Fara í efni

AÐ HAGNAST Á SPILAFÍKN

Þakka þér fyrir að gefast ekki upp í baráttunni gegn spilakössum þótt á brattann sé að sækja. Ég veit að miklir peningahagsmunir eru í húfi hjá félagslega sterkum aðilum í þjóðfélaginu, Háskóla íslands, Rauða Krossinum og fleirum. Þess vegna er það ekki til vinsælda fallið að berjast gegn þessari ógeðfelldu iðju. Ég þekki þennan vanda af eigin raun úr minni fjölskyldu og finnst ömurlegt að horfa upp á ábyrgðarleysi og vesaldóm þingmanna í þessu máli.
Þingmenn verða að gera sér grein fyrir því að spilafíkn er raunveruleg fíkn og að það er verið að gera út á þennan sjúkdóm í hagnaðarskyni eins og þú segir Ögmundur.
Móðir tvítugs spilafíkils