Fara í efni

STOLT AF LEIKSÓLANUM!

Þakka þér fyrir greinina um leikskólann og ljóðin og að  minna á hve mikilvægt það er að búa börnum menningarlegt uppeldi. Þarna gegnir leikskólinn lykilhlutverki og þú nefnir dæmi þar sem einstaklega vel er gert. Það yljaði mér um hjartarætur að lesa þessa grein og það vakti stolt með mér innra með sem leikskólakennari. Svona gerast hlutirnir þegar vel er að verki staðið - en þetta gersit ekki af sjálfu sér!
Leikskólakennari