Fara í efni

SKÁSTI KOKTEILLINN

Í grein þinni í DV í dag gleymir þú einu stjórnarmynstri sem mér finnst hvað augljósast: Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Björt framtíð. Þetta er ekki gæfulegur kokteill en að mínu mati sá líklegasti. Þetta yrði Evrópusambandsblanda. Því Evrópusinnar í Sjálfstæðisflokknum myndu styrkjast í þessu sambýli.  Ég er sammála þér að skásta blandan yrði VG, Samfylking og Framsókn. Rök þín fyrir þeim kokteil í DV greininni eru ágæt og get ég skrifað upp á þau.
Grímur