Fara í efni

MISNOTKUN VERKFALLSRÉTTAR

Sú var tíðin að fátækt verkafólk tók sér verkfallsrétt. Það átti engu að tapa. Það var jafn illa sett á ofurlágu laununum eða hafa ekkert. Nú er svo komið að venjulegt launafólk, flest á fremur lágum launum vill ekki taka þátt lengur í verkföllum: Það á það á hættu að standa ekki í skilum og þátttaka í verkföllum reynist því dýrari leið að betri kjörum en að sætta sig við lágu launin áfram. Aftur á móti hafa hátekjumenn tekið verkfallsvopnið upp á sína arma til að knýja á stórhækkun tiltölulega hárra launa. Verkfallsþáttaka þeirra skiptir þá nánast engu þó svo að þeir verði af einhverjum tekjum nokkra daga.
Hins vegar er heil atvinnugrein, ferðaþjónustan í heild, sem verður fyrir verkfallsvopni hálaunamannanna. Ferðaþjónustan hefur farið vaxandi og má ekki undir neinum kringumstæðum grafa undan henni. Mér finnst núverandi ríkisstjórn vera nokkuð reikul og ráðvillt í þessu máli. Innanríkisráðherrann Hanna Birna hefur oft verið nokkuð stóryrt og hvöss á köflum. Núna setur hana nánast hljóða og það eina sem hún lætur hafa eftir sér er eins og smátíst í litlum fugli að vonandi leysist þetta einhvern veginn! Hvar er stóri kjafturinn núna á þessari konu? Hvers vegna hótar hún ekki öllu illu, verði ekki samið strax verði lögum beitt að stoppa verkfallið og forða landinu frá stórtjóni?
Varðandi verkfallið má spyrja: Er um skemmdarverk að ræða eða telst þetta vera eðlileg leið að hækka laun hátekjumanna? Í mínum huga er þetta MISNOTKUN verkfallsréttarins. Verkföll er mjög gamaldags aðferð í þeirri viðleitni að hækka launakjör. Því verður að finna aðrar leiðir til að leysa kjaradeilur. Kannski gæti gerðadómur verið góð leið þar sem deiluaðilar velja sjálfir til jafns í gerðadóminn og ríkissáttasemjari verði oddamaður.
Þessi uppákoma lýsir vandræðagangi þessarar ríkisstjórnar betur en nokkuð annað. Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs er greinilega með hugann úti í einhverjum óskiljanlegum þrætumóum í stað þess að stjórna landinu með hagsmuni þjóarinnar allrar í huga. Góðar stundir!
Guðjón Jensson