Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

31. Desember 2002

To be or not to go

Mjallhvít litla vann og vann
en vildi á dansleik fara.
Í hugum dverga bræðin brann.
Hún burt sér skyldi snara.


Dvergar vildu síðan sátt
og sögðust tilboð gera,
"það eina sem þú ekki mátt,
er að fara og vera".
Gísli Sigurkarlsson

31. Desember 2002

Um Imbu góðu og Árna dverg

Í grein í Mbl. 28. des. leggst Samfylkingarmaðurinn Valdimar Leó Friðriksson á hnén og kvittar rækilega undir þá persónudýrkun sem tröllríður íslenskum stjórnmálum þessa dagana. Víst er að almenningi er ekki skemmt við lesturinn enda kominn með upp í kok af ofurmennapólitíkinni...
Með nýárskveðju, Björn Á Björnsson

29. Desember 2002

Tilvitnun í sögu

Blessaður.
Þú spyrð í hvaða texta ég vitni í skrifum mínum sem birtust hér á síðunni 24/12. Tilvitnanirnar eru úr laglegustu sögu rithöfundar, sem sendi frá sér smásagnasafn fyrir jólin. Hann er andstæðingur þinn í stjórnmálum. Davíð Oddsson.
Kveðja
Hafsteinn 

24. Desember 2002

Lýsandi, en síður upplýsandi

Mér finnst skorta nokkuð á gagnrýni hjá ykkur í VG Ögmundur og þið látið menn og fjölmiðlamenn komast upp með óþarflega mikla manípúlasjón. Það var til dæmis einhver félagsvísindamaður sem sagði á dögunum að Halldóri Ásgrímssyni ætlaði greinilega ekki að takast að  rétta Framsóknarflokk sinn við í Reykjavík.
Hafsteinn

23. Desember 2002

Heil brú - og brotin

Samfylkingin hefur árum saman lagt áherslu á tiltekna lausn í kjördæmamálum. Flokkurinn samþykkti núverandi skipan, þá skipan sem kosið verður eftir í vor,  með hangandi haus og hálfréttri hönd...
Hafsteinn

23. Desember 2002

Stjórn fyrir almenning en ekki einstakling

Ungir jafnaðarmenn eru hamingjusamir þessa dagana enda hafa þeir kvartað mjög undan því að Samfylkingin væri að sumu leyti dálítið gamaldags og mosavaxið fyrirbæri. En nú er liðstyrkurinn kominn fyrir nútímalega jafnaðarmenn með frjálshyggjulegu hægriívafi...
Þorleifur

23. Desember 2002

Af hverju réðst Hitler inn í Pólland?

Heill og ævinlega sæll Ögmundur
Ég hef heyrt þá skýringu á upphafi heimsstyrjaldarinnar síðari að Adolf Hitler hafi reiðst gríðarlega aðfaranótt 1. sept. 1939 vegna þess að íslensk kona neitaði honum um drátt...
Dolli

19. Desember 2002

Hverjir tóku ákvörðun um þátttöku Íslendinga í loftárásum á Serbíu?

Ögmundur.
Mig langar að vita hvernig ákvarðanatöku var háttað þegar Ísland samþykkti aðild að loftárásum á Serbíu vegna Kosovo. Tóku Davíð og Halldór þá ákvörðun upp á eigin spýtur eða var hún tekin í umboði utanríkismálanefndar?
Kær kveðja, áfram Ísland, Friðrik

18. Desember 2002

Húmoristarnir í Framsóknarflokknum

Framsóknarmenn eru einstaklega ómálefnalegir þessa dagana enda er hlutskipti þeirra ekki öfundsvert. Þeir hafa eftir bestu getu reynt að þagga niður lýðræðislega umræðu um fyrirhugaðar stóriðjuframkvæmdir á Austfjörðum...
Stefán

17. Desember 2002

Örvhentur, örvfættur og til vinstri

Hæhæ... ertu ekki örugglega örvhentur?
Stjáni Ara

17. Desember 2002

Hver verður endanlegur kostnaður?

Ég hef miklar áhyggjur af virkjunaráformum og ekki minnkuðu þær við tilboð sem samþykkt var frá Impregilo. Eg hef ekki fengið þetta staðfest en þegar Kaupmannahafnarkommúna auglýsti eftir tilboðum í fyrirhugað neðanjarðarlestarkerfi var lægsta tilboð 2.7 milljarðar danskra króna sem kom frá frá einhverri samsuðu stórra verktaka, þar á meðal Impregilo...
Kveðja Andrés Kristjánsson

17. Desember 2002

Á að útrýma fátækt með frjálsum framlögum eða samfélagslegum lausnum?

Sæll Ögmundur.
Á undanförnum 10-15 árum hefur æ meir borið á umræðum um fátækt í aðdraganda jólanna þótt auðvitað sé skorturinn ekki bundinn við einn mánuð á ári...
Með kveðju, Gunnlaug Guðmundsdóttir

16. Desember 2002

Af hverju beitir Framsóknarflokkurinn bolabrögðum?

Framsóknarmenn beita ómerkilegum aðferðum þessa dagana enda í vondum málum. Þeir tuddast gegn lýðræðilegri umræðu um stóriðjuáformin, ráðast á vísindamenn og reyna að gera lítið úr öllum sem andæfa þeim...
Jón Árnason

16. Desember 2002

Er verið að öryrkjavæða Ísland?

Ágæti Ögmundur.
Dálítið sérkennileg umræða hefur farið fram um málefni öryrkja í fjölmiðlum að undanförnu. Í Fréttablaðinu 11. des. s.l. segir að fjöldi örorkulífeyrisþega hafi tvöfaldast á tíu árum...
Kveðja, Sigríður Kolbrún Einarsdóttir

13. Desember 2002

Nýir kjölfestufjárfestar í Atlantsskipum

Undir myndinni af Atlantsskipum er alrangur myndatexti og ávallt skal hafa það sem sannara reynist: Nýir kjölfestufjárfestar í Atlantsskipum: Ögmundur Gróðdalín til vinstri, Össur Bisness til hægri...
Jón frá Bisnesi

13. Desember 2002

Stolið frá höfundi Sovétríkjanna

Blessaður og sæll Ögmundur.
Fyrirhuguðum framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun og álver við Reyðarfjörð hefur verið líkt við atvinnuuppbyggingu í Sovétríkjunum á tímum Stalíns. Þarf þó ekkert endilega að binda sig við Stalínstímann því miðstýrt atvinnulíf Sovétríkjanna var löngum á sandi byggt. Þar var sjaldnast hugað að arðsemi eða markaðsmálum og aldrei að umhverfismálum...
Þórður

12. Desember 2002

Virkjunin mikla og velferðarkerfið

Blessaður Ögmundur.
Það var þakkarvert að vekja athygli á ósmekklegum málflutningi utanríkisráðherra í umræðum um Kárahnjúkavirkjun á Alþingi í gær. Og þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann talar til landsmanna eins og þeir séu skyni skroppnir. Í hvert skipti sem stóriðjustefna ríkisstjórnarinnar hefur borið á góma á undanförnum árum hefur Halldór Ásgrímsson látið eins og hann hafi fundið upp hjólið og bent drýgindalega á tengsl hagvaxtar og velferðar, sem flestum eru raunar kunn...
Með bestu kveðju, Gunnlaugur Guðmundsson

12. Desember 2002

Af hverju þessi þögn um kjölfestu allra landsmanna?

Sæll Ögmundur
Í ágætri grein í Fréttablaðinu 7. desember skýrir þú hvernig ríkisstjórninni tekst að sýna fram á stórkostlegan rekstrarafgang ríkissjóðs með bókhaldsbrellum á grundvelli yfirstandandi rýmingarsölu á eignum þjóðarinnar. Auralausum framsóknarmönnum er færður Búnaðarbankinn á silfurfati. Samsonarnir fengu Landsbankann en þeir voru ekki tómhentir enda búnir að gera það gott við framleiðslu á áfengum drykkjum í Rússlandi...
Með bestu kveðju, Björn Ólafsson

11. Desember 2002

Hræddir og hrokafullir ráðamenn

Sæll Ögmundur.
Stjórnarformaður Landsvirkjunar, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, skýtur nú föstum skotum á alla þá sem eru á móti Kárahnjúkavirkjun og raðar inn sjálfsmörkum í beinni útsendingu. Hann ber vísindamenn þungum sökum, segir þá hafa fórnað starfsheiðri sínum, af því að þeir segja ekki já og amen við öllu sem frá Landsvirkjun kemur. Þá segir hann að náttúruverndarsamtök gangi gegn lýðræðinu með því að berjast gegn því sem þegar hefur verið samþykkt á Alþingi. Mér finnst framkoma Jóhannesar með endemum og minna einna helst á taugaveiklaðan og hrokafullan einræðisherra. Eða hvað sýnist þér um málflutning stjórnarformannsins og skilning hans á lýðræðishugtakinu?
Reynir Ragnarsson

10. Desember 2002

Eiga komandi kosningar að snúast um geðslag forsætisráðherra?

Sæll Ögmundur.
Á köflum finnst mér þjóðmálaumræðan bæði ófrjó og þreytandi. Áberandi er að Samfylkingin virðist vera með forsætisráðherra á heilanum. Forystufólk hennar talar um skapferli Davíðs og stjórnunaraðferðir hans, hann sé orðinn allt of geðstirður illskeyttur. Nú sé kominn tími til að skipta um, Davíð sé búinn að sitja svo lengi og valdið spilli með árunum...
Kveðja, Þórður.

24. Nóvember 2002

Vilja fá að vera með í stríði

Heill og sæll Ögmundur.
Nú berast fréttir af yfirvofandi stórauknum framlögum úr sameiginlegum sjóðum okkar Íslendinga til NATÓ. Virðist þar muna mestu um þann höfðingsskap háttvirtrar ríkisstjórnar að punga út 300 milljónum króna til loftflutninga við sérhvern þann hernað sem NATÓ vill leggjast í. Það vantar greinilega ekki peninga í ríkiskassann þegar göfug málefni eru annars vegar. Ég treysti því að þú og þínir flokksmenn beitið ykkur af alefli í þessu máli. Þjóðin á heimtingu á því að ráðamenn verði látnir svara undanbragðalaust fyrir gerðir sínar. Þá væri einnig fróðlegt að heyra eitthvað um afstöðu annarra stjórnandstöðuflokka en Vinstri grænna til vaxandi umsvifa Íslands í stríðsrekstri á hendur þeim ríkjum heims sem ekki eru þóknanleg Bandaríkjastjórn hverju sinni. Loks langar mig að spyrja: Fram kom í fréttum að ríkisstjórnin hafi samþykkt hin auknu hernaðarumsvif sín fyrir tveimur vikum. Er það virkilega svo að þessi ógeðfellda samþykkt stjórnarherranna hafi ekki komið til kasta Alþingis? Mér finnst það vægast sagt ósmekklegt ef það er hlutskipti þjóðkjörinna fulltrúa að fá sínar fyrstu fréttir af svona málum í fjölmiðlum.
Helga Þorsteinsdóttir

22. Nóvember 2002

BSRB tryggi persónuvernd

Komdu sæll Ögmundur.
Ég hlustaði með athygli á viðtalið við þig í morgunútvarpinu í gær um persónuvernd. Sjálf er ég í BSRB og er mjög ánægð með að samtökin skuli taka þetta málefni upp og hvet til þess að að haldið verði áfram á þessari braut. Reyndar hef ég minnstar áhyggjur af því að kíkt sé í tölvuna mína. Mér finnst öllu verra þegar vinnustaðurinn er farinn að færa sig upp á skaftið með tilkomu svokallaðra trúnaðarlækna. Í útvarpsviðtalinu sagðir þú að Finnar væru að setja reglur um hvernig farið skuli með heilsufarsupplýsingar á vinnustað. Er ekki þörf á að setja slíkar reglur hér á landi?
Ein sem vinnur á bókasafni

19. Nóvember 2002

R-listinn virði samninga

Sæll Ögmundur. Þú ert einn af þeim fáu stjórnmálamönnum sem ég hef haft trú á. Því langar mig til þess að spyrja þig hvort þér finnist ekki óþægilegt að þinn flokkur skuli vera aðili að R.lista samstarfinu núna þegar R.borg virðist ekki ætla að standa við hluta úr kjarasaming er gerður var við St.Rv í byrjun árs 2001 og gilda átti til 30.nóv 2005.
Sigurbjörn Halldórsson

13. Nóvember 2002

Gagnagrunnurinn og ráðherrann

Komdu sæll Ögmundur.
Ég vil þakka þér fyrir að krefjast þess á Alþingi í gær að lögin um gagnagrunn á heilbrigðissviði verði endurskoðuð. Reyndar finnst mér það ekki vera nýjar fréttir að gagnagrunnurinn stríði gegn siðareglum lækna. Ég man ekki betur en þessu væri haldið fram þegar lögin voru samþykkt á sínum tíma. En eru nokkrar líkur á því að Alþingi breyti einhverju jafnvel þótt sest verði yfir málið að nýju, ekki lofa viðbrögð Valgerðar Sverrisdóttur ráðherra frá í gær góðu? Hún virtist strax búin að ákveða niðurstöðuna, að þetta væri bara upphlaup og ekkert annað.
Finnur

8. Nóvember 2002

Um listaverkaránið í bönkunum

Bara að minna þig á ef þú bendir á gleymsku annara vegna málverka Landsbankans þá benda 4 fingur á þig sjálfan. Það er léleg framkoma að kenna öðrum um sem þú hefðir getað bent á áður en salan fór fram, en því miður þitt líf virðist snúast um nöldur en ekki stjórnmál. Með kveðju og von um jákvæða umræður og ábendingar áður en verk eru framkvæmd.
Finnbogi B. Ólafsson

8. Nóvember 2002

Listskreyttir bankar

Komdu sæll Ögmundur.
Var ekki nokkuð til í því hjá Valgerði Sverrisdóttur viðskiptaráðherra þegar hún benti á það á Alþingi að engum væri greiði gerður að taka málverkin út úr bönkunum. Mér finnst ágætt að hafa þau þar til sýnis.
Hafsteinn

28. Október 2002

Hernaðaráform Bandaríkjanna

Sæll og blessaður. Á ekkert að mótmæla kröftuglega í sambandi við Írak? Ég er ekki sáttur við að Ísland styðji þessa stríðsóðu þjóð sem kallar sig þjóð friðar, USA, sem einnig styður fjöldamorð í Palestínu? Hvað er að okkar ráðamönnum?
Tóti

28. Október 2002

Stjórnarsamstarf eftir kosningar

Sæll Ögmundur! Kemur annað til greina en að styðja ríkisstjórn Framsóknar og Samfylkingar, jafnvel verja þá falli ef þessir tveir flokkar ná ekki meirihluta? Hvernig má það vera að sá flokkur sem er lengst vinstri í stjórnmálum á Íslandi, haldi þeim möguleika opnum að starfa með þeim flokki sem er lengst til hægri í stjórnmálum.
Kveðja Haraldur

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIÐLAR SKOÐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta