Fara í efni

Í MUN AÐ BANNA?

Sæll Ögmundur! Síðan hvenær hafa hljóðdeyfar verið leyfðir á Íslandi?? En þér virðist vera í mun að banna þá ásamt öðru...
Stefán K

Sannast sagna er ég ekki maður boða og banna! Því fer reyndar fjarri. Ég vil hins vegar ekki horfa upp á íslenskt samfélag vopnvæðast og að þeir sem síst skyldi komi til með að bera vopn. Markmiðið er hins vegar ekki að bregða fæti fyrir aðra en mikilvægt er að við höfum sameiginlegan skilng á mikilvægi þess að taka af alvöru og festu  á ofbeldi í samfélagi okkar.
Kv., Ögmundur