Fara í efni

UM BLINDAN HJALLAHÁLS

Blessaður Ögmundur.
Í tilefni af fréttatilkynningu frá þér nýlega um veginn vestur sendi ég þér hlekk á grein sem ég birti á vef BB. Greinin er skrifuð í flýti eftir að ég heyrði fréttina en samt held ég á viðtökunum að hún lýsi hug margra. Ég hef átt marga erfiða ferð um Hjallaháls á liðnum árum enda er hann og verður blindur í norðaustanáttinni sem er ríkjandi þarna á veturna, auk þess sem hálka er þarna mjög oft. Láglendisvegur er nauðsynlegur þarna. Slóðin er : http://bb.is/Pages/82?NewsID=168790
Með kveðjum,
Pétur Bjarnason