Fara í efni

HVAR ERU MÁLSVARAR SKYNSEMI?

Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum.”
Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í eldflaugaverksmiðjunni. Sennilega líka í kauphöllinni í Wall Street.
En dapurlegt er það að þeir sem eiga að kallast leiðtogar heimsins séu á vegi staddir þar sem þessi maður er. Hvar eru málsvarar friðar og skynsemi?
Jóel A.

https://www.visir.is/g/20222256231d/vaktin-sagdi-ukrainumenn-gera-russa-ad-fiflum