV með eftirfarandi hætti...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
30. Janúar 2005
STÓRT OG LÍTIÐ
... þegar fréttamaður telur sig geta sannað að forsætisráðherra hafi sagt ósatt þá hljóti það að vera mál sem fréttastjóri þurfi að skoða sérstaklega áður en hann les aðfararorðin örlítið rjóður í kinn. Hafi Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, lesið og kynnt sér gögnin átti formaður fagfélagsins ekki að segja starfi sínu lausu ...
Stefán
Stefán
30. Janúar 2005
NEYÐARFUNDUR Í FRAMSÓKN
Í fréttum í dag kemur fram að Framsóknarmaddömurnar hafi verið á súpufundi á Hótel Borg. Rætt var um þann alvarlega atburð að 43 nýir félagar gengu í flokkinn. Laganefnd flokksins vinnur sleitulaust að lausn málsins samkvæmt fréttum, eftir að Framkvæmdastjórn hafði fjallað um málið. Er nema von að forystan sé furðu lostin, stefnan týnd, ekki má greina á milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins. 43 nýir félagar, það gengur ekki upp í deyjandi flokki. H ef ég misst af einhverju? Þau hljóta að geta ...
Runki frá Snotru.
Runki frá Snotru.
29. Janúar 2005
Vinstri grænn af öfund?
Mikil drift og hugmyndaauðgi hefur einkennt ráðherratíð framsóknarkonunnar Valgerðar Sverrisdóttur. Ég vil einungis tína til fáein dæmi þessu til sönnunar.
Af miklum rausnarskap gaf hún dugmiklum einstak lingum Landsbankann með húð og hári við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Þetta hafði engum stjórnmálamanni tekist áður. Af enn meiri rausnarskap gaf hún dugmiklum SÍS-drengjum Búnaðarbankann með húð og hári við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Þessa gjörð mun enginn leika eftir henni heldur. Af miklum dug, krafti og fyrirhyggju kom hún framkvæmdunum við Kárahnjúka í gang en þær hafa nú þegar...
Þorkell Hrafnkelsson frá Dratthalastöðum
Af miklum rausnarskap gaf hún dugmiklum ein
Þorkell Hrafnkelsson frá Dratthalastöðum
25. Janúar 2005
FRÁ ÖRBIRGÐ TIL ATHAFNA
Langt og farsælt samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í ríkisstjórn hefur borið ríkulega ávexti. Af mörgu er að taka en ég vil að þessu sinni vekja athygli á róttækri tilraunastarfsemi stjórnarinnar í málefnum þeirra sem þurft hafa á virkilegu stuðningsátaki að halda í lífsins þrengingum...Órækur vitnisburður hér um er að einmitt nú í þorrabyrjun flytur pressan okkur þau lygilegu en jafnframt ósegjanlega gleðilegu tíðindi að ... Björgólfur nokkur Thor Björgólfsson ...verði að líkindum fyrsti Íslendingurinn til að komast á lista Forbes yfir ríkasta fólk í heimi...
Jón frá Bisnesi
Jón frá Bisnesi
20. Janúar 2005
VANDAÐRI VINNUBRÖGÐ Í SAMFYLKINGUNNI?
Mikið er ég sammála Þórunni Sveinbjarnardóttur alþingiskonu í útvarpsfréttum í gær að þörf sé á vandaðri vinnubrögðum í Samfylkingunni. Hins vegar þykir mér hún vera djörf að fullyrða að slíkt yrði tryggt með Ingibjörgu Sólrúnu við stýrið í stað Össurar. Horfir hún kannski til Framtíðarnefndarinnar og vinnubragðanna þar? Skyldi það vera fyrirmyndin? Það er ekki langt síðan að sú nefnd sendi frá sér ...
Anna
Anna
18. Janúar 2005
40 ÍRASKIR STRÍÐSKLUKKUTÍMAR
... Ríkisstjórnin ákvað að gefa eina krónu á mann. Undan því kemst Davíð Oddsson ekki. Þvaðrið um að hvergi nokkurs staðar í heiminum sé neitt sagt í þessa átt (eins og gagnrýni VG) af einum né neinum (rétt eins og tal Björns Bjarnasonar um að allir í Evrópu nema VG vilji vera í NATO) er svo eftir öðru ... en í Bandaríkjunum hefur það verið gagnrýnt af mannúðarsamtökum og friðarhreyfingum að framlag höfðingjanna í Hvíta húsinu til hjálparstarfsins jafngildi rúmlega 40 klukkustunda stríðsrekstri í Írak miðað við það sem hann hefur kostað undanfarin tæp tvö ár ...
Haffi
Haffi
16. Janúar 2005
ÞEGAR MIKIÐ LIGGUR VIÐ
Þótt oft sé lífið þrungið heift og harmi
og hörmungarnar kvelji marga sál
þá býr í hverjum manni virkur varmi
og von sem getur tendrað mikið bál
því þegar hjörtun fyllast eymd og ótta
og angist rekur sálirnar á flótta
þá er rétt að okkar besti bjarmi
bæti öll hin mestu vandamál.
Kristján Hreinsson, skáld
og hörmungarnar kvelji marga sál
þá býr í hverjum manni virkur varmi
og von sem getur tendrað mikið bál
því þegar hjörtun fyllast eymd og ótta
og angist rekur sálirnar á flótta
þá er rétt að okkar besti bjarmi
bæti öll hin mestu vandamál.
Kristján Hreinsson, skáld
15. Janúar 2005
HVAR VAR KJÓLL VALGERÐAR?
Það var frábær hugmynd hjá Björgólfi Guðmundssyni að láta bjóða upp fötin sem hann klæddist þegar hann undirritaði "kaupin" á Landsbankanum og gefa andvirðið í söfnun til bágstaddra. Enn sniðugra var hjá Jóhannesi í Bónus að kaupa gallann á tíu milljónir. Það eina sem vantaði upp á, var að Valgerður iðnaðar- og bankamálaráðherra gæfi kjólinn sem hún var í þegar hún afhenti Björgólfi bankann. Það hefði farið vel á því að Landsvirkjun hefði keypt. Friðrik Sophusson hefði þó sennilega...
Sunna Sara
Sunna Sara
Frá lesendum
6. September 2010
AFTUR TIL MIÐALDA
Ögmundur, komdu með stuðning við frjálsar handfæra veiðar, þarna gætu orðið til þúsundir starfa, án þess að ríkið leggi til krónu, þetta gæti orðið næsta stóriðja. Það er búið að koma almenningi í sömu spor og á miðöldum, þú mátt ekki róa til fiskjar og fénýta aflann. Á meðan ræna örfáir útvaldir þjóðina lífsbjörginni með því að ryksuga fiskimiðin með verksmiðjuskipum, og skilja miðin eftir í rúst. Það eru 15.000 manneskjur atvinnulausar, þær mega ekki bjarga sér, þó til séu ...
aagnarsson
aagnarsson
5. September 2010
ÆTLAR AÐ FYLGJAST MEÐ
Það er einkennilegt þegar menn af vinstri vængnum vilja absólút dæma íslenskan verkalýð til ævarandi þrældóms; 60 stunda vinnuviku og hárra vaxta. Láta svo LÍÚ reka sjávarútveginn þannig að gengisfellingar verði notaðar til að leiðrétta reksturinn þegar búið er að uppfæra bílaflota stjórnenda og húsakost á Íslandi og Florida. Svo hugsar maður til baka og man þá að sá til vinstri einkavæddi ræstinguna á spítölum borgarinnar eins og að drekka vatn. ...
Villi
Villi
5. September 2010
LÁTIÐ JÓN Í FRIÐI
Erindi fagnaðar hefur nú nýverið verið boðað hvers innihald ber með sér staðfestingu á styrk Ögmundar og Jóns Bjarnasonar. Ég geld engu síður varhug við að hróflað verði við Jóni um næstkomandi áramót í aðdraganda stofnunar atvinnuvegaráðuneytis. Þá er viðbúið Ögmundur minn að þú þurfir að endurstílisera línuna sem forveri þinn úr samstarfsflokknum hafði lagt, en þá á ég við vegtolla og stapp við lífeyrissjóðina. Ég held aukinheldur í vonina um afturköllun aðildarumsóknarinnar sem og breyttan prófíl á undirlægjuhætti gagnvart AGS. Nú ríður á Ögmundur minn kæri að þú nýtir það bakland og þann styrk sem að baki því býr og mundu að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali
Óskar K Guðmundsson fisksali
4. September 2010
LOKSINS
Loksins, loksins ...er kominn ráðherra löggæzlumála, sem ekki er úr Sjálfstæðisflokki. Ég óska þér góðs gengis með þann málaflokk sem og aðra sem þú nú stjórnar. En gumar og mær Sjálfstæðis sitja víða við stjórn DMR og stofnana þess. Ætli matið á "hæfi" þeirra margra hafi ekki verið ákveðið með flokksgæðingaþukli pótintáta og þægðarstuðlum frekar en raunverulegu hæfi. Gangi þér líka vel að eiga við þann skrautlega hóp.
kveðja,
Ver
kveðja,
Ver
4. September 2010
UM BIÐLAUN OG LÍFEYRISKJÖR
Fyrst hægt er að greiða tugmilljóna biðlaun til fyrrverandi ráðherra og að varnarmálafulltrúi, eða hvað það hét, fær full laun í fjóra mánuði eftir að starfið er lagt niður,væri þá ekki bara sanngjarnt að þeir lífeyrisþegar sem hafa kr. 150 þúsund á mánuði eftir skatta, fái smáhækkun á þá forsmán....
Edda Ögmundsdóttir
Edda Ögmundsdóttir
31. Ágúst 2010
STEINHISSA
Ég er steinhissa á þér Ögmundur, að þú skulir láta það viðgangast og samþykkja að leyndarhjúpur megi hvíla yfir framlögum til stjórnmálaflokka. Af hverju tekurðu ekki upp þá stefnu að banna alfarið framlög til flokkanna, nema árgjald einstaklinga og framlag ríkisins.
Sigurður Þórðarson
Sigurður Þórðarson
27. Ágúst 2010
LÝÐRÆÐIÐ LEYSIR ALLAN VANDA
Mér þótti gott að sjá viðtalið við þig á mbl.is þar sem þú sagðir afdráttarlaust að þú vildir að ríkisstjórnin lifði. Reyndar hef ég aldrei efast um að þú vildir það enda sagðir þú þig úr ríkisstjórninni fyrir tæpu ári til að bjarga henni frá dauða. Svo einfalt var það. Það er hárrétt sem þú bentir á í viðtalinu á mbl.is að lausnin í ESB málinu er lýðræðið. Það er þjóðin sem kemur til með að ákveða málalyktir. Mér þótti gott hjá Jóni Bjarnasyni að benda á að samningaviðræðurnar gætu verið að þróast yfir í aðlögunarviðræður. Það má ekki gerast. Út úr þeim farvegi þarf málið að fara. Þetta þarf að gerast í ....
Grímur
Grímur
26. Ágúst 2010
ÁLIT ÚT OG SUÐUR
Mig hefur lengi grunað að stjórnmálamenn og þeir sem gegna embættum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekki er þetta vegna þess, held ég, að viðkomandi séu öll ólæs, þótt eitthvað kunni að skorta uppá næman skilningi fyrir samhengi hlutanna. Ég held menn hafi ekki nennt að lesa, eða þá að skýrslan hafi verið lesin á sama hátt og sagt var að ungir menn hafi lesið erlendar bókmenntir í skáldverkinu Gunnar og Kjartan eftir Véstein Lúðvíksson. Þetta segi ég i tilefni þess að viðskiptaráðherra lét gera enn eitt minnisblaðið, og nú um skyldu ríkisins til að standa undir innistæðutryggingum TIFs, eins og hann kallast í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Svo virðist sem augu nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd, sem þú situr í Ögmundur, hafi upplokist við lestur minnisblaðsins og efni þess hafi verið þér og ykkur framandi - að í því séu splúnkunýjar fréttir. Svo er ekki. Það einasta sem er óvenjulegt varðandi þetta minnisblað er, að ....
Hafsteinn
Hafsteinn
25. Ágúst 2010
HEFÐI ÁTT AÐ SPYRJA ÞJÓÐINA
Atlaga ríkisstjórnar að Jóni Bjarnasyni ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar er til varandi skammar og hann er ekki að fara með neitt fleipur. Þessi ríkisstjórn lagði úr höfn með bréfið til ESB vitandi það að 70% þjóðarinnar vill ekkert með það að gera. Þó svo að Alþingi hafi samþykkt að skoða málið hefði legið beinast við að bæta inn á kosningalistann við síðustu þjóðaratkvðagreiðslu, ertu þessu samþykkur eða ekki en því miður var það ekki gert. Því miður er núverandi verkstjórn á stjórnarheimilunu algjörlega óviðunandi og ummæli...
Þór Gunnlaugsson
Þór Gunnlaugsson
25. Ágúst 2010
VELJUM RÉTT HUGTÖK
Við skulum deila og vera ósammála. En notum ekki orðið einelti af faglegum ástæðum. Það er ekkert til sem heitir "pólitískt einelti". Hitt er ljóst að margir hafa deilt á Jón Bjarnason.
Gísli Baldvinsson
Gísli Baldvinsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
9. September 2010
Björn Jónasson skrifar: EINN RÁÐHERRA?
Svavar Gestsson, ágætur félagi um margra ára skeið og baráttumaður fyrir málstað launafólks alla sína tíð, setur fram merkilega kenningu í Fréttablaðinu þann 7. september 2010. Hún er svona: "Þegar ég skilaði niðurstöðu Icesave-samninganna vorið 2009 var almenn ánægja með niðurstöðuna víða, meðal annars í Morgunblaðinu. Þá gerðust þau undur að einn ráðherra ríkisstjórnarinnar gerði bandalag við stjórnarandstöðuna um að Ísland ætti ekki að borga". Vandinn við þessa kenningu er sá að samningunum var haldið leyndum í upphafi. Fyrst fyrir ríkisstjórn og síðan fyrir þinginu. Og síðan fyrir þjóðinni. Það var ekki fyrr en efni samninganna lak út til fréttastofu RÚV, nafnlaust í brúnu umslagi að efni þeirra var almenningi ljóst. Það gat aldrei orðið ánægja með eitthvað sem enginn vissi hvað var. Það átti að lauma samningunum í gegn án þess að þing og þjóð fengi um þá vitneskju. Þar var ekki við Svavar að sakast, heldur við ...
13. Ágúst 2010
Björn Jónasson skrifar: OLNBOGARÝMI Í BRUSSEL
Fjölmargir menntamenn og stjórnmálamenn hér á landi hafa notið góðs af auknu Evrópusamstarfi eftir gerð EES-samningsins. Sá samningur hefur ýmsa kosti, einkum á sviði styrkja, vísindasamvinnu og einnig hafa fjölmargir Íslendingar fengið vinnu í Brussel við eftirlit ýmiskonar og skjalagerð. Nægir að benda á að hópur Íslendinga og Norðmanna samdi álit Eftirlitsnefndar ESA um að íslenskir skattgreiðendur bæru ábyrgð á Icesave skuldum Landsbankans hf. Ragnar Arnalds skrifaði ágæta bók um EES samninginn og fann honum ýmislegt til foráttu. Meðal annars það að hann ýtir undir hrávöruframleiðslu en hamlar fullvinnslu afurða á Íslandi. Engir tollar eru á óunnum fiski (þeas. óflökuðum) en tollur á unnum fiski. Þetta gildir um fleiri afurðir og hefur leitt til þess að vinna hefur flust úr landi og nægir að minna á fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar sem fullvinnur afurðir í Hirsthals í Danmörku í stað Stykkishólms vegna þessa. Hægt er að færa rök fyrir því að...
4. Ágúst 2010
Baldur Andrésson skrifar: UM SKÚFFUR OG SKÖMM
...Forleikur að nýju átaki til einkavæðingar, sem í því tilviki er knúinn fram með engu minna ofstæki en fyrri daginn. Þessu síðara átaki er stýrt skipulega í anda AGS, eftir þekktri formúlu. Ríki og sveitarfélög eru sett í greiðsluklemmu, bönnuð lántaka. Ríkinu er fyrirlagt, við kreppu- aðstæður að draga úr framkvæmdum og eignavexti, því er ætluð bæklun, að búa við baklás AGS. Við blasa ógnir vegna ofurskuldsetningar OR og Landsvirkjun er ekki á góðu róli. Innan skamms er fyrirséð varnarstríð fyrir samfélagseign á þeim stórfyrirtækjum báðum. Ríkinu er fyrirmunað að eignast ný spítalahús, hvatt til sölu á öðrum. Nýjum almannavegum skal fyrirkomið í einkaeigu og jafnvel þeim gömlu, ef endurbóta er þörf. Megnið af fjármálafyrirtækjum er nú þegar á leið í hendur fjölþjóða braskara...












