Fara í efni

EIGNATILFÆRSLUSTJÓRNIN

Þetta gengur allt út á "eignatilfærslur", að ræna þjóðina (þjóðirnar) auðlindum og eigum. Alvöru kapitalisti er sá sem byggir upp sjálfur, helst frá rótum, en rænir ekki eigum almennings til þess að auðgast sjálfur. Á því tvennu er  grundvallarmunur.

Bankana færum við Björgólfum sterkum,
blásum að rótum glóðar.
Stefnum að miklum og stórum verkum,
stelumst í eigur þjóðar.
Kári