Fara í efni

KÓRÓNA OG TORTÓLA

Ef kórónaveiruna kallinn fær
nú kominn á aldur og elliær
já orðin lúinn
þrekinu rúinn
aðrir mættu nú líta sér nær.

Já menntun er mátturinn
sem margir í sækja
Og hafður er sá hátturinn
í háar stöður krækja.

Í Keflavík um kvóta ræðum
kynnum fólki arðsemi hans
Ansi lítið á ´onum græðum
allt fer til útgerðamanns.

Sultarlaun þar fólkið fær
fjandi þunn er sneiðin
kvóta hefðin er þeim kær
og Tortóla leiðin.

Höf. Pétur Hraunfjörð.