Fara í efni

HVAR FÆ ÉG HLJÓMDISKINN?

Þakka þér fyrir skrif þín um Andrés Björnsson og Einar Benediktsson, Tími er svipstund ein sem aldrei líður. Mér þóttu þessi skrif þín vera orð að sönnu. Ég las viðtalið við Andrés sem þú lést okkur lesendur fá aðgang að og las ljóð Einars Benediktssonar, Kvöld í Róm. Nú verð ég að eignast hljómdiskinn með ljóðalestri Andrésar Björnssonar, en hvar er hann að fá? Geturðu upplýst um það Ögmundur?
Jóhannes Gr. Jónsson 

Nei, því miður get ég það ekki Jóhannes en ráðlegg þér að spyrjast fyrir hjá Ríkisútvarpinu.
Kv.,
Ögmundur