MEIRA LÝÐRÆÐI!
Ögmundur.
Þú hefur barist fyrir lýðræðislegri atkvæðagreiðslu og átt heiður
skilið fyrir þá baráttu, og öflin sem vinna gegn slíku réttlæti
vinna hörðum höndum að því að slá öll þín baráttuvopn úr þínum
höndum! Án stuðnings þjóðarinnar, þingsins og ráðherranna er
lífsins ómögulegt fyrir þig einan að breyta óréttlæti í réttlæti.
Hvers vegna skyldi þingið og ráðherrarnir hafa sett sig upp á móti
óbreyttu frumvarpi þínu um aukið lýðræði sveitarfélaganna, með
kosningu um umdeild mál? Gangi þér og okkur öllum vel að berjast
fyrir auknu lýðræði.
M.b.kv.
Anna