SARAH GLYNN: LAST WEEK IN KURDISTAN
28.04.2026
Fullur titill á þessum nýjasta pistli Söruh Glynn er Turkey´s hold on Kurdish progress: Last week in Kurdistan. Hér fjallar hún um stöðu Kúrda í Tyrklandi, Sýrlandi, Írak og Íran en í öllum þessum löndum er nú þrengt að Kúrdum með stuðningi vestrænna þjóða - sums staðar að undirlagi þeirra. Undantekningin er Íran því þar er það klerkaveldið sem sér um ofbeldið innan sinna landamæra og utan reyndar einnig því stöðugar árásir er gerðar á búðir landflótta íranskra Kúrda í Írak.