Frá lesendum
30. Desember 2004
...Ríkisstjórnin hefur lofað 5 milljónum á sama tíma og eyða á að minnsta kosti 300 milljónum í svokallaða friðargæslu, þ.e. íslenska herinn. Krafan er að Íslendingar hætti að hreinsa eftir Bandaríska herinn og verji öllum peningum sem við það sparast til hjálparsarfs vegna náttúruhamfara. Ég fagna tillögu þingflokks VG um aukin framlög til hjálparstarfs...
Rúnar Sveinbjörnsson
29. Desember 2004
Mikið þykir mér alltaf átakanlegt þegar fjölmiðlarnir okkar smækka þjóðina niður í hið óendanlega með því að elta á röndum frægt fólk sem kemur hingað til lands. Heldur fannst mér lítið leggjast fyrir Ríkisútvarpið sem birti það sem eina helstu frétt í einum aðalfréttatíma sínum að leikarinn Kiefer Sutherland væri “í bænum”. Með þessu slúðri gerist Ríkisútvarpið óþægilega fáfengilegt fyrir ...
Sunna Sara
29. Desember 2004
Mig langar til að þakka séra Gunnari Kristjánssyni fyrir Pólitíska jólahugvekju, sem birtist hér á heimasíðunni í dálkinum Frjálsir pennar. Ég vil hvetja sem flesta til að lesa hana. Séra Gunnar, gagnstætt mörgum öðrum prestum, reynir nefnilega ekki að forða sér út úr samtímanum. Hann tekur á ...
Bjarni
29. Desember 2004
Finnist þér ekki meira vit í að gefa peninga til hjálpar fólkinu í Írak en að styðja einhvað stórblað í USA...?
Sigurbjörn Halldórsson
24. Desember 2004
Í austri var maður sem karlmönnum kenndi að hlýða
og konurnar lét hann fá festu sem engu var lík
hann ógnaði fólki og svo var hann stöðugt að stríða,
hann stærði sig jafnan af því hversu þjóð hans var rík.
En skósveinar auðvaldsins sögðu hann þjáningu þyngja
að þar færi maður með sprengju og heimtaði blóð.
Og heimurinn heyrði svo vopnin í vindinum syngja:
-Við erum hér til að hjálpa þér heiðingjaþjóð.
Kristján Hreinsson, skáld
23. Desember 2004
...Ég fylgist daglega með síðu Landsvirkjunar af framkvæmdunum, þar er sko allt í lagi. Til dæmis 21. des. 2004, trúði ég ekki, að enn væri 13 stiga hiti í Kárahnjúkum. Ég leit á síðu Veðurstofunnar, viti menn -20C og 20metrar á sekúndu. Samkvæmt síðunni er alltaf verið að slá met. T.d.: “Borvélarnar þrjár skiluðu alls um 600 metra löngum...
Snjólfur 19. Desember 2004
...Ég var svo lánsamur þegar stóriðjuævintýrinu 1968 lauk og atvinnuleysið skall yfir þá var nóg vinna í Evrópu og ég ungur rafvirki greip tækifærið og fór til Hamborgar í skipasmiðar. Í minni minningu voru Portúgalar sérlegar harðir karlar, sem gjarnan unnu erfiðustu störfin. Ástæða þessara pælinga er að fréttinni fylgdi að Kínverjar þessir væru sérlega harðir og hefðu reynst vel í Gula gljúfri ef ég man rétt...
Rúnar
18. Desember 2004
Frá því að nýju raforkulögin birtust fyrst, verður mér ávallt hugsað til ævintýrsins um Nýju fötin keisarans. Ríkisstjórnin með Halldór sem keisara, hirðin meiri hlutinn á Alþingi, klæðskerarnir lögfræðinga- og verkfræðingahjörðin hér og í ESB. Alþýðan erum við, en hvar er litli drengurinn? Höfum við kannski ekki lengur kjark til að hlusta á börnin.
Runki frá Snotru
15. Desember 2004
Eftirfarandi ljóð er að finna á samnefndri geislaplötu sem Kristján Hreinsson, skáld, er að senda frá sér um þessar mundir:
Af þjófunum birtast svo magnaðar myndir,
við meinum þeir finna ráð
með brosandi andlit við olíulindir
þeir árangri hafa náð.
Menn verðlauna íslenska umhverfissóða
sem arðræna þjóðarsál
og nota hér allan sinn olíugróða
í íhaldsins leyndarmál.
14. Desember 2004
Í leiðara Fréttablaðsins í dag er svo að skilja að blaðið fagni samkeppni í raforkumálum! Þetta hljómar undarlega því nú kemur á daginn að fyrstu kynni neytenda af samkeppninni verður hærra raforkuverð um áramótin þegar samkeppnisfyrirkomulag Valgerðar Sverrisdóttur og félaga verður að veruleika. Ekki heyrði ég betur en iðnaðarráðherrann hefði verið varaður við því á Alþingi fyrir þinglokin, að kerfisbreytingunni fylgdi kostnaðarhækkun fyrir neytendur þótt Valgerður reyni nú að þvo hendur sínar af öllu slíku. Þetta er ekki vandaður málflutningur og svo sannarlega ekki í samræmi við ...
Helgi
13. Desember 2004
Sannast sagna þykir mér virðingarvert hve vel BSRB er vakandi í alþjóðamálum. Ég sé á heimasíðu þinni, að formaður Póstmannafélagsins, Þuríður Einarsdóttir, er nú kominn til Japans á vegum BSRB ásamt Einari Ólafssyni, einnig frá BSRB og Gylfa Arnbjörnssyni frá ASÍ. Það er gott að BSRB einblíni ekki bara á Evrópusambandið en er þó vakandi yfir því sem þar er að gerast, sbr...
Félagi í BSRB
9. Desember 2004
...Í sambandi við kvótamálin spyr ég hvert auðlindagjaldið fari? Er ekki eðlilegast að það renni til þeirra byggða sem viðkomandi útgerðir og kvótar tilheyra? Svo var ég að komast að því að um áramótin þegar strandsiglingum verður hætt verða keyrðir 20.000 lítrar af maurasýru (notuð í rækjuvinnslu) einu sinni í viku til Siglufjarðar. Þess má geta að 25-30 lítrar eyða öllu lífi í Mývatni. Hvað er hægt að gera í þessum málum...
Finnur Sigurðsson
7. Desember 2004
Forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, laug í Kastljósi í gærkvöldi. Hann sagði þar orðrétt, "við vorum beðin um...að styðja það að Saddam Hussein væri komið frá á grundvelli ályktunar Sameinuðu þjóðanna nr. 1441". Síðar í viðtalinu endurtók hann að "við studdum það að koma Saddam Hussein frá" og vísaði aftur til margra (ótilgreindra) ályktana Sameinuðu þjóðanna sem heimild fyrir slíkri aðgerð. Halldór sagði ósatt. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna gerði aldrei neina samþykkt um að...
Elías Davíðsson
7. Desember 2004
...Vill hann þá að skattborgarinn styrki dreifbýlið? Hvaða tímaskekkju er hann að tala um eiginlega? Jafnvel þótt Íbúðalánasjóður væri með niðurgreidda vexti vegna ákvörðunar samfélagsins þá væri það engin tímaskekkja að mínu mati. En svo er nú einu sinni ekki. Staðreyndin er sú að hagsmunagæslumenn fjármagnsaflanna eru tímaskekkjan í okkar samfélagi. Þeir vilja stefna samfélaginu aftur til fortíðar ...
Hafsteinn Orrason
6. Desember 2004
Ég er mjög sátt við stefnu VG í skattamálum sem öðru. Stundum verð ég agndofa að fylgjast með Samfylkingunni í skattaumræðunni. Hún virðist vilja gera allt í senn, lækka skatta og auka útgjöldin! Er þetta trúverðugt? Öllum er lofað öllu fögru. Þá vil ég heldur staðfestu VG sem vill dreifa skattbyrðunum öðru vísi en nú er gert og breyta forgangsröðun við nýtingu skattfjárins. En flokkurinn neitar - og það finnst mér gott - að skrifa upp á...
Sunna Sara
2. Desember 2004
Eftir viðtal við breskan blaðamann í Ríkissjónvarpinu er ég að reyna að rifja það upp hverir studdu innrásina í Afganistan, sem gat af sér “Guantanamó-helvítið á jörð”. Voru það ekki allir flokkar að undanskildum Vinstri grænum...
Runki frá Snotru
26. Nóvember 2004
Staðan víst er orðin aum
og ekki lengur fyndin;
Björn á nú þann besta draum
að Bush sé fyrirmyndin.
Kristján Hreinsson, skáld
23. Nóvember 2004
Öryrkjabandalag Íslands birtir heilsíðuauglýsingu í blöðum í dag með mynd af ríkisstjórninni og áminningu um svikin loforð hennar gagnvart öryrkjum. Sviksemi ráðherranna við öryrkja þarf að halda hátt á lofti alveg fram að næstu Alþingiskosningum. Þessi mannskapur virðist komast upp með allt vegna gleymsku almennings og síðan að sjálfsögðu lýtaaðgerða...
Sunna Sara
22. Nóvember 2004
Hvernig stendur á þvi að um leið og bankastofnanir eru i samkeppni, þá eru þær farnar að taka gjald fyrir hvert einasta viðvik. Sparisjóðurinn i Smáralindinni tekur 190 kr. í afgreiðslugjald ef maður kemur eftir kl. 16:00 á daginn.
p.s. Hann opnar ekki fyrr en kl. 12:00. Hvað er i gangi hjá þessum fjármálastofnunum sem eru með þessa peninga sem eiga að vera til skiptanna i þessu þjóðfelagi?
Mansi
21. Nóvember 2004
Úr væntanlegri ljóðabók skáldsins:
Að fordæma samráð en fallast á stuld
og féfletta þjáningarbróður
er einsog að hlaupast frá ógreiddri skuld
og ásaka þann sem er góður.
Kristján Hreinsson, skáld
20. Nóvember 2004
Ég hef fylgst með skrifunum hér á síðunni, þar með taldar tilvísanir í skrif Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu, um hræringar í Norðurljósum og að Sigurður G. Guðjónsson kunni að hafa verið rekinn til að milda Davíð Oddsson og ríkisstjórnina. Það er rétt að Sigurður gagnrýndi oft Davíð og ríkisstjórnina. En heldur þykir mér ótrúlegt að menn ráði Gunnar Smára Egilsson í stað hans í því skyni að kaupa frið við Davíð&Co.! Hvernig í ósköpunum geta menn komist að ...
Nebúkadnesar
17. Nóvember 2004
Hví eru ýmsir svo argir
og öfundin svo sterk
þótt sjálfstæðismenn séu margir
og misjöfn þeirra verk?
Kristján Hreinsson, skáld
16. Nóvember 2004
Ég á erfitt með að skilja afstöðu Vg til stríðsins í Afganistan. Hvað hefðu Bandaríkin átt að gera? Ekkert? Er aldrei réttlætanlegt að fara út í stríð að ykkar mati...?
Sveinsson
16. Nóvember 2004
Vinstri grænir gefa sig út fyrir að vera náttúruverndarsinnar, en hversu langt nær sú hugsun? Hyggst flokkurinn gera eitthvað til að bæta hag annarra náttúruverndarsinna hér á landi, grænmetisætna, til dæmis með því að fá niðurfelldan munaðarvöruskatt á soyavörum...?
Erna
14. Nóvember 2004
Hinn auðmjúki, íslenski þræll
er ötull og víst er hann dæll
þótt kvalin hann störfin sín stundi
og stæri sig mest af því
að biðja um betri laun,
hann brosir að sinni raun
og líkist þá hógværum hundi
sem húsbóndinn sparkar í.
Kristján Hreinsson, skáld
13. Nóvember 2004
Mannréttindi ég stundum skil,
sem mennirnir séu jafnir.
En oftar ég þann skilning vil,
að við séum yfirhafnir.
Páll
11. Nóvember 2004
Margtuggið var í fréttum í dag að stjórnarandstaðan hefði ekki miklar væntingar vegna fundar Davíðs við stríðshaukanna í Bandaríkjunum. Ég er stjórnarandstæðingur og hef miklar væntingar af þessum viðræðum. Ég vænti þess að herinn fari og að sjálfsögðu göngum við úr Nató, þar sem við eigum ekki að byggja afkomu okkar á stríðsgróða og hermangi. Hvað með þig Ögmundur?
Önnur frétt, stjórnarandstaðan ætlar ekki að tefja lög á kennara, sem sennilega hafa alltaf verið markmið launanefndar sveitarfélaga. Hvað með þig Ögmundur, formaður BSRB?
Rúnar
10. Nóvember 2004
Nú atburður er orðinn stór
- ekkert þótti vænna
og borgarstjórinn burtu fór
í boði Vinstri-grænna.
Kristján Hreinsson, skáld10. Nóvember 2004
Undarleg tilveran. Þórólfur tilkynnir um að hann hætti mestan part vegna krafna fulltrúa VG ef marka má fréttir og eftir sitjum við hugsi... hvernig stendur á að olíufélögin hafa getað komið sér svona fyrir á 11 ára tímabili. Er hugsanlegt að Samkeppnisstofnun hafi orðið á í messunni, eða viðskiptaráðherrum síðustu 11 ára? Er kannske einhver í Samkeppnisstofnun, eða í viðskiptaráðuneytinu sem hefði átt að segja af sér? Arnarhváll var vinnustaður Finns Ingólfssonar um nokkurra ára skeið. Hann varð viðskiptaráðherra 1995 ef ég man rétt og sat hann þessi ljúfu samráðsár í embætti. Gæti verið eitthvað samband milli afskiptaleysis Samkeppnisstofnunar eða viðskiptaráðherra, hverjir áttu Essó á samráðstímanum og hverjir voru þar innstu koppar í búri...?
Ólína
9. Nóvember 2004
Hér á síðunni hefur þú oft vakið athygli á ýmsu uppbyggilegu sem er að gerast á róttækari væng stjórnmálanna, eða eigum við einfaldlega að segja, á þeim væng stjórnmálanna þar sem ekki ríkir doði og meðvitundarleysi. Mig langar til að vekja athygli á námssmiðju um NATÓ, sem á að hefjast á miðvikudaginn n.k. kl. 17-19 og á að enda í lok janúar. Nemendur hittast á tveggja vikna fresti. Staður...
N.N.
9. Nóvember 2004
...Hver ætti að vera hæfileg refsing fyrir samráðsglæp sem hefur kostað borgara þessa lands 40 miljarða, þegar hægt er að dæma mann í þriggja mánaða fangelsi fyrir að stela tímariti og oststykki? 4: Er ekki eitthvað mikið að siðferðislega þegar mönnum finnst þetta samráð bara sjálfsagður hlutur og koma umvörpum fram í fjölmiðlum og reyna að bera þetta af sér þrátt fyrir að gögn samkeppnisstofnunnar sýni svart á hvítu hvað hefur verið í gangi...?
Hrafnkell Daníelsson.
8. Nóvember 2004
Þórólfur vill þrauka enn,
það er heila málið
meðan ausa aðrir menn
olíu á bálið.
Kristján Hreinsson, skáld
8. Nóvember 2004
Einu sinni var kanadískt olíufélag sem langaði að slá sér niður á Íslandi og selja Íslendingum ódýrara bensín og útgerðinni ódýrari olíur. Þetta vildi olíufélagið gera vegna þess að það vissi, eins og við öll, að hér ríkti fákeppni og hér var hægt að græða á bensínsölu. Þetta var um svipað leyti og Reykjavíkurlistinn lagði íhaldið að velli í Reykjavík. Áhugi Kanadamannanna vakti vonir alþýðukonu um lægra orkuverð og hún fylgdist spennt með tilraunum þeirra til að koma sér fyrir í Reykjavík og nágrenni. Eitthvað gekk það illa. Skyndilega varð lítið framboð af lóðum undir bensínstöðvar, erfiðleikar að koma olíuskipum að í höfnum í Reykjavík og þannig mætti ...
Ólína
7. Nóvember 2004
Það böl sem er í borgarstjórn
bráðum tekst að lina
ef borgarstjórinn færir fórn
fyrir alla hina.
Kristján Hreinsson, skáld
7. Nóvember 2004
...Það var nefnilega þannig að þegar Ingibjörg réði Þórólf sagði hann henni sjálfur frá því að hann væri í rannsókn Samkeppnisstofnunar vegna meintrar aðildar hans að samráðinu. Hún vissi því af áhættunni og þetta sagði Þórólfur henni til að hún gæti metið áhættuna af því að ráða hann. Hún hefði getað leitað til manna einsog Ragnars Aðalsteinssonar hrl., eða leitað óformlega ráða hjá Samkeppnisstofnun. Ingibjörg Sólrún klúðraði hvorutveggja. Hún sagði ekki einu sinni...
MT
6. Nóvember 2004
...Annars erum við í Snotru á því að þetta sé aðeins lítið brot af ísjakanum. Hvað um samráð tryggingafélaganna, bankanna, símafélaganna, byggingarvöruverslana, matvöruverslana og fleiri og fleiri? Gunnar Birgisson, þingmaður Íhaldsins, hélt tárvota ræðu á þinginu í vikunni þar sem þessi mál voru til umræðu. Hann sagðist harma að menn væru tilbúnir að hengja þá menn sem hrasað hefðu í þessu máli. Um bæinn gengju menn með snærishönk í vasanum, þá væntanlega til að hafa hengingarsnúruna klára. Ábúendur hér í Snotru eru ekki mikið gefnir fyrir að hengja fólk, erum því reyndar fráhverf. Hins vegar þarf að ...
Runki frá Snotru
5. Nóvember 2004
...Nú er skyndilega komin upp ný staða. Tveir risar hafa slegið sér niður á fjölmiðlamarkaðnum og báðir eru símafyrirtæki, dreifendur og framleiðendur efnisins sem fjölmiðlarnir framleiða. Á blaðamarkaðnum ráða Norðurljós yfir dreifingunni, og í ljósvakanum eru Síminn og Og fjarskipti dreifendur og framleiðendur efnis. Brynjólfur Bjarnason forstjóri Símans er aðal talsmaður Skjás eins og norðurljósabatteríð, eða fjölmiðlarnir sem eru undir því skilti, eru nú undir stjórn eins manns sem að því er virðist er bæði handgenginn aðaleigendum samsteypunnar og er þarf fyrir utan einn af eigendum fyrirtækisins...Talsmenn Norðurljósa halda ekki vatni yfir stjórnvisku Sigurðar G. Guðjónssonar...Ef marka má yfirlýsingar norðurljósamanna á hann stærstan þátt í að koma í veg fyrir endanlegt gjaldþrot Norðurljósa. Af hverju var hann þá rekinn, eða af hverju þurfti að fórna honum? Getur verið að hann sé...
Stefán
4. Nóvember 2004
...Þú nefnir þarna að Ríkisstjórnin sé að koma Þjóðareignum til fákepnisrisanna. Hefði ekki átt að samþykkja fjölmiðlafrumvarpið? En áfram með Olíufélögin. Þetta er Þjófnaður um hábjartan dag.
kv. Gunnar
3. Nóvember 2004
BSRB á þakkir skildar fyrir að standa að fundinum um drög að þjónustutilskipun ESB, þar sem fulltrúar samtaka evrópskra opinberra starfsmanna kynntu viðhorf sín. Mér finnst hins vegar upplýsingar þeirra undirstrika enn frekar nauðsyn þess að menn einsog Ögmundur sláist í lið með okkur Evrópusinnum, taki upp baráttuna fyrir að ganga þar inn, til að við getum læst okkur þar saman í sameiginlegri baráttu gegn ýmsu miður góðu sem þar er á ferð. Ég trúi því nefnilega í hjarta mínu að það sé ekki erfitt að breyta Evrópusambandinu í átt að auknu lýðræði, og í átt að vinsamlegri stefnu gagnvart þróunarríkjunum. Viðskiptafrelsi þeirra inn á svæði ESB tel ég vera bestu aðferðina til að hjálpa þeim til að brjótast til bjargálna. Ég treysti mér til að fara langt í að breyta sambandinu í þá átt ef ég hef vaska baráttumenn einsog eiganda þessarar heimasíðu...
Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar.
1. Nóvember 2004
Þú segir: "Talið er að fjárfestingin fyrir hvert starf í tengslum við stóriðjuna fyrir austan kosti á bilinu 300 til 500 milljónir króna." Ég spyr því, hvað tekur langan tíma að borga það niður? Þetta er væntanlega tekið af skattpeningum okkar Íslendinga...
Hrafnkell Daníelsson
31. Október 2004
...Ég bæti því svo við að ég er þeirrar skoðunar að það sé ekki nóg að Samfylkingin og Vinstri-grænir vinni saman, heldur vil ég að flokkarnir sameinist. Össur er heiðarlegur jafnaðarmaður á nokkuð góðu pólitísku róli og við róttækir menn í og utan vinstri flokka getum sannarlega unnið með honum. En frjálshyggjuhugmyndir eins og þær sem Ingibjörg S. Gísladóttir er að boða koma algerlega í veg fyrir möguleika á samvinnu á vinstri vængnum...
Magnús Trausti.
31. Október 2004
Á ríkisstjórn sem er svo óð
enginn skyldi stóla
hún lætur einsog íslensk þjóð
sem ekki fer í skóla.
Kristján Hreinsson, skáld
28. Október 2004
Þú ert svo upptekinn af þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, Einari K. Guðfinnssyni, að þér yfirsjást menn sem þurfa á enn meiri uppfræðslu að halda en jafnvel Einar K. og er þá mikið sagt. Hér er að sjálfsögðu átt við vesalings litlu Framsókn og þá sem ganga á hennar vegum; Framsókn, sem er að burðast við að koma sér upp málgagni, sem hún, í þrá eftir fornri frægð, kallar Tímann. Leiðarahöfundur Tímans, sem lengi vel lét ekki nafns síns getið en hefur nú sett undir leiðara sinn stafina PG, leyfir sér að halda því fram, eins og Einar okkar K. Guðfinnsson, að þú hafir valið sprengjutilræðið í Kabúl " til þess að hreyta ónotum í íslensku friðargæsluna..." í Kabúl.
Ég hef fylgst með...
Sunna Sara
27. Október 2004
Heyði ég rétt á Ísland í bítið í morgun að hvert starf á Austurlandi sem verður til í framhaldi af Kárahnjúkvirkjun kosti um 300 miljónir...?
Michael Jón Clarke
24. Október 2004
Reynslan er til þess að draga lærdóm af. Er því sammála sveitunga mínum, Hafnfirðingnum, Sáfa varðandi rangar áherslur Samfylkingarinnar í skólamálum. "Framtíðarsýn" er auðvitað öfugmæli. Reynsla segir okkur það með skýrum hætti að þessi stefna er í bókstaflegum skilningi gjaldþrota. Lítil framtíð í því og því betra að líta í smiðjur manna eins og t.d. Olof Palme, fremur en að sækja í úrelta einkvæðingarstefnu til Bretlands...
Árni Guðmundsson
23. Október 2004
Í grein á heimasíðu þinni segir Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi VG að sveitarstjórnarmenn hafi “legið undir nokkru ámæli fyrir athafnaleysi, jafnvel sinnuleysi um velferð þeirra 45 þúsund grunnskólabarna sem enga kennslu fá – og hafa ekki fengið á fimmtu viku.” Ennfremur segir hann að á spjallsíðu vinstri grænna hafi “heyrst hljóð úr horni”, m.a. í sinn garð og annarra sveitarstjórnarmanna úr röðum VG. Og Árna finnst hljóð úr horni eðlilegt “því fimm vikna verkfall allra grunnskólakennara í landinu er grafalvarlegt mál og því von að...
Kveðja, Örnólfur
22. Október 2004
Sem Samfylkingarmaður og gaflari tek ég heilshugar undir varnaðarorð þín varðandi ýmsar hugmyndir framtíðarnefndar Samfylkingarinnar, einkum það sem snýr að einkaframkvæmdarhugmyndum í heilbrigðis- og menntakerfi.
Sáfi
20. Október 2004
Telur þú að Íslendingar ættu að segja upp varnarsamningnum við USA og leita eftir samvinnu við Evrópuríkin í varnarmálum?...
Jón Sigurður Eyjólfsson
19. Október 2004
...En nóg um það og aftur að grein Hjörleifs Guttormssonar. Hann minnir á fögur fyrirheit og göfug markmið sem birtust í yfirlýstri stefnu launanefndar sveitarfélaganna frá árinu 2000. Þar vantar sko hvorki fagurgalann né orðaflauminn, enda vanir menn á ferð. Launastefna launanefndarinnar skyldi laða...
Ingólfur
19. Október 2004
Er ekki allt of lítið af því að Vinstri-grænir setji upp heimasíður að mínu áliti eru netföng/heimasíður vinstri grænna allt of lítið auglýst. Með von um virkan framgang Vinstri-Grænna....
Jóhann
18. Október 2004
...Nei, Ögmundur, ég held þú ættir að hætta meðalmennsku- og aumingjadýrkuninni og viðurkenna þá staðreynd að það eru fyrst og síðast öflugir einstaklingar, hinir fáu guðs útvöldu leiðtogar, sem skipta sköpum í framvindu samfélagsins. Það eru þeir sem toga framtakslausan almenninginn með sér áfram veginn – með góðu eða illu – og ætíð til betra lífs. Og á meðal þessara ofureinstaklinga er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Og af hverju í ósköpunum má hún ekki gangast við því?
Jón Jónsson krati, Ísafirði
18. Október 2004
...Ég segi einsog Lóa lesandi að það fór um mig ónotahrollur þegar ég horfði á Ingibjörgu Sólrúnu þenja sig í Silfri Egils. Jú, hún komst ekki hjá því að gefa Össuri Skarphéðinssyni þá einkunn að hann væri góður foringi, sem mér finnst hann í vaxandi mæli vera. En, hún þurfti að tvítaka að Samfylkingin væri sterkur flokkur af því þar væru tveir öflugir foringjar, hún og Össur. Orðrétt sagði hún: "...öflugir leiðtogar einsog ég..." Össur er að verða...
E. Equus
17. Október 2004
Í Silfri Egils í dag sat Ingibjörg Sólrún Gísladótir fyrir svörum á meðal annarra. Oft hef ég verið ánægð með ISG en sannast sagna sökk ég niður í sætið eftir því sem leið á viðtalið. Barátta vinstri manna hélt ég að gengi út að að lemja niður foringjadýrkun og oflátungshátt. Þegar Ingibjörg Sólrún sagði að Samfylkingin hefði sterka leiðtoga, Össur værui öflugur og hún sjálf aldeilis frábær, "ég er öflugur leiðtogi", þá var mér allri lokið. Ögmundur er ég ein um þetta viðhorf....?
Lóa
16. Október 2004
Hjartanlega er ég sammála Garra í lesendabréfi hér á síðunni um að láta fara fram "þjóðarblómsatkvæðagreiðslu" um þjóðsönginn. Atkvæðagreiðslan um þjóðarblómið er frábær hugmynd og skal ég glöð una hverjum þeim úrslitum sem meirihlutinn skilar okkur. Þetta er ágæt æfing í lýðræðinu. Mjög margir vilja breyta um þjóðsöng, finnst þjóðsöngurinn of trúarlegur. Þannig spyr Garri þig í lesendabréfinu Ögmundur: "Ert þú á þeirri skoðun að það ætti að skipta um þjóðsöng eða ekki? Samrýmist það trúfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar að hafa svona trúarlegan söng og er þetta ekki nokkuð langt frá sósíalískri jafnréttishugsun, þetta yfirstéttarkjaftæði úr honum Matthíasi gamla...
Sunna Sara
15. Október 2004
...Mér finnst kominn tími til að R-listafólkið í borgarstjórn Reykjavíkur hysji nú rækilega upp um sig brækurnar. Væri þá vænlegt að hefja upphysjunarstarfið á því að bjóða kennurum möglunarlaust upp á mannsæmandi kjör. Ástandið eins og það er í dag er orðið óþolandi fyrir nemendur, aðstandendur þeirra, sem og auðvitað kennara. Og ábyrgðin á þeim skemmdarverkum sem nú er verið að vinna á skólastarfinu í landinu verður ekki með neinum sanngjörnum hætti skrifuð á aðra en sveitarstjórnarmenn. Þá staðreynd ættu R-listamenn að íhuga vandlega áður en ...
Þjóðólfur
14. Október 2004
Undirritaðan, Garra, hefur lengi langað til að vita afstöðu þina Ögmundur til íslenska þjóðsöngsins. Ert þú á þeirri skoðun að það ætti að skipta um þjóðsöng eða ekki? Samrýmist það trúfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar að hafa svona trúarlegan söng og er þetta ekki nokkuð langt frá sósíalískri jafnréttishugsun, þetta yfirstéttarkjaftæði úr honum Matthíasi gamla svo ágætur sem hann var? Hvað með að hafa svona þjóðarblóms könnun um nýjan þjóðsöng og þá meina ég bæði ...
Garri
11. Október 2004
Sæll Ögmundur og þakka svarið.
Það sem liggur í báðum spurningum mínum er þetta tvennt, hvernig tryggjum við börnunum lögbundinn rétt til kennslu eða menntunar og hvernig tryggjum við að efnahagslegar afleiðingar verkfallsins bitni ekki á foreldrum sem eru illa staddir peningalega, sem geta ekki fengið að vinna heima og sem neyðast til að greiða verulegar upphæðir fyrir gæslu barna á meðan þau fá ekki kennslu í skólunum. Sé verkfallið launadeila þá hlýt ég að gera ráð fyrir að verkfallið hafi þau áhrif að sveitarfélagið sjái sér hag í að...Leiði verkfallið til þess að foreldrar verða opnari fyrir skólagjöldum hvað væri þá athugavert við að til dæmis Íslandsbanki ræki sérstakan grunnskóla, yfirborgaði kennara með skólagjöldum foreldra og eigin framlagi til menntunar barna starfsmanna sinna...
Ólína
10. Október 2004
... Og hér spyr ég um áhrif ungu konunnar sem er eftirlætisleikfang glanstímaritanna en hún hefur nákvæmlega ekkert fram að færa í þessari deilu. Konan er titluð menntamálaráðherra. Hún hefur það hlutverk að ...Að lokum tvær spurningar Ögmundur í ljósi þess sem sagt er hér að ofan: Finnst þér rétt að kennarar hafi verkfallsrétt sem byggist á að börnin eru tekin sem gíslar? Finnst þér koma til greina að sveitarfélögin styrki skólarekstur á vegum foreldra eða fyrirtækja sem tækju að sér að ...
Ólína
10. Október 2004
Hvenær byrjar baráttan fyrir því að allar lífeyrisgreiðslur fari inn á bankabók viðkomandi einstaklings...?
Jón Gústafsson
8. Október 2004
Hvað er eiginlega að gerast hjá Reykjavíkurborg? Í myrkri fortíð voru lögbrjótar hengdir öðum til viðvörunar. Nú er að verða daglegt brauð í borginni að fátækt fólk sé borið út úr íbúðarhúsnæði með lögregluvaldi, sbr. frétt DV í gær; og gleymum ekki að fólkið er borið út úr félagslegu íbúðarhúsnæði í eigu borgarinna! Er þetta gert fátæku vanskilafólki til viðvörunar? Er þetta ef til vill ný innheimtuaðferð hjá Reykjavíkurborg? Þegar öryrkinn var borinn út fyrir stuttu síðan ...
Hafsteinn Orrason
3. Október 2004
Það vakti athygli mína að forseti Íslands skyldi á hátíðarstundu velja sér þemað að mæra forystumenn stjórnarflokkanna. Mér fannst óviðeigandi að gera þá að einhverjum sérstökum þjóðlegum minjagripum á hátíðarstundu Alþingis. Það hefði farið betur á að gera þetta á árshátíð stjórnarráðsins, eða í einu af lokuðu partíunum sem haldin eru í Bessastaðahreppi. Það eru nefnilega að minnsta kosti tvær hliðar á þeim gljáfægða gullpeningi sem forseti dró úr pússi sínu í ávarpi sínu til þjóðarinnar 1. október 2004. Víst hefur samfélagið breyst og vissulega ...
Stefán
2. Október 2004
...Það hefði staðið Halldóri nær, þingræðissinnanum sem hann þykist vera, að fjalla um gloppuna í þingskaparlögunum sem fram er komin með því að Kristinn H. Gunnarsson er sviptur stórum hluta löggjafarvaldsins sem kjósendur hans færðu honum. Fautaskapurinn ætti að verða til þess að þingskaparlögum verður breytt í snarheitum. Hvernig stóð á því Ögmundur að ykkur stjórnarandstæðingum datt ekki í hug sem alþingismönnum að tryggja þingmanninum réttinn sem hann, og kjósendur hans, hafa samkvæmt stjórnarskrá og kosningalögum? Þetta hefðuð þið átt að gera að meginmáli útgöngunnar í gær, en láta drullukökubakstur Halldórs sem vind um eyrun þjóta...
Ólína
29. September 2004
Ég get ekki orða bundist. Þegar Björn Bjarnason réð Ólaf Börk við Hæstarétt þótti mörgum illa farið með valdið. Er það ekki að sýna sig núna? Getum við treyst Hæstarétti héðan í frá...
Heiðrún Janusardóttir
29. September 2004
Þegar við bændur komun saman úr réttum í dag voru fréttir ekki góðar. Kiddi sleggja rekinn úr nefndum. Íhaldið komið með meirihluta í Hæstarétti. Meðan kerlingarnar voru að hella upp á kaffið komumst við bændur að því, að nú væri komið að byltingunni. Íhaldið væri komið með bæði framkvæmdavaldið, dómsvaldið og meirihluta á þingi með hjálp Framsóknar. Viti menn kerlingarnar komu með kaffið og í þetta sinn ...
Runki frá Snotru
28. September 2004
Nú erum við endanlega búin að fá það svart á hvítu hvernig lýðræðinu er fyrirkomið í Framsókn. Kristinn H. Gunnarsson, sem sýnt hefur sjálfstæðistilburði í fjölmiðlamáli og öðrum málum, er rekinn úr öllum nefndum þingsins þar sem hann hefir gegnt trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn. Ég tel að Kristinn hafi staðið nær kjósendum Framsóknar en...
Hafsteinn Orrason
27. September 2004
1. ,,Ísland getur ekki lengur treyst á að Bandaríkin verji landið og verður því að snúa sér í auknum mæli til Evrópu til að tryggja öryggi landsins”. Getur þú rökstutt afstöðu þína til þessarar fullyrðingar? 2. Hverjir eiga að sjá um varnir Íslands...
Jón Sigurður Eyjólfsson
20. September 2004
...Eigendum þessara samfélagslegu stoðkerfa, s.s. línulagna rafmagns, síma o.sv.frv. hefur aldrei verið gerð viðhlítandi grein fyrir í hverju hagur til frambúðar er fólginn í að láta slík einstök kerfi af hendi til einkaaðila og verða þar með háðir einokunaraðstöðu þeirra. Þetta hefur verið reynt vítt og breitt um heiminn á undanförnum árum, undantekningarlaust með þeim afleiðingum að verð til almennings hefur rokið upp! Það sem er merkilegast við ofanskráð svar fjármálaráðherra er einkum tvennt : Í fyrsta lagi telur hann skynsamlegt fyrir eigendurna, almenning að selja sameiginlegt fyrirtæki sem árum saman hefur skilað um 40% hagnaði fyrir afskriftir til að borga niður skuldir sem nú bera um eða innan við 1% ársvexti! Í öðru lagi er eins og fram kemur í svari hans, alls óvíst hvað tekur við eftir sölu Símans...
Ísmann
19. September 2004
Í Kastljósi í kvöld kvaðst Gunnar Birgisson, alþingismaður og formaður menntamálanefndar Alþingis, vera meðmæltur því að kennarar hefðu mjög góð laun og hann hefði ekki hitt nokkurn mann sem væri annarrar skoðunar en að bæta þyrfti laun kennara. Ég vona að ég sé ekki að leggja Gunnari röng orð í munn en svona skildi ég inntakið í því sem hann sagði. Þá vaknaði sú spurning í mínum huga...
Kennari
17. September 2004
Það er ekki hvinur eins og í haustlaufi. Það er einkennilegur hvinur, harður og málmkenndur, ógnvekjandi. Hann er engu líkur og eins og af öðrum heimi. Svo ærist allt. Hversdagurinn breytist í helvíti af allt öðrum heimi. Vígamenn, karlar, konur, gamalmenni og börn. Þú rankar við þér með innyfli annars manns um hálsinn, ataður blóði, með vitin full af sandi og ryki og svo finnurðu fnykinn af sviðnu holdi, mannsholdi. Ef þú hefðir verið með kveikt á stuttbylgjuútvarpsviðtæki á fréttatíma íslensku ljósvakamiðlanna og ef þú skildir íslensku þá hefðirðu heyrt í nýbökuðum forsætisráðherra Íslands ...
Stefán
15. September 2004
...Var Davíð ekki að minnast á viðtal sitt við “Colin” í fréttum í gær? Hvað fór þeim á milli? Skildu þeir fyllilega hvor annan? Kann ekki að vera að einhverjir tungumálaörðuleikar hafi orðið til þess, að Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi virkilega trúað því að Davíð væri á hrakhólum og þyrfti á mórölskum stuðningi að halda...
Ísmann
15. September 2004
Blóði drifin, hölt og hörundsár
húkir skepna ein við nyrstu myrkur,
boðar ófrið, örbirgð, feigð og fár,
fólksins eymd er hannar mikli styrkur.
Kristján Hreinsson, skáld
15. September 2004
Hann var hjartnæmur fréttatíminn í ríkissjónvarpinu í gær, 14. september. Hann hófst með langri umfjöllun um embættislok Davíðs Oddssonar. Allt var það í léttum tóni, hann var sáttur við sín störf, talaði svona eins og roskinn og reyndur stjórnmálamaður sem getur litið yfir farsælan feril, svolítill heilsubrestur, en hann gerir samt að gamni sínu, þetta gengur allt bara bærilega, þeir hafa jú lent í veikindum líka Halldór Ásgrímsson og Colin Powell, já, vel á minnst, Colin Powell. Þeir spjalla stundum saman í síma og það ....
Einar
14. September 2004
Þegar hin hryllilegu fjöldamorð voru framin í Beslan í Rússlandi fyrir fáeinum dögum mótmælti heimurinn nánast einum rómi. Bush Bandaríkjaforseti notaði stór orð og utanríkisráðherra Íslands spurði hvort þessum mönnum væri ekkert heilagt. Almennnigur á Íslandi kveikti friðarljós sem loguðu í gluggum nóttina eftir að ódæðið var framið. Sjálfur var ég í þeim hópi. Ef menn gætu nú verið örlítið sjálfum sér samkvæmir í samúð með fórnarlömbum hernaðarofbeldis. Báðir ...
Hafsteinn Orrason
13. September 2004
...NÚ ER SEMSAGT ENDANLEGA LJÓST HVER RÉÐI ÞVÍ AÐ SAMKOMULAG VIÐ ÖRYRKJA VAR EKKI EFNT OG EKKI STENDUR TIL AÐ GERA ÞAÐ !
Ætlar Halldór Ásgrímsson að láta það verða eitt af fyrstu verkum sínum sem forsætisráðherra að lýsa því formlega yfir, að samkomulag Jóns Kristjánssonar við Öryrkjabandalagið hafi verið “kosningabrella”, sem ekki standi til að efna að fullu ?...
Ísmann
13. September 2004
Ég vil þakka þér fyrir að rísa upp gegn því að efnalítill maður yrði borinn út úr húsnæði borgarinnar. Ég heyri hvernig menn eru farnir að hamast á þér fyrir vikið og er gefið í skyn að þú viljir misrétti í kerfinu!!! Mér þótti skýringin sem þú gefur á þessum málum í greininni um Félagsþjónustuna hér á síðunni, Okkur ber skylda til að veita aðhald, segja allt sem segja þarf í þessu máli. Ég vona að sem flestir ...
Sigrún.
12. September 2004
...Ætlar landslýður virkilega að láta þessa loddara komast upp með að selja eða gefa frá okkur allar mjólkurkýr þjóðarinnar en láta okkur skattborgara síðan sitja uppi með allt sem óarðbært er en þó félagslega nauðsynlegt eins og fjármögnun dreifikerfisins á strjálbýlum svæðum? Sjá menn ekki að þessi ríkisstjórn er ekki að þjóna hagsmunum þjóðarinnar heldur hagsmunum fjárgróðamanna sem geta ekki beðið eftir að ...
Sunna Sara
12. September 2004
Ég held það nú elsku karlinn minn að þú hafir málað þig útí horn. Það er ekki eðlilegt að fólk borgi ekki húsaleigu þó það sé veikt. Það hefur sjúkrapening frá Tryggingastofnun sem á að vera nóg til að borga húsaleigu, sérstaklega þegar hún er ekki hærri en 15 þúsund á mánuði. Að viðkomandi aðili hafi ekki verið borinn út fyrir löngu er ...
Gunnar
8. September 2004
... Síðan segir: “Samkvæmt nýrri skýrslu eftir læknisskoðun á ástandi “X”, áður en hann var borinn út, hefur krabbamein hans ekki látið á sér kræla frá 1999.”
Eru læknaskýrslur opnar blaðamönnum DV? Er ekki til eitthvað sem heitir siðanefnd blaðamanna ...
Runki frá Snotru
7. September 2004
Í Kastljósþætti í gærkvöldi var rætt við fjármálaráðherra um kaup Símans á SkjáEinum. Í því sambandi er ærin ástæða til að spyrja hvar fjármálaráðherra hafi haldið sig undanfarna mánuði. Ekki verður þó farið nánar út í þá sálma að sinni. Undir lok þáttarins spurði Kristján, annar þáttarstjórnanda hvort ekki drægi að því að stimpilgjöld yrðu afnumin. Geir H. Haarde taldi að ...
Ísmann
6. September 2004
Ég veit ekki hve margir hlustuðu á Eirík Jónsson, formann Kennarasambandsins, í útvarpi um daginn ræða kjarakröfur kennara. Grunnboðskapur hans var sá að varast að láta prósentur villa sér sýn. Hann tók dæmi af ofurlaunamanni annars vegar, gott ef það var ekki bæjajarstjórataxtinn eins og hann birtist í Frjálsri Verslun, og kennara hins vegar. Ég man ekki nákvæmlega tölurnar en röksemdafærslan var einhvern veginn á þessa leið...
Hafsteinn Orrason
5. September 2004
Þeir töpuðu orustu en stríðinu er langt í frá lokið. Aðilarnir sem voru "kjöldregnir" fyrir skömmu og hafa látið lítið fyrir sér fara að undanförnu, neyta nú allra ráða til að rétta hlut sinn og "kramsa til sín eignir almennings". Feitasti bitinn nú um stundir er Landssíminn sem enn er að 99% í eigu ríkisins. Nú liggur lífið við og rétt rúm vika þar til Framsókn nær forsætisráðuneytinu. Óvæntur millileikur, sem í fréttatilkynningu Símans var kynntur sem "þátttaka í kaupum á enska boltanum" (vantar ekki hógværðina), en sem í reynd hefur þann höfuðtilgang að bjarga SkjáEinum frá gjaldþroti og væntanlega tryggja skuldir Símans gagnvart SkjáEinum, sem engar ...
Ísmann
5. September 2004
Á leiksviði andans ég yrki
og orðanna verð ég að leita,
hug minn og hjarta ég virki,
ég heiminum ætla að breyta....
Kristján Hreinsson, skáld
4. September 2004
...Maður hélt nú að þessar hrakfarir yrðu til þess að Landssíminn yrði látinn í friði næstu árin.
En nú er atlaga númer tvö hafinn.
Verður það eitt af stóru "metnaðarmálum" eða öllu heldur "hagsmunamálum" nýs forsætisráðherra að knýja á um sölu Landssímans...
Sveinn
4. September 2004
...Runki, bíddu með að leita læknis. Með þessum kaupum er verið að gera fyrri þjófnað ennþá kræafari. Meira að segja hið varfærna og íhaldssama RÚV gat ekki orða bundist á fréttavef sínum. Þar segir “En þrátt fyrir að gengi Skjás eins hafi verið gott í þau fimm ár sem liðin eru frá að hann hóf útsendingar hefur ýmislegt gengið á því eins og fyrr sagði hefur verið tap á rekstrinum. Svo má ekki gleyma að eitthvað af þeim peningum ...
Doktor Watson
3. September 2004
Hvað á ég að gera? Stundum kemur sú hugsun upp í huga minn hvort ég sé yfirleitt í lagi; hvort geti verið að ég sé haldinn skinvillu eða einfaldlega heimskur og/eða geðveikur. Í fréttum áðan heyrði ég að Landssíminn, sem er í eigu ríkisins, hefði keypt sýningarrétt á enska fótboltanum fyrir Sýn. Ríkisútvarpið, sem einnig er í eigu ríkisins, bauð á móti Sýn en skorti fé. Þar sem dýrt er að leita læknis, sérstaklega sérfræðings og geðlyf dýr er mér mjög í mun að fá botn í það hvort það sé ég sem er veikur eða þjóðfélagið ....
Runki frá Snotru
29. Ágúst 2004
... Það sem sett er innan gæsalappa, hér að framan, er væntanlega beint eftir ráðherranum haft. Teljast það ekki nokkur tíðindi að ráðherrann telji iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið til hluta af framsóknarmenginu?
Kveðja,
Sveinn
27. Ágúst 2004
... Allar þessar grundvallarspurningar vakna við hina framsæknu umræðu í Framsóknarflokknum nýverið. Og ekki má gleyma: Eru eftirlaun ráðherra réttlát? Á að deila völdum og áhrifum út eftir hæfileikum eða kynferði? Á að minnka völd og áhrif ráðherra og deila þeim út meðal almennings? Er Alfredo Scransali réttur maður á réttum stað? Af hverju fá samkynhneigðir ekki ráðherrastól hjá Framsókn? Loksins, loksins er farið að ræða...
Þráinn
25. Ágúst 2004
Yfirleitt hafa Íslendingar mikinn metnað og ég held að óhætt sé að segja að oft sýnir þjóðin þann metnað í verki. Mikið er ég sammála greininni þinni hér á síðunni um fræga fólkið sem hingað kemur og þarf að þola stöðugt áreiti fjölmiðla og forvitins fólks sem gónir á það eins og naut á nývirki. Það er leiðinlegt að gera gestum okkar þetta en verst erum við sjálfum okkur. Við verðum nefnilega svo óumræðilega smá með því að geta ekki tekið á móti þekktu fólki án þess að glata allri dómgreind. Allt sem heimsþekktur maður gerir á Íslandi þykir ...
Sunna Sara
23. Ágúst 2004
Í VG gefið þið ykkur út fyrir að vera jafnréttissinnar. Ég verð að segja að heldur finnst mér þið þegja þunnu hljóði þegar verið er að fótumtroða rétt kvenna í Framsóknarflokknum. Siv Friðleifsdóttir, sem nú er látin víkja af ráðherrabekknum, hefur staðið sig frábærlega sem ráðherra umhverfismála á örlagatímum... Hún er alla vega kona. Á hún að þurfa að gjalda þess?
Halldóra
22. Ágúst 2004
Friðum Framsókn!! Þar sem ekki var hægt að friða Kjárahnjúka. Væri þá hægt að friða eins og einn framsóknarmann, td. Guðna Ágústsson, Sif eða Halldór. Flokkurinn er í útrýmingarhættu. Þarf ekki að taka þetta upp á þingi? Kostunaraðilar yrðu að sjálfsögðu Vís, Samskip og Ísl erfðagreining, sem sæi um klónuina. Við verðum að halda okkar þjóðlegu einkennum og gildum.
Runki frá Snotru
21. Ágúst 2004
Sæll Ögmundur.
Ég ætla ekki að bera framm neina spurningu til þín, en lýsa yfir stuðningi að ríkt og frægt fólk fái að vera í friði fyrir látum og hamagangi fjölmiðla og ljósmyndara.
Kveðja,
Sigurbjörg
20. Ágúst 2004
Burtu dapur flokkur fer,
feigð að honum sverfur,
þrifalegt mun þykja hér
þegar Framsókn hverfur.
Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld
18. Ágúst 2004
Hvernig vilt þú að ráðherralið Framsóknarflokksins verði eftir 15. september? Finnst þér ekki skipta máli hvernig ráðherrabekkurinn verður skipaður...
Guðbjörn
9. Ágúst 2004
Tvær tilvitnanir, önnur vegna bjórauglýsinga á strætóskýlum og hin vegna auglýsina á strætó: “Hinn aðilinn sem ég vil nefna er Reykjavíkurborg sem lætur bjórfyrirtæki nota strætóskýlin til að auglýsa bjór og fara þannig á bak við landslög. Ég gladdist því mjög þegar ég frétti að Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi hyggist...
... “Eftir innrás Tuddanna í vopnabúr M16 hófst mikil eftirför Þjösnanna eftir þeim. Vopnunum skyldi náð aftur. Barist var fram í rauðan dauðann og ...
Allir í strætó.
Rúnar
7. Ágúst 2004
Það er ekkert meira stjórnlyndi falið í því að leggja 400 milljónir á ári til strandsiglinga (sem er ca. sú upphæð sem lögð var til á sínum tíma) en að setja 700 milljónir í sendiráð í Tókýó til að niðurgreiða sölukostnað SH í Japan. Ráðstöfun á almannafé er ekki flokkanleg átómatískt í hægri og vinstri; ég er hræddur um að við verðum að nenna að hugsa. Það fæst svo lítið í hinum pólitísku heildsölum einsog stendur. Guðmundur fjallar ekkert um það hvort það séu einhverjir hagsmunir handan við arðsemiskröfur Eimskipafélagsins. Það er sem sé Eimskipafélagið sem skilgreinir hagsmuni heildarinnar. Það er barnaleg hugsun og alveg flöt og blæbrigðalaus. Nenna menn ekki að hugsa út fyrir hinar himnesku formúlur...
Þráinn
26. Júlí 2004
Eitt sem hefur truflað mig í allri þessari umræðu um stjórnarskrárdeiluna er þetta: Það er mikið talað um málskotsrétt forseta. Ég skil stjórnarskrána þannig að forsetinn hafi synjunarvald, ríkisstjórnin hins vegar réttinn til að skjóta til þjóðar til að hnekkja neitunarvaldinu. En ég er ekki lögfræðingur og varla skiptir þetta miklu máli lengur enda best að færa þetta allt saman frá forseta og ríkisvaldi til þjóðarinnar...
Þ.
22. Júlí 2004
Sæll Ögmundur Nú þegar þetta fjölmiðlafrumvarp er úr sögunni, langar mig til að fá þína sýn á framhaldið, ertu á sömu skoðun og Össur um að eyða næstu þrem árum í samningu nýs frumvarps um fjölmiðla? Með fyrirfram þökk...
Ægir
21. Júlí 2004
Svarið gaf sig fyrirfram eins og svo oft þegar Sjónvarpið spyr forsætis- og utanríkisráðherra þessa dagana. Mér finnst það ástand uppi nú Ögmundur að spurningar ákveðinna fjölmiðla sem lagðar eru fyrir ráðherrana tvo segi meira um vanda fjölmiðlanna en bæði ársreikningar þeirra og fjölmiðlaskýrslur. Hvað finnst þér Ögmundur, hvernig hyggst þú ...
Ólína
21. Júlí 2004
Hvernig ætlar stjórnarandstaða að réttlæta það fyrir þjóðinni og forsetanum að forseti landsins er ítrekað vanvirtur af hálfu ráðherra og þingmanna meirihluta þings en ég tel að stjórnarandstaðan taki þátt í þeim ljóta leik ef hún leggur blessun sína yfir þá gjörð að ganga framhjá ákvörðun forsetans um að vísa málum til þjóðarinnar Leikreglur ber að virða. Munt þú beita þér gegn þeirri aðför ...
Hafþór Baldvinsson
20. Júlí 2004
...Hann eyðir kröftum sínum stefnulaust, snýst í hringi, baular hátt og starir blóðhlaupnum augum í kringum sig. Á meðan halda ungu hirtirnir sig til hlés en láta þó vita af sér. Einn af ungu krónhjörtunum, Guðlaugur Þór, leyfði sér að missa út úr sér í sjónvarpinu, setningu sem byrjaðir svona: "Það er hins vegar ekki rétt hjá Davíð..." Þetta hefði fyrir ári síðan jafngilt því að henda sér fram af Hallgrímskirkjuturninum í pólitískum skilningi. En núna - núna mun þetta ...
Þráinn
18. Júlí 2004
Sæll Ögmundur
Sá frétt þína um afsökun NYTimes. Hún er mjög umhugsunarverð. En ég vil benda á að blaðið hóf þessa sjálfsgagnrýni fyrr á árinu. Til marks um það er eftirfarandi leiðari frá 26. maí. Hann má nálgast í gegnum þennan tengil...
Huginn
18. Júlí 2004
Ég vil taka undir með Þorleifi Gunnlaugssyni í prýðisgóðri grein hans hér á síðunni þar sem hann fjallar um framtíðarstjórnarmynstrið. Auðvitað á stjórnarandstaðan að ákveða að mynda næstu ríkisstjórn og hvika hvergi frá þeirri ákvörðun. Í mínum huga er Framsóknarflokkurinn að missa af þeirri lest auk þess sem honum á ekki að líðast að vera í ...
Anna
18. Júlí 2004
Enda þótt Framsóknarflokkurinn lúffi fyrir Sjálfstæðisflokknum í nánst öllum stefnumálum þá verður hitt ekki af honum skafið að núverandi forystu hefur tekist að halda flokknum við völd í tvö kjörtímabil. Staksteinar Morgunblaðsins segja þetta stórkostlegan árangur. Vissulega má taka undir þetta ef mönnum þykir meira vert um flokkshag en þjóðarhag. Framhjá því verður ekki horft að samkvæmt helmingaskiptareglu hefur Framsóknarflokknum tekist í samstarfi sínum við Sjálfstæðisflokkinn að ...
Hafsteinn Orrason
16. Júlí 2004
Hvorki er ég lögreglumaður né lögfræðingur og hef því ekki persónulega komið nálægt málum manna sem grunaðir eru um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Þrátt fyrir þennan annmarka þykist ég vita hvernig brotamenn reyna að sigla milli skers og báru til að bjarga eigin skinni meðan á rannsókn stendur og allt þar til meðferð mála lýkur fyrir dómstólum. Og þannig finnst mér þingmenn Framsóknarflokksins einmitt haga sér þessa dagana...
Þjóðólfur
15. Júlí 2004
Ég þakka þér fyrir prýðisgrein um dapurlega innkomu Davíðs Oddssonar í heimsfréttirnar í tengslum við fund hans með Bush Bandaríkjaforseta. En hvað veldur því að forystumenn ríkisstjórnarinnar, þeir Davíð og Halldór Ásgrímsson, liggja flatir eins og hryggleysingjar fyrir herskárri og óhugnanlegri utanríkisstefnu Bush-stjórnarinnar? Auðvitað vita allir Íslendingar af uppdráttarsýkinni í herstöðinni á Miðnesheiði sem þeir Halldór og Davíð eru að reyna að halda lífi í og hanga á eins og hundar á roði. En er eitthvað ...
Guðmundur Sigurðsson
12. Júlí 2004
Ágæti þingmaður. Þar sem þú ert þingmaður vinstri GRÆNNA langar mig til að spyrja þig tveggja spurninga: Hver er afstaða þíns þingflokks til núverandi vísindaveiða á hvölum? Hver er þín skoðun á hvalveiðum, almennt? Með fyrirfram þökk fyrir svar...
Virðingarfyllst,
Helgi V. Tryggvason
11. Júlí 2004
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun:
Núna landsmenn fagnað fá
því Framsókn er að hverfa,
minni verður þjáning þá
hjá þeim sem landið erfa.
Kristján Hreinsson, skáld
10. Júlí 2004
Una slíku er ekki létt
og örðugt að trúa þeim fréttum,
að afnema hyggist þeir atkvæðisrétt,
með undanbrögðum og prettum.
Aðalsteinn Sigurðssson
9. Júlí 2004
Já, forsætisráðherrann okkar, Davíð Oddsson, kom, sá og sigraði í Washington á 1800 sekúndna fundi með Bandaríkjaforseta og líflegum blaðamannafundi í kjölfarið. Eins og sekúndurnar allar segja til um gafst þeim félögunum færi á að ræða margt og merkilegt. Þeir fóru ítarlega yfir ástand heimsmálanna, þar á meðal sameiginleg viðfangsefni í Írak, auk þess að leita logandi ljósi að lausn á varnarmálum okkar Íslendinga og hugsanlegum grafalvarlegum loftvarnarskorti hérlendis vegna mikilla tilfallandi verkefna annars staðar. Á blaðamannafundinum var mikið um vinarhót og meira að segja strokur. Fannst mér nóg um hvernig...
Þjóðólfur
9. Júlí 2004
Í daglegu starfi er þjóðin mín þreytt
þá þambar hún öl og vín,
yfirleitt skilur hún ekki neitt
en ofmetur verkin sín. ...
Kristján Hreinsson, skáld
9. Júlí 2004
Heldur þú að Halldór og Keikó séu skyldir? Það var hægt að láta Keikó gera allt ef hann fékk fisk að launum. Það er greinilega hægt að láta Halldór gera allt ef hann fær forætisráðherrastól að launum. Þetta er kannski í ættinni...
Eiríkur
6. Júlí 2004
Vegna ummæla Halldórs Ásgrímssonar:
,,Sá vægir sem vitið hefur meira". Varð þessi vísa til:
Á Íslandi nú á sér stað
ótakmarkað þvaður
því Halldór Ásgríms heldur að
hann sé greindur maður.
Kristján Hreinsson, skáld
5. Júlí 2004
Af nýjustu fréttum má ráða að stjórnarherrarnir hafi hugsað sér að ekki verði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um hin svokölluðu fjölmiðlalög sem Alþingi samþykkti nýverið og forseti Íslands kaus síðan að undirrita ekki. Þetta væri AUGLJÓST BROT á 26. grein stjórnarskrárinnar sem einmitt ...
Sigmundur Guðmundsson, stærðfræðingur
5. Júlí 2004
Sigurinn er sætur mjög,
úr söðli herrar hrapa,
þeir ætl' að setja önnur lög
án þess þó að tapa.
Kristján Hreinsson, skáld
5. Júlí 2004
Ég sperrti eyrun þegar þú svaraðir spurningu fréttamanns Sjónvarpsins um það álit þitt að kónga- og auðmannadekur hafi keyrt úr hófi fram á Bessastöðum og hélt að þú myndir útskýra hvað þú ættir við. En - ég varð engu nær. Mér finnst að þú eigir að rökstyðja mál þitt og ekki að slá svona sjónarmiðum fram nema að nefna dæmi svo maður geti vitað hvað þú átt við. Að mínu áliti stendur forsetinn sig vel í þeim verkum sem mér finnst við þurfa forseta til að sinna, þ.e. að vera fulltrúi þjóðarinnar út á við. Ég hef persónulega enga þörf fyrir forseta sem sameiningartákn eða samnefnara þjóðarinnar en ég tel að við þurfum toppfígúru til að ...
G.J.
5. Júlí 2004
Með döngun hunds og dýrsins kjark
fær Davíð lífs að njóta,
hann skríður einsog skeppna í mark
með skottið milli fóta.
Kristján Hreinsson, skáld
4. Júlí 2004
Ég þakka þér fyrir stórgóða grein um forsetaembættið en það er þó að mínum dómi stór ljóður á annars ágætu ráði þínu þegar þú ferð að tala um kónga- og auðmannadekrið á Bessastöðum. Dettur mér helst í hug að þú sért þarna að vísa m.a. til vinskapar forsetans við Abramovits hinn rússneska, Björgólfsfeðga, skíðatúranna til Aspen og þannig mætti áfram telja. En hvað hefur þú við þetta að athuga, ef ég er að geta mér rétt til? Tökum ...
Bjartur
3. Júlí 2004
Ég neita því ekki að heldur þótti mér tyggigúmmíkenningin, sem þú varst einhvern tímann að gantast með hér á síðunni, vera á jaðri aulafyndninnar og reyndar alveg út í hött. Það þykir mér ekki lengur. Ef ég man rétt þá gekk kenningin út á það, að eðli Framsóknarflokksins – í stjórnarsamstarfi við Íhaldið - svipaði til vel tugginnar tyggigúmmíklessu sem spýtt væri niður í gangstétt en festist síðan undir skósóla vegfaranda. Þegar gengið hefði verið á slummunni um hríð væri illmögulegt að ná henni undan sólanum. Ég fæ ekki betur séð en Davíð Oddsson sé að leika sér að því að ögra Framsókn og niðurlægja ...
Jóel
2. Júlí 2004
Varðandi þetta mál sérstaklega er því vert að skoða, hversu margir kjósendur standa að baki þeim þingmönnum sem samþykktu margumtalað frumvarp um fjölmiðlalög nú í vor....
Sveinn
1. Júlí 2004
Með klækjum hafa karlar reynt
að krækja í þann stóra,
þeir halda að 'ann hafni seint
í höndunum á Dóra.
Kristján Hreinsson, skáld
1. Júlí 2004
För þeirra Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, og Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra á NATÓ fund í Istanbúl hefur ekki farið framhjá neinum. Yfirlýsingar þeirra hafa verið í sama dúr og áður við sömu aðstæður, botnlaus fylgispekt við hernaðarbandalagið og allt sem aðhafst er á þeim bæ. En það voru yfirlýsingar þeirra um kosningalögin sem vöktu athygli mína, sérstaklega það sem haft var eftir Halldóri á forsíðu Morgunblaðsins á þriðjudag. Hann sagði ...
Hafsteinn Orrason
1. Júlí 2004
Það vakti athygli mína í fréttum af undirbúningi þinghaldsins í næstu viku að ekki standi til að sjónvarpa frá Alþingi eins og venja er. Fram kom að sjónvarpað verður í innanhúskerfi þingsins en hvers vegna í ósköpunum útsendingunni verður ekki varpað út í samfélagið er mér óskiljanlegt með öllu. Eða hvað – þykir ríkisstjórninni ef til vill ...
Sunna Sara
30. Júní 2004
Einsog stagbætt stjórnarskrá
sem Styrmir þarf að dæma
marga spretti Mogginn á
misjafnlega slæma.
Kristján Hreinsson, skáld
29. Júní 2004
Það er sú almenna og grímulausa mannfyrirlitning sem fram kemur í orðum ritstjóra Morgunblaðsins sem fékk mig til skilja við blaðið. Satt best að segja fór um mig hrollur þegar ég las pistil hans 17. júní. Ég geymi þetta síðasta Morgunblað sem ég kaupi. Ég geymi það til að minna mig á að stalínísk rétthugsun getur flutt inn á hvaða heimilisfang sem er og ég geymi það til að minna mig á að undir orðskrúði og kröfunni um ákveðið siðferði annarra lúrir stundum svipuð afstaða til almennings og ríkjandi var í fjarlægu landi fyrir miðja síðustu öld. Ég er hvorki heimsfræg né fyrrverandi forseti og hvorki ég né fjölskylda mín eru í þeim meirihluta sem Morgunblaðinu finnst að ekki geti gert kröfu um að sýnd sé virðing og tillitssemi í opinberri umræðu. Ég er núlifandi og...
Ólína
29. Júní 2004
...og þar sem ég er gamall nemandi dr. Ólafs Ragnars í stjórnmálafræðunum, og kann því ýmislegt fyrir mér þó ég segi sjálf frá, vil ég minna á eitt mikilvægt atriði sem fræðimönnum og álitsgjöfum hefur yfirsést – og móðga þó vonandi engan - en það eru forsetakosningarnar árið 1952. Þær sýna í hnotskurn, og í sögulegu samhengi sem er auðvitað ómissandi sjónarhorn, hve glæsilegt endurkjör Ólafs er í raun og veru. Þannig var að árið 1952 slógust ...
Auður Sigurrós Arnardóttir
29. Júní 2004
Sæll Ögmundur
Glaðhlakkalegir voru þeir fóstbræður Davíð og Bush á fundi í Istanbúl. Úr augum Davíðs skein aðdáun þegar hann leit með eigin augum þessa einstæðu fyrirmynd.
Davíð Oddsson dýrkar Bush,
það dæmalausa undur,
við böðulinn hann bindur trúss
bljúgur einsog hundur.
Kristján Hreinsson, skáld28. Júní 2004
Ég er hjartanlega sammála Steingrími Ólafssyni í því sem fram kemur í prýðilegri grein hans hér á síðunni 24/6 undir fyrirsögninni Tvígengisvélin hikstar. Það er rétt hjá honum að póltitískur mótor þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar hikstar heldur betur. Sennilega og vonandi er hann að bræða úr sér. Ég er líka sammála þér Ögmundur að vinstri menn eiga að semja við Samfylkingarkratana um myndun næstu ríkisstjórnar, jafnvel gera kosningabandalag einsog Steingrímur Ólafsson leggur til. En við megum ekki gera þetta ...
Sunna Sara
25. Júní 2004
Var minnst á Kárahnjúkavirkjun fyrir kosningarnar vorið 1999? VG var stofnað 6. febrúar 1999. Man einhver sem tók þátt um hvað kosningabaráttan snerist það árið? Var verið að kjósa um Kárahnjúkavirkjun? Mér vitanlega var hún ekki á dagskrá þá. Eftirfarandi fór á milli spyrjanda og Ólafs Ragnars Grímssonar í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 21. júní ...
Pétur
25. Júní 2004
Það er mér mikið undrunarefni sem fram kemur í pistli Þjóðólfs hér á síðunni þar sem hann segist ekki hafa frétt af framboði frú Auðar Bessadóttur til forsetaembættisins fyrr en í gær. Framboð sitt boðaði Auður á blaðamannafundi í Öskjuhlíðinni á sumardaginn fyrsta, 22. apríl s.l. Og einmitt þá var meðfylgjandi mynd tekin af frambjóðandanum og áströlskum maka hans. Beðist er velvirðingar á rauðum deplum í ...
Ingólfur
24. Júní 2004
Svo lítið hefur farið fyrir forsetaframbjóðandanum Auði að ég hafði ekki hugmynd um framboð hennar fyrr en í morgun þegar ég renndi yfir skoðanakönnun Fréttablaðsins. Þar stimplar frú Auður sig inn með eftirminnilegum hætti og nýtur nú hvorki meira né minna en ...
Þjóðólfur
23. Júní 2004
Í DV segir frá því að deilur hafi blossað upp milli Sumarliða Ísleifssonar, ritstjóra Stjórnarráðssögunnar og Jakobs F. Ásgeirssonar, þess manns sem ritar kaflann um Davíð Oddsson. En þeir deila víst um innihald kaflans um Davíð. Að þessu tilefni verð eftirfarandi bláhenda til:
Mjög er deilt hjá mönnum tveim,
þeir mikið vilja þræta
því sögu Davíðs sýnist þeim
að sífellt megi bæta.
Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld
22. Júní 2004
Hann sagðist með gjörningi sínum hafa viljað leyfa þjóðinni að “blessa” þessi lög líkt og gjörðist í þjóðaratkvæðagreiðslunni um stofnun lýðveldis á Íslandi árið 1944. Hvaða merkingu leggur þú í þessi orð forsetans? Ég hélt satt að segja að hann hefði beitt synjunarvaldinu vegna þess að hann hefði talið lögin geta verið háskaleg lýðræðinu ...
Þuríður Ófeigsdóttir
21. Júní 2004
Í dag fréttist að Jón Steinar Gunnlaugsson ætli að sækjast eftir því að komast að sem dómari í Hæstarétti. Það vakti sérstaka athygli undirritaðs að Jón skyldi láta hafa það eftir sér að hann gæti ekki ímyndað sér að það væri nokkrum manni á móti skapi að hann fengi að gerast hæstaréttardómari.
Að gefnu tilefni varð til þessi
bláhenda:
Fæstir reiða refsivönd
og ranglætinu svara
þegar Davíðs hægri hönd
í Hæstarétt vill fara.
Kristján Hreinsson, skáld
20. Júní 2004
Í sunnudagsmogga sitja forsetaframbjóðendur fyrir svörum. Þeir svara ágætlega fyrir sig, ekki síst Ólafur Ragnar. Vanur maður. Af hverju er núverandi forseti stoltastur frá átta ára forsetaferli sínum, spyr blaðamaður. Ólafur Ragnar Grímsson hefur upp mikla frásögn af því sem hann telur að vel hafi tekist til um. Hann hafi til dæmis stuðlað að framgangi íslenskra listamanna. Ágætt, prýðilegt. En í sömu setningu er upptalningunni haldið áfram, hann hafi...
Hafsteinn Orrason
17. Júní 2004
Íslenskan hefur á ýmsum sviðum breyst svo hratt að hinir mætustu menn hafa lent í dómstólaveseni vegna rangrar hugtakanotkunar. Ekki fyrir svo mörgum árum var t.d. óspart talað um skattsvik og skattsvikara og var það hugtak notað um menn sem reyndu að skjóta sér undan að greiða þau gjöld til samfélagsins sem þeim bar. En nú heyra skattsvikin, sem ég er enn vel að merkja fastur í og nota í tíma og ótíma, sögunni til. Nú er talað um áætlaða “skattakvöð vegna hugsanlegra skattbreytinga” eins og segir til að mynda í Fréttablaðinu 12. júní s.l. En í fréttinni kemur skýrt fram að...
Þjóðólfur
17. Júní 2004
Að gefnu tilefni:
Davíð masar, dýrkar auð,
drýldinn hrasar víða,
ómerkt þras og orðin dauð
ávallt fasið prýða.
Kristján Hreinsson, skáld
13. Júní 2004
Kæri Ögmundur.
Rétt til gamans langar mig að benda á eftirfarandi dæmi sem sýnir hversu fáránleg hugmynd það er að krefjast meira en 50% þátttöku við atkvæðagreiðslur yfirleitt. Gerum ráð fyrir því að kjósa eigi milli tveggja ólíkra kosta sem ég vel að kalla A og B. Gerum ráð fyrir því að settar verði reglur um það að a.m.k. 75% kosningabærra manna verði að taka þátt í kosningunni til þess að niðurstaða hennar teljist gild.Gerum síðan ráð fyrir því að...
Sigmundur Guðmundsson, stærðfræðingur
13. Júní 2004
Eina skýringin sem mér datt í hug hérna við eldhúsvaskinn var að hann gengi með. Gengi með ráðherra í maganum og væri jafnvel búinn að fá boð um að næla sér í einn svoleiðis á raðgreiðslum. Gæti það verið Ögmundur?...
Ólína
10. Júní 2004
Samkvæmt nýjum fréttum er fram komin tillaga, soðin saman af Birni Bjarnasyni og Guðna Ágústssyni, þar sem þeir mæla með að í atkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin yrði krafist 75% þátttöku kosningabærra manna. Ef þátttaka væri minni væri tillagan fallin. Ef þessi háttur væri á hafður þyrfti ekki einu sinni að telja atkvæðin ef 25.1% kjósenda skiluðu sér ekki á kjörstað. Málið væri úr sögunni vegna ónógrar þátttöku, jafnvel þó öll greidd atkvæði kosningabærra manna féllu á annan veginn. Ég er að velta fyrir mér hvort ...
Benedikt Sigurðsson.
10. Júní 2004
Telur þú að eigi að mótmæla hryðjuverkum í Ísrael framin af Palestínumönnum af sama krafti og einurð eins og gert er við hernaðar aðgerðum Ísraela? Jafnvel að heimta að þingið sendi ályktun og fordæmi þær árásir á saklausa borgara sem framin eru í Ísrael. Eru ekki þeir saklausu borgarar...
Jóhannes Eiríksson
9. Júní 2004
Nú hefur forsætisráðherra skipað sína menn í nefnd sem á að semja frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ef frumvarpið um framkvæmd þá
telst falskt er líða stundir
við Ólaf nokkurn nefna má
að neit’ að skrifa undir.
Kristján Hreinsson, skáld
9. Júní 2004
Utanríkisráðherra reynir nú að
breyta almennum málskilningi Íslendinga með því að afneita því að íslenska liðsveitin í Afganistan sé hluti af
hernámsliði þessa
ósjálfráða landsvæðis í Asíu.Hann talar í þessu sambandi um Ísland,sem
herlaust,
hlutlaust land.þegar málið snýr að beinni þáttöku íslenskrar liðsveitar,sem skráð er til beinnar þáttöku í hernaðaraðgerðum NATO í Afganistan. Með...
Baldur
9. Júní 2004
Ef marka má skoðanakönnun Baugstíðinda í dag hlýtur að vera hátíð í bæ á Bessastöðum. Samkvæmt könnuninni nýtur sitjandi forseti hvorki meira né minna en 66,3% fylgis meðal þjóðarinnar en mótframbjóðendur hans, sem alls endis óþarft er að kynna, eiga svo sannarlega á brattann að sækja. Til marks um firnasterka stöðu Herra Ólafs má t.a.m. geta þess að Vigdís Finnbogadóttir hlaut aðeins...
Runólfur Áki
9. Júní 2004
Í framhaldi af þessari litlu leiðréttingu tek ég undir hamingjuóskir Runólfs til Herra Ólafs sem hefur aldeilis staðið sig í stykkinu í boltanum með Baugsurum, að ekki sé nú talað um meistarataktana á skíðunum með fræga fólkinu í Aspen eins og berlega má sjá á veraldarvefnum, nánar tilekið á aspensnowmass.com. Mér er orða vant að lýsa...
Þórólfur Þórðarson
8. Júní 2004
Þessi bljúgu bænarorð urðu til nú í morgunsárið:
Við biðjum Guð um betri hlíf
og betri stjórnarherra
enda verður okkar líf
ekki mikið verra.
Kristján Hreinsson, skáld
8. Júní 2004
Sæll Ögmundur
Ég las grein þína um landverðina áðan í Morgunblaðinu. Bendi þér á þetta frá 27/8 ´00 : <
http://www.eldhorn.is/hjorleifur/naust/NAfr2k.htm> og það sem Ómar sagði í viðtali við DV 13/12 ´03 um gerð myndar sinnar (Á meðan land byggist) :
Vertu þægur,Ómar. Ómar hefur reynt að fá styrki til gerðar myndarinnar en jafnan fengið þau svör að menn vilji ekki tengjast því máli. "Margur hefði sagt að ég hefði átt að reyna meira að fá ...
Pétur8. Júní 2004
Ágæti Ögmundur
Í Kastljósi sagði forsætisráðherrann eftirfarandi: Hér eru bæði blöðin og ljósvakamiðlarnir á einni hendi, og þetta þekkist hvergi. Hvaða hendi er það ?
Ég sé ekki betur en mikilvægustu fjölmiðlarnir á Íslandi séu í stafrófsröð
Fréttablaðið, Morgunblaðið, Ríkissjónvarpið, Ríkisútvarpið og Stöð 2. Ég get ekki séð að þeir séu á...
Sigmundur Guðmundsson
8. Júní 2004
Nú eru okkar ástkæru stjórnvöld í óða önn að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðsluna um fjölmiðlalögin. Ég vil aðeins minna á nauðsyn þess að koma upp sérstökum kjördeildum í fjölmennustu kirkjugörðum landsins. Það geri ég með sérstöku tilliti til óvenjufjörugrar þátttöku í hinni annáluðu undirskriftasöfnun þar sem skorað var á forseta landsins að synja lögunum staðfestingar. Látnir einstaklingar munu hafa komið þar talsvert við sögu og nýtt sér tölvutæknina rétt eins og við hin sem ...
Jón Bisness
6. Júní 2004
Eigum við að trúa því að Halldór Ásgrímsson muni ekki eftir þessari grein mannsins sem var formaður þingflokks framsóknarmanna þegar utanríkisráðherra datt sjálfur inn á þing fyrir þrjátíu árum. Mannsins sem studdi Halldór þegar hann steig fyrstu skrefin á Alþingi? Eigum við að trúa því að hann muni ekki eftir röksemdum Stefáns Valgeirssonar í bráðabirgðalagamálinu á sínum tíma? Eigum við að trúa því að sá maður sem Framsóknarflokkurinn kaus til að halda fram arfleifð þeirra Jónasar, Hermanns, Eysteins, Ólafs, og Steingríms þekki ekki þann þráð í sögu flokksins sem Þórarinn Þórarinsson spinnur í greininni sem hér er ...
Ólína
5. Júní 2004
Áfram heldur umræðan og Davíð og Dóri hafa báðir tengt Ólaf Ragnar við Baugsveldið.
Davíð og Dóri þeir góla:
,,Á djöfla hjá Bónus má stóla,
þar illskan er mest,
og auðvitað sést
í merkinu myndin af Óla."
Kristján Hreinsson, skáld
4. Júní 2004
Svo gjörsamlega hefur Morgunblaðið tapað áttum í skrifum sínum að því verður helst líkt við texta mannsins sem skrifaði lokaritgerðina í lagadeildinni á Corolla ritvél með boxhönskum. Þyrftu nú ekki ritstjórar Morgunblaðsins og hinn betur gerði hluti eigendahópsins að velta fyrir sér hvort eitthvað samband kynni að vera milli þess flokkspólitíska kúrs sem Morgunblaðið tók fyrir þremur árum og velgengni Fréttablaðsins á blaðamarkaðnum? Hvort flokkspólitískur kúrs Morgunblaðsins kynni e.t.v. að eiga...
Ólína
3. Júní 2004
Nú er þetta ekki lengur spurning um hægri og vinstri heldur um það hvort menn vilja lýðræði eða forræðishyggju, sem hér áður fyrr var kölluð fasismi. Um þetta kemur þjóðaratkvæðagreiðslan til með að fjalla. Yfirlýsingar Davíðs Oddssonar í Kastljósi í kvöld eru dapurlegar fyrir alla þá sem vilja þeim manni vel.
Sunna Sara
3. Júní 2004
Orðaskak um fólkið flest
fær hér vart að lifa
þegar okkur þjóna best
þeir sem ekki skrifa.
Kristján Hreinsson, skáld
3. Júní 2004
Forsætisráðherra þjóðarinnar kom fram í Kastljósi í köld. Hann tifaði á því að forsetinn væri að fara fram gegn þinginu. Ekki hvarflaði að honum að forsetinn væri að fara fram með þjóðinni. Ólafur Ragnar er aukaatriði í þessu máli. Lykilhlutverki gegnir þjóðin og lýðræðið. Gegn hvoru tveggja, lýðræðinu og þjóðinni gengur forsætisráðherrann. Hvílík lágkúra. En nú eru þeir búnir að ræða saman Davíð og Halldór. Þeir eru sammála segir ...
Hafsteinn Orrason
2. Júní 2004
Sæll Ögmundur
Í tilefni atburða dagsins varð þessi til:
Þörf og góð um þessar mundir
þykir staðreynd sú
að sá sem skrifar ekki undir
er okkar hetja nú.
Kveðja,
Kristján Hreinsson
2. Júní 2004
Ég endurtek áskorun mína um að menn taki málefnalega á þessu máli og láti ekki berast hugsunarlaust með straumnum.
Nú verða vinstri menn að svara, er ef til vill best að styðja frumvarpið eða viljum við ekkert frumvarp? Svarið þykir mér ...
Rúnar Sveinbjörnsson
31. Maí 2004
En hvernig eigum við að skilja viðbrögð hans síðustu vikurnar? Steinn sagði eitthvað á þá leið að í draumunum fælist fall okkar og veikleikar, en það eru engir draumar tengdir því að láta frá sér forsætisráðherrastól – miklu fremur martraðir. Bíddu hægur. Getur verið að viðbrögðin megi rekja til atburða haustsins, eða hræðslunnar við styrk forseta lýðveldisins? Eða er svarsins kannski líka að leita í...
Ólína
28. Maí 2004
Sæll Ögmundur.
Ég vil byrja á því að þakka þér og flokksfélögum fyrir frábært starf í þágu almennings hér á landi. Vangaveltur mínar snúast um viðskiptabankana okkar sem voru seldir svo sorglega hér fyrir nokrum misserum. Nú hafa vinnubrögð þeirra og fégræðgi endanlega gengið fram af mér þegar þeir eru að kvarta undan starfsemi Íbúðalánasjóðs, sem er einn af hornsteinum þess velferðaríkis sem Ísland á að vera. Hvað finnst þér um að ríkið setji á stofn viðskiptabanka og geti þá um leið ...
Halldór
28. Maí 2004
-Heyrðu snöggvast Halldór minn
hlýðni, tryggi drengur
fæ ég kannski flokkinn þinn
að fleka aðeins lengur.
Lof mér nú að leika að
landsins bændaklíku
ég skal bráðum bæta það
með blíðu hinna ríku.
-Jæja þá í þetta sinn
þú mátt nota fólin
en hvernig verð ég hvítþveginn
og hvenær fæ ég stólinn?
Kristján Hreinsson, skáld
28. Maí 2004
Ég minnist þess að við umræðuna um fjölmiðlafrumvarpið vildir þú fyrst fá botn í umræðuna um framtíð RÚV. Nú hefur komið á daginn að þetta reyndist skynsamleg afstaða. Sendimenn frá ESA eru mættir á staðinn, einsog skýrt var frá í fjölmiðlum í gær, til að skilgreina hvort leyfilegt sé að reka stofnunina í núverandi mynd! Geir H. Haarde, fjármálaráðherra hafði áður sagt við Eldhúsdagsumræðuna eitthvað í sama dúr og bætti því við, ef ég tók rétt eftir, að draga þyrfti saman seglin hjá stofnuninni og nú botnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, þetta með því ...
Sunna Sara
27. Maí 2004
Ég hef fylgst með "landvarðamálinu" og er gáttuð á framkomunni í garð landvarðanna sem flögguðu í hálfa stöng á hálendinu í fyrra og fengu ákúrur fyrir. Þetta mál gerir mig ennþá ákveðnari í andstöðu við "áminningarfrumvarp" ríkisstjórnarinnar. Mér sýnist af því sem haft er eftir þér í fréttum að svo kunni að fara að frumvarpið fái ekki afgreiðslu. Ég teldi það mikinn sigur ef þær yrðu málalyktir. Er ríkisstjórnin að sjá að sér? Ég vil taka það fram að ég er ekki ríkisstarfsmaður. Ég er hins vegar ...
Halldóra
27. Maí 2004
Sæll Ögmundur.
Ef marka má Fréttablaðið þá fóru eldhúsdagsumræður fram á þennan hátt:
Stjórnin flækti málin mest,
mjög varð Halldór fyrir tjóni,
Steingrímur þar stóð sig best
en steypan rann úr Sigurjóni.
Með vinarkveðju,
Kristján Hreinsson, skáld
27. Maí 2004
Síðan komu fleiri Framsóknarmenn í ræðustól og töluðu um víxlverkun ofbeldis og að deiluaðilar þyrftu að semja. Þarna er verið að leggja að jöfnu einn tæknivæddasta árásarher í heimi og nánast óvopnaða alþýðu. Voru deiluaðilar í Þýskalandi á sínum tíma ef til vill, nasistar og gyðingar? ...
Hafsteinn Orrason
25. Maí 2004
Í gær var ekkert gott að frétta,
gegnum Þingið frumvarp rann.
Ef Óli skrifar undir þetta
aldrei mun ég kjósa hann.
Kristján Hreinsson, skáld
25. Maí 2004
Eldhúsdagsumræðurnar í gærkvöld voru með fjörugra móti og lét VG ekki sitt eftir liggja fremur en fyrri daginn. Hins vegar voru stjórnarþingmenn, sérstaklega Framsóknarmenn sem álfar út úr hól. Það vakti athygli mína að Valgerður Sverrisdóttir sagði að þér hefði orðið á í messunni að tala um áframhaldandi uppbyggingarstarf. Er manneskjan virkilega þeirrar skoðunar að allt sem gert er í samfélaginu sé ríkisstjórninni að þakka? Þótt ríkisstjórn síðustu ára ...
Lilja
25. Maí 2004
Ég vil þakka sjónvarpsstöðinni Omega og nýjum eigendum hennar fyrir yndislega dagskrá á laugardagskvöldið. Sérstaklega var ég uppnuminn af þættinum “Ég syng honum minn söng” með Árna Johnsen myndhöggvara og tónlistarmanni. Lag hans við sálm Jóns Bisness um foringjann var sérlega fallegt, já undurblítt. Og flutningur Árna var hreint út sagt stórkostlegur. Finnst mér vel koma til álita ...
Ingólfur
25. Maí 2004
Ég vil þakka þér Ögmundur fyrir ræðuna á þingi í gær. Loksins kom fram skilningur á því að pólitík verður ekki bara til á Alþingi. Reyndar finnst mér það nánast aukaatriði hvað gerist þar. Þú hvattir til vakningar í þjóðfélaginu og gagnsóknar í stað varnarbaráttu, funda á vinnustöðum til að hnekkja stjórnarstefnunni. Oft hafa mér fundist þingmenn alltof sjálfhverfir og þörf á að víkka sjóndeildarhringinn. Baráttufána á loft.Við eigum samleið!
Launamaður
23. Maí 2004
Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur keypt meirihluta í sjónvarpsstöðinni Omega. Nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til stöðvarinnar. Uppsagnir eldri starfsmanna standa ekki til, að sögn Hannesar, enda er þar á ferð vant fólk sem kann til verka. En áhrifa umskiptanna sér stað í dagskrá stöðvarinnar strax í kvöld: Dagskrárbreytingin verður á þessa lund:...
23. Maí 2004
Ég er nú ekki með spurningu til þín. Ég vildi aðeins taka undir þá hugmynd þína að slíta stjórnamálasambandinu við Ísraelsmenn. Það er í raun furðulegt að slíkt hafi ekki verið gert fyrir löngu. Þakka þér samt fyrir að vekja máls á því. kær kveðja,
Ólafur
20. Maí 2004
Í framhaldi af umfjöllun Moggans 14. maí, um fátækt í Reykjavík, fórum við nokkrir félagar í vinnuflokkadeild OR að ræða um fátækt, við rifjuðum upp lýsisgjafirnar og hvernig við sem gengum um í bættum fötum urðum fyrir hæðnisglósum. Einn sagði frá móður sem bjó í bragga með syni sínum. Hún kom iðulega fram í dyr braggans og kallaði á soninn og sagði hárri röddu svo allir heyrðu, að ...
Rúnar
20. Maí 2004
Hvorki erum við blóðskyldir, ef marka má Íslendingabók Kára Stefánssonar, ég og forsætisráðherra né heldur liggja á milli okkar leyndir fjárhagslegir þræðir. En eitt áhugamál a.m.k. eigum við sameiginlegt, nefnilega Borgarnesræðuna og peningamál Samfylkingarinnar. Þegar forsætisráðherra druslaðist loksins upp í ræðustól s.l. laugardag til að tjá sig um fjölmiðlafrumvarpið sagði hann m.a...
Þjóðólfur
19. Maí 2004
Þögn flestra þingmanna Framsóknarflokksins í ,,fjölmiðlafrumvarpinu", frumvarpi sem þeir vilja að keyrt sé í gegn um þingið, er æpandi. Það virðist varla nokkur þingmaður fyrir utan Kristin H. Gunnarsson tala opinberlega um málið. Í fjölmiðlum má hins vegar oft lesa fréttir þar sem ónafngreindur þingmaður úr liði Framsóknarmanna lætur ...
Huginn
19. Maí 2004
Nú hafa þingmenn Samfylkingarinnar hamrað á því að fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar sé sértækt og fram lagt til þess að koma rothöggi á Norðurljósasamsteypuna. En hvað með andstöðu þeirra gegn frumvarpinu? Er hún ekki með sama hætti sértæk? Þingmenn Samfylkingarinnar vilja engar hömlur ...
Ingólfur
18. Maí 2004
Ég var að hlusta á kvöldfréttir. Alfreð Þorsteinsson á fullu að mótmæla frumvarpi Davíðs um fjölmiðla enda atvinna mörg hundruð manns í húfi. Allt satt og rétt. Hann segir Framsókn klofna í málinu. En hvers vegna hef ég aldrei heyrt í Alfreð út af niðurskurði á Landspítalanum? Það er líka vinnustaður í Reykjavík. Hefur R-listinn engar áhyggjur af öllu því fólki ...
Starfsmaður á Landspítala Háskólasjúkrahúsi
16. Maí 2004
Hjartanlega er ég sammála þér í skrifum þínum hér á síðunni (14/5) um að vera kominn með uppí háls af öllu þessu yfirstéttar- og kóngadekri, sem mér sýnist heldur vera að færast að nýju í aukana. Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, finnst himinn og jörð vera að farast ef forseti Íslands fer ekki í brúðkaup sonar dönsku drottningarinnar og Halldór Ásgrímsson talar um ...
Sunna Sara
16. Maí 2004
Sæll Ögmundur,
þessi varð til af alkunnu tilefni :
Í afurð sinni einn og sér
enn má Davíð busla
og núna segja herrar hér
að hann sé einsog drusla.
Kristján Hreinsson, skáld
14. Maí 2004
Það sem veldur því að ég skrifa þér þessar línur, Ögmundur, er viðtal eða öllu heldur hláturskast, Donalds Rumsfelds, "varnarmálaráðherra" Bandaríkjanna, sem sýnt var í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Rumsfeld var kominn til Íraks til að stappa stáli í pyntingameistarana. Gott ef hann var ekki í fangelsinu þar sem upplýst hefur verið um hryllilegustu pyntingarnar. Og hvað fannst varnarmálaráðherra Bandaríkjanna um það sem fram hefur komið í fjölmiðlum um pyntingarnar? ...
Sunna Sara
14. Maí 2004
Sæll Ögmundur.
Gilda virkilega engar reglur um það á blöðunum hvernig farið er með innsendar greinar? Ég ætlaði varla að trúa því að Fréttablaðið skuli hafa, án samþykkis þíns breytt grein, sem þú sendir inn til birtingar í blaðinu. Ég las þetta á heimasíðu þinni og furðaði mig á því að þú gerðir ekki meira úr þessu en raun ber vitni. Hvað veldur að þú...
Guðleifur
14. Maí 2004
Ég hef fylgst með umræðunni á Alþingi um fjölmiðlafrumvarpið. Ég er ekki viss um að ég sé alveg sammála ykkur í VG. Mér finnst sjálfsagt að brjóta niður þessar einokunarófreskjur á markaði. Mér finnst nánast hlægilegt að tala um Baug eins og einhvern lítilmagna, sem þurfi að meðhöndla sem slíkan. Það sem ég hins vegar ekki skil er að...
Valdimar
14. Maí 2004
Maðurinn sem lögreglan á Álftanesi lýsti eftir í morgun er kominn í leitirnar. Í ljós kom að hann hafði aldrei yfirgefið heimili sitt heldur var það náinn félagi hans sem reið frá Besssastöðum um miðnæturbil í gærkvöldi. Að sögn Geirs Grana Jóhannssonar, yfirlögregluþjóns á Álftanesi, flaug viðkomandi ...
14. Maí 2004
Lögreglan á Álftanesi lýsir eftir 61 árs gömlum karlmanni, Ólafi Ragnar Grímssyni. Ólafur fór ríðandi frá heimili sínu um miðnæturbil á rauðblesóttum hesti áleiðis til Keflavíkurflugvallar þaðan sem hann ætlaði að fljúga til Kaupmannahafnar á áttunda tímanum í morgun. Við brottför gaf hann sig ekki fram og mun því hvorki hafa farið með vél Icelandair né Iceland Express en um önnur almenn flug til Danmerkur var ekki að ræða. Ólafur er 188 cm á hæð og samsvarar sé vel. Hann er með...
13. Maí 2004
Fréttirnar les Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Í fréttum er þetta helst: Rífandi gangur er á afgreiðslu fjölmiðlafrumvarpsins. Mikil ánægja er meðal stjórnarandstöðunnar með þá lýðræðislegu meðferð sem frumvarpið hefur fengið og er það mál manna að sjaldan hafi þinginu...
12. Maí 2004
Sæll.
Núna telur Baldur brýnt
til Bessastaða að fara
og Óla þykir eflaust fínt
að eiga hann til vara.
Kristján Hreinsson, skáld
12. Maí 2004
Sæll Ögmundur.
Mig langar til að þakka þér hugleiðingar þínar í 1. maí ræðunni sem þú fluttir á Höfn í Hornafirði. Ég las eða heyrði einhverja fréttafrásögn af ræðunni þar sem fyrst og fremst var vitnað í skammir út í ríkisstjórnina. Kannski er þetta eðlilegt fréttamat. Fyrir minn smekk voru hugleiðingar þínar um eftirlitsþjóðfélagið og afleiðingar þeirra kerfisbreytinga sem nú eiga sér stað, miklu merkilegri. Mín tilfinning er sú að ...
Sverrir
8. Maí 2004
Sú spurning vaknar í mínum huga, hve lengi sé eiginlega hægt að teyma okkur á asnaeyrunum. Það gladdi mig því að heyra Halldór Ágrímsson fordæma pyntingarnar í fréttatíma Sjónvarps. Ég kom inn í miðjan fréttatímann þar sem utanríkisráðherra var að úttala sig. Svo kom skýringin í afkynningu ...
Hafsteinn Orrason
7. Maí 2004
Eftir notkun Framsókn fer
flesta menn að stressa
því undir skó hún skellir sér
sem skítug tyggjóklessa.
Kristján Hreinsson, skáld
7. Maí 2004
Sæll Ögmundur,
Ég las grein þína í Morgunblaðinu um daginn, þar sem þú gagnrýndir Verslunarráð og hægrimenn fyrir mótsagnakenndan málflutning varðandi einkavæðingu og einkaframkvæmd. Uppistaðan í gagnrýninni virðist mér annars vegar sú, að hæpið sé að benda á stærðarhagkvæmni, en leggja um leið til að verkefni verði færð frá stórum ríkisstofnunum til smárra fyrirtækja. Hins vegar gagnrýnir þú talsmenn einkavæðingar og einkaframkvæmdar fyrir að einblína á kenningar, en líta ekki til reynslunnar...
Þorsteinn Siglaugsson, hagfræðingur
6. Maí 2004
Í orði hafa fulltrúar Samfylkingarinnar barist fyrir því þjóðþrifamáli að stjórnmálaflokkarnir opni bókhald sitt þannig að greina megi meint hagsmunatengsl milli fyrirtækja og flokka og treysta með því lýðræðislegt vald almennra kjósenda. Frétt Ríkisútvarpsins miðvikudaginn 5. maí sýnir hins vegar að á borði eru Samfylkingarmenn vægast sagt tvöfaldir í roðinu í þessu merka máli og einnig með endemum seinheppnir - eins og raunar í svo mörgu öðru sem þeir hafa ...
Þjóðólfur
3. Maí 2004
...Fullyrðingin sem er athyglisverðust er hins vegar fullvissa dómarans um að aðrir aðilar muni taka við rekstri Stöðvar 2. Hér er vísað inn í framtíðina. Spurningarnar sem menn hljóta að velta fyrir sér i ljósi ummæla dómars eru þessar: Hver á að fá að kaupa og reka Stöð 2 þegar búið er að taka fyrirtækið af þeim sem nú eiga það? Er það kannski gamla SÍS-samsteypan, Finnur Ingólfsson í VÍS og samvinnusjóðirnir, eða smásölublokkir sem ekki eru markaðsráðandi samkvæmt ráðherraúrskurði?...
Ólína
30. Apríl 2004
...Þegar undirliggjandi illdeilur milli forsætisráðherra og Baugs blossa upp þá koma jafnan fréttir frá embætti ríkislögreglustjóra af skyndilegum aðgerðum í langdreginni rannsókn á meintum efnahagsbrotum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og félaga. Og nú, þegar allt er á suðupunkti í samfélaginu vegna fjölmiðlafrumvarps forsætisráðherra, berast óvæntar fregnir af ...
Jónas Ó. Jóhannesson frá Kreppu
29. Apríl 2004
Ég lýsi eins og venjulega yfir fullum stuðningi við allt sem kemur úr smiðju Davíðs Oddssonar og tel eins og hann mikilvægt að koma böndum á rísandi auðvald í okkar ágæta landi. Tvennt mundi ég þó vilja sjá til viðbótar í fjölmiðlafrumvarpinu sem tekur, eins og kunnugt er, til útvarps- og samkeppnislaga. Þessi atriði varða annars vegar hömlur á útburð og dreifingu Fréttablaðsins og DV, eða annarra sambærilegra pappíra í framtíðinni, og svo hins vegar ...
Jón Grímsson frá Bisnesi
26. Apríl 2004
...Í þessu samfélagi leitast handhafar valdþáttanna við að styrkja stöðu sína hver fyrir sig og gera aðra þætti háða sér, eða ná þeim undir sig. Þegar hins vegar valdssamfélaginu er ógnað byrja valdþættirnir að slá í takt eins og hjörtu tveggja gangandi elskenda við Reykjavíkurtjörn og verjast sem ein heild ógninni. Þessir valdsþættir eru hið efnahagslega vald, hið pólitíska vald, lagasetningarvaldið, dómsvaldið og fjölmiðlavaldið. Ísland er í raun ágætt dæmi um þessa breytingu vegna þess að hér eru hlutir sæmilega gegnsæir og forsætisráðherra landsins, 2. þingmaður Reykvíkinga og umboðsmaður 32% kjósenda í landinu, er holdgervingur þróunarinnar. Hann hefur á starfstíma sínum í gamla fangelsinu við Lækjartorg breytt lagasetningavaldinu þannig að...
Ólína
21. Apríl 2004
Dómsmálaráðherra hefur brotið tvenn lög: jafnréttislög og stjórnsýslulög. Lengi vel heyrðust engin viðbrögð frá öðrum þingmönnum um þetta mál. Af hverju þessi þögn?
Raganr Ó.
Það er rétt að fyrst var þögn en síðan hafa heyrst hljóð. Ég held að hin upphaflega þögn ...
21. Apríl 2004
Þú þarft ekki að vera bjartsýnismaður til að lýsa yfir vantrausti. Vilji fólksins er með ykkur og i stað thess að vona sifellt eftir innri rotnun eigið þið að taka róttækt frumkvæði, til að sýna og sanna að þið séuð fær um slikt. Vantraust a Björninn, takk fyrir.
EH
20. Apríl 2004
Sæll Ögmundur.
Maður trúir varla sínum eigin augum og eyrum þegar maður les frásagnir frá Írak þessa dagana. Ég var nokkuð sáttur við málflutning Hallgríms Thorsteinsson fjölmiðlamanns sem var með þér í Silfri Egils um helgina. Mjög áhrifarík var lýsing hans á atburðarásinni í Írak, sérstaklega því sem gerðist eftir að ...
Hafsteinn Orrason
20. Apríl 2004
Sæll Ögmundur.
Hefur ykkur ekki dottið í hug að bera upp vantrausttillögu á dómsmálaráðherra í þinginu?
G. Helgadóttir
Heil og sæl.
Sannast sagna hefur þetta ekki verið rætt, einfaldlega vegna þess að...
19. Apríl 2004
...Björn okkar vakti líka ánægju þegar hann lýsti því yfir í sjónvarpi að hans aðalstyrkur væri staðfesta. Hann sýndi staðfestu með að fylla ekki Hæstarétt af gömlum kerlingum heldur af nýju blóði, forsætisráðherrablóði. Það eykur líka öyggi okkar að...
grj
17. Apríl 2004
... Ég fór í kjölfarið að leita mér upplýsinga um Ray Hanania og rakst þar á þessa frábæru grínagtugu grein sem ég sendi hér slóðina á. Þarna kemur fram hvert hlutskipti fólki er búið þar sem tilveran er alltaf kynþáttagreind...
Kveðja, Björn
15. Apríl 2004
Víst þarf sonur Bjarna Björn
í baráttu að glíma
og nota oft þá veika vörn
að vera barn síns tíma.
Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld
14. Apríl 2004
Sæll Ögmundur.
Þú ert mikill ríkisútvarpsmaður en nú vil ég biðja þig að velta vel fyrir þér nokkrum atriðum sem okkur óbreyttum hlustendum blöskrar. Þegar Ríkisútvarpið virtist ætla að taka sig saman í andlitinu og setja á flot fréttaskýringaþátt þá fengu menn fyrst forsætisráðherra landsins til að skýra stjórnmálaástandið. Þegar Bandaríkjamenn réðust inn í Írak í olíuleit þá fengu menn núverandi dómsmálaráðherra landsins til að skýra út fyrir þjóðinni ástæður innrásarinnar og nauðsyn baráttunnar fyrir lýðræði í heiminum. Þegar lífið var svo murkað úr þúsund manns í helgarferð bandarísku herforingjanna til borgar í Írak þá fengu menn aðstoðarmann menntamálaráðherra, fyrrverandi Morgunblaðsmann og...
Ólína
10. Apríl 2004
Kærunefnd jafnréttismála komst nýlega að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðherra hefði átt að skipa konu í embætti hæstaréttardómara í stað karls, enda stóð honum til boða kvenkyns umsækjandi sem var ekki einasta jafn hæfur og sá sem skipaður var, heldur hæfari...
Þrándur
8. Apríl 2004
En það var nú komið þannig fyrir mér í lokin að ég var farin að hugleiða það að taka líf mitt út af spilafíkninni. Kassarnir voru farnir að ráða lífi mínu. Ég hætti að stunda skólann og svo fór í lokin að ég náði ekki öllum prófum í lok grunnskólans. Reyndar ekki bara út af spilafíkn heldur út af öðrum málum einnig....
Með kveðju,
Rúmlega tvítugur með reynslu af spilakössum.
6. Apríl 2004
Sæll, Ögmundur
Ég var að lesa grein þína um harmafregnina frá Verslunarráði Íslands, þar sem ráðið grætur yfir því að ekki sé hægt að einkavæða Gvendarbrunnana og aðrar vatnsveitur í landinu. Þótt ég sé ekki ánægð með útkomuna úr vatnsfrumvarpinu einsog þú lýsir henni og undrast vesaldóm ríkisstjórnarinnar, þá velkist ég ekki í vafa um, að þið í VG hafið náð...
Sunna Sara
31. Mars 2004
Sæll félagi.
...Þetta er einfaldlega rangt hjá þér félagi, ég tók skuldir umfram eignir, bæði áfallið og væntanlegan "skort" á tekjum næstu áratugina. Þetta er í samræmi við lög um lífeyrissjóði og góða reikningsskilavenju endurskoðenda! Hvar ég er að beita rangfærslum sé ég ekki og finnst þú kominn á nýja braut í þínum málflutningi!
Kveðja, Gylfi
27. Mars 2004
Halldór Ásgrímsson verðandi forsætisráðherra segir að menn hljóti að styðja vini sína. Væntanlega á ráðherran við að annars sé vináttan bara plat og geta allir tekið undir það. Tilefni þessarar staðhæfingar eru athugasemdir fólks (sem er þá varla vinir vina sinna eða hvað?) við uppáskrift íslensku ríkisstjórnarinnar á innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak. Kenning ráðherrans er einföld: Við erum...
Þrándur.
13. Mars 2004
Blessaður.
Þetta er fínt innleg hjá Guðrúnu (sjá les.bréf 10/3). Hins vegar er unglingadrykkja þ.e.a.s hve oft unglingar "detta í það " að aukast hvernig sem á það er litið og því ekki um tegundabreytingu að ræða . Breytingin er sú að...
Kveðjur Árni
10. Mars 2004
Ég er einfaldlega að vekja athygli á því að þróunin hafi ekki að öllu leyti verið eins slæm og þið Árni gefið til kynna. Alla vega held ég að fáir deili um að betra er að unglingar drekki bjór heldur en landa....
Guðrún
5. Mars 2004
Um leið og ég þakka félaga Þjóðólfi athyglisverðan pistil um hægðakenningu Guðna Ágústssonar, en hún gengur út á það að góðar hægðir séu betri en miklar gáfur, vil ég benda mínum kæra vini á mikilvægt atriði sem mér sýnist að honum hafi algerlega sést yfir. Það er sú staðreynd að...
Jón frá Bisnesi
5. Mars 2004
Sæll, Ögmundur.
Ég er alveg sammála þeim sem vilja allar bjórauglýsingar burtu úr sjónvarpi og blöðum. Hitt gegnir furðu að enginn stjórnmálamaður sem nú er á þingi skuli hafa beitt sér gegn því að eimingartæki og efni tíl vín- og ölgerðar skuli vera til sölu í ýmsum verzlunum. Bannað er að...
Sigurður Þór Bjarnason
2. Mars 2004
Enn og aftur hefur það sannast að góðir hlutir gerast hægt eins og segir í kjörorði Samtaka áhugafólks um hvers kyns hægðatregðu. Afreksmaðurinn Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, opinberaði nú nýverið afraksturinn af áratugalöngum rannsóknum sínum á sviði hægða- og gáfnafars. Niðurstaða Guðna er í stuttu máli sú að ..
Þjóðólfur
24. Febrúar 2004
Og nánast daglega varð maður vitni að kraftaverkum, stundum ekki stórum á almennan mælikvarða, en á svona stað er hvert skref hvað smátt sem það er risavaxið. Og einlæg gleði fólksins við hverja smá framför var ómetanleg. Ég man að maður nokkur sagði "Nú veit ég í hvað skattarnir mínir fara, og ég sé ekki eftir þeim."
Ætli það sé ekki tilfellið. Það er hægt að gaspra um hlutina af algeru þekkingarleysi en þegar menn svo reyna þá á eigin skinni...
grj
24. Febrúar 2004
Sæll Ögmundur.
Alltaf áhugavert að lesa síðuna þína. Annars vantar mig upplýsingar sem mér dettur í hug að þú getir hjálpað mér með. Er hægt að nálgast Stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna á íslensku einhversstaðar? Ég finn...
Sigurður Hólm
22. Febrúar 2004
Bankarnir birta uppgjör sín fyrir síðasta ár um þessar mundir og kemur í ljós að það er alls ekki svo slæmur bisniss að reka banka nú á dögum. Þetta kemur auðvitað ekki á óvart, enda segir kostnaðarvitund almúgans að bankar taki vel fyrir hverja þá þjónustu sem þeir veita. Að sönnu staðhæfir Verslunarráðið að þeir taki lægri þjónustugjöld en bankar í grannlöndunum, en svo ótrúlega sem það kann að hljóma eru ...
Þrándur
21. Febrúar 2004
Sæll meistari Ögmundur
Á ágætum vef þínum skrifar þú um málefnalegt innlegg Þorleifs Gunnlaugssonar í umræðu um vímuefnameðferð.
"En að lokum þetta að sinni: Þeir aðilar sem eru faglegir og vinna markvisst og hafa auk þess sannað sig, þurfa ekki að óttast rækilega úttekt og umræðu um þennan geira heilbrigðisþjónustunnar eins og lagt er til í umræddri þingsályktunartillögu."
Þetta er ekki rétt Ögmundur. Það eru einmitt þeir sem eru faglegir og vinna markvisst sem óttast "rækilega úttekt og umræðu" pólitíkusa sem hlaupa með mál inn á Alþingi Íslendinga, alls ómeðvitaðir um ...
Arnþór Jónsson
19. Febrúar 2004
Eftirfarandi snilldartexti, leiftrandi af djúpri hugsun, og sem ég afmarka með gæsalöppum svo ég lendi ekki á Kvíabryggju fyrir hugverkastuld, er eftir þekktan Íslending...
Jón frá Bisnesi
14. Febrúar 2004
Það sem eigendur stofnfjár voru að selja var stofnfé ásamt þeim aðildum að sparisjóði, m.a. við breytingu í hlutafélag, sem því fylgir samkvæmt lögum. Ef einhver vill kaupa þetta á hærra verði en nafnverði stofnfjár kemur engum öðrum það við. Einungis þarf að gæta þess, að...
Jón Steinar
12. Febrúar 2004
Frá barnæsku hefur maður litið á Hannes Hafstein sem mikið skáld og glæsilegan forystumann. Með þessum leikskólaaðferðum var skugga varpað á þá mynd. Ég vona samt að Hannes (Hafstein á ég við) standi þetta hret af sér en það sama verður varla sagt um þá sem mögnuðu upp gerningaveðrið...
grj
7. Febrúar 2004
Á 100 ára afmæli heimastjórnar er mikið gert með Hannes Hafstein, fyrsta íslenska ráðherrann, og það svo að jaðrar við persónudýrkun. Allt er þetta svo sem í takt við strauma samtímans þar sem hjákátleg dýrkun á fáeinum einstaklingum og framtaki þeirra er alls ráðandi en framlag almennings og þjóðarinnar er lítils metið. En hvað ef Hannes hefði nú ekki verið glæsimenni og stórskáld – hvað ef hann hefði verið...
Þjóðólfur
2. Febrúar 2004
Ég var alveg hjartanlega sammála áherslum þínum í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sl. laugardag þar sem þú gladdist yfir því ef samruninn á fjölmiðlamarkaði yrði til að styrkja fjárhagsgrundvöll markaðs- ljósvakamiðlanna. Það er hins vegar hárrétt eins og þú bentir á að til að koma í veg fyrir algera einokun á fjölmiðlamarkaði sem væri raunveruleg hætta, þá yrði að...
Hafsteinn Orri
17. Janúar 2004
Pétur Blöndal segir í fjölmiðlum að hagnaður sinn af sölu SPRON myndi verða um tvær milljónir. Það séu ekki peningar sem ríði neinn baggamun í sínu bókhaldi og það væri þá staðfesting á hæfni hans til að fjalla um og jafnvel að stjórna umfjöllun í þingnefnd um tilgreint mál á grundvelli málefnis en ekki hagsmuna. Hann bætir við að allar ákvarðanir á Alþingi varði einhvern, hagsmunatengsl séu alltaf einhver. Þjóðarmeinsemdin sé...
bjarni
16. Janúar 2004
Höft og helsi koma að sjálfsögðu við kvikuna á öllum ærlegum skáldum; því hvaða andans jöfur er svo aumur að hann vilji ekki fá frið til að skapa og koma svo verkum sínum á framfæri? Í þessum kringumstæðum hefur Jón í Baugsnesi nú þegar ort sitt fyrsta lagafrumvarp, eins og frá var sagt í ...
Eiríkur frá Hannesi
15. Janúar 2004
Þetta er mikill fákeppnismarkaður þar sem lífeyrissjóðirnir eru alltof stórir og virka bara sem hækja örfárra ákafamenn sem falið er vald sem engum er hollt . Víst er að skylda lífeyrissjóðanna að fjárfesta hlutfall tekna sinna á íslenskum hlutabréfamarkaði er að verða þjóðarmeinsemd því að í skjóli þess þrífst mikil spilling sem birtist í ofmetnum fyrirtækjum á mjög vanþróuðum hlutabréfamarkaði. Glaðst hefur verið yfir góðri ávöxtun lífeyrissjóðanna ...
Bjarni
13. Janúar 2004
Ögmundur Jónasson vekur hér á síðu sinni athygli á djúpgrunduðum vangaveltum Hannesar G. Sigurðssonar aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins þess efnis m.a., að fjölgun opinberra starfsmanna dragi óhjákvæmilega úr hagvexti. En eins og Ögmundur sýnir fram á stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi Hannesar enda verður ekki betur séð en aðstoðarforstjórinn sé að minnsta kosti...
Þjóðólfur
11. Janúar 2004
Og mikið mundi það nú létta byrðarnar á baki forsætisráðherrans ef ýmsir helstu viðskiptajöfrar landsins tækju þessu tilboði Háskólans. Námskeiðið kostar að vísu 16.100 krónur pr. mann en gæti...
Jón Bisness
6. Janúar 2004
Ég vil byrja á að hrósa þér fyrir að taka strax afstöðu gegn hinu umdeilda frumvarpi um eftirlaun ráðherra og hækkun til formanna þingflokka stjórnarandstöðu. Ég get ekki skilið af hverju þingmenn þurfa betri eftirlaun en aðrir í þjóðfélaginu, eða þeir þurfi að vera betur tryggðir heldur en aðrir...
Sigurbjörn Halldórsson.
4. Janúar 2004
Í ávarp forseta Íslands við áramót lagði hann mikla áherslu á hlutverk Íslendinga í breyttum heimi. Á sviði viðskipta væri landslag breytt og tækifæri mikil. Fram kom í ávarpinu að íslenskir athafnamenn eigi kost á stjarnfræðilegum gróða ef rétt væri á málum haldið. Mikilvægt væri að draga ekki úr frelsi til athafna með óþarfa lagasetningu sem hefti starfsemi...
Bjarni