AÐ HRUNI KOMINN September 2011
Því miður vil ég ekki koma fram undir nafni en síðueigandi getur
hæglega séð hver ég er. Málið er að ég sótti um réttaraðstoð til
Innanríkisráðuneytisins til að fara fyrir héraðsdóm og lýsa mig
gjaldþrota. Ráðuneytið hafnaði erindi mínu þar sem galþrotabeiðni
væri ekki dómsathöfn. Þetta er beinlínis rangt. Ráðuneytið veitir
réttaraðstöð við nauðasamningsumleitanir sem er rekin eftir sömu
lögum á sama hátt. Þetta er líka í margítrekað álit Umboðsmanns
Alþingis sem hefur oft hnippt í sama ráðuneyti um rétt borgaranna
til ...
Nafnlaus
Lesa meira
... Já stundum er bara sópað undir teppið að fela rykið en
afsakanir fyrrum saksóknara Efnahagsbrotadeildar RLS eru æði þunnar
en sem slíkur ber hann ábyrgð á allri deildinni en
Ríkislögreglustjóri hefur yfirstjórnina á höndum. Þetta mál er þess
eðlis að gera á stjórnsýslu úttekt á embættinu og
Efnahagsbrotadeild um hvar þröskuldurinn hafi í raun og veru verið.
Réttilega eru færustu menn hjá Séstökum Saksóknara en það kemur
...
Þór Gunnlaugsson
Lesa meira
...Það er ekki hægt að réttlæta það að selja landið undan börnum
okkar og barnabörnum. Komandi kynslóðir eiga sama rétt og við, eiga
land heilt og óskipt.
Þór
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Verkalýðsdegi að vanda hér fögnum
en samstöðuna nú almennt mögnum
sjáum erfiða tíma
við verðlag glíma
og kaupmáttarskerðingum höfnum.
Spillingin leikur enn lausum hala
líka hjá stjórnarliðinu
Þeir eignir okkar undir sig mala
og eru með í spilinu.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Hér vandræða tíma og mikla vá
vonbráðar fáum að horfa upp á
stjórnin þá fallin
og Bjarni kallinn
og langflestir vilja kosningar fá.
Já ef ég ætti banka bréf
bráðlega yrði ríkur
Engin fátækt ekkert þref
eymdinni allri líkur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef vantar fé í villta neyslu,
velgjörðirnar munum.
Bananasýslan bauð í veislu,
bankaræningjunum.
Gráðugir sýnast sumir menn,
sækja pund og franka.
Mafíustarfsemi magnast enn,
margir rændu banka.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum