Fara í efni

HUGSUM TIL FRAMTÍÐAR

Sæll Ögmundur.
Ég er mjög ánægður með þitt framlag varðandi endurskoðun á vegarlagningu á Álftanesi þar sem þú tekur undir með þeim sem vilja vernda Gálgahraun. Það hlýtur að vera hægt að endurbæta núverandi veg þannig að komast megi hjá því að skemma þá náttúruperlu sem hraunið er. Óspillt náttúra verður sífellt verðmætari með auknu þéttbýli. Við verðum að hugsa til komandi kynslóða hvað þetta varðar.
Bestu kveðjur,
Björn Guðmundsson