Fara í efni

SKIPTIR VG UM NAFN?

Mér finnst ágæt hugmyndin sem nefnd er í grein þinni um hvernig þú myndir einkavæða raforkuna varðandi nafnabreytingu á Vinstrihreyfingunni grænu framboði. Það væri markvissara og betur lýsandi að stytta nafnið þannig að flokkurinn héti einfaldlega Hreyfingin framboð. Skammstöfunin yrði ekki síður upplýsandi. Ég hef til þessa alltaf stutt VG en nú er mér öllum lokið og spyr hvað er til ráða? 
Jóhannes Gr. Jónsson