Fara í efni

HVERJIR EIGI AÐ VEFA VOÐIRNAR

Þakka þér grein þína um samvinnuþráðinn sem þú telur vera til staðar í Framsóknarflokknum og að reynslan sýni „að úr honum megi vefa ágætar voðir". Þetta er hárrétt og væri betur ef aðrir kæmu auga á þetta, ekki síst framsóknarmenn sjálfir. Ég held að besti kosturinn nú væri stjórn VG, Framsóknar, Samfylkingar, Bjartrar framtíðar og Pírata. Hinir síðastnefndu vilja fá forseta Alþingis. Gott og vel. Er það ekki ágætt?
Samvinnumaður