Fara í efni

ÓÚTSKÝRÐ VAÐLAHEIÐI

Ég vil þakka Grími sem skrifar í dálkinn “frjálsir pennar” fyrir að hreyfa Vaðlaheiðarmáli. Ég hef saknað þess að fjölmiðlar færu í saumana á því máli. “Orsök VHG-19 kreppunnar eru gamlir misreikningar. Sérfróðir búast við að þá gjaldfallnar, enn vaxandi skuldir VHG hf við ríkið gætu orðið 19 milljarðar 2021.” Þetta skrifar Grímur. Eru þessir 19 milljarðar ekki helmingi meira en lagt var upp með? Væri hægt að fá svar við því? 

Jóel A.

Sæll Jóel. Við þessu var varað á sínum tíma og vissulega þarf að fá þessu svarað. Sammála þér um það.
Kv.,
Ögmundur