Fara í efni

STÖÐVAÐU GRISJUN Í ÖSKJUHLÍÐ!

Sæll.
Ef þú ert ábyrgur fyrir yfirvofandi grisjun í Öskjuhlíðinni þá verðuru að stöðva það. Þetta er út í hött! Geriru þér ekki grein fyrir mikilvægi skóga? Við ættum að eyða mun meiri orku og peningum í skógrækt. Við ættum að vera að kenna börnum samfélagsins að rækta. Eina gáfulega leiðin til framtíðar er ræktun skóga, matvara og annarra nytjaplantna. Börn þurfa að læra að rækta eigin mat. Við þurfum að sporna gegn veruleikafirringu barnanna okkar! Ekkert er mikilvægara en það sem vex, og þá á ég auðvitað ekki við hagvöxt. Þetta ætti að skipta þig máli, og í raun alla aðra sem vilja ekki sjá bæinn deyja hægt og rólega.
Elskaðu moldina Ögmundur. Ekki fella þessa skógarögn sem við eigum hér í Reykjavík. Eigðu góðan dag. Ástar og framfarakveðjur,
Konráð Bragason