Fara í efni

NÚ ER ÞAÐ NALLINN!



Sósíalistar sigla á þing
seinna á þessu ári
Auðvitað nú Nallann syng
nelgdu það Gunnar Smári.

Fréttastjóri Fréttablaðsins hraunar yfir strandveiðar: „Fær viðskiptavinur trillukarlsins ormétinn þorsktitt?“

Aðalheiður er alveg óð
aldeilis illa hitti
segir sjómenn veiða kóð
og sýkta ormatitti.

,,Sumarið í seinna lagi‘‘

Ekki er við það laust
ef við drauma tengi
Að sólin sjáist í haust
og sumarið þá fengi. ,

,Á VESTURLANDI‘‘

Dropana teljum tvo og þrjá
talandi um veðraskil
þeir fyrir austan sólina sjá
ég sanngirnina vil.

Vilja auðlegð

Elítuna hér einhverjir sjá
í ekta dýrðarljóma
því auðlegðina allir þrá
og alsnægtir róma.

Trausti rúin ríkisstjórn

Þessi ríkisstjórn í raunini er
almennu trausti rúin
Og eftir henni víst enginn sér
enda spilt og lúin.

HVAÐA FLOKKUR ER ÞETTA?

Leikur á milli lunninga
léttúðin og svikin
Klappa á bak kunningja
krefja um viðvikin.

! Formaður Samfylkingarinnar sagður vera í miklum vandræðum- ,,EKKI Í FYRSTA SINN!''

Oft við sjáum vandræði þar
af vondum eineltis toga
Formennirnir allir flýja í var
nú finna þeir að Loga.

,,KOSNINGALOFORÐIN‘‘

Kosningar hér koma senn
krjúpa frambjóðendur
Þá gallaðir og góðir menn
bjóða gullnar lendur.

Sjáum leið

Með Sósíalistum sjáum leið
sótt verður á Íhaldið
Þá verður gatan öllum greið
og gliðnar elítu valdið.

,,Dómsmála-stýran‘‘

Afsökun vildi Áslaug fá
auðfús til varna
Kærunni vildi vísa frá
og verja Bjarna.

,,TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ÞANN‘‘

Sautjándi júlí kemur senn
sjötíu og fjagra verður þá
Hann segist í fullu fjöri enn
farðu varlega og slakaðu á.

Höf. Pétur Hraunfjörð.