Fara í efni

STENDUR VÖRÐ UM HAG ÞJÓÐARINNAR

Þakka þér Ögmundur enn og aftur fyrir að standa vörð um hag þjóðarinnar þegar aðrir stjórmálamenn láta glepjast af erlendu gulli, óháð því hvernig það er fengið... Vona að þú standir sem fastast á því að koma í veg fyrir sölu á Grímsstöðum til erlendra aðila. Það má vera að Nobu gangi ekkert illt til með kaupum þessum, en verði þau leyfð þá er viðbúið að fjöldi annarra auðkýfinga fylgi í kjölfarið. Gangi kaupin eftir þá eru engin rök fyrir því að koma í veg fyrir aðrar slíkar sölur. Þess utan er verðið, 3,33 milljónir á ferkílómeterinn allt of lágt, hreinasta brunaútsöluverð ! Minnumst meðferð kínverja á íbúum Tíbet.
Elín Laxdal