AÐ HRUNI KOMINN 2014
... Nú er alltof langt síðan ég skrifaði þessari ágætu síðu
bréf. Best að breyta því nú. Það er hlutverk sósíalista og annars
vinstra fólks að tala fyrir hlut minnihlutahópa. Þar er vel gert í
flestum tilfellum. Of margir hafa þó tileinkað sér tískumálefni
eins og skipulagsmál í bæjarmálum og aðrir sofa jafnvel værum
pólitískum svefni þrátt fyrir að hafa getuna og kraftinn til að
vinna að mikilvægum málefnum. Það er þó annað mál. Það sem ég vil
þó koma á framfæri er þakklæti til þeirra einstaklinga og hópa
sem vinna að málefnum minnihlutahópa. Við sjáum sjálfsprottin
félagasamtök bjóða heita súpu og kaffi í miðbænum, matargjafir á
samfélagsmiðlum til þess fólks sem þarf, rótgróin samtök á borð við
Mæðrastyrksnefnd sjá um ...
Ágúst
Lesa meira
Þakka þér fyrir grein þína um Icesave hér á síðunni. Því má bæta
við að vextirnir sem við hefðum greitt af Icesave hefðu verið
í erlendum gjaldeyri, sem við áttum ekki til og eigum ekki
enn!
H.J.
Lesa meira
Ég er því algerlega sammála að ríkið á að kaupa
Grímsstaði á Fjöllum. Þetta er spurning um framsýni og fyrirhyggju.
Þessar miklu jarðir í kraganum umhverfis hálendi Íslands og
víðernin eiga að vera í almannaeign. Þessar jarðir eiga
ekkert sameiginlegt með hefðbundnum landbúnaði. Þetta eru
útivistarsvæði en viðkvæm og þarfnast verndar.
Sunna Sara
Lesa meira
Er þessi skagfirska skemmtinefnd
með skaðlega bilaða húmorskennd?
leggja til færslu
á Landhelgisgæslu
og vegagerðina í Skagafjörð.
Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Á maður að trúa því að nú hilli undir að Guðmundar- og
Geirfinnsmálin verði tekin upp að nýju? Ég trúi því ekki fyrr en
ákvörðun liggur fyrir. Hitt veit ég að þetta mál hefur hvílt á
þjóðinni í 40 ár því innst inni telja flestir að rangir dómar hafi
verið felldir. Óskandi væri að þessi ljóti blettur verði hreinsaður
úr sögubókum íslenskrar réttarfarssögu.
Sigrún Jónsdóttir
Lesa meira
Ragnheiður Elín með Ráðherravald
reynir að að lögleiða glápugjald
öll þekkjum farssann
um náttúrupassann
en hvar lendir almúgans eignarhald?
Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Stuðningsmenn náttúrupassa segja að hugmyndin að baki honum sé
að "þeir borgi sem njóti". Þetta voru meginskilaboð Björgólfs
forstjóra Icelandair á afmælisráðstefnu félagsins árið 2012, og
Ragnheiður Elín hefur margoft vísað til þessa. Í þessu virðast
felast innstu rök náttúrupassans sem sótt er til þegar virkilega á
að sannfæra alþýðu manna um að þetta sé sanngirnismál. Sjálfur
þekki ég ekki annað en að greiða fyrir það sem ég kaupi á markaði
og er því engan veginn andsnúinn því fyrirkomulagi að greiða og
njóta. Spurningin er hins vegar að hve miklu leyti þessi frasi er
notaður sem leiðsögn við að skipa hvernig við förum með verðmæti í
samfélagi okkar. Það er alþekkt fyrir austan haf og vestan að
...
Kjartan
Lesa meira
Ragnheiður Elín var í Kastljósinu í kvöld og endurtók það sem ég
heyrði hana segja í útvarpinu um helgina, að hún hafi ekki "fattað
upp á" ferðamannapassanum. Hvað á maður að halda þegar sá sem
dregur vagninn neitar ábyrgð á leiðangrinum? Það fyrsta sem manni
kemur í hug er að þar tali kúskur, sendur af stað nauðugur. Getur
verið að íslenskir ráðherrar séu svo aumir? Getur verið að
ráðherrann upplifi sig í raun sem fórnarlamb í þessu máli - að hún
hafi verið send í vonlausan leiðangur sem hún verður að klára,
þrátt fyrir að það baki henni óvinsældir. Þá ...
Frímann
Lesa meira
Sæll Ögmundur! Bíð spennt eftir að þú úttalir þig um
Náttúrupassann.
Kveðja,
Edda.
Lesa meira
Ágæti þingmaður. Nú þegar ríkisstjórnin ætlar að voga sér að
opna frumvarp sem gengur í berhögg við 1 gr um stjórn fiskveiða og
komið er í ljós að gengur einnig gegn lýðræðislegum rétti
þjóðarinnar að setja og afnema lög ætlar þú þá að leggjast á sveif
með mönnum sem eru tilbúnir hrifsa til sín öll réttindi yfir
sjávarauðlindinni á kostnað þjóðarinnar? Eða ætlar þú að standa við
bakið á þjóðinni sem enná ný á í þorskastríð? Stríði við
vanþakklátt fólk sem kann ekki að ,,,,
Einar Már Gunnarsson
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum