HERÆFINGAR NATÓ MEÐ MEIRU
Herskipin nú hópast að
í heræfingum gellur.
Og flugvélar hér fylltu hlað
að sækja Kanamellur.
Pétur Hraunfjörð
Herskipin nú hópast að
í heræfingum gellur.
Og flugvélar hér fylltu hlað
að sækja Kanamellur.
Pétur Hraunfjörð
Sæll Takk fyrir fundinn fyrr í dag (í gær). Verður hægt að
nálgast glærurnar og upptöku af fundinum? ... Eitt sem mér fannst
nokkuð einkennilegt var að mikið var talað um peningaöfl en samt
ekki hver þau í raun væru í núverandi samfélagi. Orðin
ferðaþjónustua og hótel voru lítið sem ekkert notuð. Það gæti
enginn sagt að VG hefði gert neitt nema að beygja sig niður fyrir
þeim öflum á kostnað íbúa borgar og lands. Líf dásamar airbnb og
heldur áfram núverandi meirihluta. Katrín talar á móti
skattalagabreytingum því hún vinni gegn minni félögum. SJS gerir
lítið út umhverfisáhrifum ferðaþjónustunnar ...
Daníel Þór
Þakka þér fyrir að standa fyrir fundi um braskavæðingu
borgarinnar. Ég hvet sem flesta að leggja leið sína í Efstaleitið
og verða vitni að því sem þar er að gerast. Í stað opins fallegs
svæðis þar sem Útvarpshúsið naut sín vel er nú komin mini-Manhattan
nema að á Manhattan hefði þetta aldrei verið leyft! Vísa ég þar í
Central Park sem ...
Jóel A.
Kjararáðið kepptist við,
kaupið hækka toppa.
Fjögur prósent fáið þið,
flóðið viljum stoppa.
Kári
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Verkalýðsdegi að vanda hér fögnum
en samstöðuna nú almennt mögnum
sjáum erfiða tíma
við verðlag glíma
og kaupmáttarskerðingum höfnum.
Spillingin leikur enn lausum hala
líka hjá stjórnarliðinu
Þeir eignir okkar undir sig mala
og eru með í spilinu.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Hér vandræða tíma og mikla vá
vonbráðar fáum að horfa upp á
stjórnin þá fallin
og Bjarni kallinn
og langflestir vilja kosningar fá.
Já ef ég ætti banka bréf
bráðlega yrði ríkur
Engin fátækt ekkert þref
eymdinni allri líkur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Ef vantar fé í villta neyslu,
velgjörðirnar munum.
Bananasýslan bauð í veislu,
bankaræningjunum.
Gráðugir sýnast sumir menn,
sækja pund og franka.
Mafíustarfsemi magnast enn,
margir rændu banka.
...
Kári
Ég er hjartanlega sammála þér um Íslandsbankamálið. Menn láta sem hneykslið sé hverjir keyptu. Auðvitað kaupa þau sem eiga pening og vilja enn meiri pening, liggur það ekki í augum uppi? Jú, það gerir það þegar á það er bent. Og það var gert og varð þá mikið fár. Þess vegna var salan “misheppnuð”. En hneyklsið var ekki þetta, heldur ...
Sunna Sara
Ég var ánægð að sjá afdráttarlausa afstöðu oddvita Sósíalistaflokksins, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, til spilakassa í borginni: Hún vill þá burt. Nú bíðum við eftir öðrum flokkum. Ég hef ekki kosið Sósíalistaflokkinn til þessa en það gæti breyst. Nú bíð ég eftir afstöðu annarra flokka.
Ein sem þekkir spilavandann úr sinni fjölskyldu
Sigurður Ingi formaður Framsóknarflokksins og ráðherra virðist vera sloppinn fyrir horn eftir rasísk ummæli sín. Þökk sé Íslandsbankahneykslinu. Og Boris Johnson forsætisráðherra Breta sem var við það að missa embætti sitt eftir að hafa logið að þingi og þjóð um samkvæmi þvert á kovídreglur í embættisbústað ráðherrans virðist líka sloppinn. Nú fundar hann í Úkraínu og um Úkraínu og tvídar í Rússlandi um hve góður kall hann sé. Þannig er hann ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Áætlun í Hvítabretlandi um að reisa fangabúðir fyrir “ dökk innskot ”, skv. litgreiningu, flóttafólk undan stríðshelvíti, hungri og pólitískum ofsóknum, er framkomin. Rúanda er keypt til vistunar á dökku flóttafólki, því fullgott til dvalar og þar skulu fangabúðir Hvítabretlands reistar og starfræktar. Þar með skal brugðist við “svörtu hættunni” sem steðjar að Hvítabretlandi nútímans, henni er ætlað að “ gufa upp”, týnast í myrkviðum Afríku, fjarri siðmennt. Til Hvítaíslands slæðist stundum mislitt fólk á flótta ...
Lesa meiraÞegar ég staðhæfði, skömmu eftir að innrás Rússa hófst, að Úkraínustríðið væri staðgengilsstríð var allt slíkt tal stimplað sem «Pútínáróður» enda væri stríðið einfaldlega þjóðfrelsisstríð Úkraínu. Slíkir stimplar eru vissulega enn á lofti og mynd þjóðfrelsisstríðsins er haldið fast að okkur í fjölmilum. Inn á milli heyrist samt oftar og oftar frá háum stöðum, ekki síst í Washington, að Úkraínustríðið sé einmitt – staðgengilsstríð. Það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir sambandi “staðgengils» og þeirra sem hann «staðgengur” fyrir ...
Lesa meiraEftirfarandi grein er stíluð til félaga í Vinstrihreyfingunni grænu framboði og birtist fyrst 9. maí á vettvangi þeirra. Þar sem ég tel hana eiga erindi út fyrir raðir Vinstri grænna hef ég farið fram á að hún birtist hér á þessum opna vettvangi.
Í meðfylgjandi grein í Kjarnanum frá 6. maí stendur þetta:
„Íslensk stjórnvöld styðja þær ákvarðanir sem þjóðþing Finnlands og Svíþjóðar munu taka varðandi aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO). Engin breyting hefur orðið á samþykktri stefnu Vinstri grænna (VG).Þetta kemur fram í svari ...
Eitt er að hafa skoðun annað að hafa ritskoðun. Þótt ást og hatur virðist við fyrstu sýn vera andstæðar tilfinningar hafa vísindamenn á sviði taugalíffræði komist að þeirri niðurstöðu að sömu rásir í heilanum tengist bæði ást og hatri. Þá benda rannsóknir í sálfræði til þess að því dýpri sem „ástin“ er þeim mun meira sé „hatrið“. Þetta tvennt virðist því fara saman. Nútildags eru tjáðar skoðanir sem ekki fylgja valdinu í blindni flokkaðar sem „hatursorðræða“...
Lesa meira... Óljóst er hverjar svikasakir voru bornar á útlægan Andskota forðum. Ráð er að taka dóminn upp, finna leið sátta. Færa Djöfsa upp til fyrra embættis í Guðsríki, banna slaufun og einelti gegn honum. Gera hann að bættum engli, þótt meðferð kosti. Við slíka sátt lýkur því Miklastríðinu, en við það missa þó krossmenn spón úr aski og aðrir kjörnir stríðsmenn. Mikjáll stríðsengill missir embættið ...
Lesa meiraEinkennist utanríkispólitík Pútíns af útþenslustefnu? Því verður ekki svarað nema skoða hana í samhengi við pólitík annarra heimsvelda. Það þarf jafnframt að skoða öryggismálastefnu Rússlands í sögulegu samhengi – og þar birtist furðu mikil söguleg samfella þrátt fyrir ólíkt stjórnarfar í Kreml á ólíkum tímum. Það er ljótt og það er ógnvænlegt stríðið sem geisar í Úkraínu ...
Lesa meira