NÝ STEFNA?
Sæll Ögmundur.
Bæjarstjórnarmeirihluti VG og SF í Hafnarfirði samdi nýverið við
erlendan banka um endurfjármögnun á eldri lánum sem bærinn hafði
ekki staðið í skilum við í nokkurn tíma. Bærinn og erlendi bankinn
(eða skilanefnd hans) hafa nú náð samkomulagi um lánin gegn því að
Hafnarfjarðarbær veðsetji 15% hlut sinn í hinu opinbera fyrirtæki
HS-Veitur. Fyrirtækið sem er í almannaeigu og hefur þann tilgang að
sjá um dreifikerfi rafmagns á Suðurnesjum og í Hafnarfirði. Er
þetta ný stefna hjá Vinstri Grænum að veðsetja almannafyrirtæki hjá
erlendum aðilum? Eða munt þú sem innanríkisráðherra beita þér gegn
því að önnur almannafyrirtæki verði veðsett erlendis?
Kv.
Hermundur