ORT AF TILEFNI
Nú Framsókn og BF vill gefa því gætur,
að glæpamenn fái atvinnuleysisbætur
því Siggi & Óli
á Kvíó skjóli
af blankheitum sofa nú illa um nætur.
Pétur Hraunfjörð
Nú Framsókn og BF vill gefa því gætur,
að glæpamenn fái atvinnuleysisbætur
því Siggi & Óli
á Kvíó skjóli
af blankheitum sofa nú illa um nætur.
Pétur Hraunfjörð
... Svo er hitt alveg rétt hjá henni að dýrkun á óhamingju og
óhöppum í lífinu keyrir stundum um þverbak. Í tilraunum blaða til
að seljast og tilraunum pólitíkusa að koma sjálfum sér á framfæri.
Grafið er upp allt það sem úrskeiðis hefur farið í lífinu,
veikindi, ofbeldi,nauðganir, barnamissir, lystarstol og annað sem
talið er geta orðið góð söluvara fyrir blað eða pólitíkus. Þetta
getur orðið ósköp hvimleitt.
Gott hjá Björk að vekja máls á þessu.
Vinstri maður
Þakka þér fyrir grein þín um að "skaðvaldinn" viljum við ekki
aftur á Miðnesheiðina og það sem meira er, Ísland úr NATÓ,
strax!
Jón Gr. J.
Guðlaugur, Björk og Bjarni
blaðra í einum kór.
Fjandans frjálshyggju skarni
fullan þekur flór.
Kári
Hersetu viljum helst ekki sjá
né herskáu NATÓ
leiðina.
Skelfingu vekur ef skildum fá
skaðvaldinn aftur á heiðina.
Pétur Hraunfjörð
Athyglisvert er að fylgjast með könnun á þjóðnýtingu á
náttúruperlum sem DV setti af stað eftir að blaðið kynnti grein
þína um þetta efni ... Ég hvet fólk til að taka þátt í þessari
könnun.
Jóhannes Gr. Jónsson
Íhaldið á ekki í vandræðum ef þarf að þjóðnýta eða skerða rétt
landeigenda undir raflínur í þágu stóriðju. En þau umvefja
landeigendur í bómull ef á að rukka almenning. Þetta er
hraksmánarleg afstaða. Ég er sammála þér að rétt okkar til að njóta
náttúrunnar á ekki að skerða eða umbera nokkrum manni að gera sér
að féþúfu það sem við eigum öll, þ.e. náttúrufegurð Íslands. Enginn
á að hafa leyfi til að selja aðgang að henni.
Sunna Sara
Björk á förum ei finnur sátt,
fer að vinna í
sínu.
Sveinn og frúin sigla brátt
suður til Palestínu.
Pétur Hraunfjörð
Sigmundur sér grænar grundir
og gæfu við hvert spor.
Með óskhyggjunni styttir stundir,
stjórninni fram á vor.
Pétur Hraunfjörð
Björk á förum blessun stór
batnar fólksins hagur.
Þessu fagnar þjóðarkór
þakkarverður dagur.
Kári
Eignunum stela oft frá þér,
endar þýfi í sölu.
Mafíustarfsemi mest er hér,
miðað við höfðatölu.
...
Kári
Stjórnin líður undir lok
er lýkur þessu ári
Saddur er ég uppí kok
á Samherja fári.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Hér yfirstéttin er ávalt hyllt
og hafin upp til skýja
Landið er orðið lúið og spillt
líklega best að flýja.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Spilltir leika landann illa
mútuveröld lifum í
Tortóla banka-bækur fylla
og Bjarni er líka í því.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Það sinnir ekki þjóðarvakt,
það við skulum muna.
Alþingi gengur alveg í takt,
við íslensku mafíuna.
...
Kári
Borgaryfirvöld eru orðin ansi hreint verseruð í að svíkja borgarbúa í flugvallarmálinu og mér sýnist Sigurður Ingi vera að slípast til. Hann var bara sæll á fundinum með Degi, sagðist fara að vilja “sérfræðinga”, skítt með vilja borgarbúa.
Jóel A.
Andrés stóð þar utangátta
allir höfuðið hrista.
Lengi við krata leitaði sátta
lítur nú til Sósíalista.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Já alveg er ég orðinn bit
Því ekkert Kötu gengur
Stefnir því í stjórnarslit
ekki starfhæf lengur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Björgólfur með barnslegt hjarta
blygðunarleysi vill aumu skarta
Þorstein vill verja
mútur burt sverja
og spillingu búa framtíð bjarta.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Þvætti kemst á þurrt í Sviss,
þangað svo flytur í pokum.
Ákærir sjálfan þig sigurviss,
sækir og dæmir að lokum.
Kári
... Það er að sjálfsögðu allt rétt athugað sem Styrmir Gunnarsson segir um tilurð framsals í sjávarútvegi. Hann bendir á þá staðreynd að framsalið komst á í stjórnartíð félagshyggjuflokka, með lögum nr. 38/1990. Ýmsir vöruðu við þessu á þeim tíma. Meðal þeirra var fólk í minnihluta sjávarútvegsnefndar Alþingis. Um þetta sagði m.a. ...
Lesa meiraþessari grein verður rýnt í raforkutilskipun ESB nr. 2019/944[i] og er hluti af fjórða orkupakka Evrópusambandsins. Tilskipun þessi inniheldur alls 74 lagagreinar, auk fjögurra viðauka. Það afhjúpaðist í aðdraganda innleiðingar þriðja orkupakkans á Íslandi að samsæri þagnarinnar ríkti á milli flestra fjölmiðla og Alþingis í málinu. Það er með öðrum orðum unnið skipulega að því að halda frá almenningi (kjósendum) upplýsingum og fyrirætlunum sem miklu varða m.a. um orkumál Íslendinga. Síðan er því borið við að ...
Lesa meiraEkki skal fella dóma fyrirfram í máli Samherja í Namibíu. En þáttur Kveiks og umfjöllun Stundarinnar um málið sýndist vel unnin, trúverðug og áhrifamikil. Málið er stórt hneyslismál í Namibíu ekki síður en hér og ráðherrar segja af sér svo það snýst áreiðanlega um raunverulega hluti. Hvað sem sannað verður um lögbrot og sekt í einstökum dæmum segir málið heilmikla sögu, m.a. um auð og arðrán, völd og valdaleysi. Eftir því sem meira rúllast upp þetta mál mun íslenska eignastéttin kappkosta betur að stilla utanlandsrekstri Samherja upp sem algeru sértilfelli...
Lesa meiraÞann 10. október var forseti Bólivíu, Evo Morales, neyddur til að segja af sér, að kröfu yfirmanna hers og lögreglu, tveimur vikum eftir að hann var lýstur sigurvegari kosninga. Það voru tvær vikur upphlaupa og ofbeldis. Íslenska ríkisútvarpið lýsti þessu sem sigri lýðræðisins: „Mikil fagnaðarlæti urðu á götum höfuðborgarinnar La Paz eftir að Morales tilkynnti um afsögnina.“ Sterkasti vitnisburður RÚV um þennan „sigur lýðræðisins“ var yfirlýsing ákveðinna samtaka: ...
Lesa meiraUppkaup erlendra stóreignamanna á íslensku landi vekur kurr í samfélaginu. Sigurður Ingi Jóhannson segir að endurskoða þurfi lög um jarðeignir útlendinga og setja „stífa umgjörð um jarðamál“. Slík orð hafa svo sem heyrst áður, en fátt gerist – og á meðan er landið áfram selt í bútum. Í sveitinni minni fyrir norðan var innsti bærinn nýlega seldur Ameríkönum (Eleven Experience) sem þegar eiga margar jarðir í Fljótum og Tröllaskaga og stunda þar ...
Lesa meira... Sýrlandsstríðið er staðgengilsstríð að forminu en að innihaldi er það innrásarstríð heimsvaldasinna gegn fátæku landi. En sagan um þetta stríð er saga af vestrænni fjölmiðlaeinokun og fréttastýringu sem slær öllum fyrri stríðum við, höfum við þó oft séð það svart. Hin stýrða útgáfa snýr öllum hlutum á hvolf: samkvæmt henni snýst stríðið um „uppreisn alþýðu“ gegn harðstjóra. Vestræn afskipti eru þar lítil og eingöngu í mannúðarskyni ...
Lesa meira