Fara í efni

SKERPA TIL VINSTRI

Sæll minn kæri vinur og félagi. Í dag átti ég í fiskbúðinni tal við manneskju sem fussaði og sveiaði yfir því að fangaverðir og helstu ráðgjafar Bjarna Ben væru ekki löngu búnir að frelsa hann frá eymdinni, leyfa honum að hverfa til nýs starfsvettvangs og sleppa dýrinu lausu. Hanna Birna er klárlega þetta dýr en klárlega ekki með lausnirnar, ef hún væri það þá væri hún klárlega að ástunda óheilindi með því að vera ekki búin að kynna innviðunum þær. Óánægður með Katrínu og hennar afstöðu í ESB. ÞAÐ er ekki málefni sem sagt er með brosi á vör að þjóðin muni redda því, þessi afstaða var atkvæðafækkandi. Það eru skautar sem skerpa þarf og þar á meðal vinstri skautinn þinn. Meira síðar.
Félaga kveðja ,...
Óskar K Guðmundsson fisksali