Fara í efni

GEYSIR Á LAUGARDAG

Ég held að gjaldtakan við Geysi og tilburðirnir fyrir norðan um að selja inn á Dettifoss sé það yfirgengilegasta sem upp hefur komið á Íslandi í langan tíma og er þó af ýmsu að taka. Hvað er sýslumaðurinn á Selfossi að hugsa með því að neita lögbanni. Varla er hann að hugsa um flokkinn sinn, alla vega er hann þá ósammála Bjrna formanni sem var góður í þinginu eins og þú bendir á. Samt eru linkuleg viðbrögð stjórnvalda og lögreglu illskiljanleg.  Verð með þér á laugardag klukkan half tvö við Geysi. Ég hvet fólk til að mæta!
Jóhannes Gr. Jónsson