Fara í efni

BURT MEÐ KJARA-MISMUNUN

Jafnframt að óska þér gleðilegs árs vil eg hvetja þig og alla þingmenn að gefa svonefndum Kjaradómi betri gaum. Þarna virðist vera eitthvað fyrirbæri sem er ekki í neinum tengslum við raunveruleikann. Annaðhvort á að leggja þennan kjaramismunardóm niður eða breyta heimild hans. Legg eindregið til að hér eftir verði honum einungis heimilt að LÆKKA laun þeirra sem betur mega sín í samfélaginu en ALLS EKKI hækka! Við sitjum uppi með allt of fjölmenna yfirstjórn í þessu samfélagi á allt of háum kjörum miðað við venjulegt fólk. Þeir miklu fjármunir sem gætu sparast, mætti verja til heilbrigðismála og menntamála!
Góðar stundir!
Kveðjur úr Mosfellsbæ,
Guðjón Jensson