Fara í efni

VIÐ HÖFUM REYNSLUNA!

Sæll og blessaður Ögmundur vinur minn. Styð þig 100% í að hafna kaupum kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Það á alls ekki að leifa útlendingum að kaupa jarðir á Íslandi. Ef þú hefðir samþykkt þessi kaup þá væri búið að missa tökin á þessum málum endanlega. Við höfum reynslu af kaupum Íslendinga sem stofnuðu einhver skúffu fyrirtæki og lugu hér út peninga sem skipta hundruðum miljóna til að kaupa upp jarðir út um allt land sem endaði síðan í fanginu á bönkunum og almenningur verður trúlega að borga. Tek ofan fyrir þér að taka þessa ákvörðun.
Með góðri kveðju,
 Ólafur Hallgrímsson