Fara í efni

JÓLIN KOMA SNEMMA Í ÁR

Þórðargleði það kallast vikið
Þau fóru oft bæði yfir strikið
Sigríður A snúin
Brynjar N lúinn
og kostuðu okkur alltof mikið.

Þar svindlararnir samhentu
á sakleysið þeir allir bentu
allir óseðjandi
alveg óverjandi
en Samherjar á Helga lentu.

Brynjar og Sigríður hætta á þingi!

Eflaust eru þau farin frá
fagnar því vel landinn
Brynjar og Sigga bæði sjá
að sjálftaka er vandinn.

 Menn mættu nú aðeins doka
með Domus þó vilji þar loka
vanda sinn leysa
en vandræði reisa
og auðæfum hætta að moka.

,,0.5%.LÆKKUN Á FASTEIGNAMATI Í GRUNDARFIRÐI‘‘ 

Hér fasteignaverð er farið að lækka
fasteignagjöldin eflaust að smækka
gatan ei greið
allt á niðurleið
og vandinn trúlega mikið að stækka

Þaðan finn ég illan þef
Þarna skömmina verja
Þeim ei þetta fyrirgef
Þreyttur á Samherja!

Kominn heim frá Kaupmannahöfn
kannski dálítið þreyttur
þar hitti ´ann marga með stór nöfn
maðurinn virðist óbreyttur.

Höf. Pétur Hraunfjörð