Fara í efni

VG KOMI HEIÐARLEGA FRAM

Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali máli bandalagsins eins og nú er gert.
Annað er óheilindi af verst sort.
Jóhannes Gr. Jónsson