Fara í efni

BREXIT ÚRSLIT KALLA EKKI Á MÍN TÁR!

Ég er sammála þér að gráta ekki Brexit úrslitin en enn einu sinni sjáum við inn í hugarheim Evrópusambandsfólksins. Því var sama þótt Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu án þjóðaratkvæðagreiðslu, heimtuðu síðan þjóðaratkvæðagreiðslu þegar viðræðum var hætt! og nú er vælt yfir afgerandi niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi. Seglum alltaf hagað eftir vindi. Hálf bjánalegt þykir mér þetta. Það er hárrétt sem þú nefnir að það er þjónkunin við banka- og peningavaldið sem skýrir andstöðu okkar tárleysingjanna margra við Brexit.
Jóel A.