Fara í efni

BURT MEÐ BJARTA (OG) BENSA

Ekkert líst mér lætin á
líklega megum kreppu sjá
dansinn dunar
svo um munar
Íhaldið ætti að fara frá.

Já hérna dunar dansinn enn
djöfulsins lætin muna menn
þá bankarnir fóru
þar litlu og stóru
og aftur kemur að þessu senn.

Gleðjumst á meðan dansinn dunar
í dúndrandi eyðslu svo um munar
ekkert þá spörum
höngum á börum
og aurana felum svo engan grunar.

Í tilefni þess að bónusgreiðslur framkvæmdastjóra hækkuðu um 36,7% milli ára 4,9 milljónir króna í bónus á mann á síðasta ári - Bankinn lofar 430 milljónum í bónusgreiðslur:

Nú hef ég þunga þanka
það er nokkuð víst
Því þarna í Íslandsbanka
Allt um bónus snýst.

Og hver er maðurinn? 

Lygin virðist leiða hann
ljótt er ævi þrefið
Flestir þekkja þennan mann
því alltaf lengist nefið.

Pétur Hraunfjörð