Fara í efni

EKKI REIÐ HELDUR LEIÐ

Air Iceland Connect segjast þau nú heita sem áður hétur Flugfélag Íslands! Mikið er þetta leiðinlegt. Félag sem manni hefur þótt vænt um eða alla vega langað til að þykja vænt um, hrindir manni frá sér með þessum hætti og segist vera að gera þetta til að "tengja" betur! Aumingja fólkið! Ég get varla sagt að ég sé reið, miklu frekar leið yfir því stjórnendur þessa félags, sem nánast heyrir til grunnstoðanna, skuli ekki sjá sóma sinn í því að reyna að passa upp á íslenskuna, því eins og þú bendir þá eru þau að reyna það hjá Samtökum atvinnulífsins.
Sunna Sara