Fara í efni

ENGINN VANDI AÐ STELA ÍSLANDI

Ég las grein þína um landsöluna og vesaldóm ríkisstjórnarinnar í landsölumálum og hlustaði á ykkur Brynjar á Bylgjunni. Ég er sammála þér í hverju orði og fannst mér ég heyra á Brynjari að þetta væri farið að trufla pólitíska smavisku hans. En hvernig væri að þingið og ríkisstjórnin gerðu eitthvað í málinu? Á virkilega að láta auðkýfinga taka landið undan okkur? Það er nefnilega enginn vandi að stela Íslandi!
Jóhannes Gr. Jónsson