Fara í efni

GEYSIR HÁLF TVÖ Á LAUGARDAG EF EKKERT HEFUR BREYST

Sæll Ögmundur og kærar þakkir fyrir að beita þér í Geysismálinu. Ég setti upp atburð á facebook fyrir mótmælin næsta laugardag, 12. apríl, svo fólk geti skráð sig. Hvað er að frétta af lögbannskröfunni sem var tekin fyrir sl. fimmtudag? Og verður þú ekki þann 12. hjá Geysi? Fb atburðurinn er hér: https://www.facebook.com/profile.php?id=499041193470520
Kristín Elfa Guðnadóttir

Þakka þér fyrir þetta Kristín Elfa. Jú, ef ekkert hefur breyst þá verð ég við Geysi half tvö á laugardag!
Ögmundur