Fara í efni

FLEIRI BÍÐA Í STARTHOLUNUM!

Góðan daginn Ögmundur. Vildi koma á framfæri stuðning við ákvörðun þína að láta endurskoða afstöðu ríksstjórnarinnar til "Nupomálsins". Þarna er greinilega um að ræða strandhögg kínverskra stjórnvalda, en ég þykist vita að fleiri kínverjar bíði í startholunum og muni í framhaldi, ef fallizt verði á beiðni Nupos, fara fram á leyfi til kaupa eða leigu á íslenzku landsvæði. Þá þykist ég vita að meirihluti þjóðarinnar stendur með þér.
Brynjólfur Eyvindsson